Þjóðviljinn - 06.01.1984, Page 11
Helgar-
sportið
(þróttamenn í hinum ýmsu
greinum eru að komast á skrið
á nýju ári, mis-pattaralegir eftir
jóla- og áramótasteikurnar.
Lítum á það helsta sem þeir
taká sér fyrir hendur þessa
helgina:
Handbolti
Tíundu umferðinni í 1. deild
karla lýkur væntanlega á morg-
un. Stjarnan og KR mætast í
Digranesi í Kópavogi kl. 20 í
kvöld og á morgun verða tveir
leikir. Haukar og Valur leika í
Hafnarfirði og Próttur-Vikingur í
Laugardalshöll. Báðir leikir
hefjastkl. 14. FH-ingareru hins
vegar staddir í Ungverjalandi
og leika þar við Tatabanya í
IHF-Evrópukeppninni á sunnu-
dagsmorguninn.
11. deild kvenna verður leikin
sjöunda umferð og keppni þar
verður því hálfnuð að helginni
lokinni. Valur og KR leika í
Laugardalshöllinni kl. 15.15 á
morgun og FH mætir ÍA í Hafn-
arfirði kl. 16.30. Á sunnudag
verða tveir leikir í Laugardals-
höll. Fram-Fylkir kl. 15.15 og
Víkingur-lR kl. 16.30.
Þrír leikir eru á dagskrá í 2.
deild karla. Breiðablik og Grótta
leika í Digranesi kl. 14 á morg-
un. Fram og ÍR í Höllinni kl. 14 á
sunnudag og HK-Reynir í
Digranesi kl. 20 á sunnudags-
kvöld.
Eyjólfur Braga og félagar í
Stjörnunni mæta KR í þýðing-
armiklum leik í kvöid.
Körfubolti
Vegna Bandaríkjafarar ung-
lingalandsliðsins verður ekkert
leikið í úrvalsdeild, 12. umferð
hefur verið frestað. Hins vegar
fara fram tveir leikir í 1. deild
kvenna á sunnudaginn. Haukar
og ÍS leika í Hafnarfirði kl. 14 og
KR-ÍR í Hagaskóla kl. 21.30.
í 1. deild karla mætast
Skallagrímur og Grindavík í
Borgarnesi íkvöld kl. 19. í bikar-
keppni karla leika Snæfell-
Fram í Borgarnesi kl. 14 á
morgun og KR.b-Skallagrímur í
Hagaskóla kl. 14 á sunnudag.
Blak
Blak er áætlað á þremur
stöðum. Á morgun mætast
Norðurlandsliðin í 1. deild
kvenna, KA og Völsungur, í
Glerárskóla á Akureyri kl. 15.
Þá verða einnig tveir leikir í
Hagaskóla í Reykjavík. Fram
og Víkingur leika í 1. deild karla
kl. 14 og Þróttur-Víkingur í 1.
deild kvenna kl. 15.20. I Digra-
nesi í Kópavogi verða svo þrír
leikir á sunnudag. HK-Þróttur í
1. deild karla kl. 14, stórleikur
efstu liðanna þar, Breiðablik-
HK.2 í 2. deild kl. 15.20 og
Breiðablik-Þróttur í 1. deild
kvenna kl. 16.40.
Föstudagur 6. janúar 1984 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 11
Umsjón:
Viðir Sigurösson
Bjargar ÍR sér frá falli?
Pétur kom-
inn aftur!
Pétur Guðmundsson, körfuknattleiksmaðurinn hávaxni, er
genginn til liðs við úrvalsdeildarlið ÍR á nýjan leik og spilar með því
til vorsins. Að auki mun Pétur þjálfa jiðið, tekur við af Kolbeini
Kristinssyni sem leikur þó áfram með ÍR.
„Pétur hefur ekkert leikið opinberlega síðan hann var hjá ÍR í fyrravetur,
við eigum að vísu eftir að fá endanlega grænt Ijós hjá KKÍ, en ég get ekki
séð neitt því til fyrirstöðu að hann geti leikið með okkur næsta leik, gegn
Val 15. janúar," sagði Þorsteinn Hallgrímsson hjá körfuknattleiksdeild ÍR í
gær.
Pétur bíður eftir svari frá félagi á Nýja-Sjálandi en keppnistímabilið þar
hefst ekki fyrr en í apríl. Hann kom og bjargaði ÍR frá falli í fyrra og
spurningin er, leikur hann sama leikinn nú? Möguleikarnir ættu að vera
enn betri en í fyrra þar sem nú leika engir útlendingar í úrvalsdeildinni, en
ÍR er sex stigum á eftir næstu liðum þegar níu umferðum er ólokið.
Gunnar með
KR í kvöld!
Gunnar Gíslason, landsliðs-
maður í handknattleik og knatt-
spyrnu, er kominn heim eftir
nokkurra mánaða dvöl sem
atvinnumaður hjá Osnabruck
sem leikur í 2. deild vestur-
þýsku knattspyrnunnar. Hann
leikur með KR gegn Stjörnunni í
1. deildinni í handknattleik í
kvöld en liðin mætast í Kópa-
vogi kl. 20.
KR-ingar hafa fengið staðfest
hjá HSÍ að Gunnar sé löglegur.
Hann er það vegna þess að hann
er laus af atvinnusamningi sínum í
knattspyrnunni ytra. Gunnar verð-
ur vafalítið góður styrkur fyrir Vest-
urbæinga í baráttunni um sæti í 4-
liða úrslitunum í 1. deildinni.
Hreiðar á
Vopnafjörð
Hreiðar Sigtryggsson, markvörð-
ur frá ísafirði, hefur verið ráðinn
þjálfari 2. deildarliðs Einherja,
Vopnafirði, i knattspyrnu. Hreiðar
mun einnig leika með liðinu sem
næsta sumar leikur sitt þriðja
keppnistímabil í 2. deild.
Pétur Guðmundsson - 2,18 m á
hæð - gefur IR-ingum aukna von
um að halda sæti sínu í úrvals-
deildinni í körfuknattlcik.
Eimskip
styrkir
Einar
Eimskip hefur kostað æfinga-
undirbúning Einars Vilhjálms-
sonar spjótkastara fyrir Ólym-
píuleikana í Los Angeles næsta
sumar. Framlag Eimskips fellur
til greiðslu þess kostnaðar sem
Einar nær ekki að fjármagna
með öðrum hætti og er sam-
kvæmt áætlun hans 100 þúsund
krónur.
Framlag þetta veitir Eimskip í
samráði við Ólympíunefnd íslands
og Frjálsíþróttasamband íslands.
„Þetta gerir mér kleift að undirbúa
mig á sama hátt og keppinautar
mínir. Ég get tekið því rólegar í
náminu, farið í færri kúrsa, því áður
var ég háður námslánum og til að
fá þau þurfti ég að uppfylla vissan
kúrsafjölda. Þetta er því kærkomið
tækifæri, nú get ég æft mun meir
og betur en annars", sagði Einar
við afhendinguna í gær.
-VS
Fjölgar í
Keflavík
Valþór Sigþórsson frá
Vestmannaeyjum, Helgi Bents-
son, sem lék með Þór Akureyri sl.
sumar og Keflvíkingurinn Guðjón
Guðjónsson sem undanfarið hefur
leikið með KA, hafa allir gengið til
liðs við 1. deildarlið Keflvíkinga í
knattspyrnu. Áður höfðu einir sex
leikmenn úr öðrum Suðurnesjalið-
um ákveðið að ganga til liðs við
Keflvíkinga, þar á meðal Kristinn
Jóhannsson frá Grindavík sem var
fastamaður í liði ÍBK árið 1982.
íþróttamaöur ársins...
í dag krýna Samtök íþróttafréttamanna íþróttamann ársins 1983
og er þetta í 28. skiptið sem þessi athöfn er framin. Hún fer fram
síðdegis að Hótel Loftleiðum, vegleg að vanda, en það er Veltir hf.
sem að henni stendur ásamt íþróttafréttamönnum.
íþróttamaður ársins var fyrst kjörinn árið 1956, sama ár og samtök
íþróttafréttamanna voru stofnuö. Fyrstur var kjörinn Vilhjálmur Einarsson,
þrístökkvari úr ÍR, núverandi skólameistari Menntaskólans á Egilsstöð-
um, sem það ár náði þeim einstæða árangri að hljóta silfurverðlaun í
þrístökki á Ölympíuleikunum ( Melbourne í Astralíu. Hann er eini íslend-
ingurinn sem hefur komist á verðlaunapall á leikunum. Vilhjálmur einok-
aði nánast þetta kjör fyrstu árin, var útnefndur 1956, 1957 og 1958 og
aftur 1960 og 1961.
Við skulum líta á hverjir hafa orðið heiðurs aðnjótandi frá upphafi.
1956 - Vilhjálmur Einarsson, ÍR - frjálsar íþróttir
1957 - Vilhjálmur Einarsson, ÍR - frjálsar íþróttir
1958 - Vilhjálmur Einarsson, ÍR - frjálsar íþróttir
1959 - Valbjörn Þorláksson, ÍR - frjálsar íþróttir
1960 - Vilhjálmur Einarsson, IR - frjálsar iþróttir
1961 - Vilhjálmur Einarsson, ÍR - frjálsar íþróttir
1962 - Gu&mundur Gíslason, ÍR - sund
1963 - Jón Þ. Ólafsson, ÍR - frjálsar íþróttir
1964 - Sigríður Sigur&ardóttir, VAL - handknattleikur
1965 - Valbjörn Þorláksson, ÍR - frjálsar íþróttir
1966 - Kolbeinn Pálsson, KR - körfuknattleikur
1967 - Guðmundur Hermannsson, KR - frjálsar iþróttir
1968 - Geir Hallsteinsson, FH - handknattleikur
1969 - Guðmundur Gíslason, ÍR - sund
1970 - Erlendur Valdimarsson, ÍR - frjálsar íþróttir
1971 - Hjalti Einarsson, FH - handknattleikur
1972 - Gu&jón Guðmundsson, ÍA - sund
1973 - Guðni Kjartansson, ÍBK - knattspyrna
1974 - Ásgeir Sigurvinsson, Standard Liege, - knattspyrna
1975 - Jóhannes Eðvaldsson, Celtic - knattspyrna
1976 - Hreinn Halldórsson, KR - frjálsar íþróttir
1977 - Hreinn Halldórsson, KR - frjálsar íþróttir
1978 - Skúii Óskarsson, UIA- lyftingar
1979 - Hreinn Halldórsson, KR - frjálsar íþróttir
1980 - Skúli Óskarsson, UIA - lyftingar
1981 - Jón Páll Sigmarsson, KR - lyftingar
1982 - Óskar Jakobsson, ÍR - frjálsar íþróttir
1983 - ??????????????????
Innan skamms verður síðan kjörinn íþróttamaður Norðurlanda, en í
kjöri þar verða íþróttamenn ársins í þessum löndum. Kosningar hafa
staðið yfir á hinum Norðurlöndunum í þessari viku og erum við íslendingar
síðastir í röðinni að þessu sinni.
Óskar Jakobsson, íþróttamaður ársins 1982, með verðlaunagripinn veg-
lega sem sá sem nafnbótina hlýtur hefur í vörslu sinni í eitt ár.
Krýndur í 28. skíptí í dag
- vs