Þjóðviljinn - 11.08.1984, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 11.08.1984, Qupperneq 16
LISTIR IV Staðreyndamötunin og útskúfun lista Ósjálfrátt leiðir umræða um tónlist í útvarpi til athugunar á stöðu lista í öðrum menningar- stofnunum landsins. Þar verða fyrst fyrir skólarnir, þessi merki- legu fræðasetur þar sem listir hafa ávallt átt erfitt uppdráttar. Það er ekki ofsögum sagt að þær hafi verið þar hornreka allt frá því almenn skólaganga hófst í landinu. Hafi nemendur áhuga á að kynna sér þetta svið mannlegs hugvits standa þeim einungis sér- skólar til boða. Hver maður getur skilið að slíkir skólar eru ekki til þess fallnir að efla almennan áhuga, enda hafa þeir ekkert svigrúm til þess. Hefur eitthvað breyst? Reyndar segir það all nokkuð um álit forsvarsmanna mennta- mála á listum að þeir skuli telja það nægjanlegt að slík fræði séu kennd í sérskólum. Þar með stað- festa þeir þá skoðun sína að list- áhugi sé sérviska fárra sem ekki komi almennri menntun við. Þetta er vissulega í samræmi við þá trú margra að listir þjóni eng- um hagnýtum tilgangi og hafi því lítið áþreifanlegt gildi fyrir samfélag manna. íslenskt samfélag er bæði raun- hyggið (pósitískt) og rökvíst (pragmatískt) og því heimta menn að mál og vog séu látin skera úr um gildi hlutanna. Það er vissulega góðra gjalda vert ef sú krafa væri innan skynsamlegra marka. En því miður er ekki svo heldur stjórnast hún af einhvers konar staurblindum barnaskap: Látið er í veðri vaka að allar staðreyndir tilverunnar séu borð- leggjandi og ekki þurfi annað en smátíma til viðbótar svo hinstu rök hennar verði öllum opinber. Það er m.ö.o. Ágúst gamli Comte sem enn svífur yfir ís- lenskri hugsun eftir að hafa legið í gröf sinni í hartnær 130 ár. — Nú vil ég ekki fullyrða að skólakerfið sé jafn bágborið og þegar ég gekk gegnum það. En hafi það tekið einhverjum grundvallandi breytingum hefur slíkt gerst á fremur stuttum tíma, því það er töluvert langt í það að ég geti talist karlægur. Síðustu deilur um íslandssöguna benda heldur ekki til þess að mikið hafi breyst. Nýjungin virðist fyrst og fremst fólgin í staðfestingu þess sem kennt hefur verið allar götur frá því orrustan við Verdun var háð. Má vera að einhver sjái í slíkri menntastefnu miklar grundvallarbreytingar. Hið þýska Pólland Ég minnist þess nú, að þegar ég lærði mína landafræði um Evr- ópu kom ég engan veginn inn í kollinn á mér kortunum í bók- inni. Þau stönguðust nefnilega á við kort þau sem ég fann í þá nýkeyptum atlas föður míns. T.d. átti ég afar erfitt með að skilja stærð Þýskalands, eða hvað þessi „þýska eyja“ var að gera þarna í miðju Póllandi. Ég bar mig upp við föður minn sem eftir að hafa jafnað sig á undrun sinni fortaldi mér að kennslubókin væri frá því fyrir stríð, eða u.þ.b. 13 árum eldri en ég sjálfur. Ekki dettur mér í hug að halda að kennarar hafi ekki leiðrétt þessar smávægilegu breytingar á landakorti Evrópu í kennslustundum. En þar sem ég var búsettur erlendis á þessum árum og hafði ekki tök á að njóta leiðsagnar þeirra, vafðist landaf- ræðin fyrir mér þar til faðir minn tók mig í tíma og kenndi mér ör- lítið um staðreyndir heimsstyrj- aldarinnar síðari og lykta hennar. Eftir þetta fékk ég brennandi áhuga á sögu og landafræði og kannski er galdur skólakerfisins fólginn í því að miðla nemendum úreltum fróðleik svo þeir fái áhuga á að afla sér nýrri og fersk- ari upplýsinga. Seinna kynntist ég svo kennsluháttunum, m.a. listkennslu, ef ég má vera svo frakkur að telja íslenskar bók- menntir til lista. ítroðslan Ein er upp til fjalla, yli húsa fjær, da, da, da, da, dada, hvít með loðnar tær. Ekki man ég hversu oft við stikuðum skólastófuna fram og aftur þar til óhræsið var melt. Tossarnir fengu að taka kvæðið með sér heim svo þeir gætu gubb- að því út úr sér í næsta tíma. Sem betur fer fór mestur tími íslensku- kennslunnar í málfræði- og stafs- etningarstagl (auðvitað slitnu úr samhengi við mælt mál í landinu) og því var lítill tími aflögu til þess- arar frumlegu bók- menntakennslu. Þannig héldu nokkrir áhuga sínum á íslenskum ljóðum og tungu óskeknum þótt flestir fengju ævarandi óbeit á Jónasi og kó. Menn mega því e.t.v. þakka fyllta leikhúsbekki, tónlistar- og sýningasali þeirri staðreynd að sífellt messufall hefur verið í al- mennri listkennslu í íslenskum skólum. Ég komst ekki að því fyrr en löngu seinna, þá sestur á skóla- bekk í útlöndum, að til var nám sem ekki byggðist á innantómri ítroðslu, mötun og utanbókarlær- dómi. Þá var ég búinn að sitja á skólabekk rúma tvo þriðju hluta ævi minnar. Við það hrundi til grunna sú trú mín að nám væri inntaka staðreynda; að eitt væru raunfög og annað kjaftafög; að ég væri á góðri leið með að höndla lífsgátuna sem virtist svo skammt undan á menntaskólaár- unum. Þá loksins skildi ég að afstæðis- kenning Einsteins var ekki eitthvert einangrað eðlisfræðilegt fyrirbæri, heldur tengdist hún heimspekilegum kenningum samtíðarinnar; listrænum tilraun- um; uppgötvunum sálarfræðinn- ar að ógleymdum hag- og stjórn- fræðilegum vangaveltum.Afurð- ir mannlegs hugvits og hugsunar var ekki hægt að hólfa niður í meir eða minna samhengislausar greinar þegar allt kom til alls. Hvernig gat það líka verið að ýmsir mikilvægir þættir í mótun samfélagsins og fylgt höfðu mannkyni frá upphafi þess, væru svo ómerkilegir að þeir ættu ekki aðgang að íslensku skólakerfi? 16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.