Þjóðviljinn - 23.02.1984, Side 3
Fimmtudagur 23. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Samningarnir
gagnvart
launafólki
í fiskvinnu
Fólkið er viku að
vinna sig í bónus
í samningi ASÍ og VSÍ segir að þeir hafí rétt til
lágmarkslauna sem hafí innan við umsamin tekju-
mðrk, 12.660.- krónur í samanlagðar dagvinnutekjur
á mánuði. Þjóðviijinn fékk þær upplýsingar hjá Vinn-
uveitendasambandinu að þetta kæmi þannig út
gagnvart konum sem vinna bónusvinnu í frystihúsum,
að grunnlaun þeirra sem hefðu haft 10.774.- krónur í
grunnlaun á mánuði samkvæmt 10. flokki eftir 3 ára
starfhækkuðu nú uppí 11.313.-krónur ámánuði. Þær
eru því 1.347.- krónum undir lágmarkstekjum. En þar
sem þær vinna í bónus kemur ákvæðið um lágmarks-
tekjur þeim ekki til góða. Hins vegar þurfa þær að
vinna í bónus fyrir þessum mismun, 1.347.- krónum,
áður en bónusinn fer að mæla þeim umframtekjur
fram yfír þær konur sem njóta lágmarkstekna.
í Bæjarútgerð Reykjavíkur fengum við að vita að
bónus í fiskvinnslu gæfi að meðaltali 33 kr. á klukku-
stund. Konurnar þurfa því að vinna rúmar 40 stundir
eða heila viku á hverjum mánuði, án þess að fá nokkuð
aukalega greitt fyrir það. Bónusinn mælist einungis
síðustu 3 vikur mánaðarins. Þannig hafa hinir nýju
samningar ASÍ og VSÍ komið á þeim sérstæða við-
skiptahætti á vinnumarkaðnum að láglaunakonur í
verkalýðsstétt þurfa að gefa vinnuveitendum einnar
viku umframaflcöst í bónuskerfi til þess að fá greitt
fyrir umframafköstin næstu þrjár vikur á eftir.
Við bárum þetta undir Rögnu Bergman formann
Verkakvennafélagsins Framsóknar, sem sagði það
rétt að bónusinn færi ekki að mæla umframtekjur fyrr
en komið væri framyfir lágmarkslaunin. Hún sagði að
þær hjá Framsókn væru ekki ánægðar með samning-
inn, en hins vegar hefðu þær orðið að láta þær fjöl-
mörgu konur sem ekki hefðu bónus og væru undir
lágmarkstekjunum hafa forgang. Hún sagði að í samn-
ingnum væri ákvæði um endurskoðun afkastahvetj-
andi launakerfa og eins kæmi til greina að konur hættu
að vinna samkvæmt bónuskerfi.
Konurnar í Bæjarútgerðinni tjáðu Þjóðviljanum að
þær væru nú með um 63 kr. í laun á klst., en bónusinn
væri að meðaltali um 33 kr. á klst. Af þessu virðist
mega ráða að stóra átakið í að bæta hag hinna lægst
launuðu með þessum samningum hafi ekki náð til hins
fjölmenna hóps kvenna í fiskvinnu, sem ber uppi höf-
uðatvinnuveg þjóðarinnar. Þjóðviljinn tók nokkrar
konur í Bæjarútgerðinni tali í gær. ólg.
Kristín Guð-
mundsdóttir:
„Hver
áað
vera
ánægð?“
„Ég hef nú ekki kynnt mér samn-
ingana í smáatriðum, en ég get eng-
an veginn sagt, að ég sé ánægð með
þá,“ sagði Kristín Guðmundsdótt-
ir, en hún vinnur hjá Bæjarútgerð
Reykjavíkur.
„Þær eru búnar að reikna það út
hérna, að það er í raun tekin af
okkur heil vika í bónusgreiðslum,
ef við þá reiknum með meðalbón-
us. Það tekur konu viku að ná upp
þeim bónus, en meðalbónusinn
gefur 33 krónur á tímann. Hver á
að vera ánægð með þessa samn-
inga?“
„Þær eru búnar að reikna það út
hérna að það er tekin af okkur heil
vika í bónus,“ segir Kristín Guð-
mundsdóttir. (Ljósm. ólg).
Guðrún Ingimarsdóttir:
„Fólk á að fella þetta“
„Ég er mjög óánægð með þessa
samninga,“ sagði Guðrún Ingi-
marsdóttir, bónustrúnaðarkona
hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur.
Guðrún sagði, að trúnaðarráð
Verkakvennafélagsins Framsókn-
ar hefði lagt til ýmis atriöi, sem
gera hefði átt kröfu um í þessum
samningum, en ekkert tillit hefði
verið tekið til trúnaðarráðsins.
„Það er ég mjög óánægð með,“
sagði Guðrún.
„Þá er annað atriði í þessum
samningum, sem mér finnst engan
veginn bjóðandi og það er hversu
hart er gengið á bónusinn. Þeir
reikna alltaf bónusinn inn í
grunntekjur okkar og segja að við
höfum svo og svo mikið í kaup.
Þetta er alls ekki sanngjarnt, því
bónusinn er eða ætti að vera utan
við grunnlaunin. Þetta erum við
allar afskaplega óhressar með.
Annars er ég mjög óánægð með
samningana í heild sinni og legg
það til að fólk felli þá.“
„Legg til að fólk felli þessa samn-
inga,“ segir Guðrún Ingimarsdótt-
ir hjá BUR (Ljósm. ólg).
Margrét G. Elíasdóttir:
„Óánægð með
samningana“
„Kaupið fyrir þetta er mjög lé-
legt, og ég er alveg sammála því, að
við eigum að sameinast um að
vinna með sem minnstum hraða,“
sagði Margrét G. Elíasdóttir um
viðbrögðin við nýju kjarasamning-
unum. Margrét kvað samstöðu
ríkja um það hjá Bæjarútgerðinni
að síarfsfólkið þyrfti að grípa til
sinna ráða.
Margrét er einstæð móðir og hef-
ur eitt barn á framfæri. Hún hefur
unnið hjá BÚR í fjögur ár og er
mjög óánægð með kjörin.
„Eg bý heima hjá móður minni
og það bjargar málunum," segir
hún. „Hún hjálpar mér mikið með
bamið og fjárhagslega Iíka. Ég get
ekki ímyndað mér hvernig mér
gengi að standa ein uppi með barn-
ið“.
Jón Karlsson Sauðárkróki:
Atök óhugsandi
Styð samninginn
- Mín skoðun er sú að miðað við
aðstæður þá sé ekki um annað að
ræða en taka þennan samning,
sagði Jón Karlsson formaður
verkalýðsfélagsins á Sauðárkróki.
- Þó kjaraskerðingin sé orðin
óskaplega mikil, þá gerir þessi
samningur þó það að stöðva þessa
kaupmáttarskerðingu. Það held ég
að hafi ekki verið hægt nema með
samningi. í annan stað er óum-
deilanlegt að með samningnum og
loforðum ríkisstjórnarinnar þá
rennur mest til þeirra sem sannan-
lega eiga við mjög kröpp kjör að
búa.
- Því neita ég ekki að ég er
smeykur við þetta í sjálfu sér, en ég
bendi líka á það að ef mönnum
býður svo við að horfa þá gildir
samningurinn ekki nema til 1. sept-
ember. Reynslan á eftjr að skera úr
um það hvernig þetta heldur á
næstunni. Þess vegna útiloka ég
ekki átök í haust. Við höfum það í
hendi okkar hvort við viljum segja
upp samningum í haust.
- Staðan til dæmis í mínu félagi er
þannig að okkar mat er það að ekki
hafi verið möguleikar til átaka. Það
er mánuðum saman 40 til 50 manna
atvinnuleysi. Við þær aðstæður
töldum við okkur ekki í stakk búna
til átaka, sagði Jón Karlsson að
lokum.
-6g
segir Sigfinnur
Karlsson
formaður ASA
„Forysta verkalýðshreyfingar-
innar sem alltaf er að tala um að
bæta hag hinna lægst launuðu stóð
frammi fyrir því að samþykkja
þetta samkomulag eða fella það. Eg
er hræddur um að það hefði orðið
forystunni ansi dýrkeypt að fella
15.5% kauphækkun til þeirra sem
við lökust kjörin búa“, sagði Sig-
finnur Karlsson formaður Alþýðu-
sambands Austurlands að loknum
formannafundi ASÍ í gær.
„Eg stóð að þessum samningi og
ætla mér að berjast fyrir því að
hann verði samþykktur á Austur-
landi. Það er hins vegar ekki hægt
að hrópa neitt húrra fyrir þessum
samningum, en ef við meinum
eitthvað með þessu tali um að það
verði að hækka laun hinna lægst
launuðu þá varð maður að standa
að þessu“, sagði Sigfinnur að síð-
ustu.
-v.