Þjóðviljinn - 10.01.1984, Qupperneq 16
mmimm Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum simum: Ritstjórn Aöalsími Kvöldsími Helgarsími
! Þriðjudagur 10. janúar 1984 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins I síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Óvissa um framkvæmdir við Öskjuhlíðarskóla
Stöðvun yrði mikið áfall
Félagsmálaráðherra hefur látið hafa eftir sér að hann telji einsýnt að stöðva verði framkvæmdir við Oskjuhlíðarskóla í Reykjavík, en ætlunin var
að taka nýja álmu í gagnið á næsta ári. Ljósm. eik.
Helgi Ólafsson sem kunnugir kenna
hdgarskákmótin við.
Helgarskák-
mótið__________________
Helgi vann
Það kom fáum á óvart að Helgi
Ólafsson skyldi vinna 22. helgar-
skákmótið sem háð var í Ólafsvík
um sl. helgi. Helgi hlaut 6V2 vinning
af 7 mögulegum. Þetta er í 13. sinn
sem Helgi vinnur þetta mót.
í öðru sæti varð Jóhann J’órir
Jónsson með 6 vinninga, Guð-
mundur Arnarson í 3ja sæti með 6
vinninga en færri stig, Helgi Hans-
son með 5'/2 vinning, Sævar
Bjarnason einnig með 5V2 vinning,
Óli Valdimarsson hlaut sjötta sætið
með 5'h vinning, en um leið var
hann efstur í sk. öldungaflokki.
Einnig var keppt í sérstökum
aldursflokkum. í hópi keppenda 20
ára og yngri urðu efstir þeir Karl
Þorsteins og Árni A. Arason með 5
vinninga. Tómas Björnsson og
Arnór Björnsson hlutu 5 vinninga
og urðu efstir í flokki 17 ára og
yngri.
Helgi Olafsson hélt utan til
Gaukstad í Noregi í gær til að taka
þar þátt í alþjóðlegu skákmóti.
Verkalýðsfélagið á Hvammstanga mótmælir harðlega
Heiftarlegar ásásir
á kjör launafólksins
Verkalýðsfélagið á Hvamms-
tanga mótmælir í ályktun harðlega
hinum heiftarlegu árásum á lífskjör
launafólks, sem gerðar hafa verið
að undanförnu. Bendir fundur
verkalýðsfélagsins á, að nú þegar
séu hundruð heimila á barmi
gjaldþrots vegna stjórnarstefnunn-
ar og varar við áframhaldandi
hennar. Ályktun verkalýðsfélags-
ins er svohljóðandi:
„Aðalfundur verkalýðsfélagsins
Hvatar haldinn á Hvammstanga
8.1. 1984, mótmælir harðlega hin-
um heiftarlegu árásum sem gerðar
hafa verið á lífskjör launafólks á
undanförnum mánuðum. Fundur-
inn telur ástæðu til að ætla að á-
framhald verði á þeirri stefnu ríkis-
valdsins t.d. með afnámi ýmissa
réttinda sem fólkið í landinu hefur
öðlast í gegnum tryggingakerfið,
stórhækkuðu rafmagnsverðið 1. fe-
brúar nk. meðan útlendingum er
seldur helmingur allrar raforku
langt undir kostnaðarverði, stórí-
þyngdri skattbyrði á herðar launa-
fólks meðan bankakerfið og versl-
unin þenjast út einsog gorkúlur.
Og ríkisvaldið fyrst kastar miljóna-
tugum í flugstöðvarbyggingu á I
Keflavíkurflugvelli. Varar fundur-'
inn við áframhaldi þessarar stefnu
ríkisvaldsins og aðförum þess á
hendur launafólki.
Vill fundurinn benda á að nú
þegar er stór hluti heimila í landinu
á barmi gjaldþrots vegna hennar.
Jafnframt tekur fundurinn undir þá!
kröfu ASÍ, að að minnsta kosti 15'
þúsund króna mánaðartekjur verði
tryggðar öllu launafólki í landinu
og að örorku- og ellilífeyrisþegum1
verði tryggð samsvarandi launa-
kjör“. - óg
Álitsgerð Fisksjúkdómanefndar um álarækt hér á landi:
Enn ekkert svar borist
Eins og áður hefur verið skýrt
frá í Þjóðviljanum, hefur vaknað
mikill áhugi hér á landi fyrir ála-
rækt og hafa a.m.k. fjórir aðilar
sótt um leyfi til innflutnings á
glerál og álarækt. Nú eru liðnir 4
mánuðir síðan landbúnaðar-
ráðuneytið bað um álitsgerð
Fisksjúkdómanefndar varðandi
þetta mál, en svar hefur ekki bor-
ist enn. Munu umsækjendur vera
að missa þolinmæðina og mun að
vænta stórra aðgerða af þeirra
hálfu í málinu á næstunni.
Sveinbjörn Dagfinnsson, ráðu-
neytisstjóri í landbúnaðarráðu-
neytinu sagði í samtali við Þjóð-
viljann í gær að hann hefði ítrek-
að við nefndina að skila þessu
áliti og hann vonaðist til að fá
svar alveg á næstunni. Aftur á
móti heyrðist sér af samtölum við
menn að nefndin legðist gegn
innflutningi á glerál, þar sem að
bannað er samkvæmt lögum að
flytja lifandi vatnafisk til Islands.
Hins vegar benti Sveinbjörn á
að menn greindi á um hvort áll
væri fiskur, sumir teldu álinn ekki
vera fisk. Þá má geta þess, eins og
kom fram í grein um álinn í Þjóð-
viljanum fyrir skömmu að gleráll-
inn gengur úr Saragossahafinu
uppað ströndum Evrópu og mun
hann vera veiddur í ósum áa í
Evrópu og því spurning hvort um
sjávarfisk eða vatnafisk er að
ræða.
Sem fyrr segir mun tíðinda að
vænta frá þeim sem áhuga hafa á
álarækt hér á landi, alveg á næst-
unni. Þeir hafa lagt fram áætlanir
sem sýna hagkvæmni álaræktar,
sem mun vera meiri en flestra
annarra fisktegunda. Telja þeir
fornaldarvinnubrögð og sjón-
armið ríkjandi hjá þeim sem ráða
ferðinni í fiskræktarmálum hér á
landi.
- S.dór.
segir Jóhanna
Kristjánsdóttir
skólastjóri
Mikil óvissa ríkir nú um
framhald framkvæmda við
nýja áfmu Öskjuhlíðarskóla í
Reykjavík og hefur félagsmála-
ráðherra latið hafa eftir sér að
vegna fjárskorts verði að stöðva
framkvæmdir þar, en engin for-
mleg ákvörðun mun þó hafa
verið tekin ennþá í málinu. Ætl-
unin var að taka nýju álmuna í
notkun á næsta ári en hún hefði
bætt mjög úr því neyðarástandi
sem ríkt hefur í húsnæðismál-
um skólans síðasta áratuginn.
„Þessi ummæli félagsmálaráð-
herra komu okkur mjög á óvart því
við höfðum gert okkur vonir um að
bygging þessarar álmu gæti haldið
áfram allt til loka. Framkvæmda-
sjóður fatlaðra hefur auðvitað ver-
ið skorinn niður á fjárlögum eins
og aðrir sjóðir, en við töldum að sá
niðurskurður yrði látinn bitna á ný-
framkvæmdum en ekki þeim sem
þegar er byrjað á“, sagði Jóhanna
Kristjánsdóttir skólastjóri Öskjuh-
líðarskólans í gær.
„Það kemur okkur mjög spánskt
fyrir sjónir að félagsmálaráðherra
skuli einn hafa vald til að stöðva
þessar framkvæmdir. Sérstök
stjórn fer með framkvæmdasjóð
fatlaðra sem fjármagna átti þessa
viðbyggingu og mér er kunnugt um
að stjórn sjóðsins, sem tók við nú
um áramótin samkvæmt nýjum
lögum, hefur enn ekki komið sam-
an“, sagði Jóhanna ennfremur.
Framkvæmdasjóður fatlaðra
mun hafa til ráðstöfunar í ár um 60
miljónir króna en samkvæmt heim-
ildum Þjóðviljans eru umsóknir
um fjárveitingar upp á um 190 milj-
ónir króna. Þar sem hér er um
skólabyggingu á vegum ríkisins að
ræða heyrir málið einnig undir
menntamálaráðherra en Ragnhild-
ur Helgadóttir vildi ekkert láta
hafa eftir sér um málið að svo
stöddu. Ekki náðist í félagsmála-
ráðherra, Alexander Stefánsson í
gær.
- v.
Ofsarok á
Fáskrúðsfirði
Tjóná
húsum
Töluvert tjón varð á húsum þeg-
ar ofsarok gekk yfir Fáskrúðsfjörð
f fyrrinótt. Stór hluti af þaki síldar-
skemmu frá Pólarsfld fauk af og
Ienti hluti af brakinu í nærrliggj-
andi húsum. Þá fuku járnplötur
víða af húsum í bænum, m.a. af
gamla barnaskólahúsinu. Engin
slys urðu á mönnum.
Björgunarsveitin Geisli var
kölluð út til hjálpar á miðnætti en
veðrahamurinn stóð framundir
morgun. Rafmagn fór af byggðinni
um nóttina og síðdegis í gær var enn
víða rafmagnslaust í bænum.
-Ig-