Þjóðviljinn - 20.01.1984, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 20.01.1984, Blaðsíða 12
Opið föstudaga kh 09 — 21 í báöum búöum Laugardaga kl: 10 — 14 í Ármúla og kl. 10 — 16 á Eiðistorgi Vörumarkaðurinn hf.l ármúla ia eiðistorgi h Avallt á undan 12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINNlFöstudagur 20. janúar 1984 Silfurgarðurinn i höfninni í Flatey. Hann lét Guðmundur Scheving, Flateyjarkaupmaður, byggja um 1830 og greiddi verklaunin í silfri, sem þá þótti fáheyrt. Þaðan er nafnið komið. Silfurgarðar standa enn fyrir sínu. Alltí Þorramatinn ÍJllHÚSINU ■ BLAÐAUKI Föstudagur 20. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13 BLAÐAUKI! Þorraþrællinn 1866 Nú er frost á Fróni, frýs í æðum blóð. Kveður kuldaljóð Kári í jötunmóð. Yfir Laxalóni liggur klakaþil. Hlœr við hríðarbyl Hamragil. Mararbára blá brotnar þung og há unnar steinum á, yggld og grett á brá. Yfir aflatjóni æðrast skipstjórinn. Harmar hlutinn sinn hásetinn. Horfir á heyjaforðann hryggur búandinn: „Minnkar stabbinn minn, magnast harðindin. Nú er hann enn á norðan, næðir kuldaél yfir móa og mel, myrkt sem hel“. Bóndans býli á björtum þeytir snjá. Hjúin döpur hjá honum sitja þá. Hvítleit hringaskorðan huggar manninn trautt: Brátt er búrið autt, búið snautt. Þögull Þorri heyrir þetta harmakvein, en gefur grið ei nein, glíkur hörðum stein, engri skepnu eirir, alla fjær og nœr kuldaklónum slær og kalt við hlær: „Bóndi minn, þitt bú betur stunda þú. Hugarhrelling sú, er hart þér þjakar nú, þá mun hverfa, en fleiri höpp þér falla í skaut. Senn er sigruð þraut, ég svíf á braut“. Kristján Jónsson '.hs*c Þorrablót í Flatey Það heyrist stundum sagt hér sunnanlands, að Naustið hafi skapað Þorrablótin og fengið landsmenn til að borða súrmeti og „gamlan" íslenskan matog gera sér þannig dagamun á þessum árstíma. Víst er, að Reykvíkingar héldu ekki mannfagnað af þessu tilefni fyrr en Naustið fór að bjóða þorrabakka, en þá breiddist þessi siður út um alla borg og nú mun varlatil sá vinnustaður þar sem fólk hópar sig ekki saman a.m.k. einu sinni um Þorrann. En Þorrablótin tíðkuðust hér áður fyrr víða um land. Við höfum spurnir af slíkum blótum af Austfjörðum og úr Breiðafirði. í Flatey á Breiðafirði munu eyjar- skeggjar hafa hist á Þorranum svo lengi sem elsta fólk man, og etið hákarl og smjör ásamt fleira góð- gæti og rennt niður með brenni- víni. Fyrst í stað voru blótin haldin í heimahúsum, en árið 1930 var haldið mikið hóf í barnaskólanum í Flatey og upp úr því í ungmennafé- laginu. Sigurberg Bogason er innfæddur Flateyingur, sonur hjónanna Boga Guðmundssonar, kaupmanns í Flatey, og Sigurborgar Ólafsdótt- ur. Hann sagði okkur, að hann myndi vel eftir þessum blótum frá því hann var smákrakki og þau hafi verið meðal helstu viðburða ársins í eyjunum. „Það var borið á borð hákarl og riklingur, nýtt smjör úr Svefn- eyjum, þykkur rjómi, hangikjöt, harðfiskur og súrmatur ýmiss kon- ar,“ sagði Sigurberg. „Og það var sungið undir borðum og dansað fram undii morgun. Skemmtiatriði voru höfð; karlakór söng og síðan fór alltaf einhver með Þorrabrag svokallaðan, en í honum var ort um eyjabúa og helstu viðburði ársins. Þetta var saklaust grín, en stundum kom fyrir að einhverjum þótti fuhnærri sér höggvið, og úr urðu leiðindi. En það gerðist reyndar mjög sjaldan. Þeir Sveinbjörn P. Guðmunds- son og Gestur Gíslason kváðust á mönnum til skemmtunar, en þeir voru báðir hagyrtir vel. Og síðan var dansað og drukkið. Þetta fór fS ««5VSr Ur Bogabúð nokkuð skikkanlega fram og var rétt eins og Þorrablótin nú hér fyrir sunnan.“ Fyrir 1930 munu hátt á þriðja hundrað manns hafa búið í eyjunni og fimm skútur voru gerðar út frá Flatey. Flatey var þá verslunarmið- stöð fyrir allan Breiðafjörðinn og kaupskipin komu þangað hlaðin I einu elsta steinhúsi á landinu er sölubúð sem enn er með sömu ummerkjum og árið sem hún var sett á stofn, anno domini 1910. Þarna verslaði Bogi Guðmunds- son og hafði mikið umleikis. Hann keypti afurður afbœndum, ull og smjör og í búðinni hafði hann til sölu allt sem hugurinn girntist, á hillum voru strangar sem kvenfólkið handfjatlaði og körlunum seldi hann Ijái og öng- la, í loftinu héngu á krókum pönnur og pottar, katlar og kast- arolur. Og þarna í Flatey varflutt út, á ári hverju voru búnartilþús- undir af rúllupylsum beint til út- flutnings... Bogi varsmiður hagur og lagði gjörva hönd á margt. Hann smíð- aði hrífur og orf, skar út hillur og tígulstokka og margt annað. En þó er ótalinn sá , smíðisgripur lians sem mér varð einna minni- stæðastur á smíðaloftinu yfir Bogabúð. Sólskinið þröngdi sér inn um lítinn glugga á suðurgafl- inum, þar stóð hefilbekkur gamla mannsins og var þar allt með kyrrum kjörum; hnífar, tengur, hamar, þjalir og sagir. Spónahrúga á gólfinu og hrífum og orfum snyrtilega raðað upp við vegg. Við hefilbekkinn stend- ur líkkista, smíðuð úr furuborð- um, hvítmáluð. Þessa kistu smíð- aði Bogi kaupmaður sjálfum sér. Og aðra hafði hann smíðað utan um konu sína... (Bls. 19-20) ast Jónas Árnason, rithöfundur og fyrrum alþingismaður, bjó um tíma í Neskaupstað. Þar hélt hann nokkrar rolluskjátur til að lífga upp á tilveruna, og var ekki vel séð af sumum. Rollurnar þóttu ekki ganga vel um og spilla bæjarbragnum. Þá orti Jónas: Garðarollan mér leggur lið í lífsbjargarviðleitni minni. Hún breytir í hrútspunga, blóðmör og svið blómaræktinni þinni. varningi, sem síðan var skipað áfram til lands. Þá var leikið í pakk- húsinu, haldnar verkalýðs- og kvenfélagsskemmtanir og jólaböll. Upp úr 1930 fór fólkinu að fækka og nú er þar aðeins búið í þremur húsum allt árið. Á sumrin fyllist eyjan af fólki og þetta fyrrum forð- abúr Vesturlands er orðið að sumarleyfiseyju. Árið 1964 gáfu þeir út bók sam- an Jökull Jakobsson og Baltasar, sem þeir skírðu „Síðasta skip suður“. Jökull segir frá Flatey og Baltasar myndskreytir. Við skulum sjá hvað Jökull hefur að segja af Boga Guðmundssyni, kaupmanni í Flatey. Þorramatarbakkar: Hrútspungar ndabaggi hvalur smjör viðasulta ringukollar hangikjöt blóðmör lifrarpylsa harðfiskur hákarl rúgbrauð ÞAÐ ER NOTALEGT KJÖTBORÐIÐ OKKAR — og afgreiðslan lipur og þægileg — Opiö: Mánud.-fimmtud. 9-19 föstud. 9-20 laugard. 9-16. — matvörur — fatnaður — húsgagnaúrval á tveimur hæðum — raftæki — rafljós — reiðhjól Ný verslun Flatey 2. hæö. • Bækur • Leikföng • Búséhöld. NYJUNG ■|ök » JL grillið Grillréttir allan daginn M#1* Röttur dagsins Munið nýja heilsuhornið Jón Loftsson hf. JL L Hringbraut 121 Sími 10600 bringukollar slátur svið og sviðasulta harðfiskur flatkökur lundabaggar hákarl hrútspungar ammíK KAUPFÉLAG REYKJAVÍKUR OG NÁGRENNIS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.