Þjóðviljinn - 11.08.1984, Síða 2
Tilraunastöðina
á Keldum vantar
fólk með háskólamenntun til starfa við rann-
sóknir í veirufræði, ónæmisfræði og lífefna-
fræði.
Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður í
síma 82811.
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi
Jón S. Ólafsson
skipstjóri
Hávallagötu 3
sem lést að heimili sínu sunnudaginn 5. ágúst verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 14. ágúst
kl. 13.30.
Erna Óskarsdóttir
Ólöf S. Jónsdóttir Kjartan Gíslason
Óskar G. Jónsson Þórunn H. Matthíasdóttir
Herdís Þ. Jónsdóttir Ingi Sverrisson
Haila G. Jónsdóttir og afabörn.
Blönduvirkjun
Verksamningar
undirritaðir
Igær voru undirritaðir hjá
Landsvirkjun tveir verksamn-
ingar vegna Blönduvirkjunar
Um gerð neðanjarðarvirkja
var tekið tilboði Ellerts Skúla-
sonar hf. í Njarðvíkum og norska
fyrirtækisins Jernbeton en upp-
hæð þess samnings er rúmar 385
miljónir króna. Verkinu á að
vera lokið fyrir 1. júní 1989. Á
þessu ári verður fyrst og fremst
unnið við gerð aðkomuganga og
eytt sem svarar 75 miljónum til
þess.
Hinn verksamningurinn sem
gerður var fjallaði um gerð
botnrásar Blönduvirkjunar og til-
boði Arnardals sf. í Kópavogi og
Óla Þ. Óskarssonar í Garðabæ
var tekið, en það hljóðaði upp á
55 miljónir rúmar. Þess má geta
að undirverktakar í því verkefni
eru Ræktunarsamband Flóa og
Skeiða vegna sprengivinnu og
Loftorka sf. í Borgarnesi vegna
steypuframleiðslu.
Þessir verksamningar nema
fjórðungi af öllum beinum verk-
framkvæmdum við Blöndu.
-ÖS
Myndbandamálið
2 í gæsluvarðhald
Tveir menn hafa verið hand-
teknir og úrskurðaðir í gæslu-
varðhald vegna kæru um að þeir
hafi fjölfaldað mynd sem aðrir
hafa einkarétt á. Þessar upplýs-
ingar fengust hjá Arnari Guð-
mundssyni rannsóknarlögreglu-
manni, í samtali við Þjóðviljann í
gær.
Arnar sagði að kæra hefði ver-
ið lögð fram frá rétthöfum mynd-
arinnar, Myndbönd hf., Jón
Ragnarsson eigandi Regnbogans
er formaður þess.
Kæran byggist á því að talið er
að fjölföldun hafi átt sér stað á
mynd er aðrir hafa einkarétt á.
Um er að ræða eina kvikmynd.
Mennirnir tveir voru dæmdir í
gæsluvarðhald, annar til allt að
17. ágúst en hinn til allt að 22.
ágúst. HS
* 1984 *
(ÞINGVELLIR
LÝÐVEIDIÐ
40ARA
Sunn-
lendingar
skunda á
Þingvöll
líka
Alþýðubandalagsfélagar og
kunningjar þeirra á Selfossi,
Hveragerði og Laugarvatni ætla
að taka sig saman um að fylla í
rútu/rútur til að komast til Þing-
valla Iaugardaginn 18. ágúst. Þau
skunda á Þingvöll til að hitta þar
ferðalangana í Sumarferð Al-
þýðubandalagsins, en frá
Reykjavík verður lagt af stað kl.
9 árdegis. Sunnlendingarnir eru
beðnir að hafa samband við
Magnús í Hveragerði, eða Sigurð
Randver á Selfossi til að tilkynna
þátttöku sína. -óg
ATTU BIL
CDÁ UCifl 11 O
■ nCIVLv ■
í ÁGÚSTMÁNUÐI GEFUM VIÐ
10% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTT
Á EFTIRTÖLDUM VÖRUM í
ALLA BÍLA SEM VIÐ
HÖFUM UMBOÐ FYRIR
Dæmi um verð:
Kerti...Frákr. 40 + 10%
Platínur ..— 50+10%
Kveikjulok ...— 95+ 10%
Viftureimar ... — 45+ 10%,
Tímareimar .. — 145 +10%,
Loftsfur ..— 195 +10%,
Smursíur .... — 155+ 10%,
Bensínsíur ... — 35+ 10%
Þurkublöð ... — 75+ 10%,
Bremsuklossar — 285 +10%,
Bremsuborðar — 110+10%,
Bremsudælur . — 440 +10%,
Vatnsdælur ..— 410+10%
VIÐURKENND VARA
í HÆSTA GÆÐAFLOKKI
o
Sp
H
(O
MITSUBISHI
MOTORS
Auói
fpTlHEKIAHF
Laugavegi 170-172 Sími 212 40