Þjóðviljinn - 06.09.1984, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 06.09.1984, Blaðsíða 15
MANNLIF Framkvœmdir á Höfn Verðmætanna ekki aflað með vinnu- búðum úti um landið Árni Kjartansson var ráðinn byggingafulltrúi Austur-Skafta- fellssýslu fyrir fjórum árum. Hann er fæddur og uppalinn á Höfn og snéri heim aftur að loknu námi í verkfræði við Háskóla íslands og arkitektúr í Lundi í Svíþjóð. - Hér er nú allt stopp í bygging- aframkvæmdum, ekki sótt um eina einustu íbúðarlóð, sagði Árni þegar Þjóðviljinn spurði hann um framkvæmdir á Höfn. Það hlaut auðvitað að draga úr þessari þenslu sem hér var, en menn bjuggust ekki við því svona snögglega. Reyndar varð aðeins vart við samdrátt í fyrra. Skerð- ing á tekjum er mikil og erfitt um lán. Það mátti að sjálfsögðu hægja á þessum voðalega hama- gangi sem hér var. Afkoman byggðist á botnlausri vinnu við fiskinn. - Annars er nóg að gera hjá iðnaðarmönnum í byggingaiðn- aði, mikið verið að gera við hús, klára hús og byggja við. En það eru miklu minni peningar í spi- linu. Það er einnig þröngur fjár- hagur hjá hreppnum vegna lægri tekna og lækkaðrar útsvarsprós- entu. Þó er unnið í gatnagerð og snyrtingu og hirðingu sinnt meira en í fyrra. Það hefur orðið ger- breyting á útliti bæjarins á síðustu tveim árum, en við erum á eftir í varanlegri gatnagerð. Gatnakerf- ið er svo stórt miðað við efnahag bæjarins. Byggðin hefur þanist út. Nú er farið að reyna að þétta byggðina og því fylgir óneitan- lega geysilegur sparnaður fyrir bæinn. Stœkkun bœjarins - Meðan ekki eru búin til ný atvinnutækifæri er takmarkað Ámi Kjartansson byggingafulltrúi: Reykjavík þarf engu að síður að hafa sterka stöðu sem höfuðborg og menningarmiðja. hvað hægt er að þenja þetta bæjarfélag út, sagði Árni. Nú hafa menn betri afkomu á höfuð- borgarsvæðinu. Fólkið streymir þangað. Þetta ár er fyrsta árið, sem ekki er hér mikil fólksfjölg- un, en hér búa nú um 1.500 manns. Gamalgrónar fjölskyldur hafa jafnvel tekið sig upp vegna efnahagsástandsins. Orku- og rekstrarkostnaður heimilanna er það miklu hærri hér, auk lægri launa. Menn þurfa að gera það upp við sig hvort þeir vilja fórna staðsetningunni fyrir betri af- komu. Landsbyggðin ekki rekin sem láglaunasvæði - Það er ekki hægt að reka landsbyggðina sem láglauna- svæði. Þeir sem hafa menntun og betri afkomumöguleika flýja fyrst og ójöfnuðurinn eykst. Landsbyggðin er nauðsynleg, það verður að afla verðmætanna og það verður ekki gert með neinum vinnubúðum úti um land. Reykjavík þarf engu að síður að hafa sterka stöðu sem höfuðborg og menningarmiðja, en þróun menningararfsins byggist samt á því að byggð haldist allt í kringum land, bæði til sjávar og sveita, sagði Árni Kjartansson, bygg- ingafulltrúi á Höfn. GGÓ Austur-Skaftfellingar Athugið breyttan opnunartíma verslana okkar. Kjörbúðin Vesturbraut: Mánudag - föstudag kl. 9 -12.30 og kl. 14 -19.30. Um helgar kl. 11 -18. Söluop alla daga til kl. 22. Verslunin Nesjum: Mánudaga - föstudaga kl. 9 -19.30. Um helgar kl. 13 -18. Það haustar og skólarnir byrja. Nýkomið mikið af efnum í haustlitunum. Hummel- glansgallarnir eru komnir og einnig skólaföt í miklu úrvali. Skólavörurnar eru komnar. Skólatöskur, penna- veski, stílabækur, blýantar, pennar, tússlitir, trélitir o.fl. Veriö velkomin Kaupfélag Austur-Skaftfellinga Höfn Hornafiröi Fimmtudagur 6. september 1984 PJÓÐVILJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.