Þjóðviljinn - 06.01.1984, Side 16
DMMÉim! Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná i afgreiðslu blaðsins í sima 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími Kvöldsími 81348 Helgarsími 81663
,, Föstudagur 6. janúar 1984 81333
Mesta sjóveður sem hefur gengið yfir bryggjur í Sandgerði
Bátur Þorgeirs, Hlýri, er fyrir miðju á myndinni og er síðan stjórnborðs- ,
megin mikið brotin. Ljósm.: -eik. Þorgeir Guðmundsson við bát sinn Hlýra í fjöruborðinu í Sandgerðishöfn. Mynd: -eik.
ekkert
„Það lék hér allt á reiðiskjálfi í
morgun. Ég held að þetta sé mesta
sjóveður sem hefur gengið hér yfir
bryggjurnar. Sjórinn gekk hér yfir
allt. Eg var um borð í bátnum en
það dugði ekki til, því þegar hann
slitnaði frá þá fór spottinn eða
eitthvað annað brak hér í höfninni í
skrúfuna og ég gat ekkert hreyft.
Ég varð því bara að bíða eftir að
hann ræki upp á landið en hann rak
mjög hratt“, sagði Þorgeir Guð-
mundsson úr Garðinum skipstjóri
á Hlýra GK-30S, 10 lesta trébáti
sem rak upp í fjöru í Sandgerðis-
höfn.
Þorgeir sem gerir Hlýra út ásamt
þróður sínum Ómari, en þeir eru
báðir búsettir í Garðinum, var eini
sjómaðurinn sem vakti um borð í
smærri bátunum í Sandgerðishöfn í
fyrrinótt.
f „Klukkan hefur verið um hálf
hreyft
sjö þegar báturinn slitnaði upp.
Það var annar bundinn utan á hann
og þá rak báða hérna upp í stór-
grýtið. Það lágu hérna þrír bátar í
einum hnapp í morgun en tveimur
þeirra var síðan hægt að bjarga að
bryggju aftur. Hlýri hefur aftur á
móti lent innan í grjótinu og síðan
er alveg brotin hérna stjórnborðs-
megin, annars sér maður ekki hvað
hann er illa farinn fyrr en búið
verður að hífa hann á land“, sagði
Þorgeir.
Þeir bræður hafa gert út frá
Sandgerði í 7 ár og sögðust ekki
muna eftir öðru eins foráttuveðri
og var í fyrrinótt og gærmorgun.
„Við ætluðum á línu, brælan hefur
haldið okkur í landi frá áramótum
og svo kemur þetta rothögg til við-
bótar, það byrjar ekki gæfulega hjá
manni árið“, sagði Þorgeir.
-•g-
Tógið fór í skrúfuna og ég gat
Tvö hús hrunin
og nokkur brotin
Stórskemmdir á Akranesi
Varnargarður hafnarinnar
mikið skemmdur - Undir-
staða olíutanks brotnaði
Gífurlegar skemmdir urðu á mannvirkjum á Akranesi í brimróti
vestanáttar og stórstraumsflóðs í gærmorgun. Tvö hús hrundu til
grunna og nokkur önnur brotnuðu meira eða minna. Skarð kom í
grjótvarnargarð hafnargarðsins og undirstaða olíutanks gaf sig og
varð að dæla allri olíu úr tankinum. Ljóst er að hér er um tugmilj-
óna króna tjón að ræða, en að sjálfsögðu gat enginn sagt til um hve
tjónið er mikið í gær.
Að sögn Engilberts Guðmunds-
sonar kennara, tíðindamanns
Þjóðviljans á Skaga, gerðust öll
þessi ósköp á tiltölulega skömmum
tíma um og uppúr kl. 7 í gærmorg-
un. Stórstraumsflæði var og hvöss
suðvestanátt og brim mikið á
Akranesi vestanverðu eins og
gjarnan verður í þessari átt, hvað
þá þegar stórstraumsflöð er.
Mestar urðu skemmdirnar á Æg-
isbraut, sem nær frá Kampi, vest-
anvert og ofarlega á Akranesi og
innað Kalmarsvík. Þar hrundu til
grunna steinsteypt fiskverkunar-
hús, sem í var geymd skreið og hús
fyrir rörasteypu. í húsi Útgerðarfé-
lags Vesturlands þar rétt við, fór
gaflinn úr húsinu sjávarmegin og
húsið fylltist af sjó. Sömuleiðis fór
gaflinn úr húsi þar sem rekið er
bifreiðaverkstæði og meira að
segja braut sjórinn gat á gaflinn
hinumegin líka. f húsinu voru fjöl-
margar bifreiðar, sem sjórinn
skolaði útúr húsinu og kastaði
þeim stórskemmdum 40 til 50
metra í austurátt frá húsinu. Allar
bifreiðarnar eru mikið skemmdar,
sem fyrr segir, sömuleiðis er allur
lager sprautuverkstæðisins ónýtur,
sem og öll tæki á verkstæðinu. Það
voru tveggja metra háar öldur sem
riðu í gegnum húsið, eftir að gafl-
inn brotnaði vestanvert.
Austanvert á Akranesi urðu
einnig miklar skemmdir, svo og
neðst á Skaganum. Önnur hliðin á
fiskverkunarhúsi HB&Co. brotn-
aði, og skarð kom í grjótvarnar-
garð hafnargarðsins. Hjá Heima-
skaga h.f. brotnaði undirstaða olí-
utanks svo hann féll við, en
mönnum tókst að dæla allri olíu úr
tanknum svo ekki urðu skemmdir
af hennar völdum. Þá brotnuðu
hurð og gluggar í frystihúsi Hafarn-
arins neðst á Akranesi, þannig að
sjór komst í frystihúsið, en skemm-
dir urðu þar ekki mjög miklar, en
einhverjar þó. Var unnið að því að
bjarta frystum fiski úr húsinu í gær.
- S.dór.
Ríkharður Jónsson
málarameistari á Akranesi:
„Þetta eru
daprir dagar“
Það brimar mun meira á
vestanverðum Skaganum
en gerði áður fyrr
Það eru hreint ógurlegar
skemmdir sem hafa orðið hér á
Akranesi i brimrótinu og það eru
heldur daprir dagar hér hjá okk-
ur sem höfum orðið fyrir tjóni,
sagði Ríkharður Jónsson, mál-
aramcistari, en hann átti bif-
reiðaverkstæði, réttinga- og
sprautuverkstæði, sem eyðilagð-
ist í brimrótinu á Akranesi í gær-
morgun.
Ríkharður sagðist aldrei hafa
séð annan eins sjógang og var á
Skaganum í gær og væri hann þó
búinn að eiga heima á Akranesi
alla sína tíð. Hann sagðist vera
búinn að eiga húsið sem bifreiða-
verkstæðið var í, í 20 ár og þótt
menn hafi stundum óttast um
skemmdir hefðu þær ekki átt sér
stað fyrr.
„Ég hef tekið eftir því nú síðari
árin að brim á vestanverðum
Skaganum er mun nteira en áður
var. Hvort það er af því að flösin,
eða sjávarbotn fyrir utan hefur
breyst veit ég ekki en það er alveg
staðreynd að brimið er mun
meira en áður var,“ sagði Rík-
harður.
Hann sagði að brimið hefði
brotið vesturgaflinn á verkstæðis-
húsinu og síðan hefðu 2ja metra
háar öldur riðið í gegnum húsið,
sópað öllu með sér og brotið gat á
austurgaflinn og sópað öllu út.
Bifreiðarnar sem inni voru
þeyttust 40 til 50 metra. Allt sem í
húsinu var er stórskemmt eða ó-
nýtt, bifreiðar, tæki og lager.
„Jú, þetta er tryggt, en það er
alveg ljóst að tryggingar munu
ekki bæta tjónið nema að hluta",
sagði Ríkharður og benti á að það
hefðu fleiri orðið fyrir óskaplegu
tjóni á Akranesi í gær. Þar ofan á
bættist að nokkrir menn myndu
missa atvinnu sína vegna þessara
náttúruhamfara.
- S.dór.