Þjóðviljinn - 11.08.1984, Qupperneq 11
DÆGURMÁL
Nýverið fékk ég í hendur tvær
hljómplötur sem má líta á sem
afsprengi þeirrar gömlu góðu
hippasýrurokkshjómsveitar Jef-
ferson Airplane, nefnilega plöt-
una Nuclear Fumiture (Kjamorku-
húsgögn) frá Jefferson Starship
og Software, sólóplötu frá söng-
konu allra þessara sveita, Grace
Slick. Hér er um verulega eigu-
legar plötur að ræða, en undirrit-
uð er þó enn hrifnari af sólóplötu
Grace. Sannast sagna er sú gamla
kempa svo mögnuð að það er
fyrst eftir endurkomu hennar í
Jefferson Starship (hún var hér
um árið rekin úr sveitinni fyrir
Værðarvoð
Kjarnorkuhúsgögn
er skilið. Grace hefur kristaltæra
en sterka rödd, og hljómlistina
má flokka undir almennilegt
rokk þó að á hljóðgerfla sé leikið,
góðar melódíur... allt bara voða
skemmtilegt!...og ekki má
gleyma húmornum.
Kjarnorkuhúsgögnin frá Jef-
ferson Starship eru tímabært inrj-
legg í friðarbaráttuna og eru í
þeirri textagerð fyrrum hjóna-
kornin Grace Slick og Paul
Kantner, en þau tvö eru þau einu
í Starship sem voru í Airplane.
Þeir Craig Chaquico, David
Freiberg og Pete Sears komu í
Starship 1974, trommarinn Da-
Sex endur oa ein rotta...
drykkjuskap og ósæmilega og
óþolandi hegðun) að áhöfnin öðl-
ast fyrri kraft og sjarma, sem að
miklu leyti drukknaði í amerísku
kuldarokkdiskói þegar Grace var
komin útbyrðis. Þótt hún semji
ekki nema eitt lag og tvo texta
fyrir Kjarnorkuhúgsögn setur
hún mikinn svip á plötuna, syng-
ur enda flest lögin. Ekki veit ég í
hvaða sambandi eftirfarandi var
haft eftir henni hér um árið: „Ef
þú lætur sex endur og eina rottu
upp á svið verður rottan áber-
andi“, hins vegar er það stað-
reynd að Grace Slick er áberandi,
og það mjög innan um hina 6 á-
hafnarmeðlimina á Jefferson
stjörnufarinu.
Jefferson Airplane var stofnað
í San Fransisco í Bandaríkjunum
árið 1965 og urðu áhafnarmeð-
limir öflugir talsmenn hinnar
nýju hippahreyfingar á blóma-
tímanum með kraftmiklum text-
um sínum. Þau gagnrýndu ríkj-
andi viðhorf í bandarísku þjóðfé-
lagi, og allan stríðsrekstur, en
þetta voru ár Víetnamstríðsins.
Þau hömpuðu nýjum lífsstíl þar
sem ást skyldi sitja í fyrrrúmi, og
meðalið sem skyldi útdeila
hverju mannsbarni, til að allir
mættu lifa í einni allsherjar kær-
leikskeðju, var „gras“ hass og of-
skynjunarlyf (LSD). Eigi skilaði
lyfjameðferð þessi þeim árangri
sem til var vonast, enda alkunna
orðið að þeir sem undir hana
gangast verða litlir bógar til að
rísa gegn óréttlæti þegar langt er
liðið á „meðferðina“. Sjálft lenti
Grace í klóm hins löglega vímu-|
gjafa, þótt aðrir og ólöglegir hafi'
Grace Slick árið 1976, en hún verð-
ur 45 ára á þessu ári.
líklegast skolast niður með hoh-
um. Nú virðist þó sem það hafi
verið eins og að skvetta vatni á
gæs þótt óbjörgulega hafi horft
fýrir henni urn tíma. Software er
hennar 3. sólóplata eftir „uppris-
una“ og er hreint glæsileg afurð:
kröftug lög sem eru eftir hana eða
samin í félagi við aðra, og svo
textarnir sem eru hennar sér-
grein, snilldarlega orðaðir, „töff“
pólitískir, bæði íþjóðfélagslegum
og pólitískum skilningi.
Eg varð næstum eins hrifin og
hissa þegar ég heyrði Software
Grace og þegar ég heyrði í fyrsta
sinn Broken English, sólóplötu
Marianne Faithfull. Til að koma í
veg fyrir allan misskilning er rétt
að taka fram að hljómlist þeirra
kvenna er ekkert lík, enda báðar
það sérstakar að enginn fer í fötin
þeirra, hvaða skilningi sem það
vid Baldwin og söngvarinn Mick-
ey Thomas eru seinni tíma menn.
Hljómlistin á Nuclear Furniture
er kröftugt þungarokk (amerískt)
á köflum, blandað því góða,
gamla rokki og uppátækjum sem
gamlir aðdáendur Jefferson
Airplane kannast við. Semsagt
hin vænsta plata.
Hér er botninn sleginn í um-
sögn þessa með lokahendingu úr
lagi Grace Slick Showdown af
Kjarnorkuhúsgögnum, sem ég
treysti mér ekki til að þýða þann-
ig að tvöföld merking orðanna
komist til skila, en fram skal tekið
að left þýðir bæði að vera til
vinstri og að vera eftir; right þýð-
ir að vera tii hægri og að hafa rétt
fyrir sér; textinn fjallar um þá fáu
sem lifa af kjarnorkustríð: „Will
the ones who are left still say they
were right?“
A
Tónleikar undir
vaxandi tungli
Það var tunglsjúk
stemmning í Safarí á
fimmtudagskvöldinu s.l. þeg-
ar Baraflokkurinn, Kukl og
Vonbrigði tróðu þar uþþ. Má
segja að grillt hafi í nokkrar vel
brýndar vígtennur í ne-
onljósum undirheimanna
þarna á meðal blóðþyrsts
múgsins.
Eftir því sem á kvöldið leið á-
gerðist rafurmagnað (og sígarettu
mengað) andrúmsloftið og náði
hápunkti er fólk tók til við að
kukla uppá sviðinu. Stóð hljóm-
sveitin sig afburðavel og óx sam-
fara tunglinu (sem er fullt þessa
helgi); Björk vel böðuð magísk-
um árum, sem hún vissi minnst
um sjálf...söng listavel. Einar
Örn sté vita taktlausan dans og
blés með tilþrifum á trompet
(þótt fáeinar nótur brygðust hon-
um í spunanum).
Sighvatur er með betri lista-
mönnum á ásláttarhljóðfæri hér-
lendis og þykir mér hann brúka
trommur með næmi og sköpunar-
gáfu sem fáum öðrum er lagin
nema sönnum listamönnum. Ein-
ar Melax kryddaði taktfastan
ryþma sveitarinnar á hljómborð
og Gulli er takturinn. Á tíma virt-
ist sem framsækni bassans myndi
kæfa melódíurnar og gjörðist há-
vaði nokkuð þrúgandi á köflum,
samt nokkuð seiðandi og aldrei
árásarhvetjandi.
Hljómsveitin Vonbrigði kom á
óvart með nýju prógrammi. Er
greinilegt að þeir piltar eru ekki
aldeilis dauðir úr öllum æðum
enn, néma síður sé. Þeir eru loks-
ins farnir að spila saman og miklu
Kukl á þakl
betri lög en í langan tíma hafa frá
þeim heyrst. Þessi hljómsveit er
HESTAR
með friðartuggu
STAPANUM
í kvöld
Ágústfriður friðarhreyfingar
Þingeyinga breiðist yfir landið og
verður dagskrá á vegum íslenskra
friðarhreyfinga í Keflavík laugar-
daginn 11. ágúst, í dag sem sagt,
og í kvöld leika hinir bráðhressu
Kamarorghestar fyrir dansi í
Stapa í Keflavík. Á morgun
(sunnudag) verður friðarhreyf-
ingin á Selfossi og auðvitað fylgja
Hestarnir með. Á fimmtudags-
og föstudagskvöld skemmta
Kamarorghestar í Sigtúni og gefst
oss í Reykjavík þá loks kostur á
að heyra í sveitinni, (... stóð-
inu...?) og sjá, en hana skipa
fimmmenningamir Stjáni
stjarna, Böggi, Óli, Þorbjörn og
Lísa (sjá mynd til hliðar). Við
Þröstur hlökkum til... A
um margt athyglisverð, og finnst
mér nokkur hetj ubragur yfir sögu
hennar. Held ég að fáir hefðu trú-
að því, í þann mund er Vonbrigði
skutu fyrst upp kollinum fyrir
tæpum þrem árum í Rokki í
Reykjavík, að drengirnir myndu
þrauka lengi í bransanum og
spáðu flestir hljómsveitinni
bráðum dauða. En allt kom fyrir
ekki, þeir eru enn að og heyrðist
mér ekki betur í gær en þeir ættu
framtíðina fyrir sér.
Minnst spennandi hljómsveit
þessa kvölds var Baraflokkurinn
sem þrátt fyrir færa hljóðfæra-
leikara leikur afburða gelt og úr
sér gengið gervipopp. Andríki
flokksins getur varla minna verið
og er það skaði að svo góðir
hljóðfæraleikarar á borð við þá
sem skipa flokkinn skuli leggja
sig niður við að eyða kröftum í
vont spilverk.
Þessir hljómleikar í Safarí s.l.
fimmtudagskveld voru í heild
nokkuð vænir og kunna að vita á
eitthvað gott í þessum annars
sveiflótta poppbransa.
$
Sdtt
Músiktilraunir
a
þrem
skífum
Satt, Samband alþýðutón-
skálda og -tónlistarmanna, hefur
nú gefið út myndarlegan þriggja
platna hljómplötupakka sem hef-
ur að geyma leik hljómsveitanna
sem komið hafa fram í Músiktil-
raunum Satt. Upptökurnar með
sveitunum eru ýmist frá hljóm-
leikunum, efni sem hljóm-
sveitirnar áttu upptekið í fórum
sínum eða tóku upp gagngert
fyrir þessa útgáfu.
Hér er mjög fjölbreytt efni á
ferðinni: á einni plötunni er hefð-
bundin fslensk dægurtónlist, á
annarri rokk með enskum textum
að mestu og þeirri þriðju íslensk
nýbylgja yngri sveitanna. Af
flytjendum má nefna Tappa
heitinn tíkarrass, Kukl, Grafík,
Bergþóru Árnadóttur, Dron,
Band nútímans og Þarmagusta.
Með hljómplötunum fylgja at-
kvæðaseðlar og getur fólk tekið
þátt í skriflegum músiktilraunum
og sent atkvæðaseðlana til Satt.
Síðan verða haldnir hljómleikar í
haust með vinsælustu flytjendun-
um. Jafnframt eru atkvæðaseðl-
arnir e.k. getraunaseðlar, því að
þrenn verðlaun verða veitt þeim
þátttakendum sem næst komast
úrslitunum á seðli sínum: 10.000
kr. verðlaun, 6.000 króna og
3.000 kr. í þriðja sæti.
Þessi plötupakki Satt, með
breiðskífunum þrem, kostar 449
kr. og sama verð er á kassettun-
um.
A
Laugardagur 11. ágúst 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11