Þjóðviljinn - 11.08.1984, Page 1
utlMOBinUIHN
SUNNUDAGS-
BLAÐIÐ
MENNING
Ríkissjóður
Hærri skattar, lægri laun
Ríkissjódur hagnast á viðskiptahallanum og kjararáninu.
Greiðslustaðan samt erfið vegna samkeppni um sparifé.
i etta voru engin stórtíðindi,
sagði Ragnar Arnalds for-
maður þingflokks Alþýðubanda-
lagsins í gær, en þingflokksfor-
Hvað er að ske
hjá Albert?
í gærkvöldi barst Þjóðviljanum fréttatiikynning frá fjármálaráðuneytinu þar sem
gerð er grein fyrir afkomu ríkissjóðs á fyrra helmingi ársins og ýmsum stærðum í
samanburði við sama tfmabil í fyrra og áætlun þessa árs. Fara hér á eftir nokkrir
punktar úr tilkynningunni:
Tekjur
• Tekjur ríkissjóðs hafa hækkað um 49%
• Beinir skattar hafa hækkað um 56%
• Óbeinir skattar hafa hækkað um 48%
• Aðflutningsgjöld hafa hækkað um 53%
• Sölu- og orkujöfnunargjald hefur hækkað um 52%
• Vörugjald hefur hækkað um 23%
• Hagnaður ÁTVR hefur hækkað um 40%
Gjöld
• Gjöld ríkisins hafa aukist um 36%
• Útgjöld til heilbrigðis- og tryggingamála hafa hækkað um 34%
• Útgjöld til fræðslu, menningar- og kirkjumála hafa hækkað um 30%
• Útgjöld tii dóms- og löggæslu hafa hækkað um 18%
• Framlög til vega- og samgöngumála hafa hækkað um 40%
• Uppbætur á útfluttar landbúnaðarafurðir hafa aukist um 173%
• Framlög til iðnaðar- og orkumála hafa hækkað um 64%
• Niðurgreiðslur hafa lækkað um 4%
• Launagreiðslur hafa hækkað um 25,4%
Lánsfé
• Innient Iánsfé nemur 32% af áformuðum lántökum
• Erlendar lántökur nema 46% af heildaráætlun ársins
• Lífeyrissjóðir hafa keypt 37% af áformuðum kaupum af ríkissjóði og
húsbyggingarsjóðum en 40% umfram áætluð kaup af bönkum,
stofnlánasjóði samvinnufélaga og verslunarsjóði _ÁI
OL-júdó
Júdómaðurinn Bjarni Friðriks-
son vann í fyrrinótt til brons-
verðlauna í 95 kg-flokki í grein
sinni. Hann glímdi fjórum sinn-
um og tapaði aðeins fyrir silfur-
hafanum Vieira frá Brasilíu.
Þetta eru einu verðlaun íslend-
inga á OL nú, og önnur verðlaun
þeirra í sögunni.
íslendingar fagna óvæntum ár-
angri Bjarna, en vestra eru menn
Bankarnir:
Hærri vextir
Seðlabankinn samþykkti allt
það sem frá bönkunum kom,
sagði Davíð Ólafsson Seðla-
bankastjóri í gær, en á mánudag
taka nýir og hærri bankavextir
gildi.
Bankarnir skiluðu tillögum
sínum um vaxtabreytingar til
Seðlabankans fyrr í vikunni og
hafði hann 3ja daga frest til að
fara yfir þær. Að sögn Davíðs Ól-
afssonar voru tillögurnar í það
heila ekki mjög mismunandi, en
hann sagði að þó hefði verið þar
aðeins munur á. „Þaö er eðli-
legt“, sagði Davíð, „því bankarn-
ir höfðu ekki samráð sín á milli
um tillögugerðina. Það er hins
vegar trúa mín að þessi munur
eigi eftir að jafnast fljótlega,
enda geta bankarnir ekki haft
mismunandi vexti til lengdar".
-ÁI
Sjá bls. 3
menn stjórnarandstöðunnar voru
skyndilega boðaðir á fund Ai-
berts Guðmundssonar fjármála-
ráðherra í gær, trúlega í fram-
haldi af þeirri gagnrýni sem fram
hefur komið á lítið og ekkert
samráð hans við þingið.
Á fundinum kynnti Albert
stöðu ríkissjóðs fyrstu 6 mánuði
ársins, niðurstöður ársreikninga
1983 og greiðslustöðuna nú. Hins
vegar var ekkert fjallað um er-
lendar skuldir á fundinum og
ekki minnst á umtalað hlutfall
þeirra af þjóðarframleiðslu, hið
fræga 62,5%.
„Ríkissjóður hefur hagnast
verulega á auknum innflutningi,
aukinni veltu og lágu kaup-
gjaldi", sagði Ragnar Arnalds.
„Tekjurnar hafa aukist um 49%
miðað við sama tíma í fyrra en
gjöldin aðeins um 36%. Það sem
mestu skiptir eru hærri skattar.
Söluskatturinn hefur aukist um
52%, tekjuskatturinn um 58% og
tolltekjur um 53% á milli ára. Á
sama tíma hafa launagreiðslur,
sem eru 2/3 af útgjöldum ríkisins,
aðeins aukist um liðlega 25% og
framfærsluvísitalan, sem mælir
annan kostnað, um 43,5%. Út-
koman er því allsæmileg“.
„Staðan í sambandi við Iána-
mál ríkissjóðs er hins vegar erf-
ið“, sagði Ragnar. „Hinar nýju
tegundir ávöxtunar hjá bönkun-
um hafa valdið því að fólk hefur
unnvörpum innleyst spariskír-
teini sín, þannig að í stað þess að
ríkið hafi tekjur af sölu spariskír-
teina, hefur það orðið að greiða
150 miljónir umfram tekjur í inn-
lausnir. Skyldusparnaðurinn er
einnig neikvæður og verðbréfa-
kaup lífeyrissjóðanna minni en
ráð var fyrir gert. Þó ríkisvíxlarn-
ir komi þarna á móti, þá eru það
lágar fjárhæðir", sagði Ragnar,
„og því er greiðslustaða ríkis-
sjóðs mjög erfið um þessar
mundir“.
-ÁI
Bjarni vann brons
ísland lagði Bandaríkin - Fyrstu verðlaun ís-
lendinga á OL
síðan Vilhjálmur vann silfrið 1956
hissa á júdókappanum. Los
Angeles Times lýsir til dæmis
viðureign hans við bandaríkja-
manninn White þannig að kaninn
hafi orðið furðu lostinn á
brögðum snoðklippta bóksalans
frá því landi að þar stundar júdó
aðeins hálft fjórða hundrað
manna („a crew-cut book sales-
man who’s country boasts only
350 judo-players“).
Sjá íþróttir bls. 6
10. ágúst í fyrra var slegið rigningarmet i Reykjavík og 10. ágúst í ár fór langt með það líka. Ljósm. eik.
____Veðrið:__
Enn meiri rigning
i
Ifyrradag, 10. ágúst, mældist
úrkoman í Reykjavík 42,4
millimetrar en heildarúrkoma í
ágústmánuði árin 1931-1960 er
að meðaltali 65 millimetrar. Á
þessum eina degi rigndi því á við
20 venjulega ágústdaga! Ekki
verður þó metið frá í fyrra slegið,
en 10. ágúst 1983 mældist úrkom-
an í Reykjavík 46 millimetrar eða
ígildi 22ja venjulegra ágústdaga!
En hvernig er svo veðurútlitið
næstu daga? Hafliði Helgi Jóns-
son, veðurfræðingur: „Því miður
er ekki að sjá nein veðrabrigði í
lofti næstu 5 dagana. Það er útlit
fyrir sunnan og suðvestan átti og
áframhaldandi lægðagöngu upp
Grænlandshaf. í dag, laugardag,
er spáð vestanátt og skúrum eða
súld á sunnan- og vestanverðu
landinu en á Austur- og Norður-
landi léttir til og þar verður indælt
veður. Á sunnudag kemur svo
önnur lægð. Þá fer að rigna á nýj-
an leik hér fyrir sunnan og búast
má við að það þykkni eitthvað
upp fyrir norðan og austan“.
Svo mörg voru þau orð og eitt
er víst, það dugir ekki að skamma
veðurfræðingana. Þess má geta
að þó mikið hafi rignt á Reykvík-
inga á fimmtudag fékk Suður-
ströndin enn meiri dembu. í Vík í
Mýrdal mældist úrkoman yfir 70
millimetrar og á Eyrarbakka yfir
60!
-ÁI
L