Þjóðviljinn - 28.07.1984, Síða 14
MENNING
I GALTALÆKJARSKOGl
Verslunarmannahelgin 3. — 6. ágúst 1984
Mótsstjóri: Valdór Bóasson.
Dagskrá:
Föstudagur 3.ágúst.
kl. 22.00 Diskótek á palli tii kl. 01.00. Plötutekið DEVO.
Laugardagur 4. ágúst.
kl. 13.00 Kajakróður á Rangá.
kl. 15.00 Hljómleikar á palli. Skólahljómsveit Árbæjar og
Breiðholts. Stjórnandi Ólafur L. Kristjánsson.
kl. I6.00 Ökuleikni í umsjá Bindindisfélags ökumanna.
kl. 16.00 Barnadansleikur á palli. Hljómsveit Ólafs Gauks
og Svanhildur. Stefán Baxrer dansar breakdans
í upphafi dansleiks.
kl. 17.00 Leikir fyrir börn á öllum aldri á fjölskyldusvæðinu.
kl. 20.00 Hljómleikar á palli. Skólahljómsveit Árbæjar og
Breiðholts. Stjórnandi Ólafur L. Kristjánsson.
kl. 21.00 Mótssetning. Stefán Jónatansson, umdæmistemplar.
kl. 2I.I0 Dansleikur á palli. Hljómsveit Ólafs Gauks og
Svanhildur. Diskótek i stóra tjaldi. Plötutekið DEVO.
kl. 24.00 Varðeldur og flugeldasýning.
Dagskrá lýkur kl. 03.00.
Sunnudagur 5. ágúst.
kl. I4.00 Messa. Séra Björn Jónsson prestur á Akranesi.
kl. I 5.00 Barnaskemmtun í umsjá Jörundar, Sigurðar og Arnar.
kl. I6.00 Barnadansleikur á palli. Hljómsveit Ólafs Gauks
og Svanhildur. Stefán Baxter dansar breakdans
í upphafi dansleiks.
kl. 17.00 Hljómleikar á palli. Skólahljómsveit Árbæjar og
Breiðholts. Stjórnandi Ólafur L. Kristjánsson.
kl. 20.00 Hátíðarræða.
kl. 20.15 Kvöldvaka: Jörundur Guðmundsson, Sigurður
Sigurjónsson og Örn Árnason skemmta með
aðstoð og undirleik hljómsveitar Ólafs Gauks.
kl. 22.10 Dansleikur á palli. Hljómsveit Ólafs Gauks og
Svanhildur. Diskótek í stóra tjaldi. Plötutekið DEVO.
Hátíð slitið kl. 02.00.
Héraðsskólinn að Núpi
Næsta skólaár starfrækjum við 8. og 9. bekk,
grunnskóla ásamt tveim árum á viðskipta-,
íþrótta-, uppeldisv og almennri bóknáms-
braut.
Brautir þessar eru í samræmi við námsvísi
sem eftirtaldir skólar eru aðilar að: Fjöl-
brautaskólinn á Akranesi, Fjölbrautaskóli
Suðurnesja, Flensborgarskólinn í Hafnar-
firði, Framhaldsskólar á Austurlandi, Fjöl-
brautaskóli Suðurlands á Selfossi og Fram-
haldsskólinn í Vestmannaeyjum.
Getum enn bætt við nemendum.
Upplýsingar í síma 94-8236 og 94-8235.
Skólastjóri
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi
Steingrímur Þórðarson
byggingameistari,
Efstasundi 37,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 31. júlí
kl. 13.30.
Valgerður Steingrímsdóttir
Kolbrún Steingrímsdóttir
Sveinbjörg Steíngrímsdóttir
Guðrún Steingrímsdóttir
Guðmunda Steingrímsdóttir
Þórlaug Steingrímsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Sigþór R. Steingrímsson
Þorvaldur Björnsson
Elís Guðmundsson
Pétur Ingi Ágústsson
Guðmundur Jensson
Jón Einarsson
Hið íslenska
fornleifafélag:
Árbókin
komin út
Árbók Hins íslenska forn-
leifafélags er komin út.
Árbókin hefur verið gefin út
frá 1880 og er fræðilegt rit um
ýmis menningarsöguleg efni,
einkum íslenska fornleifafræði,
alþýðulist, listiðnir, þjóðhætti og
fleira. Efni Árbókarinnar að
þesu sinni er:
Kumlateigur í Hrífunesi við
Skaftártungu eftir Gísla Gestsson
fv. safnvörð, Guðrúnu Larsen
jarðfræðing, dr. Kristján Eld-
járn, Sigurð Þórarinsson jarð-
fræðing og Þór Magnússon
þjóðminjavörð. Frjógreining
tveggja jarðvegssniða á Heimaey
eftir Margréti Hallsdóttur jarð-
fræðing. Smalabúsreið eftir Árna
Björnsson þjóðháttafræðing. At-
hugasemd um lágmynd í norsku
safni eftir Selmu Jónsdóttur for-
stöðumann Listasafns íslands.
Eyvindarkofi og Innra-Hreysi
eftir Gísla Gestsson fv. safnvörð.
Skýrsla um ferð Einars Brynjólfs-
sonar yfir Sprengisand búin til
prentunar af Jakobi Benedikts-
syni dr. phil. íslenskt trafakefli í
Englandi eftir Guðrúnu
Sveinbjarnardóttur fornleifa-
fræðing. Forn grafreitur á Hofi í
Hjaltadal eftir Guðmund Ólafs-
son safnvörð. Katrinarkelda eftir
Þórð Tómasson safnvörð.
Skýrsla um Þjóðminjasafnið
1983. Frá Fornleifafélagsinu. Og
síðast en ekki síst ritskrá dr.
Kristjáns Eldjárns í samantekt
Halldórs J. Jónssonar
safnvarðar. En Kristján var rit-
stjóri Árbókarinnar frá 1949-82.
Bókin er 190 bls. innbundin og
prýdd fjölda mynda og teikninga.
Ritstjóri Árbókar Hins islenska
fornleifafélags er Inga Lára Bald-
vinsdóttir cand. mag.
ÁRBÓK
HINS ÍSLENZKA FORNLEIFAFÉLAGS
----. v r-"—r—j~\ .----- r ’v
idnij m'ijin ]ir tegm p ptdog*
nt; piDic kaúpmnln ftú Jmtlk cp t)cTmm
Kópavogur:
Sýning á
fommunum
sem fundust
á hinum
forna þingstað
í Kópavogi
í Bókasafni Kópavogs hef-
ur verið sett upp sýning áforn-
munum sem fundust við upp-
gröft á hinum forna þingstað í
Kópavogi, þar sem Kópa-
vogsfundurinn var haldinn 28.
júlí 1662. Guðrún Sveinbjarn-
ardóttir, fornleifafræðingur,
setti þessa sýningu upp með
skýringum, uppdráttum og
Ijósmyndum.
Bókasafn Kópavogs er til húsa
í Fannborg 3-5 og er opið alla
virkadagafrákl. 11—21. Isafninu
eru þúsundir bóka, blöð, tímarit,
hljómplötur og snældur með tón-
list fyrir börn og unglinga.
Menningarsjóður
Norðurlanda
Sex
styrkir
300.000 d.kr.
veitttil norrœnn-
ararkitektasam-
keppni umtón-
listarhúsaðþví
tilskyldu að
hœgtsé að
leggja fram
raunhcefa
byggingarócetl-
un.
Á stjómarfundi Menningar-
sjóðs Norðurlanda sem haldinn
var í Reynihlíð við Mývatn nýver-
ið voru m.a. samþykktar styr-
kveitingar til nokkurra aðila.
Helgi Björnsson fær 75 þús.
danskar kr. til jöklarannsókna,
Helga Ingólfsdóttir fær 30.000
dkr. vegna norrænnar tónlistar-
hátíðar í Skálholti 1985. Hamra-
hlíðarkórinn fær 150.000 d.kr.til
að sækja alþjóðlega tónlistarhá-
tíð í Japan. Leikbrúðuland fær
54.000 dkr. til þátttöku í þremur
leikbrúðunámskeiðum á Norður-
löndum. Þá var 300 þúsund dkr.
veitt til norrænnar arkitektasam-
keppni um tónlistarhús í Reykja-
vík að því tilskyldu að lögð verði
fyrir sjóðstjórn raunhæf áætlun
um fjármögnun byggingarinnar
og framkvæmdatíma. Þá fékk
Kvik sf. 35.000 krónur til þess að
gera heimildarmynd um hval-
veiðar á Norður-Átlantshafi.
EÐ ÆVIAGRIPUM
M 460 HAFNFIRÐINGA
Þessi bók veróur i tveim
bindum, — hið fyrra
kemur út nú i haust en hiö
síðara næsta vor. Þar
munu birtast um 400
Ijósmyndir af eldra fólki í
Hafnarfirði, sem undir-
ritaður, útgefandi bókar-
innar, tók á árunum
1960 - 1979. Eru það sömu
myndirnar og voru á Ijós-
myndasýningu, sem
haldin var haustið 1979.
Með hverri mynd fylgir
æviágrip og fleiri upplýs-
ingar um viðkomandi, en
æviágripin verða um 460
talsins.
Askrifendur að bókunum
fá þær með sérstöku
afsláttarverði, og tryggja
sér með áskrift bæði
bindin, en svo virðist sem
bókin muni verða eftirsótt.
— i fyrra bindinu munu
veröa um 185 myndir, en
um 210 í því síðara.
Áskriftarverð fyrra bind-
isins er kr. 988.00.
Þeir, sem vilja gerast
áskrifendur, eru vinsam-
lega beðnir um að gera
mér viðvart, t.d. með því
að fylla út neðanskráða
áskriftarbeiðni og senda
mér við fyrsta tækifæri
eða koma henni til skila í
skrifstofuna að
Austurgötu 10, Hafnarfirði.
Einnig má tilkynna áskrift
símleióis, í sima 50764
eða 51874, alla virka daga
frá kl. 5 - 7 e.h. og
9 -10 e.h., til 1. ágúst nk.,
en eftir það á venjulegum
skrifstofutíma.
Áskriftarboðið gildir til
15. ágúst næstkomandi.
Árni Gunnlaugsson
~K-
Austurgötu 10, Hafnarfirdi.
ÁSKRIFTARBEIÐIMI
Með vísan til auglýsingar í Þjóðviljanum í júlí 1984 er hér með óskað eftir
áskrift að báðum bindum Ijósmyndabókarinnar „Fólkið í firðinum“
Nafn: _______
Heimilisfang:
Sími: