Þjóðviljinn - 28.07.1984, Side 2
FRETTIR
BSRB
Utreikningur VSI út í hött
Kaupmáttur okkar hefur minnkað um tugi prósenta
segir hagfrœðingur BSRB og spyr: Er hœkkun um sex þúsund á mánuði goðgá?
Tölur Magnúsar Gunnarssonar
eru villandi, svo ekki sé meira
sagt, sagði Björn Arnórsson hag-
fræðingur BSRB þegar Þjóðvilj-
inn innti í gær eftir áliti hans á
yfirlýsingu Magnúsar Gunnars-
sonar framkvæmdastjóra VSI,
um að kröfur BSRB þýddu aukin
útgjöld uppá 2,5 miljarða eða 15
þúsund króna aukinn skatt á
hvern skattgreiðanda.
„Tölur Magnúsar eru einfald-
lega allt of háar. í fyrsta lagi
myndi ríkið fá áð minnsta kosti
helminginn af slíkri kauphækkun
beint aftur í formi skatta og borg-
ar reyndar beinu skattana aldrei
út. í öðru lagi er alls ekki rétt að
leggja kauphækkun 1. september
að jöfnu við kauphækkun 1. jan-
úar einsog Magnús gerir í Morg-
unblaðinu í gær. Við skulum hafa
í huga að það eru sjö mánuðir
eftir af samningstímabilinu, þ.e.
september til apríl og á þessum
tíma myndi kauphækkun um
hundrað krónur þann 1. sept-
ember gera samanlagt 700 krón-
ur. En lOOkróna hækkun 1. janú-
ar, þegar einungis þrír mánuðir
eru eftir af samningstímabilinu,
þýðir að sjálfsögðu aðeins 300
krónur út tímabilið. Tölur Magn-
úsar Gunnarssonar eru því hrein-
lega út í hött“.
„Það er líka rétt að benda
Magnúsi og öðrum á að
kaupmáttur alls þorra launafólks
hefur verið skertur um tugi prós-
enta og þessa peninga hafa at-
vinnurekendur fengið til sinna
umráða. Launafólk getur því
með fullum rétti spurt: Hvernig
notuðuð þið, atvinnurekendur,
þessa miljarða? Hafa erlendu
skuldirnar verið greiddar? Hefur
verið fjárfest f arðbærum, at-
vinnuskapandi fyrirtækjum? Af
hverju hafa fórnir launafólks
ekki komið þjóðfélaginu á réttan
kjöl? Getur verið að það sé vegna
þess að þessir miljarðar hafi
runnið í einkahít ykkar, í lúxus-
neyslu og óarðbærar fjárfesting-
ar?“
„Ég vil að lokum taka undir
með Magnúsi Gunnarssyni, að
ríkisstarfsmenn eru ekki of-
launaðir í dag. Og þegar haft er í
huga að hvorki meira né minna
en níu af hverjum tíu ríkisstarfs-
mönnum í BSRB eru með minna
en 22 þúsund fyrir dagvinnu sína
á mánuði, þá getur ekki verið að
launafólki eða öðrum í landinu
finnist of langt gengið þó þessi
mörk séu hækkuð um rétt liðlega
sex þúsund krónur á mánuði“.
-ÖS
Hörður Runólfsson yfirniðurrifsmeistari Fjalakattarins fyrir miðri mynd
en húsið er til vinstri. Ljósm.: eik.
Fjalakötturinn
Er hægt að reisa
hann annars staðar?
Eining
Á brattann
að sækja
Jón Helgason: Bœta kjör framleiðslustéttanna
Stöðvun flotans:
Stofnar
atvinnu-
öryggi
í hættu
Á fundi í Skipstjóra- og stýri-
mannafélaginu Sindra á Eskifirði
í gær var samþykkt eftirfarandi
ályktun:
„Fundurinn harmar þá ákvörð-
un sem tekin hefur verið af
nokkrum útgerðaraðilum á
Austurlandi að leggja skipum
sínum þann 25. júlí 1984. Slík
ákvörðun stofnar atvinnuöryggi
sjómanna og fiskvinnslufólks í
hættu. Sú alvarlega staða sem nú
virðist vera komin upp í rekstri
útgerðar vekur ugg í brjósti
manna og hlýtur að knýja á um
skjótar og jákvæðar aðgerðir af
hálfu stjórnvalda t.d. lækkun á
hæstu kostnaðarliðum útgerðar
eins og olíu og vöxtum sem virð-
ast vera þeir póstar sem hækkað
hafa hvað mest að undanförnu
Sú leið sem farin hefur verið á
undanförnum árum að skerða
hlut sjómanna er gömul og gagn-
laus og stuðlar eingöngu að flótta
sjómanna í land.
Snúa verður við þeim einhliða
neikvæða áróðri sem viðgengist
hefur í fréttaflutningi fjölmiðla í
garð undirstöðuatvinnuvega
þjóðarinnar".
Aopnum fundi sem stamtökin
Níu-Iíf héldu að Hótel Esju í
Reykjavík s.l. miðvikudag urðu
all-Iíflegar umræður um aðgerðir
samtakanna til verndar hússins í
Aðalstræti 8, öðru nafni „Fjala-
kötturinn“.
Þjóðviljinn sneri sér til Sveins
Einarssonar til að spyrjast fyrir
um niðurstöður af fundinum:
„Við munum halda áfram að
berjast", sagði Sveinn, „það er
búið að rífa um það bil I/3 hluta af
húsinu. Á fundinum í gær var
ákveðið að berjast fyrir því að
það sem eftir stendur af húsinu
fái að standa. Þetta er angi af
stærra máli. Hér í Reykjavík eru
mörg gömul hús, sem hætt er við
að yrðu rifin ef ekkert er að gert.
Við höfum meir að segja boðist
til að greiða mismuninn af þeim
kostnaði sem yrði, ef hægt væri
að rífa húsið þannig að mögulegt
væri að reisa það annars staðar“.
Fundarmenn voru á einu máli
um það að skera þyrfti upp herör
meðal borgarbúa til verndunar
gamalla verðmætra húsa í
Reykjvík. Bent var á mörg lýs-
andi dæmi í næsta nágrenni við
„Fjalaköttinn“ um gömul hús
sem gerð hafa verið upp og eru nú
borgarprýði. 55
Nýverið samþykkti fundur hjá
Einingu á Akureyri að segja
upp launalið kjarasamninga.
Þjóðviljinn spurði Jón Helgason
formann Einingar hvort hann
væri vongóður um samninga án
verkfallsaðgerða: „Ef við ætlum
okkur að bæta kjör þessara lág-
launastétta eins og þarf þá held ég
að fólk þurfi að fórna einhverju
til þess. Það verður ekki látið
undan öðru vísi. Og fólk verður
náttúrlega fyrr eða síðar að vera
tilbúið ti! þess að fórna til þess að
halda uppi kjörum sínum“.
— Hvernig er þá baráttustað-
an?
- „Mér líst svo sem ekkert
alltof vel á stöðuna. Það er á
brattann að sækja, sérstaklega
gagnvart fískvinnslunni og út-
gerðinni sem vitað er að eiga í
erfiðleikum, sbr. það sem er að
gerast fyrir austan. Hér á Akur-
eyri stendur fiskvinnslan sæmi-
lega og ber uppi hallann á togur-
unum. Ástandið er hins vegar
erfiðara á Ólafsfirði og Dalvík.
- Hvað finnst þér um þessa
nýju aðferð að hafa ekki samflot í
samningunum?
- „Ég held að það hafi verið
útilokað að hafa eitthvert
heildarsamflot núna því menn
verða að fara að skilja að það
verður að fara að koma eitthvað
til móts við þessar framleiðslu-
stéttir ef við ætlum að halda uppi
framleiðslu í landinu og þar af
leiðandi eigum við kannski ekki
samleið með iðnaðarmönnum
sem eru betur settir. Og þeir
halda náttúrlega ekki uppi sínu
kaupi ef ekki er hægt að halda
uppi fullri framleiðslu í landinu.
Og ef okkur tekst ekki að ná upp
kaupi þessara framleiðslustétta -
og þá á ég við fólk sem er innan
Verkamannasambandsins og
Iðjufólkið - þá fer að halla undan
fæti hjá okkur. Þá fæst bara ekki
fólk í þetta. Maður heyrir núna af
Reykjavíkursvæðinu þar sem
þensla er að þar fæst bara ekki
fólk inn í frystihúsin vegna þess
að það er búið að skaða kjör
þessa fólks svo mikið,“ sagði Jón
Helgason að lokum. þá