Þjóðviljinn - 23.02.1984, Side 7
Fimmtudagur 23. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Samningur
SAMNINGUR
milli Alþýðusambands íslands fyrir hönd aðildarsamtaka
sinna og Vinnuveitendasambands íslands fyrir hönd aðildar-
félaga þess og einstakra meðlima.
1. grein.
Allir síðast gildandi samningar ofangreindra aðila fram-
lengjast með þeim breytingum, sem í samningi þessum
greinir.
2. grein.
Launaliðir breytist þannig:
Við undirskrift samnings þessa hækka kauptaxtar og við-
miðunartölur um 5,0%. Þá skulu og kauptaxtar og viðmið-
unartölur hækka um 2% hinn 1. júní 1984, um 3% hinn 1.
september 1984 og aftur um 3% hinn 1. janúar 1985, enda
hafi launaliðum samningsins ekki verið sagt lausum sam-
kvæmt heimildarákvæðum 7. greinar.
3. grein.
Lágmarkstekjur fyrir fulla dagvinnu skulu vera frá undir-
skriftardegi sem hér segir:
Kr. 11.509 fyrir starfsmenn 16 ára og eldri.
Kr. 12.660 fyrir starfsmenn 18 ára og eldri, sem starfað hafa
6 mánuði í starfsgrein. Sama gildir um iðnnema síðustu 6-12
mánuði náms- eða þjálfunartímans eftir lengd hans, sbr. þó
útreikningsreglu varðandi nema á námssamningi skv. sér-
stöku samkomulagi þar um frá 16. nóvember 1981, svo og
fylgiblað I.
Framangreindar upphæðir taka breytingum skv. 2. gr. 1
júní og 1. sept. 1984 svo og 1. janúar 1985.
Þegar metið er hvort starfsmaður á rétt á greiðslu vegna
þessa ákvæðis, skal telja með dagvinnutekjum allar launa-
greiðslur aðrar en greiðslur vegna yfirvinnu, vaktavinnu eða
kostnaðargreiðslna.
4. grein.
Á samningstímabilinu munu aðilar samnings þessa vinna
að endurskoðun samningsákvæða um launagreiðslur í
veikinda- og slysaforföllum með það að markmiði að gera
veikindaréttarákvæði tryggingartæk.
5. grein.
Á samningstímabilinu munu samningsaðilar beita sér fyrir
aðgerðum, sem til þess eru fallnar að auka framleiðni og
verðmætasköpun á öllum sviðum íslensks atvinnulífs. Einn
þáttur þessa er endurskoðun afkastahvetjandi launakerfa.
Launakerfin verði athuguð og tryggt, að þau leiði til aukinn-
ar framleiðni og gefi eðlilegt endurgjald fyrir vinnuframlag.
6. grein.
Alþýðusamband íslands og Vinnuveitendasamband ís-
lands munu beita sér fyrir því að gerður verði fyrir 1. apríl
n.k. samningur um vinnu við virkjunarframkvæmdir.
7. grein.
Samningur þessi gildir til 15. apríl 1985 en heimilt er
samningsaðilum að segja upp launaliðum samningsins með
mánaðar fyrirvara þannig að þeir verði lausir 1. september
1984 svo og 1. janúar 1985.
Reykjavík, 21. febrúar 1984.
Með venjulegum fyrirvörum:
F. h. Alþýðusambands íslands
Ásmundur Stefánsson,
Björn Þórhallsson,
Ragna Bergmann.
F.h. Vinnuveitendasambands íslands,
Páll Sigurjónsson,
Hjalti Einarsson,
Kristján Ragnarsson,
Davíð Sch. Thorsteinsson,
Magnús Gunnarsson.
Tillögur um úrbœtur
fyrir hina verst settu
í samningi ASÍ og VSÍ er gert ráð fyrir sérstökum úrbótum
fyrir hina verst settu, sem ríkisstjórnin hefur gert vilyrði
fyrir. Er þar um að ræða tilfærslur innan gildandi fjárlaga
þar sem einkum mun áformað að draga úr niðurgreiðslum
landbúnaðarafurða, og er áætlað að þessar tilfærslur nemi
306-330 miyónum króna. Tillögur þessar eru sem hér segir:
1. Tekjutengdur barnabótaauki.
Lagt er til að sérstakur tekjutengdur barnabótaauki verði
tekinn upp. Upphæð fulls barnabótaauka verði 12.000 kr.
sem lækki eftir visst tekjumark þannig að tekjuhærri heimili
fái engan barnabótaauka. Barnabótaaukinn verði útfærður
þannig, að þeir skattgreiðendur fái hann ekki, sem hafa
möguleika á framfærslu með öðrum hætti, svo sem vegna
vinnu við eigin atvinnurekstur, af eignurp eða námslánum.
Reiknað er með því að þeir skattgreiðendur sem þess óska
geti fengið fyrirframgreiðslur endurskoðaðar í ljósi þessa
nýja barnabótaauka.
Þær tölur sem miðað er við eru:
Einstæðir foreldrar Hjón & sambúðarfólk
Tekjur ’83 Upphæð Tekjur ’83 Upphæð
0-150 þús. 12.000 kr. 0-220 þús. 12.000 kr.
151-300 þús. 6,67% 221-370 þús. 6,67%lækkun
lækkun f. hver 10 þús.
f. hver 10 þús.
Fjöldi barna Fjöldi barna
0-150 þús. 2156 0-220 þús. 3457
151-300 þús. 3616 221-370 þús. 14319
Samtals er kostnaðurinn 130-145 millj. á ári.
2. Óendurkræfur barnalífeyrir (meðlag).
Lagt er til að óendurkræfur barnalífeyrir verði hækkaður úr
1.615 kr. á mánuði í 2.015 kr.. Meðlagsgreiðslur fylgjast að
með þessum greiðslum.
Áætlaður kostnaður fyrir ríkissjóð af þessari aðgerð er 14.1
millj. á ári.
3. Mæðra- og feðralaun
Lagt er til að mæðra- og feðralaun hækki um 750 kr. á
mánuði fyrir hvert barn.
Samkvæmt hugmyndum yrðu greiðslurnar þannig:
Nú á mánuði Yrði á mánuði
Foreldri með 1 barn 513 kr. 1.263 kr.
Foreldri með 2 börn 1.809 kr. 3.309 kr.
Foreldri með 3 börn 3.619 kr. 5.869 kr.
Kostnaðarhækkuninvegnaþessaeráætluð60millj. kr. áári.
4. Tekjutrygging o.fl. fyrir elli- og örorkulífeyrisþega
Lagt er til að eftirtaldar hækkanir verði á greiðslum al-
mannatrygginga:
Tekjutrygging: Hámarksupphæð hækki um 10% þ.e. úr
3.861 kr. á mánuðií 4.247 kr. fyrir einstaklingogúr 6.527 kr.
á mánuði í 7.180 kr. fyrir hjón.
Frítekjumarkið hækki um 10% þ.e. úr 26.440 kr. á ári í
29.084 kr. fyrir einstaklinga og úr 37.010 kr. áárií 40.711 kr.
fyrir hjón (Miðað er við tekjur 1982).
Skerðingarprósentan lækki um 10 prósentustigþ.e. úr55% í
45%.
Heimilisuppbót: Hækki um 10%, þ.e. úr 1.293 í 1.422 kr. á
mánuði (fyrir einstaklinga). Vasapeningar hækki um 500 kr.
á mánuði, þ.e. úr 1.250 kr. á mán.' í 1.750 kr. á sjúkra-
deildum og úr 1.489 kr. á mán. í 1.989 kr. hjá öðrum.
Alls fengu 1.726 einstaklingar vasapeninga í febrúar.
Kostnaður við þessar breytingar er:
Tekjutrygging og heimilisuppbót (106 millj.)
Vasapeningar 10.4 millj.
Heildarkostnaður vegna þessara tillagna er áætlaður 306,4 -
330 millj. kr.
Tímaótasamningur fyrir LHR
Eftir Gísla
Ól. Pétursson
Leiðari Þjóðviljans í fyrradag
er reistur á misskilningi.
Launamálaráð háskóla-
menntaðra ríkisstarfsmanna,
þeirra sem eru innan BHM,
(skst.LHR), hefurengakröfu
sett fram um það, að fá í sinn
hlut árangurinn af samning-
um annarra. Fjármálaráð-
herra hefur þar af leiðandi
hvergi tekið afstöðu til þess.
LHR hefur ekki einu sinni sett
fram kröfu um að fá sérstakar
kjarabætur vegna hinnar gífur-
legu kjaraskerðingar undanfar-
inna 8 mánaða. LHR hefur að-
eins sett fram enn einu sinni sína
afdráttarlausu kröfu um það að fá
sömu laun og aðrir þeir, sem
vinna hliðstæð störf hjá öðrum en
ríkinu. Það launamisrétti er nú
orðið gífurlegt. Krafan um sama
kaupmátt og 1. mars 1983 er
krafa um fyrsta áfanga að þessu
marki. LHR sá ekki þá stöðu í
þjóðfélaginu sem réttlætti í þess-
ari lotu sérstakar kjarabætur til
aðildarfélaga LHR umfram aðra
vegna kjararýrnunar síðustu
mánaða.
Kjarasamningar LHR og fjár-
málaráðherra fara eftir lögum.
Lögin banna LHR að fylgja kröf-
um sínum eftir. Þau banna LHR
að leggja niður störf til að knýja
fram réttmæta launakröfu.
Þeir, sem settu lögin, þóttust
bæta réttleysi LHR með sérstöku
lagaákvæði. Ákvæðið er miðað
við breytingar á kjarasamningum
annarra launþega. Lagaákvæðið
segir, að þá geti LHR krafist
endurskoðunar á sínum samn-
ingi. Lagaákvæðið segir ekkert
um hvað koma skuli út úr slíkri
endurskoðun. Hingað til hafa
þær fært félögum LHR afar
skerta hluta.
Þannig byggist leiðari Þjóðvilj-
ans í fyrradag á misskilningi.
Það var hins vegar ein megin-
krafa LHR að þessu sinni að
losna við þessi lög. Að losna við
þetta lagaákvæði eins og önnur,
sem skerða samningsrétt LHR.
LHR sótti það fast að fá rétt til að
leggja niður störf í kjaradeilum.
Þessari kröfu var alfarið hafn-
að. LHR leitaði liðsinnis víðar en
án árangurs. LHR situr því uppi
með þessi lög.
LHR hefur nú í tíu ár staðið
skrikandi fæti í varnarbaráttu um
kjör félagsmanna sinna. Á þess-
um tíma hafa kjörin rýrnað sífellt
meira og meira í innbyrðis sam-
anburði við kjör annarra
launþega.
Samningsnefnd ríkisins, fjár-
málaráðherrar og Kjaradómar
hafa í tíu ár skellt skollaeyrum við
ábendingum LHR og virt að vett-
ugi skyldur sínar til gagnaöflun-
ar. Þeir hafa sagt ábendingar
LHR vera staðlausa stafi. Þetta
séu bara fullyrðingar, sem hafi
eigi við rök að styðjast. Þeir segj-
ast ekki trúa því, að nokkur um-
talsverður munur sé á kjörum fé-
lagsmanna LHR og annarra, sem
sambærileg störf vinna hjá öðrum
en ríkinu. Þeir hafa ekki talið sig
sjá neina ástæðu til að vinna þau
gögn, sem styðja mundu mál
LHR.
Þannig hefur staða LHR orðið
vonlausari með hverjum nýjum
Kjaradómi.
Með þessum kjarasamningi
eru tímamót í samningasögu
LHR. Ríkisvaldið fellst á að
tekin verði upp alvöruvinna við
kjararannsóknir. Þær skuli mið-
ast við að varpa ljósi á raunveru-
leg kjör þeirra, sem vinna hjá rík-
inu. Þær skuli einnig miðast við
að varpa raunverulegu ljósi á
-raunveruleg kjör þeirra, sem
vinna sambærileg störf hjá öðrum
en en ríkinu. Þessum rannsókn-
um skuli stýrt af báðum samn-
ingsaðilum. Þeir verða því ekki í
aðstöðu til að neita réttmæti
gagnanna þótt þeir geti orðið ó-
sammála um túlkun þeirra.
Loksins á LHR raunverulega
möguleika á að leggja fram hin
nauðsynlegu gögn. Loksins hillir
undir þá stund, að félagsmenn
LHR geti vænst örlítils réttlætis.
Félagsmenn LHR óska aðeins
réttlætis. Þeir eru dætur og mæð-
ur launþega í ASf og BSRB en
þeir njóta ekki sömu mannrétt-
inda.
Þjóðviljinn styður baráttu allra
manna fyrir mannréttindum og
réttlæti. Þar að mun koma, að
pólitísk staða í þjóðfélaginu leyfir
Þjóðviljanum að íhuga þessi mál.
Þá má vænta nýs leiðara Þjóðvilj-
ans um samning LHR. Sá leiðari
mun bera heitið:
TÍMAMÓTASAMNINGUR.
/4 ttu við
GÓLF **•
ÞAKVANDAMAL
að stríða?
Betokem SUM gólfílögn
Betokem gólilögnin harðnar svo fljótt að þú getur gengið
eða lagt teppið á gólfið eftir 24 tima. SUM gólfílögn hefur
verið í þróun í Þýskalandi, Sviþjóð og Noregi sl. 15 ár og
hefur sýnt að hún stenst fyllilega allar þær gæða-, þol- og
styrkleikakröfur, sem settar voru i upphafi og síðar hafa
komið fram.
Það hefur enda sýnt sig á söluþróuninni sl. 7 ár að þarna er á
ferðinni algjör bylting í gólfílögn, salan hefur nánast þotið
upp og ekki hefur verið hægt að anna eftirspurn fyrr en nú.
Engin
umikeyti
FILLC0AT
T
V' *■'
gúmmíteygjanleg samfelld húð fyrir málm-
þök.
Er vatnshelld.
Inniheldur cinkromat og hindrar ryðmyndun.
Ódýr lausn fyrir vandamálaþök.
Ábyrgð - greiðslukjör.
LAUSN ER ENDIST ÓTRÚLEGA VEL:
ir\
■■ it
Av VT
Við erum með f jölmargar gerðir af gólf-
ílagningarefnum sem þola ótrúlegt
álag. Það er sama hvort um er að ræða
gólfið i sturtuklefanum, matsalnum
eða á bílaverkstæðinu. Vandamálið
leysum við á fljótan og öruggan hátt.
r*nfy
;v-.. X, ■ :
ílllflli]IS#lill
EPOXr - G0LF
iVí
HAFNARFIRM SlMI 50538