Þjóðviljinn - 06.01.1984, Qupperneq 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 6. janúar 1984
Attum von á slæmu
veðri en ekki svona
segir Sigurður Hólm stýrimaður á Sjávarborginni
Skipverjar reyna að losa grjót úr skrúfuhring skipsins.
„Það voru tveir á vakt um
borð í skipinu, en það var ekk-
ert hægt að gera, veðrið var svo
ofboðslegt. Við áttum von á
slæmu veðri en ekki svona snar-
vitlausu“, sagði Sigurður Hólm
stýrimaður á Sjávarborginni,
þegar Þjóðviijamenn ræddu við
skipverja í borðsal skipsins þar
sem það lá á þurru utan í grjót-
garðinum í ytri höfninni í Sand-
gerði í gær.
„Skipið var lengi að reka hingað
upp eftir að það slitnaði frá
bryggju. Það var komið í þessar
stellingar um hálf átta leytið og hef-
Sjávarborgin nýlegt og glæsilegt
fískiskip á þurru utaní grjótgarðin-
um í Sandgerðishöfn. Mynd: -eik.
ur legið fast fyrir. Við höldum að
það sé ekki skemmt svo nokkru
nemi. Það komst grjót í skrúfu-
hringinn og við þurfum að ná því úr
áður en við ætlum að reyna að
draga skipið út á spilunum á fíóð-
inu í kvöld. Ég held að það ætti að
takast", sagði Sigurður.
Hann sagðist álíta að sjógangur-
inn hefði verið öllu verri í nýju
höfninni en þeirri gömlu og engin
leið að athafna sig í landi. Sjávar-
borg er tiltölulega nýtt fiskiskip,
smíðað í Slippstöðinni á Akureyri á
miðju ári 1981. Það hét áður Þór-
unn hyrna. Skipið fékk ekki leyfi til
loðnuveiða sl. haust og hefur legið
við bryggju síðustu tvo mánuði en
frá því um áramót hefur verið unn-
ið að fullum krafti í skipinu að gera
það klárt fyrir loðnuvertíðina.
-lg-
Sigurður Hólm stynmaður bíður
eftir kvöldflóðinu. Mynd: -eik.
Pálmi Jónsson fyrir miðri mynd ásamt skipsféiögum sínum í borðsal Sjávarborgarinnar í gær. Mynd: -eik.
Stukkum frá
borði og hlupum
í ofboði í land
segir Pálmi Jónsson sem var á
vakt um borð í Sjávarborginni
„Ég vaknaði við ósköpin í
veðrinu um fímmleytið og sá þá
strax hvað var í aðsigi. Við vor-
um tveir á vakt um borð og
stukkum strax frá borði og
hlupum í ofboði í land til að ná í
hjálp“, sagði Pálmi Jónsson
háseti sem var um borð í Sjávar-
borginni, þegar skipið byrjaði
að Iosna frá bryggju í fyrrinótt.
„Við náðum ekki í kallana í
landi fyrr en of seint. Það átti
enginn von á þessum ósköpum.
Þegar við komum hingað niður-
eftir aftur þá fór skipstjórinn
Guðmundur Garðarsson um
borð og var einn um borð með-
an skipið rak hérna upp í grjót-
garðinn. Það kom mjög mjúk-
lega niður og við höldum að það
sé svo til óskemmt þrátt fyrir
þessi ósköp“, sagði Pálmi. - lg