Þjóðviljinn - 03.11.1983, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 03.11.1983, Blaðsíða 16
mmu/M Fimmtudagur 3. nóvember 1983 Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaösins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur sima81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663 Ríkjandi skoðun meðal starfsfólks Hafarnarins og Þórðar Oskarssonar hf.: Fyrirtækin opna ekki aftur Á morgun föstudag er síðasti vinnudagur starfsfóiks fisk- vinnsiustöðvarinnar Haförninn hf. Og á næsta mánudag er síð- asti vinnudagur hjá starfsfólki fiskvinnslustöðvar Þórðar Ósk- arssonar hf. Atvinnuieysi og al- ger óvissa um framtíðarat- vinnumöguleika bíður u.þ.b. 200 manns vegna þeirrar stöðu sem komin er upp vegna útgerð- ar togarans Óskars Magnús- sonar AK 177. Á Akranesi eru nú þegar mun fleiri á atvinnu- leysisskrá en mörg undanfarin ár og þegar þeir næstum 200 bætast við má segja að rösklega tíundi hver vinnufær Akurnes- ingur sé atvinnuiaus. Þá er at- vinnuleysi viðblasandi stórum hópum iðnaðarmanna. í gær heimsótti Þjóðviljinn starfsfólk fiskvinnslustöðvanna tveggja sem reka togarann Óskar Magnússon AK 177. Almenn svartsýni var ríkjandi meðal þessa fólks og eitthvert það eftirtektar- verðasta sem fram kom í máli nær allra sem Þjóðviljinn talaði við var það, að fólkið átti ekki von á því að fyrirtækin tækju aftur til starfa. Þess utan var fólk afar svartsýnt um að nokkra vinnu yrði að fá næstu vikur og mánuði. WmS0 Atvinnuleysi um óákveðinn tíma blasir nú við starfsfólki tveggja frystihúsa Þjóðviljans, Magnús, í flökunarsal hjá Þórði Óskarssyni hf., en næsta á Akranesi, Þórði Oskarssyni hf. og Haferninum hf. Togarinn Óskar mánudag er síðasti dagur starfsfólksins og alls óvíst hvort fyrirtækið opnar Magnússon AK 177 liggur bundinn við bryggju, en hann hefur staðið aftur. undir hrácfnisöflun fyrir frystihúsin. Meðfylgjandi mynd tók ijósmyndari Matthías á Mogganum blandar sér í formannsslaginn Þorsteinn er Morgun- blaösegg — og verður vonandi varphæna Matthías Johannesen skáld og Morgunblaðsrit- stjóri sagði í viðtali við morgunútvarpið í gær- morgun, að gaman væri að horfa á Morgunblaðs- eggið Þorstein Pálsson verða að unga og jafnvel varphænu. Stefán Jökuls- son átti viðtal við ritstjór- ann í tilefni af sjötugsaf- mæli Morgunblaðsins. Orðrétt sagði skáldið: „Það hefur verið ákaflega skemmtilegt og raunar eftirminni- legt að horfa á suma af þessum mönnum, sem hafa farið út í lífið að öðru leyti, að horfa á þá verða borgarfulltrúa, verða þingmenn, - nú taka jafnvel við Dagblaðinu einsog Hörður vinur minn Einars- son, - ætla sér að verða formenn Sjálfstæðisflokksins einsog Þor- stein Pálsson. Við köllum þessa menn Morgunblaðseggin. Við erum alltaf að vona að það verði úngar úr þessu og svona nýjar varp- hænur“, sagði Matthías sposkur, þó alvaran leyndi sér ekki í rödd skáldsins. -óg Gunnar G. Schram vill fella samn- ingsbannið. GunnarG.Schram alþingismaður Sjálfstæðisflokki Afnema bann við samningum „Það kemur fyllilega til greina að mínu áliti að afncma bannið við samningum á launamarkaði við af- greiðslu bráðabirgðalaganna** sagði Gunnar G. Schram á alþingi í gær. Sagði Gunnar að afnám samn- ingsréttar hefði verið „óyndisúr- ræðí“, en mælti að öðru leyti bráð- abirgðalögum ríkisstjórnarinnar bót, en þau fela í sér bann við ál- mennum kjarasamningum auk annarra skerðinga. -óg Albert um fjáröflun til húsnæðislána Seljist ekki bréfin sé ég engar leiðir Fjármálaráðherra viðurkenndi á Alþingi í gær að markaður fyrir spariskírteini ríkissjóðs hefði verið erfiður og kaup lánastofnana á verðtryggðum bréfum ríkissjóðs hefðu heldur ekki skilað því sem vonast var til. Hann kvaðst ekki hafa neinar aðrar lausnir tii þess að afla viðbótarfjár í húsnæðislána- kerfið m.a. vegna ákvörðunar um 50% hækkun lána. „Ef samtakamáttur þjóðarinnar í skyldusparnaði bregst, þá eru engar aðrar lausnir vegna þess að ég mun ekki stuðla að því að farið verði í frekari lántökur erlendis, ég mun heldur ekki stuðla að frekari yfirdrætti í Seðlabanka íslands og ég mun ekki taka þátt í að auka skattbyrði á fókinu í landinu. Þá er lítið annað eftir en samdráttur í ríkiskerfinu, og náist hann ekki fram þá er ekki um annað að ræða en að húsbyggjendur verði að þola samdrátt við húsbyggingar." - ekh / ✓ Þjóðhagsstofnun tekin á beinið á þingi LIU Refknar út óskhyggju allra ríkisstiórna Útgerðarmenn réðust harkalega að Þjóðhagsstofnun á þingi Lands- sambands íslenskra útvegsmanna sem hófst á Akureyri í gær. Var stofnunin sökuð um að fegra stöðu útgerðarinnar og senda frá sér tcjlur sem væru þóknanlegar ríkis- stjórnum á hverjum tíma, en gætu ekki verið forsenda réttra ákvarð- ana. Kristján Ragnarsson fram- kvæmdastjóri LÍU bar saman tölur reiknistofu Fiskifélags íslands á úr- taki 55 minni togara og Þjóðhags- stofnunar. Sú síðarnefnda hafði komist að því að hallinn væri 13% en hin fyrrnefnda 29%. Ólafur Gunnarsson framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað kvað Þjóðhagsstofnun segja fisk- vinnsluna 2-3% í plús, þegar hún væri í raun 2-3% í mínus. Ólafur Gunnarsson var einkum afdráttar- laus í sinni gagnrýni og sagði að svo virtist sem Þjóðhagsstofnun ætti á hverjum tíma að láta ríkisstjórnum í té þá útreikninga sem þær óskuðu. Varla væri von að nokkur ríkisstjórn gæti tekið réttar ákvarð- anir þegar hún fengi útreikninga sem byggðust á eigin óskhyggju. Minnka þyrfti afskipti Þjóðhags- stofnunar af málefnum útgerðar- innar, og stilla þannig til að útgerð- in fengi þær tekjur sem hrykkju fyrir útgjöldum. Hvernig sem menn reiknuðu þá væri það grund- vallaratriði sem ekki væri hægt að komast framhjá. í sama streng tók Kristján Ragn- arsson sem sagði að útgerðin gæti ekki safnað frekari vanskilum. Þrátt fyrir skuldbreytingu upp á 520 miljónir króna í fyrra til skamms tíma og á háum vöxtum hlæðust vanskilin upp. Þau næmu nú 670 miljónum króna við Fisk- veiðasjóð, 700 miljónum króna við oliufélögin og vanskil við aðra við- skiptaaðila, svo sem viðgerðar- verkstæði og veiðarfærasala næmu hundruðum miljónum króna. Jón Sigurðsson forstjóri Þjóð- hagsstofnunar flutti erindi í upp- hafi þingsins, en í gærkvöldi voru miklar umræður, þar sem gagnrýni á stofnunina var áberandi. _ ekh

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.