Þjóðviljinn - 11.08.1984, Blaðsíða 4
LEIÐARI
Misskilningur
Geirs Hallgrímssonar
Ríkisfjölmiðlar hafa hvað eftir annað étiö
það gagnrýnislaust eftir utanríkisráðherra
landsins, að radarstöðvarnar, sem bandaríski
herinn vill koma upp norðan- og vestanlands,
séu engin hernaðarmannvirki. Þegar ráðherr-
ann hefur verið minntur á að fólkið á Vestfjörð-
um og Norð-Austurlandi vilji ekki fá þessi
mannvirki í heimabyggðir sínar, þá svarar Geir
Hallgrímsson því til að það sé „misskilningur
hjá fólkinu".
Hugmyndin um radarstöðvar hersins komu
fyrst fram á lokuðum fundi hjá Natóklúbbi í
Reykjavík. Hugmyndasmiðurinn var aðmíráll-
inn á Keflavíkurflugvelli. Skömmu síðar flutti
Geir Hallgrímsson þann boðskap í Varðar-
ræðu, að nauðsynlegt væri að koma upp
þessum radarstöðvum á Norðausturlandi og á
Vestfjörðum. Alþýðubandalagið hefði fram að
hans embættistíð komið í veg fyrir slíkar hern-
aðarframkvæmdir.
Frá því Geir Hallgrímsson gerðist með slík-
um hætti talsmaður aðmírálsins á Keflavíkur-
flugvelli hefur margt vatn runnið til sjávar. í
viðkomandi byggðarlögum hefurgætt vaxandi
andófs gegn því að héruðin verði gerð að vett-
vangi hernaðarmannvirkja. Allir stjórnmála-
flokkarnir nema Sjálfstæðisflokkurinn í við-
komandi byggðarlögum hafa mótmælt stað-
setningu radarstöðva í þessum héruðum.
Friðarhreyfingar á þessum landsvæðum hafa
eflst. Þá bregður svo við, að Geir Hallgrímsson
reynir nýja aðferð. Nú eru radarstöðvarnar
ekki lengur hlekkur í hernaðarkeðju Nató og
Bandaríkjanna, heldur eru þær orðnar nauð-
syn í flugumferð íslenskra flugvéla.
Flugmálastjórn er dregin inní sjónarspil til að
þjóna þessum áróðri - og meiraðsegja vinnur
með hernum að rannsóknum fyrirfyrirhugaðar
radarstöðvar.
Yfir Flugmálastjórn er sett sérstakt Flugráð.
Radarstöðvarnar hafa aldrei komið til kasta
Flugráðsins, þó einsýnt væri að ráðið þyrfti að
fjalla um þær, ef þær ættu aðgegna einhverju
hlutverki íflugumferðarstjórn íslendinga, eins-
og Flugráðsmaðurinn Skúli Alexanderson
benti á í Þjóðviljanum í gær.
Þegar starfsmenn Flugmálastjórnar eru
spurðir um ástæður afskipta þeirra af radar-
stöðvum hersins svara þeir: „Meðferð málsins
er alfarið á vegum varnarmáladeildar, ég get
ekkert um það sagt“. Síðan hvenær varð
Flugmálastjórn sett undir „vamarmáladeild"?
Og hvað ætli ráðuneytisstjóri í ráðuneyti
Geirs Hallgrímssonar segi um þá kenningu
Geirs að radarstöðvarnar séu ekki hernaðar-
mannvirki? Ingvi Ingvarson staðfesti í Þjóðvilj-
anum í gær að radarstöðvarnar væru fyrst og
fremst hernaðarmannvirki, enda eru þær
greiddar af Nató og Bandaríkjunum. „Það er
ljóst“, sagði ráðuneytisstjórinn, „að ef ekki
kæmu til not af þessum stöðvum fyrir Atlants-
hafsbandalagið þá yrðu þær varla reistar".
Hins vegar hefði verið rætt um það sem „hlið-
arverkefni" að þær tækju þátt í stjórn flug- og
skipaumferðar hér við land.
Málið er þá þannig vaxið að hin svokallaða
„varnarmáladeild" Geirs Hallgrímssonarerað
þræla stofnunum án þess að hafa leitað heim-
ildar yfirstjórnar þeirra með sér í samvinnu við
herinn um radarstöðvar, sem eru skýrlega
hernaðarmannvirki, þvert á vilja fólksins á
þessu landsvæði. Þannig er heldur ekki um
misskilning hjá fólkinu að ræða heldur hjá Geir
Hallgrímssyni.
Ó-ÁLIT
„Mér finnst alveg sjáifsagt að þú fáir stól
Steini minn. Ég bara veit ekki um neinn
á lausu...“
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Fróttastjórar: Óskar Guðmundsson, Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Álfheiður Ingadóttir, Guðjón Friðrikssson Halldóra Sigur-
dórsdóttir Jóna Pálsdóttir Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Mörður
Árnason, Súsanna Svavarsdóttir, Víðir Sigurðsson (íþróttir), össur Skarp-
héðinsson.
Ljósmyndir: Atli Arason, Einar Karlsson.
Útlit og hönnun: Bjöm Brynjúlfur Björnsson Svava Sveinsdóttir, Þröstur
Haraldsson.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir.
Auglýsingastjóri: Ólafur Þ. Jónsson.
Auglýsingar: Margrét Guðmundsdóttir, Ragnheiður Óladóttir,
Anna Guðjónsdóttir.
Afgreíðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Símavarsla: Ásdís Kristinsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
Innheimtumaður: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja ÞJóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasöiu: 22 kr.
Sunnudagsverð: 25 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 275 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 11. ágúst 1984