Þjóðviljinn - 03.11.1983, Síða 7

Þjóðviljinn - 03.11.1983, Síða 7
: ' Vi-o’.V c v.vV.V.-.v. WtWtji '- ví.v Fimmtudagur 3. nóvember 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 Við afhendingu myndarinnar f.v. Guðmundur Vilhjálmsson, Bergþóra Guðmundsdóttir, Helga Vilhjálms- | dóttir Frahm, Gíslína Vilhjálmsdóttir og Ásmundur Stefánsson forseti ASí, sem veitti gjöfmni viðtöku. ASI fær málverk af Hannesi á Horninu Ekkja og börn Vilhjálms S. Vilhjálmssonar hafa gefið Listasafni ASÍ málverk af Vilhjálmi sem Jón Engilberts málaði á árunum 1963-64 í tilefni af 60 ára afmæli hans og gaf fjölskyldunni í bakgrunni myndarinnar er sjó- varnargarðurinn á Eyrarbakka og fylking verkafólks með kröfu- spjöld og fána, en Eyrbekkingur- inn Vilhjálmur S. Vilhjálmsson var lengi blaðamaður á Alþýðublaðinu og skrifaði mikið um kaup og kjör verkafólks. Hann var þekktur undir dálkaheitinu Hannes á horn- inu. Listasafn ASÍ átti fyrir aðra portretmynd eftir Jón Engilberts frá árinu 1964, málverk af Þórbergi Þórðarsyni. - ekh 25000 gigtveikir Lauslega áætlað munu um 25 þúsund íslendingar vera meira eða minna þjakaðir af gigt. Gigtarfélag íslands vinnur nú að lokafrágangi og kaupum á húsbúnaði í Gigtar- lækningastöðina í Ármúla 5 í ReykjaVík og er nú í gangi happ- drætti til 8. desember til þess að standa straum af kostnaðinum. Eins og undanfarin ár er félagið einnig með jólakortasölu. Félags- menn eru nú um 1700 og fer fjölg- andi. Skrifstofa félagsins er á þriðju hæð í Ármúla 5 og er opin alla virka daga frá kl. 13-17. Gigt- arfélagið gefur út ársfjórðungsrit til félagsmanna. Kj ötútflutningur Fyrstu 9 mánuði þessa árs nam útflutningur á kindakjöti frá Bú- vörudeild 1.716 tonnum. Á sama tíma í fyrra höfðu verið flutt út 1.863 tonn. Af útflutningnum nú er dilkakjötið 1.523 tonn en 1.743 tonn í fyrra. Mest af kjötinu hefur farið til Norðurlandanna en ofurlítið þó til ýmissa landa annarra. Ennþá hefur ekkert kjöt farið til Noregs og mun svo ekki verða fyrr en í desember. -mhg Samtök herstöðva- andstæðinga: Sýnum íbúum Grenada stuðning og rekum Banda- ríkjaher burt af íslandi Á landsráðstefnu Samtaka her- stöðvaandstæðinga, sem haldin var um helgina, var innrás Bandaríkja- hers í Grenada harðlega fordæmd og hún sögð vera skýlaust brot á stofnskrá Sameinuðu þjóðanna og alþjóðalögum. í ályktuninni segir m.a.: Bandaríkjastjórn á hernaðar- bandalagið NATO að bakhjarli og Bandaríkjaher kemur víðar við en á Grenada. Sami her er hér á landi og ísland er aðili að sama hernað- arbandalagi. Sá stuðningur sem við getum sýnt íbúum Grenada er að varpa þessum her á dyr, hætta að vera samábyrg í hernaði Banda- ríkjastjórnar í Mið-Ameríku og segja okkur úr NATO. SHA mótmælir þeim einhliða fréttaflutningi sem átt hefur sér stað í ríkisfjölmiðlunum varðandi þetta mál. Að lokum átelur Landsráðstefna SHA harðlega að íslenska ríkis- stjórnin skuli ekki hafa strax for- dæmt innrás Bandaríkjahers og þannig sýnt eðlilega samstöðu með annarri smáþjóð. ________________skák________ „Vönduð vinna — vanir menn“ Nokkur orð um 21. helgarskákmótið, haldið í Garðinum um síðustu helgi Helgarskákmótið í Garðinum var hið tuttugasta og fyrsta í röð þeirra móta sem „Ragnar í Smára skáklistarinnar“, Jóhann Þórir Jónsson stendur fyrir. Mótið dró að sér fleiri þátttakendur en á fjölmörgum undangengnum mótum þvl alls mættu 58 kepp- endur til leiks ef Skotta er taiin með og þar af fjölmargir skák- menn, ungir sem gamlir, frá Suðurnesjum. Margt hcfur verið skrifað og skrafað um mót þessi, en í Garðinum kom það bersýni- lega í ljós að tilgangnum með mótunum hefur verið náð, að því marki sem slíkt er hægt: ung- lingar, stúlkur sem piltar, allt oní smákrakka dvöldu löngum stund- um yfir tafli meðan á mótinu stóð, auk þess sem þau fylgdust grannt með þeirri hörðu baráttu sem geisaði um efstu sætin. Flestir af sterkustu skák- mönnum þjóðarinnar voru meðal þátttakenda í mótinu, af þeim allra fremstu vantaði aðeins Jón L. Árnason og Friðrik Ólafsson. Mótið tók sína venjulegu stefnu, í upphafi myndaðist allstór kjarni manna með hátt vinningshlutfall en þegar líða tók á fóru menn að heltast úr lestinni einn af öðrum. Að loknum tveim keppnisdögum af þremur var staða efstu manna þessi: 1.-7. Guðmundur Sigur- jónsson, Margeir Pétursson, Karl Þorsteins, Jóhann Hjartarson, Helgi Ólafsson og Magnús Sól- mundarson allir með 4'A vinning. Tvær síðustu umferðirnar voru tefldar á sunnudeginum. Sú fyrri hófst kl. 9 um morguninn en hin síðari kl. 15 um eftirmiðdaginn. Á lokasprettinum áttust þessir við á toppborðunum: 6. umferð: Jóhann Hjartarson - GuðmundurSigurjónsson 0:1 Karl Þorsteins. - Margeir Pétursson 0:1 Helgi Ölafsson - Magnús Sólmundarson 1:0 Elvar Guðmundsson - Ingi R. Jóhannsson 'h:'h 7. umferð Ingi R. Jóhannsson - GuðmundurSigurjónsson 'h:'h Margeir Pétursson - Helgi Ólafsson 'h:'h Jóhann Hjartarson - HalldórG. Einarsson 1:0 Magnús Sólmundarson - Karl Þorsteins 1:0 Lokaniðurstaðan varð þessi: 1.-3. Helgi Ólafsson, Margeir Péturson og Guðmundur Sigur- jónsson allir með 6 vinninga. 4,- 7. Ingi R. Jóhannsson, Jóhann Hjartarson, Magnús Sólmundar- son og Elvar Guðmundsson allir með 5>/2 vinning. Stig eru látin skera úr um sigur- vegara mótsins og reyndist undir- ritaður hlutskarpastur á því sviði. Mun það ekki vera í fyrsta sinn sem slíkt kemur fyrir en það er önnur saga. Þeir Margeir Péturs- son og Guðmundur Sigurjónsson tefldu af miklu öryggi á mótinu og reyndar var Guðmundur ekki ýkja langt frá því að vinna mótið einn og sér, því þegar undirritað- ur og Margeir Pétursson voru búnir að gera glæsilegt jafntefli í síðustu umferð tók Guðmundur tii óspilltra málanna við að þjarma að Inga R. Jóhannssyni. Þegar langt var liðið á lok fytri tímamarkanna virtist Guðmund- ur hafa alla þræði í hendi sér, en var hinsvegar orðinn tíma- naumur og friðmæltist við ands- tæðing sem þurfti ekki að láta segja sér tvisvar og undirritaði friðarsamningana. Ingi R. Jóhannsson hefur nú verið með I þrem síðustu helgar- mótum og hefur endurkoma hans í skákheiminn fallið í góðan jarð- veg enda er í Inga að finna ein- hvern mesta skákjöfur sem ís- land hefur alið. Jóhann Hjartarson og Karl Þorsteins eiga það báðir sam- eiginlegt að vera orðnir skák- þreyttir eftir linnulausa tafl- mennsku að undanförnu. Á hinn bóginn tefldi Magnús Sólmundarson, sem líkt og Ingi hefur ekki verið tíður gestur á helgarmótunum, skínandi vel, enda lagði hann að velli þrjá sterka skákmenn, Jóhann Hjart- arson, Ásgeir Þór Árnason og Karl Þorsteins. Nokkur breyting hefur orðið á tilhögun verðlaunaafhendingar. Þannig eru nú veitt verðlaun fyrir ýmsa aldurshópa og fyrir þann af heimamönnum sem bestum ár- angri nær. Auk þess hlýtur kepp- andi utan höfuðborgarsvæðisins verðlaun. Öldungaverðlaunin hlaut Sturla Pétursson, verðlaun fyrir bestan árangur keppenda yngri en 20 ára hlaut Elvar Guð- mundsson, fyrir aldursflokkinn 14-17 ára. Bestum árangri keþpenda utan Stór-Reykjavíkursvæðisins náði Bolvíkingurinn Halldór G. Ein- arsson, en bestum árangri kepp- enda 14-17 ára náðu þeir Guð- mundur Árnason og Tómas Björnsson. Þá voru veitt verð- laun fyrir þá sem bestum árangri náðu af heimamönnum og kom í ljós þegar mótinu lauk að fimm keppendur voru með flesta vinn- inga, Pétur Sævarsson, Gísli Heiðarsson, Vilhelm Guð- mundsson, Þorsteinn Heiðarsson og Tryggvi Þór Tryggvason. Þeir voru allir með 3 vinninga. Eins og jafnan þegar dregur að lokum helgarmótanna varð bar- áttan í skákunum á efstu borðum mikil og tvísýn. Margeir Péturs- son vann í næst síðustu umferð afar mikilvægan sigur yfir Karli Þorsteins. Skákina tefldi hann af sannfærandi öryggi: Hvítt: Karl Þorsteins Svart: Margeir Pétursson Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2.RO Rc6 3.d4 cxd4 4. Rxd4 g6 5. c4 Bg7 6. Be3 Rf6 7. Rc3 0-0 8. Be2 d6 9. 0-0 Bd7 10. Hcl Rxd4 11. Bxd4 Bc6 12. O a5 13. b3 Rd7 14. Bxg7 Kxg7 15. f4 Db6+ 16. Khl a4 17. Bg4? (Ónákvæmur leikur sem gefur svörtum betri stöðu. En staða hvíts er á vissan hátt erfið. Það er t.a.m. ekki auðvelt að finna hald- góða áætlun fyrir hans hönd.) 17. .. Rf6 18. BO De3! 19. e5 (Eini leikurinn. Svartur vinnur peð um stundarsakir og jafnvel þó svo hvítur nái því til baka kost- ar það alvarlegar veikingar á stöðu hans.) 19. .. dxe5 20. Bxc6 bxc6 21. fxc5 Dxe5 22. Hel Df4 23. Hfl Dh4 24. g3 Dh6 25. Rxa4 Had8 26. DO Hd2 27. h4 Hfd8 (Það mun hafa verið á þessu augnabliki, þegar engum bland- aðist hugur um það að Margeir stæði til vinnings, að Ásgeir Þór Árnason gekk til Margeirs og sagði: „Það er nú ansi merkilegt með þig Margeir hvað þú teflir þetta afbrigði vel á svart,“ og fékk til baka hið sögufræga svar: „Vönduð vinna - vanir menn.“) 28. Hcdl Hxdl 29. Hxdl Hxdl+ 30. Dxdl De3! 31. Dgl De4+ 32, Dg2 bl+ 33. Kh2 Rg4+ 34. Kh3 Df5 35. De2 Re3+ 36. Kh2 De4 37. Kgl h5! 38. Rb2 Dbl+ 39. Kf2 Rg4 40. Kg2 Dxa2 (Loks vinnur svartur lið. Staða hvíts er vonlaus.) 41. b4 Db3 42. b5 cxb5 43. cxb5 Re3+ 44. Kf2 Rf5 45. Rd3 f6 46. De4 Dxb5 47. Rf4 Dfl+! - Karl gafst upp. Eftir 48. Kxfl Rxg3+ ásamt 49. - Rxe4 er svart- ur með þrem peðum meira og auðunnið tafl. Einkennandi skák fyrir Margeir þegar honum tekst hvað best upp. - hól.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.