Þjóðviljinn - 03.11.1983, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 03.11.1983, Blaðsíða 4
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtiidagur 3. nóvember 1983 DIOOVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyf- ingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. EramKvæmdastjóri: Guörón Guðmundsdóttir. Jtitstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson. Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friöriksson. Auglysingastjóri: Sigríöur H. Sigurbjörnsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Blaðamenn: Auöur Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason, Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson. íþróttafréttaritari: Viðir Sigurðsson. Utlit og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson, Þröstur Haraldsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Magnús Bergmann. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Auglvsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónssan. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Sfmavarsla:-Sigríður Kristjánsdóttir, Margrét Guðmundsd. Húsmóðir: Bergljót Guöjónsdóttir. BíLstjóri: Olöf Sigurðardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir Útkgyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síðumúla 6, Reykjavík, sjmi 81333. Umbrot og setning: Preínt. Prentun: Blaðaprent h.f., Afmœliskveðja til Morgunblaðsins Morgunblaðið átti afmæli í gær. í sjö áratugi hefur það endurspeglað hræringarnar í íslensku þjóðlífi og túlkað atburðarás heimssögunnar. Saga þess er um leið saga vor. Veldi Morgunblaðsins er slíkt að enginn ís- lendingur getur umflúið áhrif þess - hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Sjónvarp, útvarp og Morgunblað- ið hafa um árabil verið áhrifaríkustu þættirnir í íslenskri fjölmiðlun. Dagblað sem hefur hlotið slíkan sess meðal þjóðar axlar mikla ábyrgð. í ölduróti tímans hefur Morgun- blaðinu tekist misjafnlega að rísa undir þeirri skyldu. Á fyrstu árunum veitti blaðið ferskum straumum frjáls- legs fréttaflutnings inn í íslenska umræðu. Síðan keyptu fáeinar kaupmannaættir blaðið og tóku að beita því í stríðinu við SÍS og vinstri öflin. Sjálfstæðisflokkurinn gerði Morgunblaðið að baráttutæki á skákborði stjórnmálanna þar sem tekist var á um völd og stefnur. Meginhluti ævi sinnar hefur Morgunblaðið verið málgagn í flokkslegum skilningi. Ólafur Thors, Bjarni Benediktsson og Geir Hallgrímsson voru andlegir leið- togar blaðsins. Daglega voru síður Morgunblaðsins sverð og skjöldur þessara flokksforingja. Á síðari árum hefur hin flokkslega einhæfni þó verið víkjandi þáttur í fari blaðsins. Morgunblaðið hefur tekið að birta greinar frá fólki með ólíkar skoðanir. Forystumenn annarra flokka nota blaðið sem vettvang fyrir greinaskrif - þótt enn þurfi þeir oft að bíða lengur og fái lakari stað í blaðinu en þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Pessar breytingar eru tvímælalaust til bóta. Pær gefa tilkynna að stjórnendur blaðsins vinni markvisst að því að gera Morgunblaðið að opnari vettvangi fyrir innlenda umræðu. í blaðinu fái að endurspeglast þeir skoðanastraumar og þær fréttaáherslur sem mestu skipta á hverjum tíma. Énn setja Stjálfstæðisflokkurinn og hagsmunir atvinnurek- enda þó sterkan svip á efnisþætti blaðsins. Morgun- blaðið verður því að gera enn betur ef það ætlar að ná því marki að verða í raun frjáls fjölmiðill. f*ótt meðferð á innlendu efni hafi batnað mjög í Morgunblaðinu þá er því miður ekki hægt að segja hið sama um áhersluþættina í erlendum fréttum og frétta- skýringum. Þar ríkir enn sama kaldastríðssvartnættið I og fyrir áratugum síðan. Einfaldur samanburður á er- j lendum fréttaáherslum stórblaða á Norðurlöndum og í j Vestur-Evrópu og Bandaríkjunum annars vegar og í daglegum frásögnum Morgunblaðsins af því sem er að • gerast í veröldinni hinsvegar sýnir hve óralangt er í land ' varðandi hliðstæða frjálsræðisþróun í meðferð blaðsins! á heimsfréttum. Um leið og Ejóðviljinn óskar Morgunblaðinu til j hamingju er rétt að bera fram þá afmælisósk og lýðræð-, islegur styrkur stjórnenda blaðsins verði nægilega þroskaður til að hrinda í framkvæmd auknu frjálsræði í erlendum fréttum og fréttaskýringum. f»að getur aldrei orðið íslenskri þjóð til gæfu að öflugasta dagblaðið í landinu sé bundið á klafa þeirrar heimsmyndar sem mestu afturhaldsöflin í veröldinni kappkosta að varð- veita. Blazer í félagsmálapakka Albert Guðmundsson hefur nú skýrt frá því á Alþingi að það hafi ekki verið nein tilviljun að ríkisstjórnin lét þjóðina gefa forsætisráðherranum Blazer. Bíllinn hafi verið félagsmálapakki í sama anda og fæðingarorlof, veikindadagar, öryggisaðbúnaður og önnur réttindi voru fyrir nokkrumárum veitt hinum lægst launuðu. Eessi Tívolí-stjórn hefur greinilega sérstæða hæfileika til að láta spéspegilinn ráða gjörðum sínum. ór klippt Wp' cng ■Bnfa verió Hm, hvcnær jjSfflffjr áfram rm ó H'a byggingar- HKefnt er ad því að Hh prenLsmiðjuhús Bunblaðsins verði íí notkun á rniöju la sumri og þá hefjist [ramt prentun blaðs- nýrri prentvél, sem ið hefur fest kaup á í talandi. irbuningur bygg arframkvæmda tu umræður um nyjar Kaframkvæmdir hófust i iArvakurs hf., útKáfufé- lorKunblaðsins, í ágúst ksógn Haraldar Sveins- H framkvæmdastjóra ^kðsins, er sýnt var, að jiá var áformað að ekki komast fyrir i ^^^tilaÓMns við Aðal- Stjórn Árrakure hf., útgáfufélags MorKunblaðsina. Sitjandi, fri vinntri, gtjórnarmennirnir. Ólafur Johnson, Gunnar Hana HaJif(ríntsson, formaóur, Berffur Gialaaon og Leifur Sveinanon. Standandi, frá vinatrí: Haraldur Sreinason, íramkvæn>dagtjór Hiartaraon, Brynjólfur Bjamason og Björn Tbore. Gamla kapítalið Morgunblaðið heldur upp á 70 ára afmælið m.a. með því að birta mynd af stjórn Árvakurs h.f., út- gáfufélags blaðsins. Hún segir sína sögu. Þar birtast fulltrúar hins gamla og gróna verslunar- kapítals í Réykajvík. Hið eina sem rýfur þá mynd eru handhafar hlutabréfa Valtýrs Stefánssonar fyrrum ritstjóra blaðsins. En þarna eru samankomnir í stjórn og á mynd H. Ben og Co, O. Johnson og Kaaber, Garðar Gíslason h.f., Völundur h.f. og Ólympía. Geir Hallgrímsson hefur sem fulltrúi H. Ben. verið stjórnarfor- maður í Árvakri h.f. um leið og hann hefur gegnt formennsku í Sjálfstæðisflokknum. Hann gat því með góðri samvisku sagt sem forsætisráðherra í Sovétheim- sókn sinni að árásir Morgun- blaðsins á Sovétviðskiptum væru honum óviðkomandi, því að Morgunblaðið væri ekki málgagn Sjálfstæðisflokksins. Ekki getum við því skóna að stjórn Arvakurs sé með nefið niðri í ritstjórnarstefnu Morgun- blaðsins frá degi til dags. Hins- vegar er Ijóst að það kapítal sem stendur að baki blaðinu hefur mótað heildarstefnu þess um langa hríð. Þannig hafa fulltrúar hinna nýríku og fyrirtækja sem eru að brjóta sér braut í sam- keppni við gömul og gróin verslunar- og framleiðslufyritæki jafnan verið óánægðir með skrif Morgunblaðsins. Umbrötin kringum Vísi og Dagblaðið á sín- um tíma áttu sér ekki síst rætur í átökum að tjaldbaki milli hagsmuna gamalla og nýrra fyrir- tækja á Reykjavíkursvæðinu, fyrst og fremst í innflutnings- og verslunargeiranum. Innan flokks- hlutverkið Morgunblaðið hefur stutt stjórnarformann sinn innan Sjálf- stæðisflokksins gegnum þykkt og þunnt. Og þó ekki sé hægt að kalla það málgagn flokksins hef- ur það viljað ráða og hafa áhrif á menn og málefni innan flokksins. Enn er það við sama heygarðs- hornið og kemur það glöggt fram í því hvernig línur hafa verið lagðar fyrir landsfundinn sem hefst í dag. Tilkynnt hefur verið að næsti formaður verði ekki haf- inn upp til skýjanna eins og stjórnarformaðurinn, heldur bíði hans blaðafulltrúahlutverk fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Morgun- blaðið hefur áskilið sér rétt til þess að lyfta öðrum á stall en for- manninum í nánustu framtíð. Það hefur verið nokkur hefð fyrir því í Sjálfstæðisflokknum að varaformaður flokksins hefur fengið meðferð eins og væntan- legt formannsefni. Þrátt fyrir alla andúð sína á Gunnari Thorodd- sen var hann jafnan titlaður vara- formaður í Morgunblaðinu og sýndur sómi, þá sjaldan að hann kvaddi sér hljóðs í varaformanns- tíð sinni á síðum Morgunblaðs- ins. Öðruvísi hefur blaðinu farist við núverandi varaformann Frið- rik Sophusson, sem farið er með eins og hvern annan þingmann á síðum blaðsins og sjaldnast hefur orðið þeirrar virðingar aðnjót- andi að vera nefndur varafor- maður í Mogga eins og honum ber. Málaliðið Eimreiðarklíkan — Þorsteinn Pálsson, Davíð Oddsson, Kjart- an Gunnarsson, Magnús Gunn- arsson, Brynjólfur Bjarnason og Baldur Guðlaugsson - hefur gepgið í verkin fyrir gamla kapít- alið í Sj álfstæðisflokknum, sem Morgunblaðinu stýrir. Fulltrúar gamla kapítalsins gerast þreyttir og tími er runninn upp fyrir kyn- slóðaskipti. Stjórnmálaforingjar leynast ekki í kringum fyrirtækin og þá er leitað til málaliða lög- fræðinga, sem geta gætt hagsmunanna sem atvinnumenn. Kapítalið í stjórn Árvakurs er mikils metandi í Sjálfstæðis- flokknum, og Morgunblaðið hef- ur yfirburði til lengdar hvort sem það nær sínu fram með þögn eða fyrirgangi. -ekh Uppljóstrun Observer Opinberar lygar eru ekkert skárri heldur en brigðmælgi ein- staklinga. Það hefur verið opin- ber staðhæfing af hálfu NATO- yfirvalda, að stjórnmálaleiðtogar í Vestur-Evrópu hafi verið fyrstir til þess að biðja um ný Evrópu- atómvopn, stýriflaugar og Pers- hing II. Með því hafi þeir verið að biðja Bandaríkjastjón um að svara ógninni sem stafaði af SS- 20 eldflaugum Sovétmanna. Um miðjan Október upplýsti hinsvegar þreska blaðið Obser- ver, að samkvæmt bandarískum leyndarskjölum væri ákvörðunin um staðsetningu nýrra flauga í Vestur-Evrópu ekki í neinum tengslum við SS-20 flaugunum. Því hefur verið haldið staðfast- lega fram í umræðunum af fjöl- mörgum NATO-stjórnmála- mönnum, greinarhöfundum og leiðaraskrifum, að það hafi verið Helmut Schmidt, þáverandi kan- slari Vestur-Þýskalands, sem tekið hafi frumkvæðið í ræðu er hann flutti 27. október 1977. Hel- mut Schmit hefur sjálfur neitað því hvað eftir annað að hafa átt frumkvæði að því að biðja um Evrópuatómvopnin.Honum hef- ur ekki verið trúað. Áœtlun frá 1976 Staðreyndin er hinsvegar sú að þegar í janúar 1976, nærri tveimur árum áður en Schmidt hélt ræðu sína, hafði bandaríski flugherinn til reiðu áætlun um að koma fyrir 696 stýriflaugum í þremur herstöðvum í Evrópu. Þetta kemur fram í bandarískum þingskjölum frá „yfirheyrslu" árið 1982 um fjárlög ársins 1983. í yfirheyrslunni var ekki verið að fjalla um undirbúning að stað- setningu flauganna, heldur kostnað. Fyrirspyrjendur þings- ins vildu fá að vita hversvegna útgjöldin hefðu vaxið úr 51 milljón dollara í 216 milljón doll- ara. Svar flughersins var að árið 1976 hefðu menn við fjárlagagerð reiknað með að flaugunum yrði komið fyrir á þremur stöðum í Vestur-Evrópu, en síðan hefði þeim verið fjölgað í sex og það leitt til meiri útgjalda. NATÓ-plat Með þessum uppljóstrunum er botninn dottinn úr röksemda- færslunni fyrir „tvíhliða" ákvörð- un NATÓ árið 1979, sem sagði að ef ekki næðist samkomulag við Sovétríkin að hætta við SS-20 áætlunina, þá kæmi áætlun NATO um stýriflaugarnar og Pershing II til framkvæmda í des. 1983. Ákvörðun NATÓ 1979 var ekki svar við ógn SS-20 flaug- anna, heldur áróðurstrikk til þess að koma fram bandarískri áætl- un, sem gerð var áður en farið var að planta úr SS-20 flaugum. Margir NATO-stjórnmálamenn hafa sjálfsagt goldið samþykki sitt í góðri trú, en um þá hefur verið sagt að þeir taki ákvarðanir á grundvelli 10% upplýsinga frá Pentagon og 90% leyndar. Það virðist hafa sannast í þessu dæmi. -ekh

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.