Þjóðviljinn - 06.09.1984, Síða 2
FRETTIR
Kröflueldar 1984
Tignarleg sjón í haustnóttinni
Engu líkara en jörðinni vœri rennt ísundur með rennilás,
sögðu starfsmenn Kröfluvirkjunar sem urðu sjónarvottar að upphafi gossins
Hraunbreiðan teygði úr sér í allar áttir út frá gossprungunni þegar flogið var yfir gosstöðvarnar f gær.
Kröflugosið sem hófst á mið-
nætti í fyrrinótt er það níunda í
röðinni í gossögu Kröflusvæðisins
á þessari öld.
Umbrotin á svæðinu hófust
fyrir nærri 9 árum eða í desember
árið 1975. Gosið nú byrjaði með
miklum krafti og er talið með
stærri ef ekki stærsta gos á svæð-
inu í þessari hrinu. Miðað við
fyrri gos má reikna með að það
standi í allt að viku.
Gosið í desember 1975 stóð
stutt. Næsta ár voru nokkrar
bræringar á svæðinu án þess að
eldar brytust upp á yfirborðið.
í>að var ekki fyrr en í lok apríl
1977 að aftur fór að gjósa. í sept-
ember sama ár hófst enn á ný gos í
Leihnjúk. Þrátt fyrir mikla
skjálftavirkni, kvikuhlaup,
landsig og ris fór ekki að gjósa að
nýju fyrr en í mars árið 1980 en
það ár gaus alls þrisvar sinnum á
Kröflusvæðinu. Mikið gos kom í
júlí og enn aftur í október. Öll
þessi gos sem fyrri gos á svæðinu
stóðu stutt yfir og eldvirknin sem
í þetta sinn langmest í upphafi
gossins en síðan dró verulega úr
þeim.
í janúar 1981 hófst enn á ný gos
í Leirhnjúk og seinnipart nóvem-
ber sama ár kom áttunda gosið.
Töluverð ró hefur verið yfír
eldsumbrotasvæðinu síðustu árin
en jarðvísindamenn hafa ætíð
farið varlega í'spádómum þegar
Krafla er annars vegar og ekki
viljað lýsa yfir að umbrotunum á
svæðinu væri lokið og ró komin á.
Þrátt fyrir þá varkární er víst að
gosið í fyrrinótt átti sér lítinn að-
draganda og kom vísinda-
mönnum hálfvegis í opna
skjöldu. Skjálftavirknin var mikil
og stöðug og landsig töluvert.
Það var því fljótt ljóst í hvað
stefndi og skömmu fyrir miðnætti
opnaðist nærri 9 km löng gos-
sprunga í norður frá Leirhnjúk.
->g-
Krafla
9 gos á
9árum
Eftir nœrri þriggja
ára hvíld kom Krafla
mönnum í opna
skjöldu með kröflugu
gosi
Frá Amari Björnssyni fróttaritara
Þjóðviljans á Húsavík sem var á eld-
stöðvunum við Kröflu í fyrrinótt:
að var hreint út sagt stórkost-
leg sjón að horfa yfír gos-
stöðvarnar hér fyrstu klukkutím-
ana sem gosið stóð. Geysilegur
kraftur var i gosinu og það talið
það öflugasta þeirra sem komið
hefur í undanfarandi goshrinu.
Ég var kominn hingað á móts
við Leihnjúk ofan við Kröflu-
virkjun þar sem syðstu gosstöðv-
arnar voru skömmu eftir að gosið
hófst. Þá logaði á allri gossprung-
unni sem teygði sig um 9 km í
hánorður og var mikil gosvirkni á
allri sprungunni.
Starfsmenn Kröfluvirkjunar
sem voru sjónarvottar að því þeg-
ar eldurinn braust upp á yfirborð-
ið sögðu að engu hefði verið lík-
ara en jörðinni hefði verið rennt í
sundur með rennilás, svo fljótt
hefði sprungan opnast.
Miklar sprengingar fylgdu gos-
inu og þunnfljótandi hraun fór
þegar að renna út frá nær allri
sprungunni. Ljósadýrðin var
stórkostleg og bjart yfír gosstöðv-
unum sem að degi væri. Þessi
mikli kraftur í gosinu hélst fram
undir miðja nótt en þá fór að
draga nokkuð úr sunnan til á
sprungunni.
Þegar ég kom hingað aftur að
gosstöðvunum eftir hádegið í dag
var gosið orðið gjörbreytt frá því
sem hafði verið um nóttina. Gos-
virknin hafði nær öll færst nyrst á
gossprunguna norður við Sand-
múla ekki langt frá svonefndum
Éthólum en þar gaus nokkuð
myndarlega úr einum gíg. Lítið líf
var annars staðar á sprungunni
nema hvað tveir litilir gígar
skvettu úr sér syðst á sprungunni í
Leirhnjúk.
Töluverð umferð af fólki var
þá orðin á gosstöðvunum, aðal-
lega íbúar úr nærliggjandi sveit-
um og byggðarlögum, en fremur
fámennt var á sömu slóðum um
nóttina þegar mest gekk á. Þó að
verulega hefði dregið úr gosinu
frá því þá, hafði fólk gaman af að
virða fýrir sér þessa skrautsýn-
ingu móður náttúru og lá létt á
mönnum þar sem gosið hafði
tekið stefnuna norður á bóginn
og ógnaði hvorki orkuveri, byggð
né mönnum.
-AB/-lg.
Vísindamenn
Endurtekning
á síðasta gosi
Frá Amari Björnssyni fréttaritara
Þjóðviljans á Húsavík stöddum á
eldstöðvunum við Kröflu:
etta er nánast endurtekning á
síðasta gosi í nóvember 1981,
sögðu jarðvísindamennirnir
Kristján Sæmundsson og Haukur
Jóhannesson er blaðamaður
Þjóðviljans gekk fram á þá félaga
á gosstöðvunum um miðjan dag í
gær.
Þeir höfðu verið á ferli alla
nóttina ásamt öðrum vísinda-
mönnum sem eru fjölmennir hér
á svæðinu.
„Þetta byrjaði með hröðu sigi
um hálfníuleytið og laust fyrir kl.
12 opnaðist jörðin frá Leirhnjúki
og norður eftir undir Rauðakoll.
Það sást strax á skjálftamælum að
hverju stefndi“, sögðu þeir fé-
lagar.
Eins og áður sagði er fjöldi vís-
indamanna hér á gosstöðvunum
og voru þeir fyrstu mættir tilbúnir
í slaginn skömmu eftir að gosið
hófst. Auk ýmiss konar vísinda-
tóla hervæddust menn nú með
nýjustu tækni og tóku uppá
myndsegulband langa kafla úr
stærstu goshrinunum.
-AB/-lg.
Jarðvfsindamennirnir Kristján Sæmundsson og Haukur Jóhannesson við nýja
hraunjaðarinn í gær. Mynd-AB.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 6. september 1984