Þjóðviljinn - 06.09.1984, Page 16
MANNLIF
Eystra-Horn
Góður grundvöllur fyrir fréttablað
Guðrún Sveinsdóttir: Reynum að birta allt sem berst, þó ekki persónulegt níð, slysafréttir eða pólitískan áróður.
Eystra-Horn er blað fyrir alla
Austur-Skaftafellssýslu og
suðurhluta Austfjarða. Það er
frétta- og auglýsingablað, auk
þess sem menn skrifa í það lengri
greinarum hugðarefni sín. Blaðið
dregur ekki taum neins sérstaks
stjórnmálaflokks, en erstýrt af út-
gáfufélagi. Fimm manna ritnefnd
sjálfboðaliða starfar við blaðið.
Hún kemur saman vikulega, aflar
efnis og kemur með hugmyndir.
Stefnt er að því að skipta um rit-
nefnd á sex mánaða fresti.
Þessar upplýsingar fékk Þjóð-
viljinn hjá Guðrúnu Sveinsdóttur
ritstjóra Eystra-Horns.
Við spyrjum hana nánar um til-
urð blaðsins.
- Það var hópur manna sem
kom saman í mars 1983 og ákvað
að hrinda af stað blaði. Þeir sáu
um fjögur fyrstu blöðin og Hall-
dór Tjörvi Einarsson varð rit-
stjóri. Síðan var stofnað útgáfu-
félag og kosin stjórn.
- Hver er útbrciðslan?
- Blaðið er prentað í þúsund
eintökum og segja má að nánast
öll heimili í sýslunni séu með á-
skrift. Blaðið fer allt austur á
Djúpavog.
- Hvernig standa fjármálin?
- Það er reynt að láta auglýs-
ingar standa undir prentunar-
kostnaði, en áskriftargjöld undir
hinu. Fólk er ánægt með að fá
auglýsingar heim, áður voru þær
bara hengdar upp í sjoppuglugg-
um.
- Hvernig gengur efnisöflun?
- Við fáum mikið aðsent efni
um málefni héraðsins og reynum
að birta allt sem berst, þó ekki
persónulegt níð, slysafréttir eða
pólitískan áróður. Það er fastur
ljóðaþáttur í blaðinu, við fáum
stundum ferðasögur og það er
reynt að birta a.m.k. eitt viðtal í
mánuði. Það er helst að okkur
hafi gengið illa að koma af stað
skoðanaskiptum í blaðinu og fólk
mætti gera meira af því að hringja
til okkar fréttir. Ritnefndin skipt-
ist á um að skrifa leiðararin og ég
skrifa hann í 5. til 6. hvert skipti,
segir Guðrún.
- Hvernig finnst þér viðtökurn-
ar hafa verið?
- Blaðið hefur fengið mjög
góðar og jákvæðar viðtökur. Það
hefur sýnt sig að það er góður
grundvöllur fyrir slíkan miðil hér
á suð-austur horninu, þar sem
menn geta komið hugmyndum
sínum og auglýsingum á fram-
færi. Það hefur líka færst í vöxt að
brottfluttir Hornfirðingar gerist
áskrifendur að blaðinu.
Alltaf með þetta
í kollinum
- Ég hef gaman af að fást við
þetta blað, en það tekur mikinn
tíma, maður er alltaf með þetta í
kollinum. Vikunámskeið um út-
gáfu fréttablaða hjá Menningar-
og fræðslusambandi alþýðu varð
mér góð undirstaða áður en ég
byrjaði ritstjórastarfið, segir
Guðrún Sveinsdóttir að lokum.
GGÓ
Vantar skáp í barnaherbergið, forstofuna eða svefnherbergið?
Þá kemur þú til okkar, við eigum flestar breiddir og
hæðir þannig að þú getir nýtt ráðstöfunarpláss til fulls.
Skáparnir eru til í fjölmörgum gerðum og hurðir í
miklu viðarúrvali.
Þú ferð létt með að setja skápana okkar saman
sjálfur en ef þú vilt þá gerum við það fyrir þig.
Framleiðslan hjá okkur er íslensk gæðavara sem A VIC
vakið hefur verðskuldaða athygli erlendis /\Alo
Axel Eyjólfsson
SMIOJUVEGIÖ - SÍMI 43500
fldkrdn skodað skápana
hjá axis ?