Þjóðviljinn - 11.08.1984, Blaðsíða 8
MENNING
er mín myndræna biblía og hug-
myndabanki.
- Ertu að læra myndlist?
- Já, ég fer á fimmta ár í
Myndlista- og handíðaskólanum í
haust en ætla síðan til London.
En svo er ég á kafi í öllu mögu-
legu öðru t.d. að gera leikmyndir
fyrir Leiklistarskólann.
Og þá er það Ragna Steinunn
Ingadóttir. Hún er með stór mál-
verk og teikningar af nöktu fólki.
- Er það erótík?
- Myndimar eru nú ekki hugs-
aðar þannig.
- En þér finnst mannslíkam-
inn spennandi?
- Tvímælalaust. Hjá mér er
allt miðað við kroppinn. Þannig
túlka ég sjáifan mig og hugðar-
efni mín.
- Hvað segirðu mér um náms-
feril þinn?
- Eg var fyrst hér heima í
Myndlista- og handíðaskólanum,
var svo í Danmörku í 2 ár en hef
undanfarin þrjú ár verið á Ítalíu,
fyrst í Bologna en síðan í Róm.
- Þið Steinunn hafið báðar
verið í Bologna. Er góður lista-
skóli þar?
- Hann var góður en er nú út-
brunninn. Það er betra að leita í
stærri borgirnar.
- Eru mikil ítölsk áhrif í mynd-
um þínum?
- Ég get nú ekki séð það beint
en maður verður náttúrulega
alltaf fyrir áhrifum af andrúms-
loftinu.
- Hvaða skóla hefurðu verið
í?
- Akademi Belli Arte í Róm
en maður lærir þó mest af því að
vera á staðnum og kynnast öðr-
um myndlistarmönnum.
- Og hver eru framtíðarplön-
in?.
- Ég ætla nú að vera heima í
eitt ár og vinna að myndlist. Það
þýðir ekki að stoppa.
- Finnst þér vera eitthvað
sameiginlegt með ykkur sem sýn-
ið hér?
- Þó að við vinnum allar mjög
ólíkt er viss tónn sameiginlegur.
Við erum allar sín úr hvorri átt-
inni en lifum í sama tíma.
Þá snúum við okkur að Sóley
Eiríksdóttur sem sýnir keramík-
skúlptúra. Hún er spurð að því
hvar í heiminum hún hafi haldið
sig.
ir myndir þínar. Eru þetta kann-
ski áhrif frá skammdeginu?
- Já, þær eru kannski dálítið
innibirgðar.
- Varstu í döpru skapi þegar
þú málaðir þær?
- Nei, ég var mjög giöð. Ég
mála eingöngu þegar ég er glöð.
Sú síðasta sem við náum í þessa
dagstund á Kjarvalsstöðum er
Harpa Björnsdóttir. Og hún er
spurð um námsferilinn.
- Ég var í Myndlista- og hand-
íðaskólanum 1976-1979 og svo
aftur 1981-1982 og útskrifaðist
þá.
- Hvers konar liti notarðu í
myndir þínar hér?
- Þetta er blek, silkiprents-
litir, vatnslitir og ýmislegt annað.
- Hefurðu tekið þátt í sýning-
um?
- Já, samsýningum en í haust
held ég mína fyrstu einkasýningu
í Kaupmannahöfn.
- Hvers vegna þar?
- Ég á svo góða vini þar úti.
- Geturðu helgað þig mynd-
listinni?
- Ég vinn við mína myndlist
með fullri vinnu úti og stundum
meira en það.
Tvær konur náum við ekki í.
Önnur er erlendis og hin veik
þegar viðtölin fóru fram. Björg
Órvar er nýkomin heim frá San
Fransisco en þar hefur hún verið
sl. 3-4 ár við myndlistarnám. Hún
málar stór málverk. Hin er Erla
Þórarinsdóttir sem búsett er í
Stokkhólmi og málar undir ít-
ölskum áhrifum. Hún hélt einka-
sýningu í Nýlistasafninu í fyrra.
-GFr
Steinunn Þórarinsdóttir: Línuteikningar í vír.
- Ég hef ekkert farið út í lönd.
Ég lauk prófi frá Myndlistaskól-
anum bæði úr kennara- og kera-
mikdeild og hef síðan verið með
eigin verkstæði í 3 ár.
- Eru þessar myndir þínar á
sýningunni nýjungar?
- Ég sýndi með Leirlistafé-
laginu um daginn og þar var ég
með stórar skálar og notaði
flötinn á þeim til að tjá myndir
mínar en nú er ég að þreifa mig
áfram með að koma myndunum
sjálfum í skúlptúr-form. Þegar ég
er búin að vinna þetta lengi með
efnið er ég farin að fá betri tilfinn-
ingu fyrir því og möguleikum
þess. Annars hef ég aldrei hugsað
skálar mínar og ker sem nytja-
hluti, t.d. blómapotta, heldur
fyrst og fremst hluti til að horfa á.
- Þú hefur ekki hug á því að
mennta þig erlendis?
- Mér finnst afskaplega gott
að vera hér heima og ég er viss um
að ég fengi heimþrá strax. ísland
er svo gott land. Hinu er ekki að
leyna að mig langar mikið til að
fara til útlanda, njóta þess að
vera í öðru andrúmslofti. Ég hef
lengi haft það í hyggju.
Jóhanna Kristín Yngvadóttir
sýndi fyrir skömmu í
Listmunahúsinu og hún er hér í
hópnum. Fyrst klassfsk spurning:
- Hvar hefurðu lært?
- Ég var fjögur ár í námi hér
heima og síðan önnur fjögur ár í
Hollandi, fyrst eitt ár í Haag og
svo þrjú ár í Amsterdam. Og nú
er ég á förum til S-Ítalíu, ætla
framvegis að búa þar á veturna.
- Hvers vegna?.
- Af heilsufarsástæðum. Við
búum líka á svo afskekktum stað
upp við Elliðaár að við erum dá-
lítið einangruð, erum kannski
innilokuð í húsinu mestallan vet-
urinn.
- Varstu fyrir miklum áhrifum
af málverki í Hollandi?
- Nei,ætliéghafiekkifariðað
mála eftir að ég kom heim.
- Þær eru dálítið dimmar þess-
Ragna Steinunn Ingadóttir: Hjá mér er allt miðað við kroppinn.
Jóhanna Kristín Yngvadóttir: Ég mála
eingöngu þegar ég er glöð.
Myndir: Atli
Asta Rlkharðsdóttir: New York hefur upp á allt að bjóða.
Harpa Björnsdóttir: Blek, silkiprentslitir, vatnslitir og fleira.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 11. ágúst 1984