Þjóðviljinn - 17.01.1985, Page 2
FRETTIR
Útgerðarfélag Hafnfirðinga
Mannaráðningar óvissar
B/v Maí heldur til veiða í dag. Vinnsla hefst að nýju eftir 4 mánaða
stopp í lok mánaðarins. Verkalýðsfélögin vilja tryggja endurráðningu
starfsfólks. Fulltrúi óháðra vill að nýr framkvœmdastjóri stjórniþví
r
Utgerðarráð BUH, sem enn
starfar þrátt fyrir að bæjarút-
gerðin hafi verið lögð niður og
nýtt hlutafélag stofnað um rekst-
ur hennar, samþykkti á fundi sín-
um í fyrradag að senda b/v Maí til
veiða í dag og b/v Júní á mánu-
daginn kemur.
Stefnt er að því að vinna geti
hafist að nýju í fiskiðjuverinu
þann 28. nk. t>á eru réttir fjórir
mánuðir liðnir frá því að fyrirtæk-
inu var lokað.
„Það er ekki breyting á rekstr-
arformi fyrirtækisins sem gerir
kleift að koma togurunum loks-
ins út. Það var fyrir ágóða af sölu
erlendis í desember sem keyptur
var kostur og olía á skipin og Maí
hefur verið tilbúinn til veiða um
nokkurt skeið. Bæjaryfirvöld
hafa hins vegar ekki viljað senda
togarana til veiða fyrr en nú“,
sagði Magnús Jón Árnason full-
trúi AB í útgerðarráði í gær.
Hallgrímur Pétursson formað-
ur Hlífar hefur lagt til að með
uppsagnarbréfi til starfsfólks
fylgi boð um starf hjá hinu nýja
fyrirtæki enda flyttust öll staifs-
réttindi óskert á milli. Vilhjálmur
Skúlason fulltrúi óháðra borgara
taldi þessa leið ófæra og að nýr
framkvæmdastjóri fyrirtækisins
ætti að stjórna mannaráðningum.
Eftir töluverðar umræður á fund-
inum lagði stjómarformaður
hlutafélagsins Haraldur Sigurðs-
son Sjálfstæðisflokki til að málinu
yrði frestað og boðaður nýr fund-
ur bráðlega. Allt er því enn á
huldu hvernig staðið verður að
uppsögnum hjá BÚH og manna-
ráðningum til Útgerðarfélags
Hafnfirðinga.
- Ig-
Ætli vextirnir í norska laxasæðis-
bankanum séu jafnháir og hjá þeim í
Alþýðubankanum?
Gausdal
Margeir
á skilið
að komast
í gegn
Síðasta umferð í dag á
svœðamótinu í Gausdal
Frí í gœr ífyrsta sinn
Helgi Olafsson: Margeir
á mjög góða möguleika
Ég og Jói Hjartar höfum farið
frekar illa að ráði okkar, sagði
Helgi Ólafsson þegar Þjóðviljinn
hringdi í gær til Gausdal - „höf-
um glutrað niður unnum stöðum,
en Margeir hefur verið farsæll og
teflt mjög vel. Hann á skilið að
komast í gegn, og hefur reyndar
góða möguleika, ef hann vinnur
Vesterinen sem hefur verið slapp-
ur á þessu móti".
í gær tóku skákmennirnir í nor-
ska skíðahótelinu sér frí fyrir síð-
ustu umferðina í dag; fyrsta fríið í
mótinu. Skákmenn hafa mót-
mælt þessum hnökrum á annars
prýðilega skipulögðu móti, en
komið fyrir ekki. „Þetta er ekki
nógu gott“ sagði Helgi, „slæmt að
geta ekki undirbúið sig fyrir
hverja viðureign“.
í síðustu umferð teflir Jóhann
Hjartarson við Larsen, Margeir
við Finnann Vesterinen og Helgi
við Norðmanninn Ostenstadt.
Larsen, Margeir og Agdestein
eru efstir með 6 V2 vinning, Jó-
hann fjórði með 6 vinninga,
Helgi 5.-6. með 5'/2. Helgi sagði
að Norðmaðurinn Agdestein
hefði teflt af mikilli leikni og ynni
sennilega Svíann Ernst í síðustu
umferð, - en um skák þeirra
Larsens og Jóhanns vissi maður
ekkert. „Minn séns er nú orðinn
frekar slappur“ sagði Helgi, en
það með að þrátt fyrir nokkur
mistök stæði árangur fslending-
anna á mótinu nokkuð vel undir
þeim skákstigum sem þeir hafa.
Efsti maður á svæðamótinu fer
beint á millisvæðamót. Annars-
sætismaðurinn heyr einvígi um
sæti á millisvæðamóti við annars-
sætismann úr svæðamóti sem
haldið verður í Þýskalandi.
Að undanskildum fríamálum
hrósaði Helgi öllum aðbúnaði í
Gausdal, hótelið mjög gott og
ekkert uppá aðstöðu í skáksal að
klaga. Áhorfendur? „Þeir eru nú
eiginlega teljandi á fingrum ann-
arrar handar, og það bókstaf-
lega“ sagði Helgi, - „og það er
auðvitað ekki nógu gott fyrir
menn sem hafa gaman af að tefla
fyrir áhorfendur“.
-m
Fulltrúar bæjarstjórnar Akureyrar, taliðfrávinstri:SigurðurJóhannesson,SigurðurJ. Sigurðsson, SigríðurStefánsdóttir (öll bæjarfulltrúar), Helgi M. Bergs
bæjarstjóri og Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra.
Akureyri
Þróunarfélag norður?
Fulltrúar bœjarstjórnar Akureyrar gengu ígœr áfund forsœtisráðherra og
kröfðustsvara
Fjórir fulltrúar bæjarstjórnar
Akureyrar, gengu í gær á fund
formanna stjórnarflokkanna til
að leggja áherslu á, að fyrirhug-
uðu Þróunarfélagi íslands verði
valinn staður á Akureyri.
Bæjarstjórnin samþykkti sam-
hljóða í fyrrasumar tillögu frá
Sigurði J. Sigurðssyni bæjarfullt-
rúa Sjálfstæðisflokksins, þar sem
skorað er á ríkisstjórnina, að fá
félaginu aðsetur á Akureyri.
Sigríður Stefánsdóttir bæjar-
fulltrúi Alþýðubandalagsins
sagði í samtali við Þjóðviljann að
fundinum lokum: við erum með
þessu, að leggja áherslu á nauð-
syn þess að hamlað verði gegn
þeirri byggðaröskun, sem nú á
sér greinilega stað í landinu.
Stjórnarflokkarnir hafa sagt að
ríkisstjórnin muni beita sér fyrir
stofnun hlutafélags, með aðild
ríkisins, og verulegu fjárframlagi
frá því, til nýsköpunar og þróun-
ar í atvinnulífinu. Flutningur
ríkisstofnana út á land hefur oft
verið til umræðu. Af slíkum
flutningum hefur þó ekki orðið,
enda nokkrum erfiðleikum bund-
ið að flytja grónar stofnanir eða
fyrirtæki milli landshluta. Nýju
fyrirtæki er aftur á móti auðvelt
að koma á úti á landi ef pólitískur
vilji er fyrir hendi. Við ræddum
líka um háskólakennslu á Akur-
eyri, en bæjarstjórnin samþykkti
samhljóða tillögu frá Alþýðu-
bandalaginu um það efni. Fyrir
liggur álit nefndar sem Ingvar
Gíslason skipaði á sínum tíma,
þar sem talið er eðlilegt að
kennsla á háskólastigi hefjist á
Akureyri.
Fenguð þið skýr svör?
- Nei, enda varla við að búast.
En við fengum hinsvegar ekki
neitun. _ hágé.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Fóðuröflun
Aldrei meiri heyfengur
Eftir þeim forðagæsluskýrslum
sem borist hafa Búnaðarfélagi
íslands má ætla að heyfengur sé
allt að því 20% meiri á sl. ári en
árið áður. Þetta kom fram í erindi
Jónasar Jónssonar búnaðarmála-
stjóra, sem hann flutti í Útvarpið
7. janúar sl.
Sé heyið umreiknað í fóður-
einingar kemur í ljós, að þetta er
Kornrœkt stórjókst
meiri heyfengur en nokkru sinni
fyrr, eða um 225 milj. fóður-
eininga. Árið 1983 taldist hey-
fengur landsmanna vera um 188
milj. fóðureininga.
Kornrækt jókst að miklum
mun frá árinu áður. Hún var nú
stunduð á 380 hekturum í
Rangárvalla- og Vestur-Skafta-
fellssýslum en aðeins á 75 hektur-
um árið áður. Meðaluppskera af
hektara var 14-15 tunnur en
heildarkornuppskeran er áætluð
550 lestir.
Heildarframleiðsla á
hraðþurrkuðu fóðri í 6
Igraskögglaverksmiðjum var um
13 þús. lestir. Er það 1734 lestum
meira en árið 1983.
- mhg.