Þjóðviljinn - 01.09.1984, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 01.09.1984, Blaðsíða 2
MARTIh FRETTIR Suðurgata 7 Stórhýsi eða gróðurvin? Nágrannar andvígir stórbyggingu. Málið ekki afgreitt í byggingarnefnd Jens P. Hjaltested hefur sótt um leyfi til að byggja stórhýsi á lóðinni Suðurgata 7 og þar verða íbúðir, verslanir og bílageymsla, húsið verður á fimm hæðum, alls 4777 rúmmetrar. Nýlega rann út frestur íbúa í grenndinni til að gera athugasemdir og bárust þær frá Sigrúnu Árnadóttur Tjarn- argötu 10 og íbúum í Tjarnargötu 10B. Ennfremur hefur bygging- arnefnd fengið umsagnir um fyrirhugaða byggingu frá Rúnari Bjarnasyni slökkviliðsstjóra og Guðrúnu Jónsdóttur arkitekt. Athugasemdir Sigrúnar eru í sjö liðum. Hún bendir á að löngu sé úrelt að loka þröngu porti eins og mun gerast ef byggingin rís, hún telur að það dragi úr birtu við vesturhlið húsanna í Tjarnar- götu, hún óttast vindstreng, hún spyr hvort ekki sé hætt við of- hleðslu og hvort byggingin brjóti ekki í bága við reglugerð um nýt- ingastuðul, henni þykir sennilegt að aðkoma verði erfið að óbreyttu umferðarkerfi, hún bendir á að bílageymsla verði dýrt fyrirtæki vegna flóðahættu og hún telur nærtækara að hlúa að þeim trjám sem fyrir eru á lóð- inni, hafa gróðurvin norðan við Suðurgötu 13 sem myndi tengjast tjörninni: Útivistarsvæði en ekki stórhýsi. Athugasemdir íbúanna við Tjarnargötu 10B eru nokkuð í svipuðum anda: Þeim þykir hætt við að hæð hússins valdi því að ekki sjái til kvöldsólar og það dragi úr birtu og þeim er illa við að myndist skuggalegt húsasund þarna. Þeir telja hættu á þrengsl- um og eru iítt hrifnir af aukinni umferð sem fylgdi húsinu. í umsögn Rúnars Bjarnasonar er lögð áhersla á að tryggja þurfi aðkomu að húsunum í Tjarnar- götu. Rúnar sagðist í samtali við blaðamenn ekki vera tilbúinn til að samþykkja að byggt verði þarna gaflanna á milli nema ein- hverjar ráðstafanir kæmu til sem tryggðu þetta. Guðrún Jónsdóttir undirstrik- ar í sínum athugasemdum að þarna þurfi að opna rýmið og bæta útivistaraðstöðu og öryggi íbúanna. Hún sagði í samtali að í athugasemdunum mælti hún gegn byggingunni eins og hún væri, hún væri á móti bílageymslu þarna og vildi að þetta yrðí meira leyst sem hornhús þar sem birtu- skilyrði yrðu ekki skert. - Málið var ekki afgreitt á fundi bygging- arnefndar borgarinnar í vikunni, eins og búist hafði verið við, held- ur slegið á frest. Og alls óvíst enn hvort þarna rís stórhýsi eða rækt- uð verður þar gróðurvin._gatyjH Stéttabarátta Fundur kvenna á vinnumarkaði Samtök kvenna á vinnumark- aðinum ætla að halda fund í dag. laugardaginn 1. september á Hót- el Borg klukkan 14.00 í því skyni - segir í fréttatilkynningu frá samtökunum - „að skora á alll launafólk að hefja nú þegar bar- áttuna og gefast ekki upp fyrr en raunhæfum kjarabótum er náð.“ í fréttatilkynningunni er minnt á að þann 1. september hafi stað- ið til að hækka laun verkafólks um 3%, en þeirri smánarhækkun hafi meirihluti launafólks hafn- að: „Launamisréttið hefur aukist gífurlega í tíð núverandi ríkis- stjórnar, og vegna úrræða- og samstöðuleysis launafólks hafa atvinnurekendur virst hafa sjálf- dæmi um kaup og kjör, og hefur það bitnað sérstaklega á konum, sem dregist hafa mest afturúr.“ -gat Nú er menningarlífið farið að blómstra að nýiu með lækkandi sól oq ekki færri en 10 mvndlistarsvninaar eru að opna þessa dagana. Hér er ein sú sérstæðasta, útisýning 10 ungra myndlistarmanna í landi Dallands í Mosfellssveit. Sýning þessi opnar í dag, laugardag og lýkur 16. september. Myndin er af einu verkanna. Ljósm -eik. ARQERÐARH Mú sKiptum við um árgerð hjá FIAT. Raunar eru það hálfgerð ára- mót þegar ein árgerð Klárast og nýrrar er beðið. V/ið ætlum að halda uppá ára- mótin með 5má Knalli og bjóðum til staðgreiðsluveislu. Læqsta verð kr. 199.000.- Af5látturinn er veittur af örfáum Unol sem eftir eru af árgerð '84. Dæmi um afeláttarverð: venjulegt verð Kr. 245.000.- %JHO!45 5UPER staðgreiðslutilboð kr. 223.000.- M afmælfeverð Kr. 218.000.- UnO! BA5IC staðgreiðslutilboð kr. 199.000.- (gengi 24/8 '84) EGILL VILHJALMSSON HF. Smidjuvegi 4, Kópavogi. Simar 77200 ■ 77202. 2 SIÐA - ÞJOÐVILJINN Laugardagur 1. september 1984

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.