Þjóðviljinn - 06.09.1984, Page 8

Þjóðviljinn - 06.09.1984, Page 8
LANDIÐ rituöu þeir Indriði Ketilsson trá Fjalli og Óli Valur Hansson, ráðunautur. Siggeir fundarstjóri þakkaði traustið og lýsti ánægju sinni með að aðalfundur Skóg- ræktarfélagsins skyldi nú öðru sinni haldinn að Klaustri. Erla ívarsdóttir, formaður Skógrækt- arfélagsins Markar, ávarpaði fundinn og sagði það skemmti- lega afmælisgjöf fyrir Mörk á 40 ára afmælinu, að fá þessa heim- sókn skógræktarfólksins. - Hver sem varðar veg sinn trjám hefur ekki til einskis lifað, sagði Erla. Jón Helgason landbúnaðarráð- herra, flutti og ávarp. Gat hann þess m.a. að Síðan hefði í önd- verðu heitið Skógarhverfi þótt skógarins sæi nú lítinn stað, enda sveitin umkringd eldstöðvum á svo til alla vegu og grimmilega goldið þess. Þegar hér var komið sögu átt- uðu einhverjir sig á því, að enn hafði ekkert lag verið sungið. Slík vanræksla má ekki ske á skóg- ræktarfundum. Þegar ég fór fyrst að sækja þessa fundi fannst mér söngurinn vera einskonar ein- kenni þeirra. Hver fundur byrj- aði og endaði með söng og auk þess var lagið oft tekið við mála- skil. Nú finnst mér nokkuð hafa dregið úr þessari sönggleði og er síst til bóta. Söngurinn tefur ekki fundarstörfin, hann flýtir þeim fremur og auðveldar því „Hvar sem söngvar hljóma hér, hefurðu samfylgd góða“. Úr þessari vanrækslu var nú bætt. Þórarinn Þórarinsson, fyrr- verandi skólastjóri, sem lengi hefur verið sjálfkjörinn söng- stjóri á skógræktarfélagsfundum, reis úr sæti, gaf tóninn og var þá ekki að sökum að spyrja: Saiur- inn nötraði af söng. Það er alltaf mikið af góðu söngfólki á þessum fundum en auk þess er Þórarinn svo tilþrifamikill söngstjóri, að hann getur jafnvel látið raddlaust fólk syngja og það bara þokka- lega. Hann minnir mig einna mest á Ingimund Arnason, fýrrum söngstjóra Geysis á Akur- eyri. Skýrslur starfsmanna Aðalfundir eru náttúrulega alltaf í nokkuð föstum skorðum. Eftir að kjörnir hafa verið starfs- menn fundarins, ávörp gjarnan flutt, koma starfsskýrslur. For- maður, Hulda Valtýsdóttir, flutti skýrslu stjórnarinnar, sagði frá afgreiðslu mála milli aðalfunda, gat þess, að haldnir hefðu verið tveir svæðafundir. Á Blönduósi og ísafirði og mættu þar skógræktar- og sveitarstjórnar- menn til skrafs og ráðagerða. Þá greindi hún og frá auknum styrk hins opinbera við skógræktina. Snorri Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Skógræktarfélags- ins, gerði grein fyrir helstu fram- kvæmdum þess. Nýjar girðingar voru settar upp, aðrar stækkaðar. Ég er alltaf smeykur við tölur og fara þær oftast fram hjá mér, enda skussi í reikningi. Auk þess eru tölur ákaflega handhægar til þess að rugla menn og blekkja. Hinsvegar er ég viss um að Snorri hefur farið með réttar tölur og mér heyrðist hann segja að á ár- inu hefði Skógræktin gróðursett 392 þús. plöntur og um 80% af þeim hefðu farið í útisvæði. Væri þetta um 90 þús. plöntum fleira en árið 1982. Kjartan Ólafsson, gjaldkeri félagsins, las upp og skýrði reikninga þess. - Það er bjartara yfir skóg- ræktinni á íslandi nú en verið hef- ur um árabil, sagði Sigurður Blöndal, skógræktarstjóri. - Áhugi á skógrækt er sífellt að aukast og verða almennari. því veldur m.a. að árangurinn af starfinu kemur betur í ljós með hverju árinu sem líður. Bændur eru farnir að taka myndarlegan þátt í skógræktarstarfinu. Austfirðingar riðu á vaðið með Fundarmenn hlýða hugsandi á umræður. Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, á miðri mynd en hún fylgdist með umræðunum tvo fundardagana. Mynd: sibl. Ingvi Þorsteinsson, magister, flutti er- indi um beit í skóglendi. Mynd: sibl. ar og útvega þeim plöntur, sem selja yrði undir kostnaðarverði, en það gæti aðeins nkisstofnun gert, og svo að rækta stórskóg til beinna nytja. Félögin væru hins- vegar samtök áhugamanna, sem ræktuðu skóg til fegurðar- og yndisauka. Hvernig framlög hins opinbera skiptust milli þessara aðila væri svo pólitísk spurning, sem Alþingi yrði að svara. Atvinnumenn og áhugafólk eiga að hjálpast að við það, að færa landið úr gróðurtötrum og búa það skógarskikkju, sagði Sig- urður Blöndai. Athugandi væri að efna tii skógræktarþings t.d. annað hvert ár, þar sem saman kæmu til skrafs og ráðagerða full- trúar frá Skógræktinni, áhuga- mannafélögunum og einstak- lingar, sem áhuga hefðu á þessum málum. Væri þetta því nauðsyn- legra þar sem skógræktarstarfið væri að nema nýtt land með til- komu bændaskóganna. Hákon Bjarnason, Jónas Jóns- son, Ágúst Árnason, Óskar Magnússon, Aðalsteinn Símonarson, Tómas Ingi Olrich, Tryggvi Sigtryggsson, Páll Gutt- ormsson, Jón Pálsson, Leó Guð- laugsson og Þórarinn Þórarins- son, sem bar saman viðhorfin á fyrstu aðalfundum Skógræktar- innar sem hann sat og fundinum nú. Þá voru bændur taldir aðal- meinsmenn skógræktarinnar en nú væri þar að finna vaxtarbrodd- inn. Að loknum þessum umræðum fluttu fulltrúar einstakra skóg- ræktarfélaga skýrslur sínar. Var þar margan fróðleik að finna en of langt mál yrði að tíunda hann hér. Á sunnudaginn fóru svo fram umræður um nefndarálit og kosn- ingar. Frá flestum ályktunum höfum við þegar greint sem og kosningunum. Látum við því lok- ið að segja frá sjálfum fundar- störfunum. Því máþóbætahér við, að sam- þykkt var að aðal umræðuefnið á aðalfundinum að ári skyldi vera: Rannsóknir og tilraunastarfsemi á sviði skógræktar og trjáræktar á íslandi. mhg. Réttirnar Hátíð haustsins Nú eru réttir á næsta leiti. Þær hafa löngum verið mörgum mikil fagnaðarhátíð og mun svo enn, sem beturfer. Eftirfarandi listi upplýsir hvenær réttað er í nokkrum helstu skilaréttum landsins. Auðkúlurétt, Svínadal, A-Hún. föstud. 14. og laugard. 15. sept. Brekkurétt, Norðurárdal, Mýr., mánud. 17. sept. Fellsendarétt, Miðdölum, Dal., mánud. 24. sept. Fljótstungurétt, Hvítársíðu, Mýr., mánud. 17. sept. Fossvallarétt, v/Lækjarbotna, (Rvík/Kóp.), sunnud. 16. sept. Grímsstaðarétt, Álftaneshr., Mýr. fimmtud. 20. sept. Hafravatnsrétt, Mosfellssveit, Kjós., mánud. 17. sept. Heiðarbæjarrétt, Þingvallasv., Arn., laugard. 15. sept. Hítardalsrétt, Hraunhr., Mýr., miðvikud. 19. sept. Hraunsrétt, Áðaldal, S-Þing., miðvikud. 12. sept. Hrunaréttir, Hrunamannahr., Árn. fimmtud. 13. sept. Hrútartungurétt, Hrútaf., V.-Hún., sunnud. 9. sept. Húsmúlarétt v/Kolviðarhól, Árn., mánud. 17. sept. Kaldárrétt v/Hafnarfjörð, laugard. 15. sept. Kaldárbakkarétt, Kolbeinsstaðahr., Hnapp., mánudagur 17. sept. Kirkjufellsrétt, Haukadal, Dal,. sunnudagur 23. sept. Kjósarrétt, Kjósarhr., Kjós, þriðjud. 18. sept. Klausturhólarétt, Grímsnesi, Árn., miðvikud. 12. sept. Kollafjarðarrétt, Kollaf., Kjós., þriðjud. 18. sept. Krísuvíkurrétt, Krísuvík, Gullbr., laugard. 22. sept. Langholtsrétt, Miklaholtshr., Snæf., miðvikud. 19. sept. Laufskálarétt, Hjaltadal, Skag., laugard. 15. sept. Miðfjarðarrétt, Miðfirði, V-Hún., sunnudagur 9. sept. Mýrdalsrétt, Kolbeinsstaðahr. Hnapp., þriðjud. 18. sept. Mælifellsrétt, Lýtingsstaðarhr., Skag., sunnud. 16. sept. Nesjavallarétt, Grafningi, Árn., mánud. 17. sept. Oddsstaðarétt, Lundareykjadal, Borg., miðvikud. 19. sept. Rauðsgilsrétt, Hálsasveit, Borg., föstud. 21. sept. Reynistaðarrétt, Staðarhr., Skag., mánud. 10. sept. Selflatarrétt, Grafningi, Árn., miðvikud. 19. sept. Selvogsrétt, Selvogi, Árn., miðvikud. 19. sept. Silfrastaðarétt, Akrahr., Skag., mánud. 17. sept. Skaftártungurétt, Skaftártungu; V-Skaft., miðvikud. 19. sept. Skaftholtsrétt, Gnúpverjahr., Árn., fimmtud. 13. sept. Skarðsrétt, Gönguskörðum, Skag., sunnud. 9. sept. Skeiðaréttir, Skeiðum, Árn., föstud. 14. sept. Skrapatungurétt, Vindhælishr., A-Hún., sunnudag 16. sept. Stafnarétt, Svartárdal, A-Hún., fimmtud. 13. sept. Svarthamarsrétt, Hvalfjarðarströnd, Borg., miðvikud. 19. sept. Svignaskarðsrétt, Borgarhr., Mýr., miðvikud. 19. sept. Tungnaréttir, Biskupst., Árn., miðvikud. 12. sept. Tungurétt, Svarfaðardal, Eyjafj., sunnud. 16. sept. Undirfellsrétt, Vatnsdal, A-Hún., föstud. 14. og laugard. 15. sept. Vogarétt, Vatnsleysuströnd, Gull., miðvikud. 19. sept. Víðidalstungurétt, Víðidal, V-Hún. föstud. 14. og laugard. 15. sept. Þingvallarétt, Þingvallasveit, Árn., mánud. 17. sept. Þórkötlustaðarétt v/Grindavík, Gull., mánud. 17. sept. Þverárrétt, Eyjahr., Snæf., mánud. 17. sept. Þverárrétt, Þverárhiíð, Mýr., þriðjud. 18. og miðvikud. 19. sept. Ölfusrétt, Ölfusi, Árn., fimmtud. 20. sept. Ölkeldurétt, Staðarsveit, Snæf., fimmtud. 20. sept. Jón Pálsson, formaður Garðyrkjufé- lags íslands, var heiðraður á fundin- um fyrir ágæt störf í þágu garðyrkju og skógræktar. Mynd sibl. bændaskógana. En nú eru eyfirskir bændur einnig komnir á fulla ferð. Þar standa til boða allt að 900 hektarar til skógræktar. Víðar er að gerast svipuð saga. Menn eru farnir að skilja, að skógrækt er ekki sport heldur at- vinnuvegur. Fyrir þessu er einnig vaxandi skilningur á Alþingi, sem hefur sýnt sig í verki. Og ekki skal gleymt áhrifum þeirrar ákvörð- unar Vigdísar Finnbogadóttur, forseta Isiands, að gera trjá- plöntu að embættistákni sínu. Er það einstætt í heiminum og vekur hvarvetna verðskuldaða athygli. Árni Steinar Jóhannsson benti á að nú væri svo komið að bændur væru farnir að þrýsta á Skóg- ræktina um framkvæmdir en hún ekki á þá! Væri þetta þeim mun athyglis- og þakkarverðara þar sem bændur gætu naumast vænst þess að skógræktin yrði þeim arð- bær nema þá hinum yngri. Og nú yrði að koma myndarlega til móts við bændur. Verkaskipting Á aðalfundi Skógræktarfélags- ins í fyrra var samþykkt að á fundinum í ár yrði rætt um starfs- og verkaskiptingu milli Skóg- ræktar ríkisins og skógræktar- félaganna. Framsögumenn voru þeir Ólafur Vilhjálmsson og Sig- urður Blöndal. Bentu þeir á, að munurinn á Skógræktinni og skógræktarfélögunum væri eink- um sá, að hún væri ríkisstofnun, sem starfaði með launuðum vinnukrafti. Hlutverk hennar væri m.a. að veita félögunum fag- legar leiðbeiningar og upplýsing- Miklar umræður urðu um framsöguerindi þeirra félaga og tóku þessir til máls: Jón Birgir Jónsson, Snorri Sigurðsson, Páll Guttormsson, Jónas Jónsson, Jó- hann Þorvaldsson, Árni Steinar Jóhannsson, Guðjón Jensson og Leó Guðlaugsson. Fjölmargar tillögur komu fram og fengu umfjöllun í nefndum. Hefur þegar verið greint frá flest- um þeirra hér í blaðinu og því sleppt hér. Lauk þar með hinum fyrsta fundardegi þótt nefndanna biði strangt starf. Skógarbeit Fundurinn á laugardaginn hófst með erindi Ingva Þorsteins- sonar um beitartilraunir þær, sem yfir hafa staðið í Hallormsstaðar- skógi frá því 1980. Miða þær að því að kanna hver áhrif sauðfjár- beit hefur á skóginn og gróður í honum. Skyldi þessi tilraun standa í 5 ár og lýkur henni því á næsta ári. í ljós hefur komið að um 75% trjáa hefur bitist af fénu. Þó hafa engar skemmdir orðið á berkin- um. Víðirinn, sem féð sækist mjög eftir, var nánast dauður eftir fyrstu 2 árin. Blómplöntur hverfa en grösin standa eftir og virðist raunar vaxa ásmegin við hóflega beit. Fallþungi dilka í skóginum reyndist ekki meiri en þeirra, sem utan skógar gengu á Hallormsstað. Bendir það til þess að of þröngt hafi verið á fénu. í skógbeitartilraun á Stálpastöðum í Skorradal stórjókst hinsvegar fallþunginn. Þar virðist beitar- álagið hafa verið við hæfi. Ingvi taldi að draga mætti þá ályktun af þessari tilraun að sauðfjár- og skógrækt væru ekki andstæður í sjálfu sér. Það þyrfti bara að hafa'hóf og stjórn á hlut- unum og lofa trjánum að komast vel á legg áður en farið væri að beita skóginn. Mætti ætla að trén þyrftu að vera orðin 20 ára gömul. En beit og skógrækt getur og á að fara saman, sagði Ingvi. Verulegar umræður spunnust út af erindi Ingva. Tii máls tóku -mhg 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 6. september 1984

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.