Þjóðviljinn - 03.11.1983, Page 15

Þjóðviljinn - 03.11.1983, Page 15
nóvember 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 RUV0 Fimmtudagur 3. nóvember 7.00 Veðuriregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum degi. 7.25 Leikfimi. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð - Gísli Friðgeirsson talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Leitin að vagnhjóli" eftir Meindert DeJong Guðrún Jónsdóttir les þýðingu sína (25). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). 10.35 „Ég man þá tíð“ Lög frá liðnum árum. Umsjón: Hermann Ragnar Stefánsson. 11.05 Austfjarðaþokan Vilhjálmur Einarsson ræðir við Jóhann Þórólfsson. 11.35 íslenskir tónlistarmenn leika og syngja 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynning- ar. Tónleikar. 14.00 „Kallað í Kremlarmúr“ eftir Agnar Þórðarson Höfundur lýkur lestrinum (8). 14.30 Á frívaktinni Margrét Guðmundsdóttir kynnir óskalðg sjómanna. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Siðdegistónleikar Rögnvaldur Sigur- jónsson leikur á píanó Prelúdíu, kóral og fúgu eftir Cesar Franck/George Barboteu og Genecieve Joy, leika Sónötu fyrir horn og pianó op. 70 eftir Charles Koechlin/Maurice André, Gerard Jarry, Alain Moglia, Serge Collot, Michel Tournus, Jacques Cazauran og Jean Philippe Collard leika Septett i Es- dúr op. eftir Camille Saint-Saéns. Vilhjálmur Einarsson ræðlr við Jó- hann Þórólfsson kl. 11.05. 17.10 Síðdegisvaka 18.00 Af stað með Tryggva Jak jbssyni. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00. Kvöldfréttir. Tilkynninga. Daglegt mál. Erlingur Sigurðarson flytur báttinn. 19.50 Við stökkinn Stjórnandi: J runn Sig- urðardóttir. 20.30 Frá tónleikum Sinfóniuhljómsveitar Islands í Háskólabíói Stjórnandi: Jean- Pierre Jacquillat. Einleikari: Per Hannisdal. a. „Krýning Poppeu", svita eftir Claudio Monteverdi. b. Fagottkonsert eftir Antonio Vivaldi. - Kynnir: Jón Múli Árnason (Fyrri hluti). 21.15 „Ekki hæli ég einverunni1' Guðrún Guðlaugsdóttir ræðir við Hjðrleif Kristins- son, Gilsbakka í Skagafirði. Áður útvarpað í júlf 1981. „Ekki hæli ég einverunni“ segir Hjör- leifur Kristinsson á Gilsbakka f Skagafirði en Guðrún Guðlaugsdóttir ræðir við hann kl. 21.15. 22.05 Tónleikar 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun- dagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Fimmtudagsumræðan Umsjón: Einar Örn Stefánsson. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. frá lesendum Hækkun dagvistargjalda í Kópavogi Er Þjóðviljinn samþykkur? Námsmaður úr Kópavogi: hafði samband við blaðið og sagðist vonsvikinn yf ir f réttum Þjóðviljans sJ. þriðjudag af hækkun á dagvistargjöldum námsmanna í Kópavogi fyrir börn sín. Hvers vegna segir Þjóðviljinn gagnrýnislaust frá því þegar dagvistargjöld námsmanna eru hækkuð með þessum hætti? Er það vegna þess að Alþýðubandalagið á aðild að bæjarstjórnarmeiri- hiutanum? Það eru þungar álögur þegar námsmaður með 2 börn þarf að greiða allt að 6000 krónum á mánuði í dagvistargjöld. Það er ekki reiknað með þessum út- gjöldum við úthlutun námslána, enda er einmitt verið að skerða þau líka um þessar mundir. Það er sagt að hægt sé að fá undan- þágu frá þessari nýju réglu, en þegar að er gáð virðist það ekki svo einfalt, því sýna þarf bæði tekjuvottorð og útgjaldaliði. Ég hélt að það væri ljóst að þeir sem á annað borð fá námslán geta ekki framfleytt sér af eigin tekj- um. Hvað réttlætir þá þessa hækkun? Ég óttast að Þjóðviljinn hefði tekið öðruvísi á þessu máli ef annar stjórnmálaflokkur hefði átt í hlut, og það þykir mér mið- ur, blaðsins vegna. Tekið á móti fatnaði og fleiru Jórunn Sörensen hringdi: Vegna lesendabréfs frá Mar- gréti Sæmundsdóttur í Þjóðvilj- anum sl. þriðjudag, þar sem hún mælist til þess að fólk fleygi ekki fatnaði, sem það hefur ekki lengur not fyrir, heldur komi honum til einhverra, sem gætu miðlað honum til þeirra, sem í þörf eru fyrir fatnað, vil ég benda á eftirfarandi: Samband dýraverndunarfélaga hefur nú í 5 ár rekið flóamarkað í Hafnarstræti 17, (kjallara). Þar er tekið á móti fatnaði, búsáhöld- um, húsmunum, leikföngum o.fl., sem eigendur hafa ekki lengur þörf fyrir eða kæra sig ekki um að nota. Þessir hlutir eru síð- an seldir á mjög vægu verði og öllu því, sem inn kemur, varið til dýraverndunar. Þessi starfsemi hefur sífellt farið vaxandi, þannig að bæði fjölgar þeim, sem koma til okkar með muni og hinum, sem leita eftir þeim. Markaðurinn er opinn frá mánudegi til fimmtudags að báð- um dögum meðtöldum, frá kl. 2- 6, (14-18). Pennastrikið Pennastrikið hans Alberts varð Sófusi að yrkisefni og hefur svo sem oft orðið til staka af minna tilefni: Albert skuldar ei neinum neitt og nœstum á augnabliki skuldirnar sínar getur greitt glaður, með pennastriki En sultarólar eg sárt til finn þótt svölun frá Albert leiði. Skrattakornið að skattinn minn eða skuldirnar hann greiði. Útvarp kl. 22.35 Þróunaraðstoð í fimmtudagsumræðu Það er Einar Örn Stefánsson fréttamaður sem sér um fiinmtudagsumræðuna í kvöld. Verður fjallað um þróunaraðstoð Islendinga. Sagði Einar Örn að þátturinn kæmi svona í framhaidi af nýafstaðinni heimsókn forseta- hjónanna á Grænhöfðaeyjum hingað til lands. Auk stjórnandans kom afrarn í þættinum Baldur Óskarsson, en hann er í stjórn Þróunarsam- vinnustofnunar íslands, Baldvin Gíslason, skipstjóri, en hann hef- ur unnið víða við þróunaraðstoð og kennslu í fiskveiðum, Jón Ás- geirsson, framkvæmdastjóri Rauða kross íslands og Gunn- laugur Stefánsson, fræðslufull- trúi Hjálparstofnunar kirkjunn- ar. Allt eru þetta fulltrúar stofn- ana, sem afskipti hafa af þessum málum og þrautkunnugir þeim eða hafa starfað hjá þróunar- þjóðunum. Til umræðu rnun m.a. koma framlag okkar til þróunaraðstoð- ar, sem mun vera 0,045% af þjóðarframleiðslunni, en átti upphaflega að vera 1%. Er þetta fremur bágborin frammistaða hjá þjóð, sem verður þó að teljast allvel efnuð þegar á heildina er litið. - mhg Baldur Baldvin Einar Örn Gunnlaugur Jón skák Karpov að tafli - 226 Það verður ekki sagt um Karpov að hann vinni megnið af skákum sínum á snjöllum leikfléttum. Líkt og meistarar á borð við Kasparov eða Mikhael Tal. Rósemdin hvílir yfir öllum aðgerðum hans samfara óbil- andi öryggi. Þó kemur það fyrir aðr hann hristirfram úrerminni laglegar leikfléttur eins og t.d. í eftirfarandi skák sem hann tefldi við einn efni- legasta skákmann Hollendinga um þessar mundir, Van der WieT: abcdefgh Karpov - Van der Wiel 27. Hxe6! Dxa6 (Eftir 27. - fxe6 28. Dxe6 á svartur enga vörn við hótuninni 29. Df7+ og 30. e8) (D). 28. Hxf7! Kxf7 29. e8 (D)-!(Snilldarlega teflt. Ef 29. - Hhxe8 þá 30: g6+ Kf8 31. Df4+ og 32. Df7+.) 29. .. Hbe8 30. g6+ Kg8 31. Hxe8+ Bf8 32. De6+ - og Hollendingurinn gafst upp. Lokaniðurstaðan í Amsterdam varð á að Karpov sigraði eina ferðina enn, hlaut 10 vinninga af 14 mögu- legum. Jan Timmann kom næstur með 9 vinninga, síðan Sosonko með 8 vinninga og þvínæst Hort með Th vinning. Keppendur voru 8 talsins og tefldu þeir tvöfalda um- ferð. Bent Larsen fékk hraksmánar- lega útreið; hann varð neðstur með 3V2 vinning af 14 mögulegum. bridge Flest „sterku" pörin í dag nota einhvers konar veika opnun á 2. sagnstigi. Veikir tveir í hjarta/spaða eða blandað. Og til að fullkomna sagnir, er oftlega notast við yfir- færslur. Lítum á dæmi: 4 10962 Á10873 Á32 Kd92 Ág753 3 Á7 D62 G94 K9532 Dg7 1064 KDG854 K2 106 Suður vakti á 2 tíglum (MUIti tveir. Þýðir: veikir tveir í hálit, þrílit hendi eða sterk opnun). Vestur sagði pass, Norður 2 grönd (tilbú- inn í alit, jafnvel sjálfsmorð.) Austur pass (eðlilega), Suður 3 tígla (yfir- færsla í hjarta, þýðir veikir tveir í hjarta) og Norður datt í lukkupottinn og sagði 4 hjörtu beint. Sem var passað út. Spilið kom fyrir í sveitak- eppni og þar renndu A/V sér í 4 spaða á sömu spil, þannig að spilið gaf „gamesveiflu" til beggja átta, til sömu sveitar. Niðurstaðan af þessu spili er sú, að því betur sem þú vopnbýrð þig áttu meiri möguleika á móti ands- tæðingi þínum, sem ekki býr við sama vopnakost. N/S parið i þessu spili, „stela" samningnum frá A/V, með sögnum sínum, því ekki er gott fyrir vörnina að koma inn í þessar sagnir, einsog sjá má. Gœtun tungunn ir Sagt var: Ég held c þetta hvorutveggja sé gott. Rétt væri: ... að þetí- 'ort- tveggja sé gott. Hins vegar væri ré s hef trú á hvorutveggja.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.