Þjóðviljinn - 10.01.1984, Blaðsíða 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 10. janúar 1984
Fjárhagsáœtlun borgarinnar afgreidd
í hvað fara peningarnir?
Reykjavíkurborg ver til nýfram-
kvæmda á þessu ári ríflega 220
miljónum króna auk 254ra miijóna
sem fara í gatnaframkvæmdir. 190
miljónir fara í afborganir lána, 125
miljónir til BÚR og SVR. Rekstur
borgarinnar kostar 1800 miljónir.
Skólabyggingar
28 miljónum er varið til skóla-
bygginga og kemur ríkið með 22
miljónir til viðbótar. Stærsta fram-
lagið, 21,4 miljónir fer í 3ja áfanga
Hólabrekkuskóla í Breiðholti og
13,6 miljónir fara í Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti. Felld var til-
laga AB um 6,3 miljónir í Selja-
skóla en þess í stað á að flytja þang-
að færanlegar kennslustofur frá
Hólabrekkuskóla og sömuleiðis til-
laga Kvennaframboðs um 16 milj-
ónir á sama verkefni.
Einni miljón er varið til hvers
eftirtalinna skóla: Skóla við Graf-
arvog, Vesturbæjarskóla, Selja-
skóla og 1,5 til Olduselsskóla en
auk þess tæpum 8 miljónum í lóða-
framkvæmdir við ýmsa skóla. Felld
var tillaga Framsóknarflokks um
framkvæmdir við nýjan skóla í
Vesturbæ.
Menningarstofnanir
22.5 miljónum er varið til menn-
ingarstofnana, þar af 6,5 miljónum
til Borgarbókasafnsins í Gerðu-
bergi og 500 þúsund til menning-
armiðstöðvarinnar þar. 15 miljónir
fara til Borgarleikhússins og greið-
ir LR 6 miljónir til viðbótar, þannig
að Framkvæmdafé nemur samtals
21 miljón. Kjarvalsstaðir fá 500
þúsund en auk þess er varið 1,2
miljónum króna til listaverkak-
aupa.
Æskulýðsmál
2.5 miljónir fara í fyrirfram-
Stöðnun í uppbyggingu dagheimila:
Eitt dagheimili
„l>að stöðnunartímabil sem nú er
gengið í garð í dagvistarmálum í
borginni er Sjálfstæðismönnum til
skammar og gerir kosningaloforð
þeirra brosleg", sagði Guðrún
Agústsdóttir borgarfulltrúi á
fímmtudag þegar hún mælti fyrir
tillögu AB um aukið fjármagn til
byggingar dagvistarheimila á þessu
ári.
í fjárhagsáætluninni er aðeins
ætlað fé til byggingar eins dagvist-
arheimilis við Rangársel í
Breiðholti. Guðrún minnti á að
Sjálfstæðismenn í félagsmálaráði
hefðu ásamt öðrum þar samþykkt
að á árinu skyldi byrjað á þremur
heimilum. „I raun hefði átt að
byrja á Rangárselsheimilinu s.l.
haust“, sagði hún, „en því var þá
frestað vegna fjárskorts. Félags-
málaráð ákvað fyrir sitt leyti að það
skyldi þá byggt á þessu ári auk 3ja
deilda leikskóla og dagheimila í
Árbæ og á Eiðsgranda. Sjálfstæðis-
fulltrúarnir í borgarráði felldu hins
vegar þá tillögu."
Kosningaloforðin
Guðrún sagði: „Fyrir síðustu
kosningar var ýmsu lofað. Borg-
arstjórinn núverandi lagði á það
ríka áherslu að nú væri ekki um að
ræða innantóm kosningaloforð, -
nú yrði engu lofað sem ekki væri
hægt að standa við. Og borgar-
stjórinn hefur staðið við ýmislegt.
Með sama áframhaldi rísa aðeins
Qögur ný dagheimili á öllu kjörtím-
abilinu, sagði Guðrún Agústsdótt-
ir.
sem þá var lofað, t.a.m. nægilegt
framboð á lóðum. Það hefur hann
greidda leigu til KR í byggingu sem
félagið hyggst reisa á starfssvæði
sínu í Vesturbæ, en þar fær borgin
550 fermetra húsnæði á leigu til 27
ára fyrir félagsmiðstöð. Leigan
nemur samtals 9 miljónum og sam-
svarar byggingarkostnaði fél-
agsmiðstöðvarinnar. Ársel fær 800
þúsund og Tónabær 200 þúsund,
sigling og sjóvinna 50 þúsund.
Felld var tillaga Kvennaframboðs
um 4 miljónir til kaupa á húsi í
Vesturbæ fyrir félagsmiðstöð í stað
KR-samningsins.
Iþróttamál
Borgin ver 22,9 miljónum til ný-
framkvæmda í íþróttamálum og
bætast við tæpar 5 miljónir frá ríki
og grannsveitarfélögum vegna
Bláfjallafólkvangs. Stærsta verk-
efnið er sem fyrr gervigrasið í
Laugardal, 18,650 þúsund og voru
tillögur Alþýðubandalags og
á ári
svo sannarlega staðið við með af-
leiðingum sem allir þekkja.
Einn bækling frá ungum Sjálf-
stæðismönnum geymi ég vegna
þess að á honum stendur: „Við
biðjum þig að geyma þetta rit, því
þá getur þú fylgst með frá degi til
dags hvernig við stöndum okkur
miðað við það mark sem við höfum
sett okkur.“ Og hvað skyldi svo
standa þar um dagvistarmál? Jú:
„Við Sjálfstæðismenn ætlum að
halda áfram öflugri uppbyggingu
dagvista þar sem frá var horfið fyrir
fjórum árum.“ Varla getur
frammistaða Sjálfstæðisflokksins
talist öflug. Það væru öfugmæli að
halda slíku fram, því með sama
áframhaldi verður búið að byggja
fjögur ný dagvistarheimili í lok
kjörtímabilsins. Meirihlutanum
gefst hins vegar kostur á að efna
gefin loforð og samþykkja hér til-
lögu Alþýðubandalagsins um 12
miljónir til viðbótar í þennan mála-
flokk og byrja á þremur dagheimil-
um en ekki aðeins einu 1984.“
Allt fellt
Tillaga Alþýðubandalagsins var
felld svo og tillaga Kvennafram-
boðs um að 4% af útsvarstekjum
borgarinnar verði varið til bygging-
ar dagvistarheimila, sem hefði þýtt
24 miljónir til viðbótar í þann mála-
flokk.
-ÁI
Málefni aldraðra:
Engar úrbætur í ár
Sjálfstæðisflokkurinn felldi á
fímmtudag allar tillögur um
skjótar úrbætur í málefnum aldr-
aðra en 1165 ellilífeyrisþegar bíða
nú eftir leiguíbúð hjá borginni.
Guðrún Agústsdóttir mælti fyrir
tillögu Alþýðubandalagsins um 10
miljónir króna til kaupa eða leigu á
húsnæði sem leysti úr þörf ein-
hverra þeirra sem nú eru nánast á
götunni. Ekki væri hægt að sætta
sig við að bíða í rólegheitum til árs-
ins 1986, eftir því að Seljahlíðar
komist í gagnið. Núverandi ástand
væri gjörsamlega óviðunandi,-
Guðrún sagði m.a.: „í kosninga-
bæklingi ungra Sjálfstæðismanna
frá 1982 segir m.a.: „Styðjum aldr-
aða!“ Sjálfstæðismenn vilja að
aldraðir geti búið á heimilum sín-
um eins lengi og þeir sjálfir kjósa.
Sjálfstæðismenn munu áfram beita
sér fyrir byggingu hentugra leiguí-
búða fyrir aldraða, dvalar- og
hjúkrunarheimili." Þarna er ekki
minnst á söluíbúðir, sem nú virðast
eiga að leysa allan vanda“, sagði
Guðrún, „en áfram með bláa text-
ann: Við Sjálfstæðismenn ætlum
að gefa öldruðum kost á að kaupa
máltíðir á lágu verði í mötuneytum
borgarinnar.“
Slíka tillögu fluttum við Alþýðu-
bandalagsmenn við fjárhagsáætlun
í fyrra og núna fyrst ári síðar, er
búið að leggja fram í félagsmála-
ráði lauslega skýrslu um hvaða
mötuneyti kæmu til greina. Og ég
hef ekki orðið vör við nokkurn á-
huga á þessu máli hjá fulltrúum
Sjálfstæðisflokksins í félagsmála-
ráði.
En talað er um að Sjálfstæðis-
menn vilji að aldraðir geti búið á
heimilum sínum eins lengi og þeir
kjósa. Mikilvægurþátturtilaðgera
þeim það kleift er auðvitað að-
gangur að mötuneyti, en líka að fá
aðstoð við böðun. S.l. vetur var
komið fyrir nýjum tækjum við bað-
aðstöðu fyrir aldraða að Furugerði
1 og Lönguhlíð 3 og nýlega kom
sams konar búnaður í Norðurbrún
1. Starfsmenn félagsmálastofnunar
hefa beðið um að ráðnir verði 3
starfsmenn til að sinna þessum
mikilvæga þætti og við gerum því
að tillögu okkar að á það verði fall-
ist,“ sagði Guðrún.
Tillaga AB um 10 miljónir vegna
íbúða fyrir aldraða var felld svo og
tillaga Kvennaframboðs um fjár-
framlag til að stofna sambýli fyrir
aldraða. Tillagan um baðverði var
hins vegar samþykkt en tillögum
AB um aukið starfslið í mötuneyti í
Lönguhlíð og lengdan vinnutíma
forstöðumanns félagsstarfs þar var
felld. -ÁI
Kvennaframboðs um að hverfa nú
frá þessari framkvæmd felldar. Að-
eins 1,5 miljónum á að verja í bað-
og búningsklefa í Laugardalssund-
laug og var felld tillaga AB um 5
miljónir til að halda þeirri bygg-
ingu áfram, en hún hefur nú staðið
óhreyfð í rúmt ár. Fyrir 1,5 miljón-
ir er gert ráð fyrir að leggja flísar á
böðin, og eru það aðeins vinnu-
laun, flísarnar eru löngu keyptar.
6,8 miljónir fara í skíðalyftu í
Bláfjöllum, 500 þúsund í sund-
Iaugarnar í Laugardal, 300 þúsund
í stúkuna á Laugardalsvelli og 600
þúsund í aðrar framkvæmdir.
Útivist
14 miljónum er varið til verkefna
á sviði umhverfis- og útivistar, þar
af 5 til leikvallagerðar, en umhverf-
ismálaráð á eftir að skipta þessari
fjárhæð niður á hin ýmsu verkefni.
Felld var tillaga AB um 5 miljónir
til framkvæmda skv. óskum
hverfafélaga.
Heilbrigðismál
Rúmlega 19 miljónir fara í ný-
framkvæmdir á sviði heilbrigðis-
mála, og er reiknað með að ríkið
greiði 18,8 miljónir af þVí þannig
að hlutur borgarinnar verði aðeins
rúm 200 þúsund.
Helstu verkefni eru B-álma
Borgarspítalans, 15,3 miljónir,
Sundlaugin við Grensásdeild 2,2
miljónir og 1 miljón til þjónustu-
álmu Borgarspítala. 618 þúsundum
á að verja til heilsugæslustöðva við
Gerðuberg, Egilsgötu og annars
staðar. Ríkið hefur lagt 100 þúsund
til þeirrar uppbyggingar og felld
var tillaga AB um 2 miljónir til þess
að koma á heilsugæslukerfi.
Dagvist
Borgin ver á árinu 16,3 miljón-
um til byggingar dagvistarheimila
en með 5,7 miljón króna framlagi
frá ríkinu nær framkvæmdafé árs-
ins 22 miljónum króna. Aðeins var
eytt hluta af fjárveitingu síðasta árs
til dagvistarheimila, 6 miljónum af
9 frá borginni, en öllu ríkisfram-
laginu, tæpum 7 miljónum.
Helstu verkefni eru dagheimili
og leikskóli við Hraunberg 10,7
miljónir og leikskóli og skóladag-
heimili við Rangársel, 9,5 miljónir.
Auk þess 1,2 í skóladagheimili við
Hraunberg. Allar tillögur minni-
hlutans um auknar fjárveitingar til
dagheimila voru felldar.
Stofnanir aldraðra
Borgin ver 42 miljónum til bygg-
inga í þágu aldraðra og bætir Ríkið
8,5 miljónum við þá fjárhæð á
þessu ári. Stærsta verkefnið eru
Seljahlíðar, íbúðarhúsnæði sem
taka á í notkun 1986 og verður
byggt þar fyrir 45 miljónir í ár. VR
fær 8 miljónir vegna söluíbúða sem
félagið er að fara að byggja en
borgin greiðir þjónusturýmið þar.
Dalbrautin fær 600 þúsund og
Droplaugarstaðir 400 þúsund.
Tillaga Alþýðubandalags um 10
miljónir til kaupa eða leigu á hús-
næði fyrir aldraða strax á þessu ári
varfelld, ennfremur tillaga Kvenn-
aframboðs um 2,5 miljónir til
kaupa á húsnæði fyrir sambýli fyrir
aldraða. 1165 manns eru nú á bið-
lista Félagsmálastofnunar eftir
húsnæði fyrir aldraða.
Annað
3 miljónum á að verja í bíla-
stæðageymsluna í Seðlabankanum
og 500 þúsundum til athugunar á
annarri bílageymslu í miðþænum.
14,3 miljónir eru á áætlun vegna
breytinga á fasteignum borgarinn-
ar og er þá um að ræða skrifstofu-
haldið og 4 miljónir til kaupa á fast-
eignum. Tillaga Kvennaframboðs
um að falla frá breytingum á skrif-
stofuhúsnæði var felld. 1,2 miljónir
fara í leiguíbúðir í Aðallandi 8, og
22,7 til smíði og kaupa á íbúðum í
verkamannabústöðum.
-ÁI.
Tillagan um breytilegt útsvar:
Vísað frá með
útúrsnúningum
„Þetta var hreinn orðhengilshátt- -
ur og það má segja að tilíögunni
hafi verið vísað frá af Sjálfstæðis-
flokknum með útúrsnúningum ein-
um“, sagði Sigurjón Pétursson í
gær. Á föstudagsmorgun vísaði 12
manna meirihluti Sjálfstæðis-
flokksins frá tillögu Alþýðubanda-
lagsins um breytilega útsvarsálagn-
ingu eftir tekjum manna. 7 minni-
hlutamcnn greiddu tillögunni at-
kvæði, fuiítrúar Framsóknar-
flokksins sátu hjá.
í tillögunni var talað unt að
leggja „stighækkandi" útsvar á
menn og sagði Sigurjón að Davíð
Oddsson hefði túlkað það sem
skattahækkun og viljað vísa til-
lögunni frá á þeim forsendum. „Ég
bauðst til þess að breyta orðalaginu
í „stiglækkandi", nú eða þá
„breytilegt útsvar eftir tekjum
rnanna", en það kom fyrir ekki,“
sagði Sigurjón. „Þetta var tómur
orðhengilsháttur og þannig fríuðu
þeir sig við því að taka afstöðu til
tillögunnar."
Á fundi sínúm í desember sam-
þykkti borgarstjórn einróma sams
konar tillögu, frá Kvennaframboð-
inu sem fól í sér áskorun til fé-
lagsmálaráðherra unt að hann
beitti sér fyrir því að hámarksál-
agningu útsvars yrði aflétt og að
sveitarfélögin þyrftu ekki aö leggja
sömu útsvarsprósentu á alla. ,,Við
útfærðum þetta nánar í okkar til-
Aukin skattbyrði krefst breyttra á-
iagingarreglna, segir Sigurjón Pct-
ursson.
lögu,“ sagði Sigurjón, „og vildum
beina áskoruninni til alþingis,
þannig að hægt yrði að beita nýjum
reglum við álagninguna strax í vor.
Sjálfstæðismenn hljóta að hafa
misskilið tillöguna sem þeir sam-
þykktu í desember, fyrst þeir gátu
ekki fallist á þessa.“