Þjóðviljinn - 06.09.1984, Side 17
Nýr héraðsráðunautur
Fyrsta verkið
að mæla út
fyrir skurði
Fyrsta embættisverkið mitt var
að mæla út fyrir skurði, sagði
Bjarni Hákonarson frá Miðbæ í
Norðfjarðarsveit, nýráðinn hér-
aðsráðunautur hjá Búnaðarsam-
bandi Austur-Skaftafellssýslu.
Hann er eini ráðunauturinn á
þesu svæði og þarf að sinna rúm-
lega 100 býlum.
Þjóðviljinn spurði Bjarna í
hverju störf hans fælust að öðru
leyti.
- Nú fljótlega fer ég að mæla
út jarðarbætur, bæði ræktun,
girðingar og skurðgröft frá í sum-
ar, þá reyni ég að fara á sem flesta
bæi. Eg er trúnaðarmaður
gagnvart ríkinu og veiti
leiðbeiningar um ótalmargt er
varðar búskapinn. Ég fylgist með
afleysingaþjónustunni, sinni
ýmsu í sambandi við byggingar,
t.d. hvað hentar á hverjum stað,
o.s.frv. Einnig tek ég jarð-
vegssýni og veiti áburðar-
leiðbeiningar. Nú á næstunni fer
ég að taka heysýni og sendi suður
í efnagreiningu. Eftir niðurstöð-
unum eru svo veittar leiðbeiningar
um fóðrun. Annars er gagnkvæm
upplýsingamiðlun á milli bænd-
anna e.t.v. einna mikilvægasti
þáttur starfsins.
Við forvitnumst um bakgrunn
Bjarna.
- Ég er alinn upp við sveitabú-
skap alla tíð og ætlaði mér alltaf
að starfa í landbúnaði. Ég fór í
menntaskóla og tók stúdentspróf
til að komast í búvísindadeildina
á Hvanneyri. Þar tók ég bænda-
deild í einn vetur og var síðan
þrjú ár í búvísindadeild. Þarna er
fyrst og fremst verið að mennta
leiðbeinendur og mér líkaði nám-
ið mjög vel.
- Hvað segir þú um starfsrétt-
indi í landbúnaði?
- Það er alveg ljóst að það
myndi drífa fleiri í nám ef sett
væru einhver skilyrði um nám
áður en menn hæfu búskap. Það
væri líka gott fyrir alla að komast
svolítið að heiman áður en þeir
byrja að búa sjálfir, en það er
miklum vandkvæðum bundið því
að lögbinda réttindi til þess að
verða bóndi.
- Að lokum Bjarni, hvernig
leggst starfið í þig?
- Ég mun áreiðanlega hafa
nóg að gera og mér líst vel á mig
hér. Ég vona bara að ég eigi eftir
að hafa gott samstarf við bænd-
urna hér.
GGÓ
Eftir hina stórkostlegu 35% verðlækkun á lambalifur er vart hægt
að gera betri matarkaup á Islandi. Til dæmis kostar allt hráefni i þennan
Ijúffenga franska rétt aðeins um 33 krónur.
(200 g lifur á um 18 kr, og allt meðlæti á um 15 kr.)
Hvers vegna
lifur?
Lambalifur
a'la fíe/sillade
Fyrir einn
Matreiöslumaöur
Francois Fons, Grilliö Hótel Saga
Skáskeriö tvær til þrjár þunnar sneiöar af
lambalifur og veltiö uppúr hveiti. Bræöiö
smjör á vel heitri pönnu, kryddiö lifrina á
báöum hliöum meö salti og pipar og steikiö
létt beggja vegna.
Færiö síöan lifrina á fat. Bætiö smjöri á
pönnuna ásamt steinselju og hvitlauk. Helliö
siöan ediki á pönnuna og heyrist pá
yndislegur söngur. Eftir þvi sem hann er
fegurri hefur betur tekist til meö réttinn.
Bragöbætiö sósuna eftir smekk meö salti og
pipar og helliö henni siöan yfir lifrina á
diskinum. Beriö fram meö soönum
kartöflum og e.t.v. ööru grænmeti.
Þennan óvenjulega og Ijúffenga rétt tekur
aöeins nokkrar mínútur aö laga.
Dr. Jón Óttar Ragnarsson, dósent
Lifur er ein þessara afuröa úr lifríkinu sem
næringarfræöingar telja svo holla aö hún er
oft - ásamt nokkrum öörum - sett í
sérstakan flokk sem kallast hollustuvörur
eöa bætiefnagjafar.
En hvers vegna er lifur holl? Vegna þess aö
hún er aö jafnaöi bætiefnarikari en flestar ef
ekki allar aörar algengar matvörur sem á
boöstólum eru.
Lifur er t.d. frábær uppspretta járns og
kopars, fólasins og B12, A, og D-vitamins.
Hún er einnig fremur fitusnauö og þvi mikiö
notuö i megrunarfæöi.
Fáöu uppskriftabækling i næstu verslun
Framleiöendur
Stórkostleg verðlækkun
á lambalifur!
Bjami Hákonarson ráðunautur: Gagnkvæm upplýsingamiðlun á mili bændanna e.t.v. einna mikilvægasti þáttur starfs-
ins.
Rugfélag Austurlands
Egiisstööum sfmt97:rÍ122 ? vm*
«3»\ , -,>
Fljúgið itieð
Flugfélagi Austurlands
frá Egilsstöðum til:
Bakkafjarð#^ Breiðdal
Vopnafjarðar Hafnar í
Borgarf jarðar eystri Reykjavi
Neskaupstaðar
Breiðdalsvíkur
Hafnar í Hornafirði
Reykjavíkur
rflug —r Lelguflug — Utsýnisflug í áætjunarflugi
NÝ þjómista fyrir bændnr
SUNBEAM STEWART
Clipmaster stórgripaklippur Shearmaster fjárklippur
Sami mótor er í Clipmaster og Shearmaster klippunum, og
nægir því að eiga einn mótor fyrir báðar gerðirnar.
MARKT HM 3 HSW Ferro-matic
búfjárklippur með sjálfstæðum
mótor. — ástralskir kambar.
búfjársprautur með sjálfvirkri skömmtun.
— þreplaus stillanleg frá 0,5 - 5,0 ml.
— henta fyrir allar algengar gerðir lyfjaglasa.
— sérlega hentugar til hópbólusetninga.
VERKFÆRAMARKAÐUR
Úrval handverkfæra og rafhandverkfæra á mjög hagstæðu verði.
ILISTIMi
Smiðjuvegi E 30, Pósthólf395,200 Kópavogi, Sími (91)79780
Póstsendum um land allt.