Þjóðviljinn - 06.09.1984, Síða 11

Þjóðviljinn - 06.09.1984, Síða 11
MANNLIF Kvenfélagið á Höfn Karlarnir þurfa að breyta sér Áður fyrr fólst starfsemi kven- félagsins helst í því að afla fjár til ýmissa mála sem okkur þóttu vanrækt, en nú beinist starf- semin meira að því að gera eitthvað fyrir konurnar sjálfar, t.d. með námskeiðahaldi. verkefnum sem þeir hafa hingað til haldið að enginn gæti sinnt nema þeir og læra að meta áhuga- mál kvenna til jafns við sín. Ég vona að karlar og konur geti lært að starfa saman, ég er alfarið á móti því að konur starfi sér í pólitískum flokkum, þetta þurf- um við vinstri menn að taka vel til athugunar. Við þurfum sterkt sameinað afl í landinu, sagði Álf- heiður að lokum. GGÓ Álfheiður Magnúsdóttir: (kvenfélögunum læra konurnar margt hver af annarri og þroskast af verkefnunum. Þetta voru orð Álfheiðar Magnúsdóttur á Höfn í Horna- firði, þegar Pjóðviljinn spurði hana um starfsemi Kvenfélagsins Tíbrár á Höfn sem í fyrra hélt upp á 60 ára afmæli sitt. Álfheiður hefur verið ötull félagi í Tíbrá frá því hún flutti á Höfn árið 1945, og hún var formaður þess í á annan áratug. - Félagið hefur gjarnan unnið að því að koma ýmsum hugmynd- um á framfæri í félagsmálum og félagslegri þjónustu sem konun- um finnst ekki vera sinnt. Það hafa verið stofnaðir sjóðir og safnað fé í fyrstu framkvæmdim- ar, en svo hafa aðrir, t.d. hrepp- urinn tekið við. í þessu sambandi má nefna byggingu félagsheimi- lisins í Sindrabæ. Lengi vel fór allt sem við áttum í það. Fljótlega fór félagið að huga að bama- gæslu, við byrjuðum með gæslu í skólastofu á sumrin. Við þóttum frekar, þegar við vorum að leggja áherslu á byggingu leikskóians. Slysavamarféiagið var með okk- ur í þeim undirbúningi. Nú er bamaheimilið orðið allt of lítið, ég veit um móður sem beið eftir plássi fyrir barn sitt í á þriðja ár. Við höfum líka styrkt fjölskyldur og einstaklinga. Félagið hefur sinnt elliheimilinu dyggilega og átti upphafið að stofnun kirkju- sjóðs til byggingar kirkju hér á Höfn. Ég man þegar verið var að ræða á fundi hjá okkur hvort frekar ætti að safna fé til kirkju- byggingar, félagsheimilis eða sundlaugar, þá sagði ein konan: „Við getum beðið til guðs í heimahúsum, leikið í braggan- um, þótt lélegur sé, en við getum ekki synt á þurru landi.“ Bragg- inn var leifar frá hemum, sem við sitjum nú enn uppi með. - Hvernig öfluðuð þið fjár? - Við héldum skemmtanir, þá vom allar skemmtanir fjölskylduskemmtanir, lékum leikrit, stóðum fyrir tombólum, bösurum og einu sinni heyjuðum við af bletti hér inni í landi og seldum heyið. Það spannst inn í þessa fjáröflun ómæld skemmtun og þetta var þroskandi starf fyrir konumar. Þá áttu konurnar auðveldara með að skjótast frá þar sem vinnan var mest heima og hægt að hagræða tímanum. - Hvað segirðu um framtíð kvenfélaganna? - Það er mesti misskilningur að kvenfélögin séu úrelt. Ég hef tröllatrú á þessu ungu konum sem hafa tekið við. Konumar læra margt hver af annarri og þroskast af verkefnunum. I blönduðum félögum sitja menn ekki saman með handavinnu og ræða málin. Konumar komast heldur ekkert áfram þar. Það er erfitt að losna við gömlu hefðina að karlarnir séu æðri og eigi að stjórna öllu og öll starfsemi að fara fram eftir þeirra höfði. - En í stjórnmálabaráttunni? - Það er verið að ganga á eftir konum um að taka sæti á listum í sveitarstjórnarkosningum, en hvað getur ein kona á móti t.d. sex körlum, hún getur ekkert og gefst upp. Ékki bætir úr skák ef hún þekkti starfið og starfsað- ferðirnar ekkert áður. Því eru konur hræddar við þessi störf og gefa ekki kost á sér. Karlarnir þurfa að breyta sér ef samvinna á jafnréttisgrundvelli á að takast. Þeir þurfa að trúa konunum fyrir ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11 ERTU RÁÐÞROTA í FRUMSKÓGI VAXTA? LATTU ráðgjafann IUTVEGSBANKANUM LEIÐBEINA ÞÉR HANN 5ÉB FUÓTT MVAÐ ÞÉM ER EYRIR BE5TU. OQ HATIN BfEÐUB ÞÉB EIEILT. Ráðqjafinn \ Útvegsbankanum er rétti leiðsögumaðurinn \ þeim frumskógi waxta, 5em nú hefur sprottið upp. Þar átt þú margra kosta völ. En gáðu að þér. 5á innlánsreikningur sem hentar einum best, þarf alls ekki að henta öðrum. Eldra fólk að 5elja stóra íbúð og fara \ aðra minni, skattarnir, fyrirhugað ferðalag, jólamánuðurinn, bílakaup, gifting, fjölgun \ fjölskyldunni. Þú 5érð að aðstæður manna eru mismunandi. Talaðu því við Þáðgjafann \ Útvegsbankanum. Hann 5ér fljótt hvað þér er fyrir bestu. RfiÐO.Ififítin - FfimfíSTJÓFW Þllifl 1 FRUM5KÓGI VfiXTfi. ÚTVEGSBANKINN EINN BAHKI • ÖU MÓNUSTA Gylmir

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.