Þjóðviljinn - 01.09.1984, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 01.09.1984, Blaðsíða 13
MENNING Skáldkona í Lóni Eg vil ekki trúa því að konur stjómuðu svona Kona Þú sem gengur með upphaf lífsins í skauti þínu þungum skrefum og varfœrnum ert meira en jafnoki karlmannsins - þrátt fyrir allar byrðar sem þeir bera. Þinni byrði verður aldrei af þér létt, eins og þeir geta hlaupist frá sinni því hún er í eðli þínu. - Ég á nokkrar smásögur og er með eina í smíðum. í vetur skrif- aði ég langa sögu, um 130 vélrit- aðar síður. Hún fjallar um konu sem á erfitt með að sameina það að vera kona og listamaður. Ég læt hana horfa aftur í tímann. En ég hef þessa sögu bara fyrir mig. Ég lærði mikið af því að skrifa hana. Eftir á sé ég gallana! Slœmt að konur skuli þurfa að bjóða fram sér - Allar konur ejga í einhverri baráttu, hvar sem þær eru stadd- ar, en mér finnst slæmt að konur skuli þurfa að bjóða fram sér til þess að reyna að rétta hlut sinn. Það væri æskilegra að þeim væru svo opnar leiðir innan stjórnmálaflokkanna að þær þyrftu þess ekki, sagði Kristín að Íokum og leiddi gestinn út í garð- inn í Hlíð sem þær mæðgur hafa ræktað og hannað af mikilli snilld. GGÓ. Kristín Jónsdóttir: Ég vil ekki við önnur störf vera en búskapinn. Þau eru með 360 ær og fimm kýr. - Ég vil ekki við önnur störf vera en búskapinn og það er fyrst og fremst sauðfjárræktin sem heldur í mig, ég væri löngu farin ef hér væru bara beljur eða refir. ur. Ég er oft með blokk við hlið- ina á mér þegar ég er að horfa á sjónvarpið. Eiginlega finnst mér ég gera best þegar ég er komin í tímaþröng og ég breyti helst aldrei neinu, vil vinna hratt og En ef það er eitthvað sem ég hef verulegar áhyggjur af, þá er það vopnakapphlaupið á milli stórveldanna. Ég er hrædd um að lítið þurfi til svo að eitthvað fari ekki úrskeiðis. Allir. þessir fjár- Bak við vélritun, skurðlækningar, myndlist, rœstingar, fiskverkun, lögfrœði, leikmennt og félagsfræði, stendur þessi ábyrgð og bíður. - En þú opnar samt faðminn fyrir hverri nýrri ábyrgð fagnandi og sœl yfir þunga hennar. 11. janúar 1981. - er mikið náttúrubarn í mér. Eg yrki gjarnan um náttúr- una, en einnig um mannlífið, frið og stöðu kvenna. Andinn getur komið yfir mig hvenær sem er og ég þarf ekkert næði. Það er Kristín Jónsdóttir í Hlíð í Lóni sem hefur orðið. Kristín er 21 árs og hefur fengist við að yrkja í fjögur til fimm ár. Hún er fædd og alin upp í Hlíð og sinnir þar búrekstrinum með foreldrum sínum og tveim yngri systkinum. Slœmtað konur skuli þurfa að bjóða fram sér Ég þekki hverja kind, þarf ekki nema sjá þær tilsýndar. Við spyrjum Kristínu nánar um ljóðin hennar. - Ég hef birt tvö til þrjú ljóð í Eystra-Horni og Austra. Það var gott ár hjá mér í fyrra, mikil upp- skera, en virðist ekki eins mikið góðæri nú. Ég orti ekkert meðan ég var í fiskvinnunni á Höfn í vet- drífa hlutina af. Staða kvenna og jafnrétti milli fólks yfirleitt er mér hugleikið yrkisefni. Mér finnst fátt verra en heyra á konur eða bændastéttina hallað. Það er ætlast til svo mikils af konum. Þær þurfa að gera allt helmingi betur en karlarnir, ef þær eiga að teljast jafnokar þeirra. munir sem eytt er meðan fólk líð- ur skort. Ég vil ekki trúa því að konur stjórnuðu svona. Þær hafa svo sterka tilhneigingu til að vernda afkvæmi sín og halda í þeim lífinu, móðurtilfinninguna. Þær meta meira að eiga mat handa börnunum sínum, en ráða yfir vígvélum til að klekkja á öðr- um. Annað hvort verður maður að vera kona eða taka sér karlana til fyrirmyndar í einu og öllu eins og Thatcher hefur gert. - Hvað lestu helst? - Ég er alæta á bækur og les allt sem ég kemst yfir, segir Kristín, mér finnst mest gaman af vel skrifuðum skáldsögum um raun- verulegt líf fólks og góðum, vel skrifuðum ævisögum. Svo les ég gjarnan greinar í blöðum um konur og eftir konúr. Hér skipt- ast menn á blöðum milli bæja. - Hefurðu fengist við að skrifa óbundið mál? Síðasta lestin Síðasta lestin (Le dernier metro, Frakkland 1980) Handrit og stjórn: Francois Truff- aut Kvikmyndun: Nestor Almendros Leikendur: Catherine Deneuve, Gerard Depardieu, Jean Poiret, Heinz Bennent, Andrea Ferreol. Sýnd í Regnboganum. Francois Truffaut er einn þeirra leikstjóra sem setja sinn sérstaka, persónulega stimpil á allar kvikmyndir sem þeir stjórna, svo að ekki er hægt að villast á þeim og neinum öðrum. Þeir sem hafa séð nokkrar Truffaut-myndir vita nokk- urnveginn á hverju þeir geta átt von þegar næsta mynd kemur. Samt kemur Truffaut oft á óvart og hann kann að skapa spennu, jafnvel þegar ekkert spennandi er að gerast. En við getum verið viss um að finna í myndum hans hlýjan húmor, einlægni, létta ír- oníu, og síðast en ekki síst raun- verulegar persónur, fólk af holdi og blóði. Síðasta lestin fjallar um þetta eilífa þema: lífið og listina. Myndin gerist í París á stríðsárun- um, nánar tiltekið í Montmartre- leikhúsinu í París, því heita má að kvikmyndatökuvélin fari ekki út úr húsi. Það er þetta leikhús og fólkið sem þar vinnur sem mynd- in fjallar um. Heimurinn utan leikhússins er ógnvekjandi: hakakrossinn mætir augum manns hvarvetna og þýskir her- menn ganga um götur með fra- nskar blómarósir upp á arminn. Skuggalegir Gestapo-njósnarar sjást í skúmaskotum, og fréttir berast af fólki sem hverfur, fólki sem er í fangabúðum... Leikhúsið hefur ekki farið varhluta af þeim vandræðum sem stríðið hefur fært Parísarbúum. Leikhússtjórinn Lucas Steiner (Heinz Bennent) er Gyðingur og hefur orðið að flýja, en kona hans Marion (Catherine Deneuve) sér um rekstur hússins auk þess sem hún er aðalleikkona. Övissa ríkir um framtíð leikhússins, en Mari- on fær Jean-Loup Cottins (Jean Poiret) í lið með sér og þar sem hann hefur sambönd á æðri stöð- um fá þau leyfi til að setja á svið leikrit. Fyrir valinu verður norskt leikrit, afspyrnulélegt ef marka má atriðin sem sýnd eru í mynd- inni, en blessunarlega laust við „gyðingleg áhrif“. Fleiri persónur koma við sögu: Bernard Granger (Gerard Dep- ardieu) er ungur og efnilegur leikari sem hreppir aðalkarlhlut- verkið í leikritinu, Daxiat (Jean- Louis Richard) er leikdómari á mála hjá hernámsliðinu og hatar Gyðinga einsog pestina. Sá náungi er reyndar óvenju ógeð- felldur af Truffaut-persónu að vera, skaðræðispadda. Það er áreiðanlega ekki algengt að Truffaut sýni slíka persónu, sem ekki á sér neina góða hlið. Og svo er það Arlette (Andrea Ferreol), lesbíska búningadaman sem Bernard reynir árangurslaust að fá til við sig. Ég sagði áðan að myndin fjall- aði um lífið og listina. Ef til vill væri réttara að segja að hún fjall- aði um leiklistina, bæði á fjölun- um og í daglega lífinu. Heimur myndarinnar er leikhús. Þetta er lítill heimur, samþjappaður og honum er ógnað - munið eftir litla heiminum sem Bergman tal- ar um í Fanny og Alexander? í þessum heimi eru allir að leika einhver hlutverk. Samleikur þeirra sem byggja litla heiminn er þungamiðja myndarinnar. Það skiptir ekki svo miklu máli hvað gerist (þótt vissulega dragi oft til stórtíðinda), heldur hvernig það gerist. Smáatriðin skipta máli, skoplegur hversdagsleikinn er í eðli sínu dramatískur. Francois Truffaut hefur gert betri kvikmyndir en þessa, þótt Síðasta lestin hafi hlotið einna besta aðsókn af öllum hans myndum bæði í Frakklandi og Bandaríkjunum. Þessi góða að- sókn er auðskilin, því myndin hefur margt til að bera: hún er skemmtileg, ljúf, spennandi á köflum - en umfram allt „sjarm- erandi“. Leikararnir eru hver öðrum betri, og reyndar ætti eng- inn að missa af neinu tækifæri til að sjá Gerard Depardieu og Cat- herine Deneuve, þau eru frábær! Laugardagur 18. ágúst 1984 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.