Þjóðviljinn - 01.09.1984, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 01.09.1984, Blaðsíða 7
Sigrún rúllar. C', or o r m ol U U rj U I loUtJ Svövu Björk Einarsdóttur og við sjáum sjálf um allt bókhald og dreifingu, sem er ekki minnsti þátturinn í starfinu. Við seljum munina á tveimur stöðum í Reykjavík, Gallerí Borg og ísl. heimilisiðnaði og á Akranesi, ísafirði, Akureyri og Keflavík. Við önnum ekki meiru, ef við ætl- um að vinna jafnframt verk fyrir sýningar, sem við teljum nauðsynlegt fyrir þróun okkar sem listamanna. Og það er líka hollt að vinna við nytjalistina, því hún þjálfar vel hug og hönd. Þetta starf er eins og íþrótt hvað það snertir að maður verður að vera í góðri þjálfun eigi ekkert að fara í handaskolum. Eftir frí er maður minnst, tvo daga að koma sér í form og ná hraða og öryggi á ný“, segir Sigrún. Þegar fylgst er með hand- tökum þeirra Sigrúnar og Sórens við glerblásturinn efast maður ekki um að mikla lagni og öryggi þurfi til að ná árangri í þessari listgrein, fyrir utan listræna hæfi- leika. Þau vinna mikið saman að glerblæstrinum, en einnig vinna þau verk sitt í hvoru lagi. Engin samkeppni á milli þeirra? „Nei, bara hæfilegur hand- verksmetnaður. Þeir hlutir sem við vinnum sitt í hvoru lagi eru líka svo ólíkir", svara þau. Og hvernig skyldi svo Kaup- mannahafnarbúa finnast að búa á Kjalarnesinu? Sören svarar: „Mér líður mjög vel hér. Það er rólegt og fallegt hér á Kjalarnes- „Glerlistin var lítt þekkt hér- lendis og akurinn óplægöur þegarvið hófum þessastarf- semi hér í Bergvík. Það er bæði kostur og galli að koma þannig að þessu, - hefðirnar eru engar og afstaðan sú að ílát sé ílát og list sé list. Smátt og dularfullt og smátt er þetta að breytast og menn gera ekki lengur svona skýran greinarmun á nytjavöru og listmunum. Menn hætta að sjá skál bara sem ílát, og sjá að ílát er líka list", sagði Sigrún Ó. Einars- dóttir glerlistamaður þegar við heimsóttum hana og mann hennar, Soren S. Larsen, en þau reka saman glerverk- stæði að Bergvík á Kjalarnesi Og nú um helgina taka þau þátt í sýningunni „Stefnumót glervina1' að Kjarvalsstöðum ásamtTchai Munch og Finn Lynggaard. Sigrún og Sóren hlutu bæði menntun sína í „Skolen for Brugskunst" í Kaupmannahöfn. Sigrún nam keramik og gler og Sóren keramik og var hann raun- ar kennari Sigrúnar. Sóren er fæddur í Kaupmannahöfn en Sig- rún bjó þar í 7 ár þar til þau tóku sig upp 1980 og fluttu til íslands og settust að á Kjalarnesinu 1981. Þau leigðu húsin af Kjalarnes- hrepp og opnuðu verkstæðið 1982. „Verkstæðið settum við upp í fjárhúsi og þurftum við að byrja á því að moka út skít og öðrum óþrifnaði. Sóren er lærður múrari og hann hlóð hér nýja veggi, við steyptum gólf og settum glugga og hurðir á húsið. Svo þurfti að einangra og koma upp ofnum og öðrum tækjum til glerblásturs. Við urðum auðvitað að fá lán fyrir öllum tækjunum, en við kvörtum ekki því þetta hefur gengið vel, þótt vinnudagurinn sé langur og við séum enn að berjast við að borga niður stofnkostnaðinn. Og við höfum getað unnið muni fyrir sýningar jafnframt því að vinna að nytja- list. Við reynum að fylgjast með og hafa sambönd við glerlista- menn úti í heimi. Einangrunin hér hefur vissa kosti, en maður má þó ekki lenda á „faglegri eyði- eyju“ þótt maður búi á Islandi. Við erum með einn lærling Soren og Sigrún hjálpast að og ekki sekúnda fer til spillis, því þá er hluturinn ónýtur. Ljósm. Atli. Laugardagur 1. september 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.