Þjóðviljinn - 06.01.1984, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 06.01.1984, Qupperneq 3
Föstudagur 6. janúar 1984: ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 9 bátar og 3 skip slitnuðu upp í Sandgerðishöfn Mestir veður- ofsi í manna minnum 5 bátar stórskemmdir eftir þennan veðraham Þrjú stór fiskiskip þar af eitt 450 lesta og 9 litlir fiskibátar slitnuðu upp frá bryggju í höfn- inni í Sandgerði í ofsaveðri seint í fyrrinótt. Stórstreymt var, stormur að suð-vestan og for- áttubrim, svo elstu menn á Sandgerði muna ekki eftir öllu vitlausara veðri. Stóru stálskipin lágu öll við ytri hafnargarðinn en bátarnir í innri höfninni. Rak stálskipin upp að nýja brimgarðinum innst í höfn- inni. Reyni GK-177 og Víði IIGK- 275, hvorutveggja ríflega 100 lesta skip tókst að losa sig úr grjótgarð- inum með eigin spilabúnaði um há- degisbilið í gær, en Sjávarborgin GK-60, lá á hliðinni í hafnargarðin- um í allan gærdag, en á flóðinu í gærkvöldi tókst að ná henni á flot aftur. Engar stórvægilegar skemmdir urðu á þessum skipum þrátt fyrir veðurofsann. Af þeim 9 fiskibátum sem rak upp í hafnarendann tókst að bjarga Sjógangur á Seltjarnarnesi Flæddi inní hús Á flóðinu í gærmorgun flæddi sjór inní kjallara íbúðarhússins Marbakka á Seltjarnarnesi. Að sögn Sæmundar Pálssonar lög- reglumanns var vatnið um 20 sm djúpt og olli ekki umtals- verðum skemmdum. Þá flæddi inn í íbúð í húsinu Elliða við Nesveg og skemmdi gólfteppi, húsgögnum tókst að bjarga. Björgunarsveitin Albert á Sel- tjarnarnesi var kölluð út og önnuðust félagar úr henni hjálparstarf í húsunum og eins voru menn á verði ef óhöpp yrðu annarsstaðar, sem þó ekki varð. Aftur á móti bar brimið þang og grjót uppá land á nokkrum stöðum, en skaðar urðu engir. - S.dór. Þannig lágu bátarnir, flestir illa brotnir innst í höfninni í Sandgerði í gær þegar fjarað hafi út og lægt í veðurofsanum. Fremst á myndinni er Sóley sem verið er að hífa á land, en fjærst til hægri sést í Sjávarborg- ina þar sem hún liggur á þurru í ytri höfninni. Mynd: -eik. 4 að bryggju aftur, en 5 bátar er meira og minna skemmdir eftir að hafa lamist til í fjörunni. í gærdag meðan fjaraði út, var unnið að því að koma þessum bátum á þurrt land með stórum kranabílum. Voru bátarnir flestir eitthvað brotnir, og sjór í þeim öllum. Engin stórslys urðu á mönnum í veðurofsanum í fyrrinótt og gær- morgun, en eigandi eins bátsins sem rak upp í fjöru, var hætt kom- inn þegar vörubifreið sem hann hugðist nota til að draga bát sinn að bryggju aftur, fór fram af bryggj- unni og á bólakaf í höfnina. Hann fór með vörubílnum í höfnina en náði að komast út og á land. Hann var fluttur á sjúkrahúsið í Keflavík en líður vel eftir atvikum. Brimið í Sandgerðishöfn í gær gekk langt á land, og var víða eins og yfir hafsjó að líta. Ljóst er að um stórtjón er að ræða af völdum veðursins og þakka margir að ekki skyldi verr fara, en fáir skip- stjórnarmenn gættu báta sinna í Sandgerðishöfn í fyrrinótt þrátt Togarinn Ottó. N. Þorláksson fékk á sig brotsjó í gærmorgun þar- sem hann var á vciðum á svonefnd- um Fjöllum útaf Reykjanesi. Eng- an skipverja sakaði en óttast er að tjón hafi orðið talsvert. Rúður brotnuðu og siglingatæki skemmdust er sjórinn reið yfir og fyrir aðvaranir veðurfræðinga um þá hættu sem veðurofsinn gæti skapað samhliða stórstreyminu. talin er hætta á að yfirbyggingin hafi skekkst. Sé það reyndin má útgerðin, BÚR, búast við talsverð- um fjárútlátum, en togaranum var hleypt af stokkunum árið 1980. Ottó N. Þorláksson lagðist að Reykjavíkurhöfn seint í gærkvöldi. - Ál/m. BÚR-torgarinn Ottó N. Þorláksson fékk á sig brotsjó í gærmorgun Brúin skökk? Fjárhagsáætlun borgarinnar: Allar tillögur um lægrí skatta Styrkir til menningarstarfsemi dragast aftur úr Umræður um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 1984 stóðu enn þegar blaðið fór í prentun í gær. Þó atkvæðagreiðslu væri ekki lokið, lá Ijóst fyrir að allar tillögur minni- hlutans um skattalækkanir yrðu felldar af Sjálfstæðisflokknum. „Davíð Oddsson er nú orðinn skattakóngur á höfuðborgarsvæð- inu“, sagði Sigurjón Pétursson í umræðunum, og leggur á hæst út- svar allra sveitarfélaga þar, eða 11%. Það fer lítið fyrir efndum á loforðum Sjálfstæðisflokksins um skattalækkanir nú“. Borgarfulltrúar Alþýðubanda- lagsins fluttu eins og aðrir minni- hlutaflokkar, fjölmargar tillögur til breytinga á fjárhagsáætluninni, en afgreiðslu þeirra var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. Meðal tillagna AB var áskorun til þing- manna Reykjavíkur um að þeir beiti sér fyrir breytingu á lögum um álagningu útsvars, þannig að unnt verði, þegar á þessu ári að leggja á stighækkandi útsvar, til þess að þeir sem breiðu bökin hafa taki stærri hluta af þeirri vaxandi út- svarsbyrði, sem nú á að leggja á borgarbúa. Þá fluttu borgarfulltrúar AB til- lögu um að verja 3 miljónum króna til að greiða niður strætisvagnafar- gjöld reykvískra framhaldsskóla- nema með tilvísun til gífurlegra hækkana á fargjöldum SVR á síð- asta ári, og enn frekari hækkana sem eru fyrirhugaðar í ár. Vegna þess neyðarástands sem ríkir í húsnæðismálum aldraðra lögðu fulltrúar AB til að í ár verði keypt eða tekið á leigu húsnæði sem breyta má í leiguíbúðir fyrir aldraða en 1165 manns bíða nú úr- lausnar hjá Félagsmálastofnun og næsta bygging kemur í gagnið 1986. Þá lögðu þeir til að byggð yrði tvö þriggja deilda dagvistar- heimili á Eiðsgranda og í Árbæjar- hverfi í ár, en tillaga Félagsmála- ráðs þar um var felld í borgarráði af meirihlutanum. Einnig fluttu þeir tillögu um að flýta byggingu við- bótarhúsnæðis við Seljaskóla í stað þess að flytja þangað færanlegar kennslustofur frá Hólabrekku- skóla. Alþýðubandalagið flutti einnig tillögur um hækkanir á styrkveit- ingum til ýmissa félagasamtaka í Tillaga AB í borgarstjórn: Stighækkandi utsvar Breiðu bökin beri stœrri hlut í aukinni skattbyrði Með tilliti til þeirrar vaxandi út- svarsbyrði sem Reykvíkingum er nú œtlað að að axla ofaní kjara- skerðinguna, er áríðandi að þegar á þessu ári verði veitt heimild til að beita stighœkkani útsvarsálagn- ingu, sagði Sigurjón Pétursson m.a. í borgarstjórn í gœr. Peir sem hærri tekjur hafa borga þá hlutfalls- lega meira, - þannig tœkju breiðu bökin stœrri hluta af þeirri skatta- hœkkun sem framundan er, sagði hann. Sigurjón lýsti stuðning við til- lögur um 10% útsvarsálagningu í stað þeirra 11% sem Sjálfstæðis- flokkurinn hefur ákveðið og felur í sér 30% aukningu á skattbyrði borgarbúa. Hann mælti fyrir svo- hljóðandi tillögu AB: „Með vísun til samþykktar borgarstjórnar á síðasta fundi um breyttar reglur um álagningu útsvars, skorar borgar- stjórn á þingmenn Reykvfkinga að beita sér fyrir því að lögum um tekjustofna sveitarfélaga verði breytt nú þegar, þannig að við út- svarsálagningu á þessu ári verði hægt að beita stighækkandi álagn- ingu.“ Afgreiðslu tillögunnar var ekki lokið, þegar blaðið fór í prentun, en á síðasta fundi borgarstjórnar fyrir áramót var samþykkt sam- hljóða að óska heimildar fé- lagsmálaráðuneytis til aukins sjálfsforræðis borgarinnar í út- svarsálagningu. Sigurjón benti á að ef til kæmi lagabreyting frá alþingi þyrfti ekki heimild frá ráðuneytinu og það væri mjög áríðandi að heim- ild um breyttar álagningarreglur fengist sem fyrst, nú þegar stór- auka ætti skattbyrði borgarbúa. - ÁI. felldar borginni, en styrkveitingar hafa dregist mjög afturúr verðlagsþróun nema í einstaka tilfellum. Frá því styrkir voru samþykktir fyrir einu ári hefur kostnaður almennt vaxið um 50-60%, en styrkirnir hækk- uðu aðeins um 20-30% og margir hverjir lækkuðu samkvæmt til- lögum meirihlutans m.a. styrkir til Alþýðuleikhússins, Félags ein- stæðra foreldra. Auk þess gerði meirihlutinn ekki tillögu um að styrkja íslensku óperuna, útgáfu Sögufélagsins, safn til sögu Reykjavíkur og fleira mætti telja. Meðal annarra tillagna AB má nefna áframhaldandi framkvæmdir við bað- og búningsklefana í Laugardal, endurbyggingu menn- ingarsögulegra bygginga í eigu borgarinnar, rannsóknir á hafnar- gerð vegna skipaverkstöðvar, 5 miljón króna fjárveitingar til hverfasamtaka til einstakra fram- kvæmda auk hækkunar á styrkveit- ingum til íbúðasamtaka, 2 miljónir til kerfisbreytingar í heilbrigðis- þjónustu í borginni og tæpar 400 þúsundir í bakvaktir barnavern- darnefndar. Til öflunar tekna á móti þeirri útgjaldaaukningu, sem Alþýðu- bandalagið lagði til flutti flokkur- inn tillögur um að fresta gatnagerð í Grafarvogi og við Hagkaupshúsið í Nýjum miðbæ, snúa til baka með gervigrasið í Laugardag og fresta breikkun Sundlaugarvegar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.