Þjóðviljinn - 23.02.1984, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 23.02.1984, Blaðsíða 5
Svavar Gestsson formaður Alþýðu- bandalagsins um hina nýju stöðu: Þarf nýja samninga! - Hér er teflt á ystu brún með kjör verkafólks og einingu verka- lýðssamtakanna. Niðurstaða mín er því sú að nú þurfi að leggja allt kapp á að ná annarri samningsniðurstöðu sem tryggi í senn betri kjör verkafólks og treysti fremur einingu þess en mér sýnist þessi samningur gera, sagði Svavar Gestsson formaður Alþýðubanda- lagsins m.a. er Þjóðviljinn leitaði álits hans á samkomulagi ASÍ og VSI og ríkisstjórnarinnar: Hér er í fyrsta lagi ekki um venjulega kjarasamninga að ræða. Verkalýðshreyfingin sem heild hefur ekki verið spurð um afstöðu til þessa. Hér er um að ræða niður- stöður sem forseti ASÍ og fram- kvæmdastjóri Vinnuveitendasam- bandsins komust að og ríkisstjórn- in samþykkti fyrir sitt leyti. Það er verkalýðsfélaganna að taka af- stöðu í þessum efnum. Þau hafa samnings- og verkfallsréttinn og enginn getur tekið þann rétt af þeim. Framhald kjaraskerðingar - Samingurinn er til langs tíma eða fram á útmánuði 1985. Þetta er að mínu mati of langur tími því ekki er gert ráð fyrir því að hrófla við þeirri kjaraskerðingu frá síðari hluta ársins 1983 sem ríkisstjórnin ákvað með bráðabirgðalögum sín- um. - Samningarnir gera ráð fyrir því að eftirvinnuálag verði skorið nið- ur úr 40% í 17%, samkvæmt því sem fram kemur í blaðaviðtölum við formann Dagsbrúnar, og önnur álög samsvarandi. Þrengt að ungu fólki - Samningurinn gerir ráð fyrir því að hækka aldursmörk fyrir full laun í 18 ár. Þannig eru 16 og 17 ára unglingar sem hafa fengið sömu launaréttindi og aðrir settir á sama bás og fyrir 1937. Hér er því enn þrengt að grundvallarréttindum sem verkalýðshreyfingin hafði áunnið sér fyrir áratugum. - Samningurinn byggist á því að gerðar verði félagslegar ráðstafanir sem á að fjármagna með stórkost- legum hækkunum á verðlagi land- búnaðarafurða. í yfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar er um að ræða já- kvæðan þátt, eins og hækkun vas- apeninga aldraðra á stofnunun, en hér er aðeins um að ræða fram- kvæmd á lögbundnu ákvæði sem ríkisstjórnin varð að framkvæma hvort eð er. Þá er það athyglisvert í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar að nauðsynlegt er talið að skerða sér- staklega rétt námsmanna til þeirrar hækkunar á barnabótum sem yfirlýsingin kveður á um. Kauphækkun beint í verðhækkanir? - í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er ekki orð um það að sú takmark- Dagsbrún á víðar stuðn- ing þessa dagana en margan grunar aða launahækkun sem hér er um að ræða megi ekki fara út í almennt verðlag. Þess vegna má gera ráð fyrir því að verðhækkanir fylgi þessum takmörkuðu launahækk- unum og þær verði því teknar aft- ur. - Sömu dagana og samkomu- lagið er gert er lagt fram á alþingi frumvarp til laga um breyttan vísit- ölugrundvöll. Þar mælast hækkanir á matvöru minna í en gömlu vísi- tölunni. Þess vegna mælir nýja vísi- talan síður afkomu láglaunafólks en sú gamla, og er sérstaklega al- varlegt að þetta skuli gert um leið og búvörur á að hækka stórkost- lega. Það þýðir að hækkunin á landbúnaðarvörunum kemur ekki fram í nýrri vísitölu framfærsluk- ostnaðar. Ekki reynt á samtakamáttinn Fyrir þessa samninga hefur ekk- ert reynt á áhuga verkafólks til þess að beita afli samtakanna til þess að ná fram skárri kostum; það þýðir að samkomulagið segir ekkert til eða frá um mátt eða máttleysi verkalýðshreyfingarinnar í heild. Eitt félag, Verkamannafélagið Dagsbrún í Reykjavík, hefur haft í gangi vinnustaðastarf og það er at- hyglisvert að einmitt það félag skuli gagnrýna þetta samkomulag harðast. Það er einnig athyglisvert að þriðjungur viðstaddra á for- Dregið hjá Húsnœðissamvinnufélaginu mannaráðstefnu ASÍ treysti sér ekki til að standa að samkomu- laginu. Teflt á ystu brún Hér er því teflt á ystu brún með kjör verkafólks og einingu verka- lýðssamtakanna. Niðurstaða mín er því sú að nú þurfi að leggja allt kapp á að ná annarri samningsnið- urstöðu sem tryggi í senn betri kjör launafólks og treysti fremur ein- ingu þess en mér sýnist þessi samn- ingur gera. Þess vegna tek ég undir með formanni Verkamannafélags- ins Dagsbrúnar; „Mér líst illa á þessa samninga.“ Nýir samningar - Dagsbrún nýs tíma Það þarf að hefja nú þegar undir- búning þess að nýir og skárri kostir náist. Það er athyglisvert að það skuli vera Verkamannafélagið Dagsbrún sem hefur sérstöðu, en það er einnig í góðu samræmi við sögu þessa stærsta verkamannafé- lags landsins. Ég er sannfærður um það að Dagsbrún á víðar stuðning þessa dagana en margan grunar - sá stuðningur getur áður en varir breyst í afl sem knýr fram ný samn- ingsúrslit. Ég er sannfærður um að það gerist. _óe Hver Dregið var um fé- lagsnúmer í Húsnæðissam- vinnufélaginu Búseta í fyrra- dag að viðstöddum fulltrúa frá borgarfógetaembættinu. Alls höfðu 1.448 stofnfé- lagar greitt stofnfélagsgjald sitt á tilskildum tíma og var dregið á milli þessara félaga um númer. Drátturinn fór fram í tölvu og var síðan fulltrúa borgar- fógetaembættisins afhent tölvuútskriftin. Ekki reynist unnt að greina frá niðurstöð- um úr drættinum, þar sem skil undir nafni hafa ekki borist úr öllum bankaútibú- um úti á landi. Félagsfólki Búseta er bent á að fylgjast með útkomu Búsetans í næstu viku, en þar verður greint frá niðurstöðum í drættinum og félagsnúm- erum. Guðni Jóhannesson, varaformaður Húsnæðissamvinnufélagsins Búseta, mataði tölvuna og Þorkell Gíslason, fulltrúi borgarfógetaembættisins, fylgdist með ásamt Hörpu Njálsdóttur, Auði Styrkársdóttur, Reyni Ingibjarts- syni, framkvæmdastjóra Búseta, og Gísla Hjaltasyni. (Ljósm. -eik-) verður Búseti nr. 1?

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.