Þjóðviljinn - 01.09.1984, Page 5

Þjóðviljinn - 01.09.1984, Page 5
INN SÝN Guðmundur Þ. Jónsson, formaður Landssambands iðnverkafólks á fundi um bónusmálin fyrr í sumar með saumakonum hjá 66°N. Meðal iðnrekenda eru margir sem vilja semja á grundvelli kröfugerðar verkalýðshreyfingarinnar, en Vinnu- veitendasambandið heldur fast í tauminn, enda virðast öfl innan þess stefna á verkfall. Ljósm.: eik. Samningarnir - tvísýn staða Það markverðasta sem hefur gerst í yflrstandandi samninga- lotu er að afstaða Vinnuveitenda- sambandsins hefur harðnað til muna. Fyrir lotuna áttu sér þann- ig stað óformlegar þreiflngar, þar sem áhrifamenn innan VSÍ voru meðal annars að kanna hvernig undirtektir myndu verða við til- boði sem fæli í sér flata prósentu- hækkun í kringum fimm prósent auk einhverrar flokkatilfærslu fyrir flskverkunarfólk. í upphafi lotunnar var þetta útfært enn frekar í nokkuð handfastari „þreiflngum“ milli iðnekenda og iðnverkafólks, þar sem talsmenn iðnrekenda gáfu til kynna að þeir væru jafnvel til í að útrýma tvö- falda kerflnu svokallaða, þar sem bónus og yflrvinnuálag er miðað við taxta sem eru langt undir dag- vinnutekjutryggingunni. En brottnám tvöfalda kerflsins er ein af höfuðkröfum Verkamanna- sambandsins og Landssambands iðnverkafólks, og hefði þetta orð- ið að veruleika má búast við því að tiltölulega skjótar lyktir hefðu orðið á vinnudeilum I þessari lotu. En þær hugmyndir sem voru viðraðar í þessum óformlegu könnunarviðræðum urðu aldrei að veruleika. Eina tilboðið sem í formlegum viðræðum hefur kom- ið upp af hálfu atvinnurekenda var augljóslega einungis gert til að vinna tíma í stöðunni - eitt prósent ofan á þau þrjú sem áttu að koma samkvæmt febrúar- samningunum þann 1. september og þá gegn því að við áramót kæmi einu prósenti minni kauphækkun en gert er ráð fyrir þá samkvæmt þeim samningum! Áróður Vinnuveitenda- sambandsins En hvernig stendur þá á þessari tiltölulega skyndilegu stefnu- breytingu hjá Vinnuveitenda- sambandinu? Til þess liggja raunar margar ástæður. Sú er helst, að forvígis- menn VSÍ og margir áhrifaaðilar innan Sjálfstæðisflokksins telja að áróðursstaða Vinnuveitenda- sambandsins sé sterk um þessar mundir, og í málflutningi þeirra má greina þrjú meginstef. í fyrsta lagi telja þeir að al- menningsálitið sé mjög móttæki- legt fyrir því að kauphækkanir kunni að leiða til þess að verð- bólgan skrúfist upp á nýjan leik, og láta því verðbólgudrauginn ríða einsog hnútusvipu eftir hrygglengju verkalýðshreyfing- arinnar hvenær sem færi gefst. Annað meginstef þeirra er að markaðir okkar séu að lokast í Ameríku sökum offramboðs á fiski frá Kanada, og því sé öldungis fráleitt að ætla að hækka laun því það myndi endanlega gera út af við samkeppnisstöðu fiskvinnslunnar. í þriðja lagi er látið glymja í þjóðareyranu að staða fiskvinnsl- unnar í landinu sé svo hörmuleg að minnsta launahækkun myndi ríða henni á slig. Veikleiki Þessi áróðurstækni VSÍ og Sjálfstæðisflokksins hefur gengið framar vonum, og með henni tek- ist að sá efasemdum í brjóstum töluvert margra um að þjóðarbú- ið þoli launahækkanir. Þarna hafa áróðursmeistarar verkalýðshreyfingarinnar brugð- ist, því ofangreind rök einfald- lega standast ekki. Sæmilegar kauphækkanir þurfa alls ekki að leiða til verulegrar verðbólgu- aukningar, verðfall á fiski í Am- eríku er ekki fyrirsjáanlegt megi dæma af vangaveltum í erlendum tímaritum á borð við Fishing News, og þó staða fiskvinnslunn- ar sé slæm þegar á heildina er litið, þá er hún misjöfn þ.e.a.s. ákveðnir geirar standa illa en aðr- ir eru reknir með bullandi hagn- aði. Áróðurinn um slæma stöðu fiskvinnslunnar hefur gefist sér- staklega vel, því það er skammt síðan hluti flotans sigldi í land og miklar umræður spunnust þá um væntanlegt hrun hennar! Staðreyndin er hins vegar sú, að verulegur hluti af skuldum at- vinnugreinarinnar er bundinn fáum fyrirtækjum. Til dæmis er talið að um helmingur af skuldum útgerðarinnar hvíli á átta togur- um. Það er líka vert að geta þess að hluti fyrirtækjanna gengur vel, til dæmis þau sem hafa eldri tog- ara á sínum snærum. Og að síð- ustu er vert að nefna að stór aðili í útgerð hélt því fram í viðtali við Þjóðviljann að það væru tæpast nema 15 til 20 prósent af fisk- vinnslufyrirtækjum sem ekki þyldu að hækka laun fiskvinnslu- fólks, og bætti við: „Þau mega fara til andskotans fyrir mér“. Þessum staðreyndum verða áróðursmeistarar verkalýðs- hreyfingarinnar að koma betur til skila gagnvart fjölmiðlum og fólki en til þessa, ætli þeir að reyna að stilla almenningsálitið við baráttu sína. Baráttulist VSÍ og Sjálfstæðis- flokksins Þessi styrka áróðursstaða olli því að VSÍ ákvað - eftir samráð við forystumenn í Sjálfstæðis- flokknum - baráttulist sem grundvallaðist á tvennu: í fyrsta lagi að halda að sér höndum í samningunum, koma ekki með nein tilboð að sinni í trausti þess að sökum almenn- ingsálits og stöðu fiskvinnslunnar myndu verkalýðsfélögin ekki fara út í verkföll (ýmsir innan VSÍ og á hægri væng Sjálfstæðis- flokksins vilja hins vegar verk- följ). I öðru lagi að reyna að finna veikan hlekk í keðju Verka- mannasambandsins, þ.e. verka- lýðsfélag sem hægt væri að gera við samninga sem væru atvinnu- rekendum tiltölulega hagstæðir. Með því hyggjast VSÍ-menn vinna tvennt: Fá fordæmi sem gæti leitt til svipaðra samninga við afganginn af verkalýðshreyf- ingunni, en jafnframt að sundra Verkamannasambandinu þannig að þegar kemur til næstu samn- inga, sem verða strax í apríl næstkomandi, yrðu möguleikar á samstillingu baráttunnar innan þess, sem allra minnstir. Sérstaða vest- firðinganna Af ýmsum ástæðum urðu Vestfirðirnir fyrir valinu. Fyrir forgöngu Jóns Páls Halldórs- sonar, forstjóra Norðurtanga á ísafirði, hafa miklar þreifingar átt sér stað milli atvinnurekenda og Alþýðusambands Vestfjarða um möguleika á samningum. Samkvæmt heimildum Þjóðvilj- ans beitti Jón Páll sér einkum að Karveli Pálmasyni, og þeir síðan á Pétur Sigurðsson, forseta ASV. Afleiðingin varð sú, að þrátt fyrir að ASV hefði ekki gert neinar athugasemdir við kröfugerð Verkamannasambandsins, þegar hún var send þeim, fór samband- ið fram með sérstaka kröfugerð, sem í grófum dráttum gerði ráð fyrir 7 prósent kauphækkun yfir línuna þann 1. september (ÁSÍ hefur reiknað út að 7 prósent þarf til að halda kaupmætti febrúar- samninganna), auk þess sem fisk- verkunarfólk yrði hækkað um einn flokk. Þessar kröfur ganga mun skemur en kröfur Verka- mannasambandsins. Um þessar mundir standa yfir samningar fyrir vestan á grund- velli þessara krafna, og líklegt að sáttasemjari fari vestur um helg- ina til að liðka fyrir. Hins vegar er ólíklegt að sam- an gangi í bráð fyrir vestan, og því of snemmt að hrósa sigri fyrir VSÍ. Innan ASV er nefnilega mikil andstaða við hvernig sam- bandið hefur klofið sig frá Verka- mannasambandinu og á síðustu dögum hefur þeim röddum aukist rómur sem telja að hér hafi ASV í rauninni brugðist félögum sínum annars staðar á landinu. Það mun því reynast mjög erf- itt fyrir Pétur Sigurðsson að bakka mikið frá 7 prósent kröf- unni - enda segist hann sjálfur ekki munu hvika frá henni - en skilaboðin frá VSÍ fyrir sunnan leyfa atvinnurekendum ekki svo mikla hækkun. Forkólfar VSÍ fyrir sunnan hafa nefnilega gert vestfirskum félögum sínum ljóst, að það verður litið á það sem hrein svik, semji þeir um meira en fimm prósent flata kauphækk- un, hækkun fiskverkunarfólks um einn flokk, og ef til vill aukna fatapeninga. Þannig að það er allt eins lík- legt að ekki verði samið í bráð fyrir vestan, og dæmi VSÍ mun þá ekki ganga eins snöfurmannlega upp og hugað var. Óeining innan VSÍ Staða verkalýðshreyfingarinn- ar er þó töluvert skárri en margir halda. Til dæmis er það alveg ljóst, að innan VSÍ ríkir talsverð óeining. í óformlegum könnun- arviðræðúm, og einnig á form- legum samningafundum, hefur komið glögglega í ljós, að ein- stakir forystumenn innan VSÍ vilja koma til móts við kröfur VMSÍ og iðnverkafólks um að af- nema tvöfalda kerfið, og miða bónusálag við dagvinnutekju- trygginguna. Fylgi við þessar hugmyndir hafa náð inn í sjálfa fram- kvæmdastjórn VSÍ, en Magnús Gunnarsson framkvæmdastjóri VSÍ hefur lagst gegn þeim af miklum þunga. Einn af tals- mönnum þessara hugmynda er iðnrekandi, frjálslyndur sjálf- stæðismaður af gamla skólanum, sem er áhrifamikill í röðum VSÍ. Ýmsir aðilar í fiskiðnaði eru fylgjandi þessari hugmynd, en hún nýtur þó langmest fylgis meðal iðnrekenda. Umfangs- mikill aðili í fataiðnaði tjáði Þjóðviljanum til dæmis að hann hefði sjálfur ekki neitt á móti þessari lausn, en myndi ekki gera neitt nema í slagtogi við Félag ís- lenskra iðnrekenda. í forystu þess er vilji fyrir samningum, en VSÍ hefur tekist að bæla hann niður til þessa. Þetta gekk svo langt að í „þreifingum“ milli aðila var viðruð möguleg lausn á deilunni, en þegar kom til form- legs samningafundar höfðu for- kólfar VSÍ frétt af málinu og sendu varðhundá sína á vettvang. Ekkert gerðist. Veiki hlekkurinn Það er því alveg ljóst að veiki hlekkurinn hjá VSÍ eru iðnrek- endur. Þar er vilji fyrir að semja af tveimur ástæðum: í fyrsta lagi stendur allur iðn- aður á íslandi afskaplega vel, og þrýstiaðstaða iðnverkaiólks þvi allgóð. I öðru lagi vita iðnrekendur að mikil óánægja hefur ríkt meðal starfsmanna í iðnaði með bón- usmálin, og lá raunar við að upp úr syði fyrr í sumar. Séu einhverj- ir til í aðgerðir eru það iðnverka- fólk, og samtöl Þjóðviljans við fólk á örfáum vinnustöðum virt- ust staðfesta það. í bili er staðan því mjög tvisýn. Það ríður á miklu að VSÍ takist ekki að brjóta múrinn með samn- ingum á Vestfjörðum, svo verka- lýðshreyfingunni takist að hefja gagnsókn í áróðursstríðinu og meta sameiginlega hvar best er að láta höggið ríða á múr Vinnu- veitendasambandsins, - ef á ann- að borð reynist nauðsynlegt að reiða til höggs. Össur Skarphéðinsson. i Laugardagur 1. september 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.