Þjóðviljinn - 10.01.1984, Page 1
UÚBVIUINN
Niðurskurður
Reykjavíkur-
borgar á fjár-
magni til Al-
þýðuleikhússins
kom leikhúsfólki
mjög á óvart.
Sjá3
janúar 1984
þriðjudagur
49. árgangur
7. tölublað
Mikil óvissa ríkir um undirbúning kvótakerfisins:
Harðar deílur í neftidínm
Samkvæmt öruggum
heimildum Þjóðviljans eru
harðar deilur um mörg
mikilvæg atriði varðandi
kvótakerfið og kvótaskipt-
inguna innan nefndarinn-
ar sem annast á undirbún-
inginn. Nefndin er skipuð
fulltrúum frá ÖHum
hagsmunaaðilum sjávar-
útvegsins. Þar koma fram
mismunandi sjónarmið
varðandi kvótakerflð og
hart deilt um sum atriði.
Eitt af því sem deilt er um, er
hvort leyfa eigi sölu á kvóta
milli skipa. Útgeröarmenn eru
þessu hlynntir en sjómenn and-
vígir, þar sem slíkt myndi að-
eins þjóna hagsmunum útgerð-
armanna. Þegar um þetta atriði
er rætt við sjómenn benda þeir
á að þeir eigi hlutdeild í afla,
alveg eins og útgerðarmenn og
því geti útgerðarmenn einir
ekki ráðskast með þetta atriði.
f>á hefur frá upphafi verið deilt
um hvort koma eigi á sóknarkvót-
akerfi eða aflakvótakerfi, en á
þessu tvennu er all-mikill munur.
Sagði sjómaður sem Þjóðviljinn
ræddi við um þetta mál og hefur
fylgst all-náið með gangi mála
innan nefndarinnar að sér virtist
sem reynt væri að vinna málið
þannig að allir yrðu jafn óánægðir.
Þá eru menn ekki á eitt sáttir
hvað gera beri ef'þroskganga kem-
ur frá Grænlandi. Sumir halda því
fram að þá eigi að endurskoða
kvótann og leyfa meiri veiði. Aðrir
benda á að það sé ekki rétt, heldur
beri að vernda þá göngu og leyfa
sem mestu magni að hrygna hér og
„geyma“ þennan fisk, ef svo má að
orði komast. Einkum eru það fiski-
fræðingarnir sem þessu halda fram.
Menn eru allir sammála um að
hægt sé að koma kvótakerfinu á, en
þá greinir á um leiðir til þess að
skiptingin verði sem jöfnust og
réttlátust.
-S.dór
/'
Tilkynningar
um atvinnumissi
streyma nú til
verkalýðsfélag-
anna í Reykja-
vík. Hvað segja
talsmcnn félag-
anna um ástand-
ið nú í fyrstu
viku ársins
1984?
Kvótanefndin svonefnda við upphaf fundar í gær. Mynd -eik,
.
wkj ^
1-' i <3:- ’ —
ma , — 1
Sjálfstœðismenn í borgarstjórn:
Byrjað á einu dagheimili!
Aðeins verður byrjað á byggingu eins dagvistarheimilis í Alþýðubandalagið lagði til að byrjað yrði á þremur heimilum,
Reykjavík á þessu ári; við Rangársel í Breiðholti. Þrátt fyrir langa við Rangársel, í Arbæjarhverfi og á Eiðsgranda og Kvennafram-
biðlista og brýna þörf á auknu dagvistarrými, felldu Sjálfstæðis- boðið lagði til að 4% útsvarstekna yrði varið til þessa málaflokks.
menn í borgarstjórn allar tillögur um auknar fjárveitingar til þessa Rangárselsheimilið var á áætlun í fyrra en var þá frestað vegna
málaflokks aðfaranótt föstudagsins. fjárskorts. -ÁI
Gamla fólkið í Reykjavík:
Ekkert gert á þessu ári
Aðfararnótt föstudags staðfesti meirihluti Sjálfstæðisflokksins í
atkvæðagreiðslu að ekkert skuli gert í húsnæðismálum aldraðra í
ár, þrátt fyrir að á annað þúsund manns séu nú á biðlista, margir í
sárri neyð.
Aðeins er veitt fé til framkvæmda í Seljahlíðum, sem koma í
gagnið 1986, - þangað til má gamla fólkið bíða. Tillögur Alþýðu-
bandalagsins um 10 miljónir til húsakaupa eða leigu vegna neyðar-
ástandsins nú, og Kvennaframboðs um fjárveitingu til sambýlis
fyrir aldraða, voru kolfelldar. -ÁI
Sjá bls. 8
Nýjar upplýsingar um Keflavíkurherstöðina:
Þjónar kjarnorkuheraflanum
Olíubirgðastöð sú sem verið er að reisa í Hclguvík mun nær áttfalda
eldsneytisbirgðir bandaríska hersins hér á landi og eru þær hugsaðar til
þess að geta þjónað iangdrægum orrustuþotum bandaríska hersins sem
bera kjarnorkuvopn og eiga um leið að duga til 45 daga stríðsreksturs.
Þetta kemur meðal annars fram í bandarískum þingtíðindum sem sagt var
frá í Kastljósi sjónvarpsins siðastliðið föstudagskvöld. í tíðindunum kem-
ur einnig fram að bandaríski herinn hyggst byggja nýja stjórnstöð á
Keflvíkurflugvelli sem er að hluta til ncðanjarðar og á að geta staðið af sér
högg frá kjarnorkusprengju. Á stjórnstöðin að vera búin loftræstikerfi
þannig að hægt sé að dveljast í henni í 7 daga án annars sambands við
umheiminn en í gegnum talstöð.
sjá bls. 6