Þjóðviljinn - 03.11.1983, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 03.11.1983, Blaðsíða 12
12 SÍÐA ÞJÓÐVILJINN Eimmtudagur 3. nóvember J983. ALÞYÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið í Njarðvíkum Aðalfundur Alþýðubandalagið I Njarðvíkum heldur aðalfund nk. fimmtudagskvöld 3. nóvember kl. 20.30 í kaffistofu Slippsins. Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Kosning fulltrúa á Landsfund. 3) Kosning fulltrúa á kjördæmisráösfund. 4) Önnur mál. - Mætið vel og stundvíslega. - Stjórnin. Allir samtaka nú Sjálfboðaliða vantar til starfa á flokksmiðstöð Sjálfboðaliða (karla og konur) bráðvantar í kvöld, fimmtudagskvöld 3. nóv. kl. 20:30, til að taka til í geymslum og í vestursal á Hverfisgötu 105. Sýnum samstöðu og fjölmennum. Þetta verk verður að vinna. - Nefndin. Alþýðubandalagið í Reykjavík Viðtalstímar borgarfulltrúa Næstkomandi laugardag þ.e. 5. nóvember, verð- ur Guðrún Ágústsdóttir borgarfulltrúi til viðtals í flokksmiðstöð AB Hverfisgötu 105, frá kl. 11 til 12. Borgarbúar eru eindregið hvattir til að notfæra sér þessa þjónustu og fá beinan aðgang að borgar- ,Guftrún Águstsdóttir fulltrúum. - ABR Aðalfundur kjördæmisráðs á Reykjanesi Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á Reykjanesi verður haldinn laugardaginn 5. nóv. kl. 9.30 í samkomuhúsinu í Garði. Dag- skrá 1)Venjuleg aðalfundarstörf 2)GeirGunnarsson ræðirstjórnmála- viðhorfiö 3)Ásmundur Ásmundsson um laga- og skipulagsmál banda- lagsins. - Stjórnin. Alþýðubandalag Héraðsmanna Almennur félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 10 nóvember i Valaskjálf (Litla sal) og hefst hann kl. 20.30. Kjörnir fulltrúar á landsfund Alþýðubandalagsins flytja stutt framsöguerindi: Efnahagsmál - Sigurjón Bjarnason; At- vinnumál- Sveinn Jónsson; Umhverfi og auðlindir- Svandís Rafns- dóttir; Skipulagsmál flokksins - Berit Johnsen. Að loknum framsögu- erindum verða frjálsar umræður. - Félagar, mætum vel og stundvís- lega. - Stjórnin. Alþýðubandalagið í Kópavogi Bæjarmálaráð heldur fund í kvöld, miðvikudaginn 2. nóvember í Þing hóli kl. 17.30. Dagskrá: 1) Félagsmál. 2) Önnur mál. - Stjórnin. Alþýðubandalagið Vesturlandi Aðalfundur kjördæmisráðs Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á Vesturlandi verður haldinn í Félagsheimilinu Rööli, Borgarnesi, sunnudaginn 6. nóvem- ber n.k. og hefst kl. 14. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Stjórnmálaviðhorfið. 3. Lög um skipulagsmál AB. 4. Önnur mál. - Mætið vel og stundvíslega. - Stjórn kjördæmisráðs. Alþýðubandalagið í Reykjavík Félagsfundur — Til- lögur laga- og skipulagsnefndar Alþýðubandalagið í Reykjavík boðar til félags- fundar að Hverfisgötu 105, fimmtudaginn 10. nóv- ember kl. 20.30. Dagskrá: 1) Skýrslur og tillögur frá starfshópum ABR 2) Tillögur laga- og skipulagsnefndar sem lagðar verða fyrir landsfund Alþýðubandalagsins. Framsaga: Einar Karl Haraldsson formaður nefndarinnar. 3) Önnur mál. Félagsmenn ABR eru hvattir til að fjölmenna. Einkum eru landsfundarfulltrúar félagsins hvattir til að mæta vel. Stjórn ABR ABR Starfshópur um efnahags- og kjaramál Næsti fundur verður haldinn þriðjudaginn 8. nóvember nk. kl. 20.30 að Hverfisgötu 105. Þröstur Ólafsson heldur framsöguræðu. Félagar eru hvattir til að mæta. - Hópurinn Alþýðubandalagið í Reykjavík Umræðuhópur um sjávarútvegsmál Næsti fundur í umræðuhóp um sjávarútvegsmál verður þriðjudaginn 8. nóvember kl. 20:30 að Hverfisgötu 105. Áhugamenn um sjávarútvegsmál eru hvattir til að fjölmenna - ABR I Einar Karl. Afmælisrit Matthíasar Jónassonar Hinn kunni uppeldisfræðingur dr. Matthías Jónasson, prófessor, varð áttræður fyrir rösku ári og af því tilefni er nú komið út ritið At- höfn og orð til heiðurs honum. Að útgáfunni standa: Háskóli*íslands, Kennaraháskóli íslands, Kennara- samband íslands, Hið íslenska kennarafélag, Sálfræðingafélag ís- lands og Skólarannsóknadeild menntamálaráðuneytisins, en þessi samtök og stofnanir hafa lengi not- ið starfskrafta dr. Matthísar. Var afmælisbarninu afhent ritið í húsa- kynnum háskólans hinn 13. okt. síðastliðinn við hátíðlega athöfn. Athöfn og orð er 287 síður í stóru broti, gefið út hjá Máli og menn- ingu sem gefið hefur út flestar bækur dr. Matthíasar. í ritinu eru alls sautján greinar af fræða- og áhugasviði Matthísar eftir kunna fræðimenn, auk skrár um rit hans eftir Einar Sigurðsson háskóla- Matthías Jónasson. bókavörð. Um uppeldis- og skóla- mál skrifa Andri ísaksson, Edvard Befring, Gerður G. Óskarsdóttir, Hrólfur Kjartansson, Jónas Páls- son, Margrét Margeirsdóttir, Ólafur J. Proppé, Sigmar Ólafs- son, Sigríður Þ. Valgeirsdóttir, Sigurjón Bjornsson, Þórólfur Þór- lindsson og Þuríður J. Kristjáns- dóttir. Um sálarfræði skrifa Grétar Marinósson, Kristinn Björnsson og Magnús Kristjánsson. Sagn- fræðilegar greinar skrifa Loftur Guttormsson og Lýður Björnsson. Grein um málþroska barna eiga saman Indriði Gíslason, Randa Mulford og Ásgeir S. Björnsson. Fremst í ritinu er greinin Áthöfn og orð eftir Brodda Jóhannesson um ævi og störf Matthíasar Jónas- sonar. Ritstjóri verksins var Sigurjón Björnsson, prófessor. Það er unnið að öllu leyti í Prentsmiðunni Odda hf. Ferðabók Sveins Pálssonar Orn og Orlygur hefur gefið út Ferðabók Sveins Pálssonar, dag- bækur og ritgerðir þess merka manns frá árunum 1791-97 í þýð- ingu Jóns Eyþórssonar, Pálma Hannessonar og Steindórs Steindórssonar. Steindór skrifar og „Nokkur Iokaorð“ um sögu þýðing- arinnar og samþýðendur sína. Ferðabók Sveins Pálssonar kom fyrst út árið 1945 í þýðingu þeirra Jón, Pálma og Steindórs. Það var Jón Eyþórsson sem bjó bókina þá til prentunar og fylgdi henni úr hlaði með ítarlegum formála og eftirmála þar sem hann gerði grein fyrir ævi og störfum Sveins Páls- sonar. Ferðabókin var þá þegar mjög fagurlega útgefin og m.a. var Tryggvi Magnússon listmálari fenginn til þess að myndskreyta bókina og teikna upphafsstafi við hvern kafla. Segja má að það sé vel við hæfi að Ferðabók Sveins Pálssonar komi út aftur á því ári þegar liðin eru 200 ár frá Skaftáreldum því Sveinn skoðaði upptök eldanna árið 1794 og skráði þá hið svokall- aða Eldrit sitt sem er einmitt hluti Ferðabókarinnar sem nú kemur út. Hann gerði einnig uppdrátt af Skaftáreldahrauninu og „Elds- veitunum" sem nú er prentaður í fyrsta sinn eins og Sveinn teiknaði hann og fylgir uppdrátturinn með Ferðabókinni sérrprentaður í sér- hönnuðu umslagi. Ferðabók Sveins Pálssonar er að öllu leyti unnin í Prentsmiðjunni Odda hf. Sigurþór Jakobsson hannaði titilsíður, bókarspjöld og öskju. Þegar börn verða að fara á sjúkrahús Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur gefið út bókina Leiðbeining- ar fyrir foreldra sem eiga Börn á sjúkrahúsum að frumkvæði Nor- ræna félagsins um þarfír sjúkra barna. Höfundur bókarinnar er Lise Giódesen en þýðingu annaðist Valgerður Hannesdóttir. Höfund- ur bókarinnar, Lise Giódesen er sjúkraiðjuþjálfari sem hefur í starfí sínu á dönskum og amerískum sjúkrahúsum öðlast mikinn skiln- ing á því, hvaða áhrif sjúkdómar og innlögn á sjúkrahús hefur á börn. Helga Hannesdóttir læknir á Barnageðdeild Landspítalans og Halldór Hansen yfirlæknir Barna- deildar Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur rita inngang bókar- innar og komast m.a. svo að orði: „Það getur verið óhjákvæmilegt að leggja barn inn á sjúkrahús, ef ekki er hægt að veita því nauðsynlega læknisþjónustu á annan hátt. Og víst er það, að mörg börn fá bót meina sinna á sjúkrahúsum. Engu að síður er talið, að nær helmingur þeirra barna, sem dvelja á sjúkra- húsum fái meiri eða minni eftir- köst, sem haft geta miður heppileg áhrif á þroska barnanna í framtíð- inni og þá jafnvel langvarandi. Þýðing þessarar bókar á íslensku er því bæði foreldrum, börnum og starfsfólki sjúkrahúsa kærkomin vegna þess, að hún veitir þeim upp- lýsingar, fræðslu og leiðbeiningar um þau skaðlegu áhrif, sem veikindi og sjúkrahúsdvöl geta haft í för með sér“. V etraror lof bænda Ný mat- reiðslubók Ný matreiðslubók, „Allskonar góðgæti" er komin út hjá bókaút- gáfunni Setberg. Þetta er þriðja bókin sem sænski matreiðslumeist- arinn Agnete Lampe og Guðrún Hrönn Hilmarsdóttir húsmæðra- kennari senda frá sér. Hinar tvær voru: „Nú bökum við“ og „Áttu von á gestum?" Meðal rétta í bókinni eru: Grís- akótelettur með rjómavínssósu, Kjúklingapottur, Fylltur fiskbúð- ingur, Veisluís frá Sikiley, Smálúð- uflök með krabbafyllingu, Nautasteik með smjörsteiktum kartöflum, Steiktur lax í hví- tvínssósu, Fín fiskisúpa, Ekta vín- arsnitsel, Paj með skinku og blað- lauk, Hamborgarhryggur í port- vínshlaupi, Innbakaður graflax og margskonar annað góðgæti. Mörg hundruð litmyndir sýna réttina og handtökin við gerð þeirra. Undanfarna vetur hefur verið efnt til nokkurra orlofsvikna fyrir fólk úr sveitum landsins, að Hótel Sögu. Aðsókn að þessum orlofsvik- um hefur verið góð og undantekn- ingarlaust hafa þátttakcndur verið ánægðir. Nú hefur verið ákveðið að efna tjl einnar orlofsviku fyrir áramót. Á hún að hefjast 28. nóv. og standa til 4. des. Skipulagðar verða ferðir í afurðasölufélögin og til einstakra fyrirtækja og stofnana. Útvegaðir verða miðar í leikhúsin, farið sam- eiginlega á skemmtanir og ýmislegt fleira verður á dagskrá. Þeir, sem áhuga hafa geta fengið nánari upplýsingar hjá Ferðaþjón- ustu bænda í síma 19200 eða hjá Hótel Sögu í síma 29900. - mhg Bálför Málfríðar Einarsdóttur Rauðalæk 14 verður gerð frá Dómkirkjunni föstudaginn 4. nóvember klukkan hálftvö. Þeir sem vildu minnast hennar eru beðnir að láta Blindravinafélag íslands njóta þess. Þorsteinn Guðjónsson og fjölskylda

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.