Þjóðviljinn - 10.01.1984, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 10. janúar 1984
DIOBVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson.
Auglýsingastjóri: Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Helgi ólafsson, Lúðvík Geirsson,
Magnús H. Gíslason, ólafur Gíslason, óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson,
Valþór Hlöðversson.
íþróttafréttaritari: Víðir Sigurðsson.
Utlit og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson, Þröstur Haraldsson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Magnús Bergmann.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson.
Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bílstjóri: ólöf Sigurðardóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafur Björnsson.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prent.
Prentun: Blaðaprent hf.
Hneykslið í hag-
frœoiheiminum:
Friedman er
svindlari!
í rúman áratug hafa Sjálfstæðisflokkurinn, Morgun-
blaðið og Verslunarráðið tilbeðið kenningar Miltons
Friedmans. Ásamt Hayek hefur hann verið páfinn sem
guðspjall markaðskreddunnar og trúboð peninga-
hyggjunnar hefur byggt á texta hvers einasta dags.
Stefna hinnar íslensku hægri fylkingar hefur sótt horn-
steina sína í rit Friedmans. EimreiðarhópurinnmeðÞor-
stein Pálsson, Davíð Oddsson, Magnús Gunnarsson og
Hannes Hólmstein í fararbroddi hefur krafist valda í
Sjálfstæðisflokknum og fengið þau með tilvísunum til
þess að þeim væri öðrum mönnum betur treystandi til
að framkvæma kenningar meistara Friedmans.
Þegar virtir fræðimenn og reyndir stjórnendur í
atvinnulífi og fjármálum hafa dregið í efa sannleiksgildi
Friedmansspekinnar hafa Verslunarráðið, Morgun-
blaðið og hin nýja forysta í Sjálfstæðisflokknum vísað
allri slíkri gagnrýni í bug. Hannes Hólmsteinn hefur
ritað mörg hundruð dálkmetra í hægri pressuna til að
fordæma alla efasemdarmenn; páfi gróðaguðspjallsins
Milton Friedman sé merkisberi sannleikans. Ríkis-
stjórn íslands ætti að framkvæma stefnu hans; Sjálf-
stæðisflokkurinn að fylgja forskriftinni án hins minnsta
fráviks.
Milton Friedman hefur verið hornsteinninn í kröfu-
gerð hægri aflanna um andlega, akademiska og
stjórnmálalega forystu. Nú hefur þessi hornsteinn verið
brotinn í þúsund mola. Virtasti hagfræðiprófessor við
háskólann í Oxford David Hendry hefur sannað með
nákvæmum rannsóknum að Friedman er bara ómerki-
legur svindlari sem falsar staðreyndir vísvitandi. Þessi
afhjúpun á Milton Friedman eru stærstu tíðindi í hag-
fræðiheiminum í áraraðir. Musteri peningahyggjunnar
riðar til falls. Hinar andlegu stoðir reyndust tölfræði-
legar falsanir og sjálfur páfinn stendur berstrípaður
fyrir altarinu.
Prófessor David Hendry hefur ásamt N.R. Ericsson
framkvæmt nákvæma könnun á því hvernig Milton
Friedman notar tölur og hagfræðiskýrslur til að
„sanna“ kenningar sínar. Niðurstöður prófessors
Hendrys eru að Friedman hafi beitt vísvitandi talnaföls-
unum, rangfærslum og blekkingum til að fá út þá niður-
stöðu að kenningin væri rétt. Dómur prófessors Hend-
rys er að þessar rangfærslur Friedmans séu svo ótrúleg-
ar að í raun sé Friedman kominn í hóp „hókus-pókus“
skúrka sem hafi öðlast frægð á ómerkilegum fölsunum
og hundakúnstum. Þessar niðurstöður prófessors Da-
vids Hendrys þykja svo merkilegar að Englandsbanki,
höfuðstofnun enska peningakerfisins og lykilbanki í
fjármálakerfi heimsins, hefur ákveðið að gefa rit Hend-
rys út. Afhjúpunin á Friedman nýtur því fulltingis
mikilvægustu stofnunar í fjármálaheimi Bretlands.
Þjóðviljinn birti um helgina frásögn breska stórblaðs-
ins The Guardian á því hvernig prófessor David Hen-
dry lýsir kjarnanum í svindli Friedmans. Virtustu blöð
Bretlands hafa öll skrifað leiðara um þessa afhjúpun.
The Observer bendir á að Hendry leiði í ljós að hver
einasta stefnufullyrðing í höfuðriti Friedmans sé töl-
fræðilega röng. Falsanir Friedmans á opinberum tölum
séu einsdæmi í hagfræðisögu síðari áratuga. Blaðið vek-
ur einnig athygli á þeirri staðreynd að Milton Friedman
hafi þagað þunnu hljóði sfðan niðurstöður prófessors
Hendrys voru birtar.
En það eru fleiri en Friedman sem hafa þagað. Morg-
unblaðið hefur ekkert birt um þessa afhjúpun. Hannes
Hólmsteinn sem dvelur í Oxford hefur gætt þess vand-
lega að fela þessi stórtíðindi. Verslunarráðið hefur
aldrei þessu vant ekki gefið út fréttatilkynningu. Þögn
þessara aðdáenda Friedmans hér á íslandi er hrópandi.
-ór
klippt
Hið pólitíska stjórnarfar er að því leyti líkt veðurfarinu að það bitnar
helst á skjóllitlum. Ljósm.: -eik.
Hœgra hungur
Sú íhalds- og fátæktarstefna
sem núverandi ríkisstjórn fylgir
fær nú verðskulduð viðmið þessa
dagana. Fyrirmyndin er sótt í
stefnu hægri stjórna erlendis og
sjónvarpið birti sl. föstudag ljót-
an vitnisburð um áhrif Reagan-
stjórnarinnar á hag alþýðu í
Bandaríkjunum. í þessu ríkasta
landi heims vex örbirgðin dag frá
degi vegna þess að algjörlega
skortir pólitískan vilja til þess að
jafna kjör fólks með nokkrum
hætti. Framlög alríkisins til
menningar-, mennta-, félags- og
fátæktarmála. hafa verið skorin
niður um helming og afleiðing-
arnar láta ekki á sér standa. Um
50 milljónir manna lifa nú við slík
sultarkjör að allt þetta fólk er á
mörkum þess að verða hungrinu
að bráð. Talið er að um 19
milljónir manna svelti í Banda-
ríkjunum, og Reaganstjórnin
hefur bætt milljónum manna í
þennan hóp. Tvöhundruð sinn-
um fleiri en íslendingar eru lifa
nú á hungurmörkunum í Banda-
ríkjunum.
Hókus-pókus
Nokkrir gamlir skarfar í hag-
fræðingastétt eins og Hayek og
Friedman hafa verið spámenn
hinnar nýju hægri-bylgju í iðn-
ríkjum heims. Nóbelsverðlauna-
hafinn Friedman þegir nú þunnu
hljóði eftir að hafa verið afhjúp-
aður sem „hókus-pókus“-kall,
sem hafi stórlega misbeitt opin-
berum tölum til þess að koma fót-
um undir kenningar sínar. Það er
áfall fyrir hægri stefnuna, þegar
einu helsta gúrúi þeirra er steypt
af stalli, en þó er ekki öll nótt úti
því Morgunblaðið er farið að
vitna í forystugreinum í spádóma
stjörnuspámanns og þykir Þor-
steini Sæmundssyni stjarn-
fræðingi það að vísu regin-
hneyksli. En á eitthvað verða
menn að trúa.
Önnur mynd
af Orwell
Hægri menn hafa lengi and-
skotast á George Orwell, þeim
sem samdi ágætar bækur einsog
Animal Farm - Dýrabúgarðinn -
og 1984. Bókmenntafræðingar og
margir merkismenn víða um
heim fjalla nú um arf Orwells og
hafa dregið upp allt aðra mynd af
honum en gert hefur verið í
hægra klifinu. Rit þessa manns
sem stóð með annan fótinn í
breska borgaraskapnum en hinn
meðal þrautpíndrar alþýðu voru
fyrst og fremst varnaðarrit til sós-
íalista frá sósíalista um þær hætt-
ur sem fælust í samruna flokks og
ríkis eins og í hinu sovéska mó-
deli. Og nú vill svo til að það eru
hægri menn á íslandi sem ríki
ráða á hinu dulmagnaða ári 1984.
Og „stóra-bróður-viðhorfin“
vantar ekki í því stjórnarfari eins
og lítilsvirðingin gagnvart þing-
inu og afnám samningsréttarins
sýndu. Borgaraleg öfl hafa ekki
hikað við að afnema grundvallar-
mannréttindi ef að þeim hefur
kreppt og því hafa viðvaranir
Orwells almennt gildi. (Vita
menn annars hvernig ártalið 1984
er tilkomið? Bókin kom út 1948,
og Orwell snéri síðari hluta árt-
alsins við. Hefði bókin komið út
1949 hefði bókin væntanlega
heitið 1994, og enn verið tíu ár
þangaðtil).
Maður ársins 1984
DV útnefndi launþegann
mann ársins 1983, fyrir einstakt
langlundargeð. Dagfari gerir því
skóna í D V í gær, að launamaður-
inn verði einnig maður ársins
1984 því að með sama áframhaldi
muni hann vinna kauplaust fyrir
ríkisstjórnina: „Vinnuveitendur
hafa af örlæti sínu og miskunn-
semi gert launafólki það gylliboð
að greiða því út í hönd bæði orlof
og veikindadaga og atvinnu-
leysisiðgjaldið, enda er það rök-
rétt ályktun af því forgangsverk-
efni að allir hafi vinnu. Hvað eiga
menn að gera við orlof eða
veikindi eða atvinnuleysisstyrki
þegar þeir eru tilnefndir sem
menn ársins fyrir þá skyldurækni
að mæta til vinnu fyrir ekki
neitt?“
Forsætisráðherra á pottþétt
svar við svona gríni. Eins og
margoft hefur komið fram hjá
honum hefur timburverð staðið í
stað síðustu mánuði. En þó timb-
urmaður Steingríms sé ánægður
er það engu að síður staðreynd að
hann er hálfum mánuði lengur að
vinna fyrir timbrinu sínu heldur
en hann var sl. vor.
- ekh.
og skorið
Ósvífni Vinnu-
veitendasambandsins
Alþýðublaðið fjallar á ske-
leggan hátt um stjórnmálaá-
standið í landinu í leiðara sl.
laugardag.
Þar er m.a. getið „tilboðs"
Vinnuveitendasambandsins.
„Tilboð uppá innan við 1 prósent
kauphækkun gegn afnámi tiltek-
inna félagslegra réttinda er ekk-.
ert tilboð. Slíkar hugmyndir eru
móðgandi".
Ekki lengur
við unað
Síðan segir: „Enginn vill að
þróun mála verði á þann veg, að
verkalýðshreyfingin eigi engra
annarra kosta völ, en grípa til
sinnar einu nauðvarnar, verk-
fallsaðgerða. Hitt er svo annað
mál, að við það ástand sem nú
ríkir getur enginn launamaður
unað - allra síst þeir sem lakast
standa. Það er hreint neyðará-
stand á fjölmörgum heimilum
láglaunafólks í landinu. Úrbætur
þessu fólki til handa verður að
gera tafarlaust. Svigrúmið er
ekkert hjá þessu fólki. Það þarf
að mæta þörfum þess þegar í
stað.“
Skýlaus svör
Þá segir Alþýðublaðið: „Á
allra næstu dögum verður forysta
verkalýðshreyfingarinnar að
ganga úr skugga um það með af-
dráttarlausum hætti, hvort vinnu-
veitendur og ríkisstjórnin ætlar
raunverulega að koma til móts
við það fólk í landinu sem vart
hefur ofan í sig eða á. Við slíkum
grundvallaratriðum verða að fást
skýlaus svör. Á grundvelli þeirra
verður verkalýðshreyfingin síðan
að ákveða næstu skref. En öllu
lengur verður málum láglaunaf-
ólksins ekki velt áfram í enda-
lausu málæði og þjarki. Nóg hef-
urverið talað. Núerkomið að því
að allir leggist á eitt og varanlegar
aðgerðir í málum láglaunahóp-
anna sjái dagsins ljós.“ _