Þjóðviljinn - 17.01.1985, Blaðsíða 13
BILAR
BILAR
Þjóðviljinn kynnir hér í bílablaði sínu nýjustu árgerðina af 12 helstu fólksbíla-
tegundum hérlendis. Skýrt er frá helstu nýjungum og veittar almennar upplýs-
ingar í stuttu máli en neðanmáls fylgja síðan helstu tæknilegu upplýsingar
varðandi viðkomandi bifreið.
Það vekur athygli að eitt helsta einkenni nær allra nýju árgerðanna er
rúmbetri og sparneytnari bíll og sportlegra útlit.
12 nýir fólksbílar á markaðnum
Skoda
Sporttýpan Rapid
Það fer óðum að styttast í það að Skoda
bíllinn verði aldargamall. Þessi fornvinur
þjóðarinnar hefur verið afspyrnuvinsæll
fjölskyldubfll síðustu árin enda verðið með
því lægsta sem þekkist á bílamarkaðinum.
Skodaverksmiðjurnar seija nú fram-
leiðslu sína til yfir 30 landa í Evrópu, Amer-
íku, Asíu og Afríku. í árgerð 1985 er boðið
uppá 8 mismunandi tegundir og fjórar mis-
munandi vélarstærðir með inntaksstærð frá
1050-1300 rúmcm. Hér er að finna hina vin-
sælu fjölskyldubfla og einnig nýja
sporttýpu, Skoda Rapid 130, sérlega hann-
aða fyrir þá sem hafa yndi af bílum.
„Við erum ekki að hanna bíla fyrir tvær
eða þrjár árstíðir, heldur allt árið um
kring“, segja framleiðendur og Ieggja
áherslu á að það sé útlitið, vélbúnaðurinn
og ryðvörnin sem skipti meginmáli við
hönnun Skodabflsins.
Skoda Rapid 130
Verð: 236.800 kr.
Þyngd: 1240 kg.
Vélarstærð: 1289 cc.
Hestöfl: 62 DIN.
Gírar: 5 áfram.
Eyðsla: 5,5 - 8,1 1/100 km.
Lada Lux
Fallegri og þægilegri
Lada Lux er greinilega öðruvísi en fyrir-
rennarinn Lada 1500. Mælaborðið er
greinilegra og hagnýtara. Átakið á stýrið er
mjög þægilegt og bíllinn er orðinn léttari í
stýri. Mælum er haganlega fyrir komið og
ekkert skyggir á mælaborðið.
Nýtt tveggja hraða hita- og loftræstikerfi
hreinsar móðu af framrúðunni endanna á
milli á örskotsstundu en blástursristar til
hliðanna hreinsa af hliðarrúðunum.
Framhlutinn á Lada Lux vekur nokkra
athygli. Ljósin eru ferköntuð og sterkur
stuðarinn gefur traustlegt útlit. Vélarhlífin
opnast á gasdempara og útispeglana báða
er hægt að stilla innan frá. Nýtt skottlok og
ný afturljós og farangursgeymslan auðvitað
af stærri gerðinni. Varadekkið er geymt til
hliðar til að gefa aukið rými og í geymslunni
er stórt verkfærasett.
Lada Lux
Verð: 248.000 kr.
Þyngd: 1.020 kg.
Vélarstærð: 1442 cc.
Hestöfl: 75 DIN.
Gírar: 4 áfram.
Eyðsla: 7,3-9,8 1/100 km.
Fiat
Uno söluhæsti bíllinn
Fiat Uno var söluhæsti bfllinn hér á landi
á liðnu ári og reyndar er Fiat sú bflategund,
sem langmest hefur verið selt af. Uno var
fyrst kynntur í ársbyrjun 1983 og má segja,
að saga hans hafi verið óslitin sigurganga
síðan. Hlutur Fiat í heildarmarkaði hefur
stöðugt verið að vaxa. Nýjar útfærslur hafa
stöðugt verið að bætast við Uno-
fjölskylduna. Síðasta viðbótin kom í sumar,
nefnist SX og er eins konar flaggskip Uno-
fjölskyldunnar. Sá er knúinn 70 hestafla vél
og er því mjög kraftmikill, auk þess sem
íburður er mun meiri í þessari útfærslu af
Uno en gengur og gerist.
Fiat Uno er fáanlegur í nokkrum útfærsl-
um, þe. 45, 45 S, 55 S, ES, 70 og SX. Á
komandi mánuðum má síðan búast við enn
nokkrum fjölskyldumeðlimum. Uno-
bflarnir eru knúnir vélum á bilinu 45-70
hestöfl og það sem einkennir Uno öðru
fremur er annars vegar góðir aksturseigin-
leikar og hins vegar ótrúlega mikil spar-
neytni. Auk þess hefur bíllinn orð á sér fyrir
að vera mjög rúmgóður, ef tekið er mið af
bflum í þessum stærðarflokki.
Alla þessa frábæru bfla getur Egill Vil-
hjálmsson boðið annað hvort nú þegar, eða
með mjög litlum afgreiðslufresti. Eins og
endra nær eru í boði hin þekktu EV-kjör.
Uno 55 S
Verð: 288.500 kr.
Þyngd: 730 kg.
Vélarstærð: 1116 cc.
Hestöfl: 55 DIN.
Gírar: 4/5 áfram.
Eyðsla: 5 - 7 1/100 km.
Peugeot
Rúmgóður og sparneytinn
Honda
Lipur og létt bifreið
Hondu bílarnir eru nú mest innflutta bif-
reiðartegundin til Bandaríkjanna og þar er
fjögurra mánaða afgreiðslufrestur á slíkum
bfl. Það segir sína sögu um vinsældir þessa
lipra og skemmtilega japanska bíls.
Hondan er ákaflega lipur og létt bifreið í
akstri og liggur vel á vegum. Þrátt fyrir
stærð bflsins er hann mjög sparneytinn.
Frágangur allur er mjög vandaður og bfll-
inn hefur líkað mjög vel hérlendis.
Engin breyting hefur verið gerð á 85
módelinu frá í fyrra en þá hafði bíllinn al-
gerlega verið stokkaður upp og gerðar
tæknilegar breytingar á um 8000 hlutum í
bifreiðinni.
Innifalið í Hondunni er plussklæðning,
útvarps/kasettutæki, stafklukka, litað gler í
framrúðu, rafdrifnar rúður og loftnet, sól-
lúga, aflstýri og miðstýrð hurðarlæsing.
Honda Accord EXS.
Verð: 431 - 609 þús.
Þyngd: 1010 kg.
Vélarstærð: 1830 cc.
Hestöfl: 100 DIN.
Gírar: 5 áfram.
Eyðsla: 9,8 1/100 km innanbæjar.
Opel Kadett
Bíll ársins 1985
í lok nýliðins árs kusu evrópskir blaða-
menn nýjaOpel Kadett fyrirbfl ársins 1985.
Kadettinn hefur fengið nýtt útlit sem
helgast af mjög lágri loftmótstöðu. Þá er
hann mun rúmbetri og þægilegri en áður og
farangursrýmið hefur verið stækkað veru-
lega.
Nýi Kadettinn þykir einnig mjög hljóð-
látur og fara vel á vegi. Ýmsar nýjungar eru
í bílnum til aukinna þæginda fyrir farþega,
svo sem stillanleg hæð öryggisbelta.
Þýsku Opelverksmiðjurnar ráðgera að
selja yfir hálfa miljón Kadetta í Evrópu á
þessu ári sem yrði met en gífurlegar fjár-
hæðir voru lagðar í endurbætur og þróun
bflsins. Kadettinn er hægt að fá í 17 mis-
munandi útgáfum og með 6 vélarstærðum,
og ýmist 3ja eða 5 dyra.
Áð dómi þeirra er völdu Kadettinn bíl
ársins 1985 eru höfuðkostir hans fram yfir
aðra bíla í sama flokki: Hann er plássmeiri,
hljóðlátari, eyðslugrennri og hefur mjög
góða aksturseiginleika.
Opel Kadett GL
Verð: 406.000 kr.
Þyngd: 830 kg.
Vélarstærð: 1280 cc.
Hestöfl: 75 DIN.
Gírar: 4/5 eða sjálfskiptur.
Eyðsla: 6,5 - 7,5 1/100 km.
Toyota
Viðbót við Corollulínuna
Renault
Nýtt sportlegt útlit
Árið 1982 var Renault 9 valinn bfll ársins
íEvrópu og árið 1983 í Bandaríkjunum. í ár
bjóða Renault-smiðjurr.ar uppá Renault
11. Helstu einkennin eru sportlegt útlit,
vandaður frágangur, góð sæti og aksturs-
eiginleikar auk mikillar sparneytni.
Af Renault 11 er hægt að fá 4 gerðir auk
sendibifreiðar. Vélarstærðin er frá 1100 cc
uppí 1720 cc. Allir bflarnir eru með fram-
drif, tvöfalt bremsukerfi, sjálfstæða fjöðr-
un og tannstangarstýri.
Sendibfllinn er með drif á öllum hjólum
og fæst bæði með bensín- og díselvél.
Af nýjungum hjá Renault má nefna nýja
smábflinn Renault 5 sem hefur selst mjög
vel í Evrópu og „bíllinn sem talar“, Renault
25, nýtur einnig mikilla vinsælda.
Renault 11 GTL
Verð: 417 þús. kr.
Þyngd: 1270 kg
Vélarstærð: 1397 cc.
Hestöfl: 60 DIN.
Gírar: 5 áfram.
Eyðsla: 5,1 - 7,4 1/100 km.
Subaru
Ný vél og stærri bíll
Nýjasta árgerðin af Subaru 1800 nefnist Su-
baru Leone og er gerbreyttur og nýr bfll.
Hann er bæði stærri og straumlínulagaðri.
Vélin er ný með 5 gíra kassa með bæði háu
og lágu drifi. Fjöðrunin að aftan er ný og er
mun slaggengnari en í gamla bílnum.
Knastásarnir liggja nú yfir vélinn einn hvor-
um megin og það gerir hana sparneytnari,
hljóðlátari og kraftmeiri en áður. Þá er
vökvastýri í nýja bílnum og hægt að fá hann
sjálfskiptan.
Subaruinn er einn mest seldi bfllinn hér-
lendis og mjög vinsæll úti á landsbyggðinni
þar sem hann samhæfir kosti fólksbfls og
torfærubfls.
Bandarískir bflaeigendur sem eru með
þeim vandlátari í heiminum hafa látið vel af
nýja bflnum og koma þeir næst á eftir
eigendum Mercedes Bens í þeim efnum
samkvæmt neytendakönnun þar í landi.
Subaru Leone
Verð: 589 þús. kr.
Þyngd: 1000 kg.
Vélarstærð: 1800 cc.
Hestöfl: 90 DIN.
Gírar: 5 áfram í háa og lága.
Eyðsla: 7 - 8 1/100 km.
Peugeot 205 er nýlega kominn á markað
hérlendis þó rúmlega ár sé liðið frá því byrj-
að var að framleiða þessa gerð. Peugeot
verksmiðjurnar fóru af stað með þróun
þessa bfls árið 1977 og höfðu þá í huga bíl
sem væri aðeins stærri en Peugeot 104. Hóf-
ust þá prófanir með eldsneytiseyðslu í til-
raunabflum er gengu undir heitinu
V.E.R.A., en prófanirnar miðuðust að því
að minnka eyðsluna og auka öryggi þessara
bfla.
Árið 1980 keyptu Peugeot verksmiðjurn-
ar Chrysler verksmiðjurnar frönsku og
tafði það fyrir þessu verkefni, þó kom ný
gerð þá um haustið, Talbot Samba, en hann
er aðeins minni en Peugeot 104. í Talbot
Samba gerðinni eru sömu vélar og gírkassi
og eru í 205 bílnum. Peugeot 205 var sýndur
fyrst haustið 1983 og þá í tveim gerðum, GL
1124 cc, sem er 4 gíra og 50 hestöfl, og GR
1360 cc, sem er 5 gíra og 60 hestöfl.
Einnig eru framleiddar bæði dýrari og
ódýrari gerðir af þessum bílum. Állir bíl-
arnir hafa svipaða fjöðrun sem er mjúk og
slaglöng, bflarnir eru allir mjög rúmgóðir
og sparneytnir.
Hafin hefur verið framleiðsla á þriggja
dyra bíl í fimm mismunandi gerðum, frá
45-106 hestafla, ásamt 250 turbo 16 sem er
tveggja dyra, 220-350 hestafla rally-bfll sem
verksmiðjurnar binda miklar vonir við í
keppnum næstu árin.
Peugeot 205 GR
Verð: 421.000 kr.
Þyngd: 1250 kg.
Vélarstærð: 1360 cc.
Hestöfl: 60 DIN (43,5 KW).
Gírar: 5 áfram.
Drif: Framdrifinn.
Eyðsla: 4,6 - 6,2 1/100 km.
Nýi Suzuki jeppinn sem bæði er orðinn
stærri en áður og með kraftmeiri vél er enn
sem áður búinn þeim höfuðkosti að vera
léttur og leikandi. Hann er þrátt fyrir
endurbætur og viðbætur ekki nema 940 kg.
Vélin hefur verið stækkuð uppí 1300
rúmcm, sem gefur frá sér 64 hestöfl. Bfllinn
fæst nú í tveimur stærðum þannig að hann
nýtist betur í innanbæjarakstri sem fjöl-
skyldubfll. Einnig er hægt að fá bílinn með
hækkuðu þaki sem eykur enn frekar rýmið
afturí. Heilir 23 cm eru undir lægsta punkt í
bflnum (drifkúlurnar) sem er með því besta
sem þekkist. Vélin situr hátt í bílnum sem
kemur sér vel ef farið er yfir vatnsföll.
„Þetta er langléttasti „alvöru“jeppinn og
hefur í för með sér marga fleiri kosti en
lipurð og floteiginleika, t.d. sparneytni,
góða vinnslu og lágt verð“, segir Omar
Ragnarsson eftir að hafa reynsluekið Suz-
uki Fox nýlega.
Vél sem í senn er einföld og ein sú
fullkomnasta sem þekkist í þessum rúm-
taksflokki og verðflokki, hefur styrk og
endingu Toyotunnar en er ein hin léttasta í
heimi m.a. vegna yfirburða þekkingarToy-
ota stálverksmiðjanna ísteyputækni. Holur
sveifarás og knastás eru áþreifanlega dæmi.
Þrír ventlar á strokk í álheddi sjá til þess að
nýta hvert bensíngramm betur en áður hef-
ur þekkst, og auka bónus er orka vel yfir
meðallagi: 75 hestöfl DIN.
Báðar gerðir hafa samskonar undirvagna
sem einfaldar varahlutaþjónustu, en Cor-
----- olla 1300 er styttri.
Corolla 1300 er fáanleg Standard
og De Luxe en Corolla 1600 De
| Luxe og Grand Luxe.
Toyota Corolla 1300
Verð: 299.000 kr.
Þyngd: 865 kg.
Vélarstærð: 1300 cc.
| Hestöfl: 75 DIN.
| Gírar: 4 áfram (langt milli gíra).
£J Eyðsla: 5-8 1/100 km.
Datsun Sunny
Tekur við af Cherry
Datsun Sunny var mest seldi bíllinn í
heiminum árið 1983 og ennþá nýtur hann
mikilla vinsælda. Þessi bíltegund sem tók
við sem aðalbíll Nissanverksmiðjanna af
Datsun Cherry er nú framleiddur í 17 teg-
undum sem allar er hægt að fá keyptar hér-
lendis.
Það hefur ráðið miklu um vinsældir bfls-
ins í hve mörgum stærðum og gerðum hann
er fáanlegur. Þá hefur hann einnig þótt
mjög traustlega byggður og á mikilli bíla-
sýningu í Danmörku nýverið var Sunny til-
nefndur sem einn sterkast byggði bíllinn á
markaðnum í sínum stærðarflokki. Þá er
Datsun Sunny Wagon
Verð: 433 þúsund kr.
Þyngd: 925 kg.
Vélarstærð: 1488 cc.
Hestöfl: 84 DIN.
Gírar: 5 áfram eða sjálfskiptur.
Eyðsla: 6 - 7 1/100 km.
Léttur og leikandi jeppi
Saab
Fullþróaður bíll
Fyrir ári kynnti Toyota P. Samúelsson
nýja línu af framdrifnum Corollum komnar
til að leysa af hólmi fyrirrennara sem afar
erfitt var að slá við. Hvað eftir annað hafði
Corollan verið efst á lista mest seldu bíla
heims og sú nýja varð enginn eftirbátur
þeirrar gömlu.
Nú í febrúar 1985 kemur til íslands viðbót
við Corollu-línuna, Corolla 1300, arftaki
Tercelsins vinsæla.
Meginmunurinn á hinni nýju Corollu
1300 og Corollu 1600 er:
Mjög hagstætt verð.
Saab-bflarnir hafa lítið breytst milli ára
og telja verksmiðjurnar Saab-Scania að um
sé að ræða fullþróaða bfla. Þó er alltaf
eitthvað nýtt á hverju ári. Helst er að nefna
að Saab 99 heitir nú Saab 90 og hefur þessi
bfll breyst dálítið f útliti þannig að hann er
með lengra skott sem svipar til 900-bílsins.
Við þetta lengist bfllinn um 10 cm þannig að
meira rými er afturí og skottið er rúmmeira.
Einnig kemur þessi bíll með nýjum og létt-
ari felgum auk nýs startara og nokkurra
minni háttar breytinga.
Með vorinu er stórra tfðinda að vænta frá
Saab-Scania þegar nýr bfll verður kynntur á
íslandi. Þessi bfll heitir Saab 9000 og er ný
hönnun frá grunni og verður hann dýrastur í
Saab fjölskyldunni en hún samanstendur af
þremur gerðum bfla, þ.e. Saab 90, 900 og
9000.
Saab 90 Hestöfl: 100 DIN.
Verð: 501.000 kr. Gírar: 5 áfram.
Þyngd: 1175 kg. Eyösla: 8 - 10 1/100
Vélarstærö: 2 lítra vél. km-
Suzuki Fox 413
Verð: 450.000 kr.
Þyngd: 940 kg.
Vélarstærð: 1324 cc.
Hestöfl: 64 DIN.
Gírar: 5 áfram í háa og lága.
Eyðsla: 8 - 14 1/100 km.
Suzuki
12 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Fimmtudagur 17. janúar 1985
Fimmtudagur 17. janúar 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13