Þjóðviljinn - 28.07.1984, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 28.07.1984, Qupperneq 15
Frean ■ Iloltíbúans Eðvarö Si^urðooon o" annar íelagi, sem alþýðan hér á Holtinu ]>ekkir, seni beztu tnál- svara verklvðsins liafa verið bandteknir al' lögregl- unni. Þetta láta burgeisarnir gera lil að eyði- leggja |játttöku verkalýðsins í kosningunutn. Mótmælið þessari árás ineð því, að Kjósa D-iistann — lista verkalýðtáns og hintlra þannig ineirihluta íhaltlsins á þingi. Á f þætti Árna Björnssonar í Dagsbrúnarblaðinu, Strákur af Grímsstaðaholti, er birt meðal annars þessi úrklippa úr Holtsbúanum, sem var sellublað Sam- bands ungra kommúnista og Kommúnistaflokks íslands á Grímsstaðaholtinu. Það sýnir að Eðvarð hefur snemma þótt íhaldi landsins skeinuhættur. Strákur af Grímsstaðaholti í blaði Dagsbrúnar er þáttur af Eðvarð Sigurðssyni Blaðiö Dagsbrún, sem er gefið út af Verkamannafélaginu Dagsbrún er komið útfyrir nokkru. í því kennir margra fróðlegra grasa, meðal annarserbirtræða Guðmundar J. Guðmundssonar formanns félagsins sem hann flutti 1. , maí, ÞrösturÓlafsson i framkvæmdastjóri þess ritar grein um stöðu verkalýðshreyfingarinnar og verkefnin framundan og Haukur Már skrifar um orlofshús Dagsbrúnar í tilefni þess að sumarleyfistíminn fer núíhönd. En það sem er þó eftirsóknar- verðast í Dagsbrún er fyrsti hluti ágætrar samantektar Árna Björnssonar um Eðvarð Sigurðs- son, fyrrum formann Dagsbrún- ar, sem lést í fyrrasumar. Þáttur Árna nefnist „Strákur af Gríms- staðaholti“ og er að uppistöðu efni minningardagskrár um Eð- varð sem var flutt á þingi Verka- mannasambands íslands í Vestmannaeyjum í fyrra. í dagskrána var meðal annars flétt- að brotum úr eftirminnilegum samræðuþáttum Eðvarðs og Jökuls heitins Jakobssonar um Grímsstaðaholtið sem voru flutt- ir fyrir mörgum árum í útvarpinu. Jafnframt eru tíndir til fróðlegir bitar úr afmælis- og minningar- greinum um Eðvarð heitinn, sem sýna oftar en ekki hinn gamla baráttujaxl í fróðlegu ljósi. Eftir- farandi partur er til dæmis úr minningargrein sem Árni Hall- dórsson lögfræðingur skrifaði og sýnir hversu snemma Eðvarð kom sér upp lipurð í bland við snerpu í samningum fyrir Dags- brún: „Kunningi minn úr lögfræðing- astétt, mikill aðdáandi Eggerts Claessens, sem Verkalýðsblaðið titlaði gjarnan sem verkalýðs- böðul nr. 1, hafði þau orð eftir Claessen, að erfiðasti maður, sem hann þurfti að semja við, væri strákur af Grímsstaðaholt- inu að nafni Eðvarð Sigurðsson. Samingar höfðu vanalega gengið þannig fyrir sig, að tilboðum var alfarið hafnað, kölluð smánar- boð og fleira í þeim dúr. Og eftir háværar deilur og stundum rif- rildi gat Claessen hlaupið frá öllu, er hann hafði boðið, ef hon- um sýndist svo. Strákurinn af Grímsstaðaholt- inu tók ekki þátt í þessum há- vaða. Hann grúfði sig yfir sáttatil- löguna, hirti allt úr henni, sem honum fannst bitastætt á fyrir Dagsbrúnarmenn og sagði síðan: „Þessi atriði gætum við sam- þykkt, en fleira verður að koma til frá ykkur, ef samningar eiga að takast.“ Þess má geta að Dagsbrún er mjög vel upp sett og fallega útlít- andi enda teiknað af Hauki Má Haraldssyni. —ÖS Framlög úr Menningarsjóði SÍS Fyrir nokkru var úthlutað fram- lögum úr Menningarsjóði SÍS að upphæð 730 þús. kr. Skiptast þau sem hér segir: 1. Minningarsjóður Jóns Júl. Þorsteinssonar, kennara, til styrktar útgáfusemi á vegum sióðsins, 50 þús. kr. 2. Ólymípunefnd íþróttasam- taka fatlaðra, til styrktar vegna þátttöku íslendinga í Ólymípuleikum fatlaðra 1984, 100 þús. kr. 3. CISV (Children’s Intemat- ional Suramer Villages) til styrktar vegna kostnaðar við sumarbúðir 50 þús. kr. 4. Umsjónarfélag einhverfra bama, vegna kaupa á hent- ugri bifreið fyrir heimilisfólk- ið að Trönuhólum 1, 50 þús. kr. 5. íslenskir ungtemplarar, framlag í sjóð til kaupa á hús- næði 50 þús. kr. 6. St. Georges gildin á íslandi, (félag eldri skáta á íslandi), vegna skátaárs, 50 þús. kr. 7. Hjálparsveit skáta í Hafnar- firði, til byggingar húsnæðis fyrir sporhunda, 50 þús. kr. 8. Listmunahúsið, vegna gerðar videomyndar um listakonuna Louisu Matthíasdóttur, 50 þús. kr. 9. Foreldrasamtök bama með sérþarfir, vegna byggingar sumarbústaðar, 50 þús. kr. 10. Leiðbeiningarstöð um ís- lenska þjóðbúninga, 30 þús. kr. 11. Friðarhreyfing íslenskra kvenna, til stofnunar sam- starfshópa um allt land, 150 þús. kr. 12. Styrktarfélag vangefinna á Norðurlandi, vegna bygging- ar líkamsræktarhúsnæðis við Vistheimilið Sólborg, 50 þús. kr. - mhg Laugardagur 28. júlí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15 Norrœn Ijóðlist í nýjasta hefti sœnska iistatímaritsins Café Existens er kynnt Ijóðlist átta málsvceða á Norðurlönáum. Einar Ólafsson skrifar um íslenska Ijóðlist og birt eru Ijóð 10 íslenskra skáláa af yngstu kynslóð Café Existens er myndar- legt listatímarit sem gefið er út I Gautaborg I Svíþjóð og er Anders Weidar ábyrgðar- maðurog aðalritstjóri þess. Nýlega er komið út 22-23. tölublað ritsins og er það 96 blaðsíður í stóru broti. Fjallar það að þessu sinni um nor- ræna Ijóðlist (Nordisk poesi) og er Ijóðum frá 8 málsvæð- umþargertjafntundirhöfði. Birt eru Ijóð eftir alls 122 skáld og þar að auki grafík eftir 17 myndlistarmenn. Ljóðumfrá hverju málsvæði erfylgtúr hlaði með ítarlegri grein um þróun nútímaljóðlistar. Það er Einar Ólafsson sem skrifar um íslenska Ijóðlist. í formála fyrir tímaritinu eftir Anders Weiders kemur fram aö það tók tvö ár að undirbúa þetta hefti og fengust til þess styrkir m.a. frá Norræna menningarmál- asjóðnum. Undir hugtakið „norrænt" er ekki aðeins felld ljóð á norrænum málum (dönsku, færeysku, íslensku, norsku og sænsku) heldur einnig ljóð á þeim öðrum málum sem eru á Norðurlöndum (finnsku, grænlensku og samísku). Þá er sérkafli um sænsk-finnsk ljóð. í formála sínum fyrir íslenska kaflanum rekur Einar Ólafsson þjóðfélagsþróunina á íslandi á þessari öld og ástæður fyrir því að „modernisma" í íslenskri ljóða- gerð fer ekki að gæta að ráði fyrr en eftir stríð. Síðan er ítarlega fjallað um íslenska ljóðlist og ís- lensk ljóðskáld frá stríðslokum og fram á síðustu ár. íslensku ljóðskáldin er þýdd eru ljóð eftir eru hins vegar fyrst og fremst þau sem komið hafa fram eftir 1970. Þau eru Steinunn Sigurðardóttir, Anton Helgi Jónsson, Sjón, Geirlaugur Magnússon, Einar Már Guð- mundsson, Elísabet Þorg- eirsdóttir, Birgir Svan Símonar- son, Ingibjörg Haraldsdóttir, Stefán Snævarr og Sigurður Páls- son. Þýðandi Ijóðanna er Jan Karlsson. Þá eru stutt æviágrip og myndir af þeim. Myndlistarmennirnir Jóhanna Bogadóttir og Sigrún Eldjárn eiga grafíkmyndir í ritinu. Café Existens er hið myndar- legasta rit og góð kynning á nýj- ustu straumum í norrænni ljóð- list. -GFr p\ó«">s 4-n aöta' V.o^na . ábyt9öa - s\oo' aöe^s ó áé- * wW'r^oob»"'..'v.;tmeí> \NÁ \e\banó' 60.000 bWte’ '('-VaT6« oQ ^aos- \\öto- ritoto': oe * V.eo' \bóa 'an N'eílUá?^^°,íl _ -a \o\\W'n ^öÆe^enW w\nn, V.\æöo' vé\5ri\'ö\aíý^ ^uteVO Kz&PS STÖÐIIM h.f. Bildshofda 14 110 Revkjavik Simi 68 77 55

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.