Þjóðviljinn - 10.02.1984, Side 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 10. febrúar 1984
Jón Kristjánsson og Tumi Tómasson fiskifrœðingar:
Nýting eða grisjun
Við höfum orðið þess varir
að gagnrýni okkar á fisk-
veiðistef nuna hefur verið
misskilinaf ýmsum.Ein-
hvern veginn hefur það kom-
ist inn hjá fóiki að hér sé um
að ræða spannarlangan f isk
sem veiða verði upp til þess
að þau kóð sem eftir verði fái
viðurværi.
Þetta er rangur skilningur á
því sem við höfum verið að
tala um og þess vegna viljum
við gera nánari grein fyrir
máli okkar.
Svarta skýrslan
Upphaf þessa máls var að við
gátum ekki fallist á ráðleggingar
Hafrannsóknastofnunar um það
hvernig skyldi bregðast við því á-
standi sem gögn hennar sýndu að
þorskstofninn væri í. í skýrslu
hennar stóð: „Ástand þorsk-
stofnsins er mun lakara en áður var
ætlað. Áætlað er að heildarstofn í
ársbyrjun 1984 verði um 1130 þús.
tonn og stærð hrygningarstofns 300
þús. tonn.“ ....„dregið hefur úr
vaxtarhraða þorsksins undanfarin
ár.“
Síðar stendur í skýrslunni:
Hafrannsóknastofnunin telur
nauðsynlegt að stuðla að vexti
þorskstofnsins á komandi árum í
þeim tilgangi að auka afrakstur
stofnsins í náinni framtíð. Þær nið-
urstöður, sem ntú liggja fyrir um
ástand stofnsins benda til þess, að
þessu markmiði verði ekki náð
nema með því að takmarka þorsk-
afla á nœsta ári við um 200 þús.
tonn.
Þetta var það sem við gátum ekki
fengið til að ganga upp. Ef drægi úr
vexti gripa hjá bónda vegna fóður-
skorts þætti það ekki góð bú-
mennska að fjölga enn á jötunni.
Vöxtur og
stofnstærð
Það eru einföld samningi í dýra-
fræði að vöxtur einstaklinga í stofni
er háður þeirri fæðu sem til fellur
handa hverjum og einum. Sé mat-
arbúrið af ákveðinni stærð er vöxt-
ur hvers einstaklings í stofninum
háður stofnstærð. Þó Hafrann-
sóknastofnun virðist ekki viður-
kenna það þá gildir þetta einnig um
fiskstofna í sjó. Gulland (hann er
höfundur margra handbóka sem
fiskifræðingar nota) segirt.d. íbók
sinni Fish Stock Assessment frá
1983 á bls. 166:
„Growth values are likely to
decrease and natural mortality
increase as the stock increases".
(Sennilega minnkar vöxtur og nátt-
úruleg dánartala vex þegar stofn-
inn stækkar).
Hvernig er hægt að byggja stofn-
inn upp með friðun þegar vaxtar-
hraði er minnkandi og náttúruleg
dánartala líklega vaxandi?
Reiknilíkan
með föstum
breytistærðum
Okkur þykir einnig hæpið að
nota reiknilíkan til þess að reikna
út framleiðslu þorsks í sjónum, án
þess að taka tillit til þess að þorsk-
urinn er hluti af sínu eigin umhverfi
og þættir eins og náttúruleg dánart-
ala, vaxtarhraði og nýliðun eru allir
tengdir stofnstærð. Til dæmis hefur
verið reiknað með því að náttúru-
leg dánartala þorsks sé alltaf 18% á
ári hjá öllum árgöngum þriggja ára
og eldri. (Náttúruleg dánartala er
það hlutfall hvers árgangs sem ár-
lega deyr af „eðlilegum ástæðum"
sé engin veiði stunduð).
í grein sinni frá 1967 um þorsk-
inn í Barentshafi reiknaði Garrod
út að náttúruleg afföll hjá þorski
sex ára og eldri væru að meðaltali
28% á ári, svo sjá má að þetta getur
verið breytilegt. Auðvelt er að
sýna fram á að það borgi sig að
sækja meira í yngri fisk ef náttúru-
leg dánartala vex.
V.P.-stofnmæling
Hafrannsóknastofnunin notar
V.P.-stofnmælingu til þess að
reikna út stofnstærð. Áðferðin
byggir á því hve mikið veiðist af
hverjum aldursflokki á hverju ári.
Ekki þarf að lesa margar greinar
um fiskifræði til að komast að því
að sérfræðingar eru almennt óá-
nægðir með þessa aðferð, m.a.
vegna þess að hún sýnir ekki fyrr en
á eftir hve stofninn var stór. Þeir
nota hana samt vegna þess að þrátt
fyrir gallana sé ekki völ á öðru
betra. Á fundinum í líffræðingafé-
laginu stungum við upp á að nota
vaxtarhraða sem stofnstærðarmæl-
ingu, vegna þess nána sambands
sem ríkir milli þessara þátta. Slíkar
hugmyndir eru ekki nýjar af nál-
inni, þær voru settar fram fyrir
seinna stríð af fiskifræðingum sem
unnu með sjávarfiska og reyndar
teknar í notkun síðar í vötnum í
Hollandi m.a.
Sóknarbreytingar
og vöxtur þorsks
Á síðustu árum hefur dregið úr
vexti hjá þorski sbr. Mynd 1. Sú
stefna var tekin upp á árunum 1976
og 1977 að takmarka veiðar á smá-
fiski í þeirri von að hún skilaði sér í
aukningu á stórum fiski síðar. For-
sendan hlýtur að hafa verið sú að
fæðudýr fiskstofna væru ekki
fullnýtt.
Um árangur friðunaraðgerð-
anna segir dr. Sigfús Schopka í
grein í Ægi 1980:
„Ef borin er saman meðalsókn í
sérhvern aldursflokk þorsks (mœld
í fiskveiðidánarstuðlum) árabilið
1971-1975 annars vegar við árabilið
1977-1979 hins vegar, eftir að
möskvastœkkunin er komin ífram-
kvœmd og Bretar horfnir af ís-
landsmiðum, þá kemur í Ijós að svo
til öll sóknarminnkunin, sem hefur
átt sér stað, er í yngri aldursflokk-
ana eins og vænta mátti. Þannig
hefur sókn í 3 ára þorsk minnkað
'um 78% skv. bráðabirgðatölum,
35% í 4 ára þorsk og 25% í 5 ára
þorsk, en sóknarminnkun eldri
þorsks er hverfandi (tafla 1).“
Tafla 1. Þorsksókn.
Meðalfiskveiðidánarstudlar Sóknar-
Aldur 1971-19751977-1979 minnkun í%
3 0,112 0,025 78
4 0,313 0,204 35
5 0,493 0,372 25
6 0,557 0,504 10
7 1,045 0,986 6
Virðist því eðlilegt að spyrja
hvort rekja megi hægari vöxt til
þessarar sóknarminnkunar í ung-
þorsk.
Hvað er
smafiskur?
í nýbirtri greinargerð Hafrann-
sóknastofnunarinnar segir:
„Fram hefur komið hjá fiski-
fræðingunum Jóni Kristjánssyni og
Tuma Tómassyni, að samdráttur í
vexti þorsks á síðustu árum stafi af
fœðuskorti, sem orsakaðist af of
mikilli mergð smáfisks í kjölfar þess
að möskvi togveiðarfæra var
stækkaður 1976 og 1977.“
í ljósi þess að venjulegt fólk
leggur þann skilning í hugtakið
smáfisk að hann sé svo smár að
hann sé varla söluvara er rétt að
skilgreina þetta hugtak nánar svo
menn hafi það alveg á hreinu um
hvað er rætt þegar þorskur á í hlut.
Frá 1975 hefur lágmarkslengd
þorsks sem landa má verið aukin úr
43 sm í 50 sm, og ef fjöldi 57 sm
þorska í afla fer yfir 30% er við-
komandi veiðisvæði lokað í viku
(sk. skyndilokun). Þegar fískifræð-
ingar tala um smáfísk í dag eiga
þeir við þorsk sem er minni en 57
sm að lengd. Slíkur þorskur er tæp
4 pund að þyngd. Þessi fiskur var
stór hluti aflans á íslandsmiðum
hér áður fyrr, eða fram til þess tíma
að ákveðið var að friða hann.
Hvað er
lagt undir?
Þegar ákveða skal friðunarað-
gerðir verður að vega það og meta
hverju er fórnað og hvað gæti
áunnist. Með því að friða er verið
að fórna ákveðnum afla í von um
meiri afla síðar. Þessu er svipað
farið og með verðbréf. Á að selja
þau strax á náfnverði eða geyma
þau og bíða eftir því að verðið
hækki og taka jafnframt þá áhættu
að þau gætu fallið í verði?
Lokaorð
Við höldum að orsökin fyrir
vaxtarrýrnun þorsks sé að fjöldi
fiska sé of mikill miðað við þá fæðu
sem þeir hafa til skiptanna. Þetta sé
afleiðing þeirrar friðunarstefnu
sem mörkuð var 1976 og '11. í
greinargerð Hafrannsóknastofn-
unarinnar eru þessar skoðanir okk-
ar dregnar mjög í efa, aðrir skýr-
ingar á vaxtarrýrnuninni sem nær-
tækari. Umræður um þær skýring-
ar eru reyndar efni í heila blaða-
grein, en að okkar dómi er það
ekki réttur vettvangur á þessu stigi
málsins.
Útskýringar í blaðagreinum
verða að vera þannig að allur al-
menningur geti skilið þær og það
þýðir mjög langt mál, tilvitnanir og
endurtekningar. Nær væri að sér-
fræðingar ræddu þessi mál og
reyndu að komast að niðurstöðu.
Við erum reiðubúnir að taka þátt í
slíkum umræðum á þeim jafnréttis-
grundvelli að vísindaleg þekking
manna sé ekki metin í öfugu hlut-
falli við hæð silungsvatna yfir sjó.
Þessi þorskur er á mörkum þess sem kallast smáfískur eða 57 sm (ljósm. -eik-).