Þjóðviljinn - 06.09.1984, Page 7
/ípp
í ''
gÉgy r-* \ 4
Nokkrir fundarmanna að aflokinni gróðursetningu í Klausturbrekkum. Mynd: sibl.
Skógrœkt
Að klæða landið
skógarskikkju
Frá aðalfundi Skógrœktarfélags íslands
„Ys á stöðinni, ys á stöðinni,
öskur, köll og hróp", sagði Davíð
frá Fagraskógi. Og víst var ys á
Umferðamiðstöðinni á áttunda
tímanum föstudagsmorguninn
17. ágúst sl. En það voru engin
öskur, köll né hróp líkt og á járn-
brautarstöðinni hjá Davíð forðum
daga. Mest bar þarna á skóg-
ræktarfólki og það fór ekki fram
með neinum hávaða, þótt það
eigi til að „taka lagið" þegar svo
ber undir. Var för þess heitið
austur að Kirkjubæjarklaustri,
þar sem haldinn skyldi aðalfund-
ur Skógræktarfélags íslands.
Menn tíndust smátt og smátt
upp í tvo myndarlega langferða-
bfla og brátt voru ekki aðrir utan
dyra en þeir Ólafur Vilhjálmsson
og Bjarni Helgason, með sitt
sálnaregistrið hvor, sem þeir
rýndu í sem fastast. Líklega
höfðu þeir ekki ennþá kollheimt
hjörðina, a.m.k. voru þeir tregir
til að stíga um borð þótt komið
væri lítilsháttar fram yfir þann
tíma að haldið skyldi úr hlaði.
Loks var því slegið föstu að þeir,
sem skráðir voru á pappíra þeirra
Ólafs og Bjarna en ekki mættu,
hlytu að hafa orðið sér úti um
aðra fararskjóta en láðst að láta
vita. Og þar með renndu bflarnir
af stað út úr Reykjavík.
Ólafur fararstjóri Vilhjálms-
son er maður tillitssamur. Hann
tilkynnti hátt og snjallt að staðar
skyldi numið við söluskála á Sel-
fossi svo fólk gæti athafnað sig.
Aftur á móti þóttu ýmsum þau
tímamörk, sem Ólafur setti, ein-
ar 5 mínútur, nokkuð þröng, þótt
þau hefðu kannski dugað ef að-
ferð Ólafs Ketilssonar hefði verið
notuð, að skipa farþegum eftir
kynjum sitt hvoru megin við bí-
linn. Fimm mínúturnar urðu líka
að 15 mínútum ogmá raunar telj-
ast vel sloppið. Öðru sinni var
stansað í Víkurskála en síðan
ekki söguna meir fyrr en komið
var að Klaustri. Byrjað var á því
að raða fundarmönnum niður í
herbergi en síðan tóku menn
ótæpilega til matar síns. Er
skemmst frá því að segja að allur
var aðbúnaður og viðurgerningur
þarna í Edduhótelinu á Klaustri
með hreinum ágætum.
Fundur
er settur
Og svo hófst fundurinn í félags-
heimilinu á Klaustri, sem þrátt
fyrir braggalagið er hið
vistlegasta hús þótt mér finnist
raunar að reisulegri félagsheimil-
isbygging hæfði þessum fagra
stað.
Formaður Skógræktarfélags
íslands, frú Hulda Stefánsdóttir,
setti fundinn með ávarpi. Bauð
hún fulltrúa og gesti velkomna en
meðal þeirra voru forseti íslands,
Vigdís Finnbogadóttir, Jón
Helgason, landbúnaðarráðherra,
Hákon Bjarnason fyrrverandi
skógræktarstjóri og frú hans o.fl.
gott fólk. Þakkaði Hulda skóg-
ræktarfélaginu Mörk fyrir að gefa
Skógræktarfélagi íslands kost á
að halda aðalfund sinn að
Klaustri að þessu sinni.
Siggeir Björnsson, bóndi á
Holti á Síðu var kjörinn fundar-
stjóri en Árni Steinar Jóhannsson
á Akureyri til vara. Fundargerð
Að aflokinni gróðursetningu forsetatrésins í Klausturskógi. Mynd: sibl.
UMSJÓN: MAGNÚS H. GlSLASON
Fimmtudagur 6. september 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7