Þjóðviljinn - 06.01.1984, Page 10

Þjóðviljinn - 06.01.1984, Page 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 6. janúar 1984 Hrafnkell Stefánsson fæddist í Reykjavík 30. apríl 1930. Foreldr- ar hans voru hjónin Guðrún Guðj- ónsdóttir, verkamanns í Reykjavík Brynjólfssonar og Guðlaugar Eyjólfsdóttur og Stefán múrara- meistari Jakobsson bónda á Galta- felli í Hrunamannahreppi Jóns- sonar og Guðrúnar Stefánsdóttur frá Ásólfsstöðum. Var hann annar í röð þriggja sona þeirra. Hinir eru Hreggviður arkitekt og Stefán Már lögfræðingur. - Barnaskónum sleit Hrafnkell í Norðurmýrinni og sótti Austurbæjarskólann. Heimilið var á Mánagötunni síðar á Háteigsveg- inum. Því kynntist ég ekki, né for- eldrum hans, en minnisstætt er mér eitt sitt er við nokkrar stelpur í 1. bekk vorum að sniglast þar í kring, var boðið inn, tekið af alúð og veitt kaffi og meðlæti. Hrafnkell líktist föður sínum í sjón. Hann var hávaxinn og alla tíð mjög grannvaxinn, fádæma kvikur í hreyfingum og virtist mér hann fremur hlaupa en ganga. f andliti var hann grannleitur, andlitsfríður, augun fagurblá og lágu djúpt, í þeim brá oftast fyrir kímni og hlýju. Hárið var skolgrátt og strítt fram á við á yngri árum. Hrafnkell var laglegur piltur, en varð glæsi- legur fullþroska maður. Á þeim degi, er jörð vor tók aft- ur að feta sig í átt til ijóssins, yisins, lífgjafans, var fornvinur minn Hrafnkell Stefánsson allur. - Þegar fyrsta reiðarslag slíkra harma- fregna er liðið hjá, hvarflar hugur- inn að venju aftur í tímann og hver og einn hefur úr sínum minninga- sjóði þá innstæðu, sem tengd er þeim látna, allt frá fyrstu innlögn til hinnar síðustu. Svo var mér farið. Haustið 1944 eru samankomin í 1. bekk Menntaskólans í Reykja- vík u.þ.b. 30ungmenni, litlir karlar í jakkafötum, Ijósum skyrtum og með hálsbindi, og litlar kerlingar í kjólum og ísgarnssokkum. Ef nán- ar var að gætt voru þeir sem fötin báru ungir drengir vart af barns- aldri. Flestir höfðu vorið áður við ferminguna hafið vegferð sína í heimi fullorðinna. Eftirvænting og forvitni lá í loftinu. Yrði þetta sam- hentur hópur? Hverjir og hvernig voru þessir félagar, sem áttu eftir að deila saman gleði og smásorg- um, og hafa bein eða óbein áhrif á líf hvers annars næstu sex árin? Nokkrir komu úr sama barnaskóla aðrir höfðu hist í prófunum vorið áður, og enn aðrir sést á skautum á Tjörninni eða á Vellinum. - I þá daga var Reykjavík ekki stór. - f þessum hópi var Hrafnkell, snagg- aralegur strákur, léttur á fæti, hlé- drægur og broshýr. Hópurinn sam- lagaðist fljótt og má vera, að ýms- um hafi þótt sem alvaran sæti þar ekki í fyrirrúmi, heldur gáski og ærsl, sem m.a. fékk útrás í því að stríða eldribekkingum. Ekki var Hrafnkell þar fremstur í flokki, en lét sitt þó ekki eftir liggja. - Með aldri og þroska breyttist þetta, ærslin lögðust af, alvaran varð meiri. Kom þá betur í Ijós hvern mann Hrafnkeli hafði að geyma. í eðli sínu var hann dulur, flíkaði hvorki tilfinningum sínum né þekkingu, hafði sig lítt frammi í orðaræðum né á mannafundum, en skaut inn góðum athugasemdum hér og þar, sem mark var á tekið. Hann var athugull grúskari, hafði augun opin fyrir náttúrunni og mannlífinu, sá dásemdir þess fyrr- nefnda en spaugilegu hliðar hins síðarnefnda og veitti okkur á græskulausan hátt hlutdeild í því. Stundum fannst mér sem hann væri einfari mitt í hringiðunni. Hann fór í stærðfræðideildina og sóttist nám- ið vel, enda góðum gáfum gæddur, gáfum sem eflast og þroskast við hvert viöfangsefni því hugurinn er frjór. Á þessum árum hélt ég, að hann ætlaði að leggja fyrir sig nátt- úrufræði, því spaugað var með það, að hann væri út um holt og hæðir í jurtaleit. En e.t.v. hefur hugur hans þá þegar beinst að lyfjafræðinni. - Á skólaárunum vann hann á sumrin hin ýmsu störf og brá sér m.a. á síld. Áf síldinni kom hann ríkari, ekki svo mjög af peningum, heldur af lífsreynslu og kynnum sínum af fólki og stöðum. Gaman var að heyra hann hlæja, á sinn sérstæða hátt, og segja frá við- burðum sumarsins. Minning Hrafnkell Stefánsson í 5. bekk byrjuðu þau Guðbjörg Jónsdóttir, Dadda, ein úr þrjátíu mannahópnum, sessunautur minn og vinkona, að vera saman. Guð- björg er dóttir Guðrúnar Stefáns- dóttur frá Fagraskógi og Jóns Magnússonar skálds. Frá þeim tíma, og það er langur tími, eru þau í vitund minni og okkar bekkjar- systkinanna eitt, Dadda og Hrafnkell. Ekki svo að skilja að þau hafi útilokað sig eða einangrað frá okkur hinum, sem hófu skóla- gönguna saman eða bættust í hóp- inn í hinum ýmsu bekkjum skólans. Til þess voru þau bæði of sterkir einstaklingar, vinsæl og fé- lagslynd. Ótaldar eru þær stundir, sem safnast var saman á Fjölnis- veginum, heima hjá Guðbjörgu og rætt um skáldskap, lífið og tilver- una af þeirri alvöru og einlægni, sem einkennir fólk á þessu ævi- skeiði, eða þá slegið á léttari strengi. Segja má, að Fjölnisvegur 7 hafi verið félagsmiðstöð mennta- skólanema. 16. júní 1950 voru áhyggjufullu menntaskólaárin að baki. Hópurinn tvístraðist, sumir sáust sjaldnar jafnvel aldrei, aðrir oftar. - En í brjóstum okkar allra var ofinn snar þáttur samkenndar með og hlýju til allra þessara gömlu félaga, sem á einn eða annan hátt áttu hlutdeild í daglegu lífi æsku okkar. Dadda og Hrafnkell settu saman heimili á Fjölnisveginum. Oft var komið þar við á leið heim úr vinnu, kaffi sopið og rabbað saman, en á þessum árum var Hrafnkell í sínu sérnámi, tíðum við lestur og vinnu, svo okkar fundir urðu færri en ella, þó ég legði áfram leið mína til þeirra. - Með tvö börn og bjartsýni héldu þau til Kaupmannahafnar, þar sem Hrafnkell stundaði fram- haldsnám. Þar bættist þriðja barn- ið í hópinn. Erfitt hlýtur það oft að hafa verið, en aldrei var æðrast. Alls urðu börnin sex. - Eftir heimkomuna hélst um stund sam- band mitt við fjölskylduna. Ég birt- ist með mín börn, og var ungviðinu sleppt á grasið meðan við, sem eldri vorum deildum gleði og höfðu allir ánægju af. - Fljótlega eftir heimkomuna ræðst Hrafnkell, ásamt Hreggviði bróður sínum, í að reisa húsið að Tjarnarstíg á Sel- tjarnarnesi. Ekki fjölgaði frístund- um hans við það. En segja má að vík verði milli vina er þau flytja þangað. Árið 1973 fær Hrafnkell lyfsölu- leyfið á ísafirði. Þangað er flutt, en þá höfðu tvö elstu börnin lokið stú- dentsprófi. Á ísafirði unir Hrafnkell hag sínum, samlagast bæjarlífinu, og íbúarnir mátu hann mikils, hispurslausa framkomu hans, gamansemi og ljúfmennsku. Þar beið hans mikil vinna, umdæm- ið var stórt og starfsaðstaða ekki sem nýtísku- eða þægilegust. En hann mun hafa verið hamhleypa til vinnu, og þó hann ætti ekki svo auðveldlega heimangengt, átti hann nú frístundir, sem hann nýtti til útivistar í faðmi fjalla, gróður- reitnum inni í skógi og við lestur. - Þar birtist og ný hlið á Hrafnkatli, hann gerist félagsmálamaður. Kemur þar e.t.v. tvennt til. í fyrsta lagi hafi hann ekki komist hjá þátt- töku í félagsmálum og í öðru lagi áhugi hans á framþróun byggðar- lagsins og velferð íbúanna. Síðast hitti ég Döddu og Hrafnkel á heimili þeirra á ísafirði sumarið ’82. Gestrisnin og hlýjan var hin sama og forðum og áhuga- sviðin mörg, og undraðist ég þekk- ingu Hrafnkels á ýmsum þjóð- legum fróðleik. Allt vildu þau fyrir mig gera þessa stuttu stund, sem ég átti með þeim. Þegar við skildum hugsaði ég með tilhlökkun fram í tímann, er þau flyttu suður og við tækjum upp þráðinn að nýju. Svo mun hafa verið um fleiri skóla- systkini en mig. Dadda og Hrafnkell hafa átt miklu barnaláni að fagna, enda voru þau bæði góðir félagar og vin- ir barna sinna. Þau eru: Jón f. 1951 læknir kvæntur Margréti Björns- dóttur, þeirra sonur Björn, Ragn- heiður f. 1953 textílhönnuður, Sig- ríður f. 1956 sjúkraþjálfari, Stefán f. 1958 verkfræðingur kvæntur Önnu Ólafíu Sigurðardóttur, Hannes f. 1960 læknanemi og Guð- rún f. 1962 nemandi í framhalds- deild Kvennaskólans í Reykjavík. - Á erfiðum stundum er styrkur að hafa sína hjá sér. - Drottinn leggi þeim öllum líkn með þraut, svo og Guðrúnu móður Hrafnkels og bræðrunum báðum. Hrafnkatli vini mínum óska ég góðrar ferðar á leið sinni til Ljóss- ins, Friðarins og Lífgjafans. Bless- uð sé minning hans. Ingibjörg Ýr Pálmadóttir Standandi frá vinstri: Ernst Hemmingsen sölustjóri, Mikheil Strelsov sendiherra, Steinar Jónasson sölustjóri. Sitjandi frá vinstri: Guðjón Hjartarson framkvæmdastjóri, Pétur Eiríksson forstjóri, Boris A. Umansky og Vladimir P. Andriyashin fulltrúar viðskiptaskrifstofu Sovétríkj- anna. Stærsti samninjíur sem Alafoss hf hefiir gert Á þriðjudag var undirritaður samningur milli Álafoss h.f. og so- véska fyrirtækisins Raznoexport, um sölu á 1.500.000 ullartreflum og 20.000 ullarpeysum. Þessi samn- ingur er stærsti samningur sem Alafoss h.f. hefur gert og mun vera einn stærsti samningur sem íslenskt fyrirtæki hefur gert vegna sölu á ullarvörum. Samtals er verðmæti samningsins um 4.3 milljónir Bandaríkjadala, eða 123 milljónir ísl. kr. Framleiðsla er þegar hafin í verksmiðju Álafoss h.f. í Mosfells- sveit og mun verkefnið taka um 11 mánuði í framleiðslu. Við fram- leiðsluna munu starfa að meðalltali um 110 manns. Með þessum samn- ingi munu Sovétríkin vera stærsti kaupandi ullarvöru frá Álafossi h.f. árið 1984. Salan síðastliðið ár nam um 1.3 milljónum Banda- ríkjadala og er hér um að ræða meira en þreföldun á sölu til Ráð- stjórnarríkjanna milli ára. Til fróðleiks má geta þess hér, að ef allir treflarnir væru lagðir saman mundu þeir næstum ná frá Mos- fellssveit til Moskvu, eða um 2.800 km. Áætlanadeild Álafoss h.f. hef- ur reiknað út, að á næstu 11 mán- uðum þurfi að framleiða 95 trefil á mínútu allan sólarhringinn. Undirbúningur að gerð samn- ingsins fór fram í byrjun desember í Moskvu af Steinari Jónassyni og Ernst Hemmingsen fyrir hönd Ála- foss. h.f. íslenskar ullarvörur njóta mik- illa vinsælda í Sovétríkjunum og forsvarsmenn Álafoss h.f. eiga von á að í framtíðinni muni Sovétríkin vera góður markaður fyrir íslensk- ar ullarflíkur, trefla og værðarvoð- ir.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.