Þjóðviljinn - 20.01.1984, Side 23
Föstudagur 20. janúar 1984 ÞJOÐVILJINN - SIÐA 23
RUV 1
7.00 Veðurfregnir. Fréltir Bæn Á virkum
degi. 7.25 Leiktimi 7.55 Daglegt mál.
Endurtekinn þáttur Erlings Sigurðarsonar
frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð - Ftagnheiður Haraldsdóttir
talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Skóla-
dagar" eftir Stefán Jónsson Þórunn
Hjartardóttir les (10).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleik-
ar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir'. Forustugr.
dagbl. (útdr.)
10.45 „Það er svo margt að minnast á“
Torfi Jónsson sér um þáttinn.
11.15 Dægradvbl Þáttur um fristundir og
tómstundastörf i umsjá Anders Hansen.
11 >45 Tónleikar.
12.00 Dagskrá. Tónleikar, Tilkynningar.
12.20 Fréttir 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
14.00 „Brynjólfur Sveinsson biskup " eft-
ir Torfhildi Þorsteinsdóttur Hólm
Gunnar Stefánsson les (19).
14.30 Miðdegistónleikar Filharmóníu-
sveitin i Oslo leikur „Karnival i París" op.
9 eftir Johan Svendsen; Óivin Fjeldstad
stj.
14.45 Nýtt undir nalinni Hildur Eiriksdóttir
kynnir nýútkomnar hljómplötur.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar Ríkisfilharmóníu-
sveitin í Brno leikur Slavneska svitu eftir
Víteslav Novák; Karel Sejna stj. / Janos
Solyom og Filharmóníusveitin í Múnc-
hen leika „Dauðadansinn" eftir Franz
Liszt; Stig Westerberg stj.
17.10 Siðdegisvakan
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn Stjórnendur; Guðlaug
Maria Bjarnadóttir og Margrét Ólafsdótt-
ir.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thor-
oddsen kynnir.
20.40 Kvöldvaka a. Jónmundur prestur
Halldórsson Frásöguþáttur í samantekt
og flutningi Baldurs Pálmasonar. b.
Helgikvæði Sigurlína Daviðsdóttir les
kvæði eftir Kolbein Tumason, Jón Ara-
son, Ásmund skáld og Jón Helgason.
Umsjón: Helga Ágústsdóttir.
21.10 Karalakórinn Ægir i Bolungarvík
og Karlakór isafjarðar syngja islensk
og erlend lög. Stjórnendur: Kjartan Sigur-
jónsson og Ólafur Kristjánsson. Pianó-
leikari: Guðbjörg Leifsdóttir. Einsöngvar-
ar: Kjartan Sigurjónsson, Björgvin Þórð-
arson og Bergljót S. Sveinsdóttir.
21.40 Við aldahvörf Þáttur um brautryðj-
endur i grasafræði og garðyrkju á íslandi
um aldamótin. Vll.og siðasti þáttur:
Einar Helgason . Umsjón: Hrafnhildur
Jónsdóttir. Lesari með fænni Jóhann
Pálsson (RÚVAK).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Djassþáttur Umsjónarmt ður: Gerard
Chinotti. Kynnir: Jórunn Tómosdóttir.
23.15 Kvöldgestir - þáttur Jónasar
Jónassonar
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá RÁS 2 hefst með
veðurfregnum kl. 01.00 og lýkur kl.
03.00.
RUV 2
10-12 Morgunvaktin.
14-15 Pósthólfið. Hróbjartur Jónatansson og
Valdís Gunnarsdóttir taka á móti óskalögum
og persónulegum sögukornum frá hlustend-
um.
16-18 Helgin framundan. Jóhanna Harðar-
dóttir sér um lifandi útvarp á annatíma.
Upplýsingum um það helsta sem gerist um
helgina verður skotið inn I dagskrána svo
fólk geti hugleitt hverníg það geti fyllt upp í
rólega daga framundan.
23.15-03.00 Næturutvarp. Ólafur Þórðarson
verður skipstjóri á næturvaktinni og stendur
við stjórnvölinn í fjóra tíma.
RUV
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Á döfinni Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson. Kynnir Birna Hrólfsdóttir.
20.50 Við múrinn (At the Last Wall) 6.
október 1982 hélt breski rökksongvarinn
og lagasmiðurinn Kevin Coyne h Ijóm-
leika i Potsdamtorgi i Berlín sem fylgst
er með í þætti þessum.
21.30 Kastljós Þáttur um innlend og erlend
málefni. Umsjónarmenn: Bogi Agústsson
og Sigurveig Jónsdóttir.
22.30 Sumarlandið (Smultronstallet)
Sænsk biómynd frá 1957, Hófundur og
leikstjóri: Ingmar Bergman. Aðalhlutverk:
Victor Sjöström, Gunnar Björnstrand,
Ingrid Thulin, Bibi Andersson og Folke
Sundquist. Aðalpersóna myndarinnar er
aldraður maður sem tekst ferð á hendur.
En þetta ferðalag verður honum jafnframt
reikningsskil við fortið og nutið svo að
hann verður ekki sami maður að leiðar-
lokum. Þýöandi Þorsteinn Helgason.
00.00 Fréttir i dagskrárlok
Rabb um
veðrið,
beitingu
og fleira
Veðrið
Hér í Vestmannaeyjum hefur
frá áramótum verið einmuna
ótíð, svo römm að elstu menn
rnuna ekki verra. Suðvestan rosi
með hafróti svo að við lá að græfi
undan skipalyftunni, en senr bet-
ur fór stóð Eiðið hafrótið af sér
þó að nagað sé stórt skarð í það,
og ekki annað sjáanlegt en að úr
þurfi að bæta ef mannvirki eins
og skipalyftan á ekki að vera í
stórri hættu.
Ferðir Herjólfs lögðust niður í
tvo daga, og er hann þó ekki
kræsinn, því sjaldan kemur fyrir
að hann fari ekki í Þorlákshöfn,
enda þúsund tonna skip. Nokkrir
bátar hafa ætlað á línu, en aldrei
gefið á sjó og er það bagalegt því
fiskur er kominn á miðin eftir
venju.
Dýrtíð
Atvinnuleysi er hér ekki telj-
andi, að minnsta kosti ekki hjá
karlmönnum við að undirbúa
komandi vertíð, en rýrt held ég
það hafi verið hjá veikara kyninu
ef maður á að tala svona. Lifa
menn nú á því sem síldin gaf af
sér, því átta tíma vinnudagur ger-
ir ekki mikið í alla dýrtíðina.
Matvara og aðrar nauðþurftir
hafa frekar hækkað en lækkað
svo menn hljóta að spyrja: Hve-
nær fara ráðstafanir ríkisstjórnar-
innar að koma fólki til góðs?
Nei, þetta er helber skrípa-
leikur, blekking af versta taginu.
Kenna þarf mönnum handtökin við beitingu - segir bréfritari
Þetta er eins og þegar hundur er
að eltast við skottið á sér.
Beiting
í dag er 12. janúar og sést örlít-
ill munur á birtu þó blessuð sólin
sé lágt niðri ennþá, en allt stend-
ur þetta til bóta. Hér er töluverð-
ur snjór. Það er logn og brimlítið
svo línubátar eru á sjó. Vonandi
fá þeir hann því hann er besta
hráefnið, sem hægt er að fá svona
spriklandi upp úr sjónum. Ann-
ars held ég að það standi á
beitingamönnum. Það eru orðnir
svo fáir sem kunna að beita. Það
þyrfti að fara að kenna mönnum
handtökin við þetta ef beiting á
ekki að tilheyra fortíðinni. En
beiting er ekkert sældarbrauð.
Það þarf sterkt bak að standa frá
kl. 5 á morgnana til kl 5-6 á
kvöldin og svo að bíða eftir bátn-
um, sem kannski kemur ekki að
fyrr en kl. 10-11 á kvöldin og þá
er eftir að landa aflanum. Annars
held ég að flestir beiti í ákvæðis-
vinnu eða akkorði. Þá þurfa
menn ekki að bíða eftir bátnum.
Nei, beitingin fer að tilheyra for-
tíðinni ef ekki á að fara að vekja
hana upp aftur. Fyrir unga menn
og hrausta ætti hún að vera leikur
einn. Auðvitað þyrfti að bjóða
betri kjör til þess að laða menn að
henni, ef menn fengjust til að
beita upp á tryggingu eða hlut,
því eins og ég sagði hérna fyrr, er
beitingin ekkert sældarbrauð. En
vonandi lagast þetta allt saman
með betri tíð með blóm í haga
eins og nóbelsverðlaunaskáldið
sagði.
Magnús Jóhannsson
frá Hafnarnesi.
Fram-
tíðin
á
RÁS 2
Sjónvarp kl. 22.30
Sumarlandið
Á myndinni eru Bibi Anderson og Victor Sjöström í hlutverkum sínum
í sænsku í bíómyndinni Sumarlandið sem verður sýnd í sjónvarpinu í
kvöld.
Á RÁS 2 huga menn nú að
skipulagsmálum. Nú er verið að
líta yfir farinn veg og skoða hvar
endurbóta er helst þörf. Ætlunin
er að gefa út prentaöa dagskrá
um næstu mánaðamót. Sú
reynsla sem fengist hefur leiðir til
þess að nú er mögulegt að ákveða
dagskrárliði með fyrirvara.
Unglingaþátturinn Frístund
sem Eðvarð Ingólfsson sér um og
hefur verið á fimmtudögum er
geysi vinsæll. Hundruð bréfa
streyma til þáttarins að sögn
Þorgeirs Ástvaldssonar. Hann
sagði Þjóðviljanum að hann hefði
mikinn áhuga að koma einhvers
konar skólaútvarpi á. Þar ætti að
vera möguleiki á, að krakkar
skipuleggi dagskrárþætti í sam-
ráði við sinn skóla og kennara.
Þáttur Eðvarðs er fyrsti vísir að
slíku útvarpi. Þar hafa krakkar
valið sér lög og kynnt þau, auk
þess sent leikþáttunr frá þeirn hef-
ur verið útvarpað.
- Jl>
Sjónvarp
kl. 21.30
Kastljós
í Kastljósi í kvöld verða þrjú
mál á dagskrá.
í fyrsta lagi verður fjallað um
öryggismálaráðstefnuna í
Stokkhólnri og rætt við Friðrik
Pál Jónsson fréttamann sem
staddur er í Stokkhólmi. Einnig
verður sýnt stutt viðtal sem
sænska sjónvarpið tók við so-
véska andófsmanninn Roy Me-
dvedev.
í öðru lagi verður haft viðtal
við Björn Matthíasson hag-
fræðing hjá Seðlabanka Is-
lands, um efnahagslíf í Banda-
ríkjunum og í Evrópu.
1 þriðja lagi verður fjallað
stuttlega um ástandið í Nígeríu
eftir valdaránið um áramótin.
Umsjónarmenn þáttarins i
kvöld eru Bogi Ágústsson og
Sigurveig Jónsdóttir.
Rás 1, kl. 23.15
Kvöld-
gestir
Kvöldgestir verða á dagskrá
rásar 1 kl. 23.15 í kvöld. Gestir
Jónasar eru Kristín og Fanney
Geirsdætur í Hringveri á Tjörn-
esi. Þátturinn var áður á dag-
skrá þann 9. desember sl.
bridge
Spiliö í dag er nokkuö furöulegt. Þegar
þaö kom fyrir í New Orleans 1978 á HM i
tvímenning, var sami samningur (6
spaöar) spilaöur á 27 borðum af 32 i
úrslitum mótsins og fór alls staðar niður.
Viö eitt borðið sátu góökunningjar
okkar, Alan Sontag og Peter Weichel.
Og þeir voru ekki í vandraeðum meö
þetta spil:
D964
ÁK643
98
K4
ÁKG2
G108
KG6
ÁD8
Sontag í Suður opnaði á 1 laufi (sterkt,
17 hp. eða meir), Weichel sagði 1 hjarta
(eðlilegt, 8 hp. eða meir), Sontag 1 grand
(spurning um kontról háspilastyrk),
Weichel 2 hjörtu (4 kontról, einn ás 2Kj
og tvo kónga (1K hvor), Sontag 2 grönd
(eðlilegt), Weichel 3 spaða (lofar fjórlit í
spaða), eðlilegt. Sontag 3 grönd og
Weichel 4 grönd sýnir auka-styrk og er
um leið áskorun, sem Sontag lét ekki
bjóða sér tvisvar og sagði 6 grönd, horf-
andi á valdið í tiglinum hjá sér.
Nú, slemman var auðunnin með hjart-
adrottningu réttri. Spilið gaf háa skor til
þeirra félaga, enda erlitt að kyngja því að
27 pör af 32 hafi endaö i 6 spaða samn-
ing á þessi spil, í tvímenningskeppni.
Tikkanen
Uppgötvir þú eitthvað getur
það átt sér þá skýringu að þú
hafir ekki kynnt þér nógu i tikið
af því gamla.
Gœtum
tungunnar
Sagt var: Þar búa menn af ýms-
um þjóðernum.
Rétt væri: ... menn af ýmsu
þjóðerni.