Þjóðviljinn - 17.01.1985, Side 1
BÍLAR
HEIMURINN
Yfirhershöfðingi Kanada
Hef séð skjalið
Yfirhershöfðingi Kanada staðfestir tilvist heimildar umflutning kjarnorkuvopna til íslands.
Sá skjölin sjálfur í Pentagon. Miklar deilur um málið íKanada og Bermúda.
Afneitun Geirs Hallgrímssonar á tilvist heimildarinnarþarmeð ómerk
Yfirmaður gervalls herafla
Kanadamanna hefur lýst yfir í
þarlendum fjölmiðlum, að hann
hafi setið fund í Pentagon, varn-
arráðuneyti Bandaríkjanna, þar
sem hann hafi séð með eigin
augum skjalið, þar sem Banda-
ríkjaforseti undirritar heimild til
herja sinna um að flytja á stríð-
stímum kjarnorkuvopn til ýmissa
landa, þar á meðal Islands.
Æðsti hershöfðingi Kanada
hefur þar með ómerkt yfirlýsingu
Geirs Hallgrímssonar utanríkis-
ráðherra, á Alþingi, um að heim-
ildin væri ekki til.
Síðustu daga hefur máli verið
eitt helsta mál í Kanada og Wil-
liam Arkin, sem fyrstur upplýsti
um tilvist heimildarinnar, hefur
verið í tíu viðtölum í aðalsjón-
varpstöð Kanada síðustu daga.
William Arkin kom meðal annars
til fslands fyrir jólin og sýndi ráð-
herrum skjölin, sem Geir af-
neitaði síðar.
Þetta kom fram í upplýsingum
sem Þjóðviljinn aflaði sér frá
Kanada í gær.
Þess má geta, að yfirhershöfð-
inginn lýsti því yfir að hann hefði
ekki haft hugmynd um tilvist
skjalsins, fyrr en Arkin upplýsti
hann um málið. Síðan hafi hann
gengið rækilega úr skugga um
sanngildi heimilda Arkins. Utan-
ríkisráðuneyti Kanada er nú
önnum kafið við að athuga málið.
Bermúda er eitt þeirra ríkja
sem Bandaríkjamenn hyggjast
flytja kjarnorkuvopn til á stríðs-
tímum og uppljóstranir um tilvist
heimildarinnar hafa einnig verið
aðalefni þarlendra fjölmiðla síð-
ustu daga. Bermúda er heimast-
jórnarsvæði Breta, og forsætis-
ráðherra þess hefur krafist skýr-
inga frá Reagan-stjórnmni, og
mótmælt mjög harðlega tilvist
heimildarinnar.
-ÖS
s
Ysuveiðar
Þetta gengur ekki
Gísli Guðmundsson skipstjóri: Veiðarmeðó tommu
netamöskva bannaðar í Faxaflóa.
Ekkert veiðist
Logandi óánægja er nú meðal
sjómanna á smábátum gerðum út
frá Reykjavík vegna þess að bát-
unum var gert að taka upp 6
tommu netin og nota þess í stað
net með 7 tommu möskva. Þetta
verður til þess að þeir verða að
hætta veiðum fram í mars. Þessir
bátar hafa allir verið að ýsu-
veiðum í Faxaflóa og tilgangslaust
er að reyna ýsuveiðar með 7
tommu netum.
„Við fórum fram á það við
sjávarútvegsráðuneytið að við
fengjum að veiða út janúar með 6
tommu netum, en vorum ekki
einu sinni virtir svars. Þá höfum
við einnig óskað eftir því að fá að
veiða með þessari möskvastærð
innan svæðis, þar sem dregin væri
7 tommu netin
lína frá Garðskaga að Þormóðs-
skeri. Það fæst heldur ekki. Það
er alveg útí hött að ætla að reyna
ýsuveiðar með 7 tommu möskva.
Ég var með eina trossu með 7
tommu möskva á dögunum, þeg-
ar hvað best veiddist af ýsu hér
fyrir utan, en nánast ekki neitt
veiddist í hana á meðan 6 tommu
netin voru full af fiski“, sagði
Gísli Guðmundsson skipstjóri á
Jóhönnu Magnúsdóttur RE, sem
er 36 tonna bátur.
„Við getum ekkert annað gert
en bundið bátana fram í mars að
þorskurinn fer að ganga á
grunnslóð. Manni finnst þetta
helvíti hart, maður er látinn hafa
kvóta og svo má maður ekki taka
Gísli Guðmundsson skipstjóri: Síðan kvótakertið kom verðum við að búa við eilíf boð og bönn. (Ljósm. EOL.)
þann afla á sem hagkvæmastan bönn. Þetta er bara ekki hægt Gísli að lokum og það var þungt
hátt. Síðan þetta kvótakefi kom lengur, ég held að best sé að hljóðið í fleiri sjómönnum en
búa menn orðið við eilíf boð og hætta þessu öllu saman“, sagði honum. -S.dór
Borgin
Vilhjálmur P.
nýr nefndakóngur
Situr í 9 nefndum og ráðum, fœr um 50þúsund á mánuði
Ríkisstjórnin
Verðbolga
stóreykst
Verðbólgan í desembermánuði
svaraði til 66,3 prósenta miðað
við ársgrundvöll. Þetta er
reiknað út frá hækkun fram-
færsluvísitölunnar í desemberm-
ánuði einum, sem samkvæmt
upplýsingum Hagstofunnar var
4,33 prósent
Þessi 4,33 prósent skiptast
þannig að 0,6 prósent eru vegna
hækkunar á opinberri þjónustu,
0,7 prósent vegna hækkunar á
áfengi og tóbaki, 1,0 prósent
vegna matvöruhækkana og 2
prósent af ýmsum öðrum hækk-
unum.
Hækkunin á síðustu þremur
mánuðum nemur tæpum 11 prós-
entum sem á ársgrundvelli sam-
svarar rösklega 50 prósent verð-
bólgu. -Ig.
Nýr nefndakóngur borgarinnar
að Markúsi gengnum er Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson úr Sjálf-
stæðisflokki. Borgarfulltrúinn
situr í níu ráðum og nefndum og
er að auki varamaður í borgar-
ráði. Varlega áætlað er mánaðar-
ávísun hans frá borgarskrifstof-
unum uppá um 50 þúsund krón-
ur.
Vilhjálmur er formaður skipu-
lagsnefndar, situr í heilbrigðis-
málaráði, stjórn sjúkrastofnana,
útgerðarráði, heilbrigðisnefnd,
launamálanefnd, launanefnd
sveitarfélaga og í samvinnunefnd
um skipulagsmál.
Laun borgarfulltrúa eru miðuð
við þingfararkaup og eru nú rúm
18 þúsund á mánuði. Borgarráðs-
menn fá rúm 27 þús.. Fyrir setu í
helstu nefndum borgarinnar fást
föst mánaðarlaun, frá 3186 til
7434 kr., en fyrir setu í öðrum
nefndum kemur þúsund króna
greiðsla á hvern fund. Formenn
fá yfirleitt fimmtungi meira.
Fastalaun Vilhjálms eru um 43
þúsund á mánuði og með þóknun
fyrir aðra fundi má gera ráð fyrir
reikningi uppá um 50 þúsund.
Vilhjálmur kemst þó ekki þar
með tærnar sem gamli nefnda-
kóngurinn var með hælana:
Markús Öm var í einum fjórtán
nefndum og ráðum.
Meirihlutafulltrúarnir Hilmar
Guðlaugsson og Margrét Einars-
dóttir og Alþýðubandalagsmað-
urinn Sigurjón Pétursson ganga
næst Vilhjálmi í nefndafjölda: sjö
nefndir. Magnús L. Sveinsson og
Ingibjörg Rafnar sitja í sex
nefndum fyrir íhaldið.
-m
Akureyri
Hvað vilja
menn
heyra?
Leitað álits blaða og
bœjarfulltrúa
Stefnt er að því að Útvarp Ak-
ureyri hefji útsendingar 1. mars
næstkomandi. Gert er ráð fyrir
að senda út tvisvar á dag, hálf-
tíma í senn. Til að byrja með mun
tilraunin standa í þrjá mánuði.
Þjóðviljinn ræddi við bæjar-
fulltrúa á Akureyri og spurði
hvað þeir vildu helst heyra í hinu
nýja útvarpi. Svör þeirra eru í
blaðinu í dag, ásamt sjónarmið-
um Akureyrarblaðanna.
-hágé
Sjá bls. 21