Þjóðviljinn - 17.01.1985, Side 21
RUVAK
Akureyrablöðin:
„Utvaip Akureyrí
mun veita okkur aðhald“
Eins og fram hefur komið er
reiknað með að útvarp Akureyri
muni hafa nokkrar tekjur af
auglýsingum. Þar sem auglýsing-
ar útvarpsins munu, eðli málsins
samkvæmt höfða til íbúa á Eyja-
Ijarðarsvæðinu eingöngu, væri
ekki ólíklegt að þær hefðu ein-
hver áhrif á tekjumöguleika
þeirra fjölmiðla sem út koma á
Akureyri að staðaldri. íslending-
ur kemur út vikulega og Dagur
þrisvar í viku.
Þjóðviljinn spurði Tómas Inga
Olrich, ritstjóra íslendings, hvort
hann hefði áhyggjur af þeirri
samkeppni, sem útvarp Akureyri
myndi hugsanlega veita blöðun-
um?
- Já, auðvitað ég get ekki neit-
að því, vissar áhyggjur hef ég.
Við eigum þegar í hörðu stríði við
sjónvarpsdágskrár, og auglýsing-
ablöð, sem geta selt auglýsingar á
miklu lægra verði en við. Ég hef
hins vegar ekkert á móti auglýs-
ingum í útvarpinu, sem vissulega
skapar okkur samkeppni, sem
við verðum að takast á við. Ég
held að útvarpið muni hafa áhrif
á fréttaflutning blaðanna, þau
minni þurfa að breyta um vinnu-
brögð, leggja meiri áherslu á úr-
Aðsetur RUVAK á Akureyri
vinnslu frétta, og ýtarlegri um-
fjöllun, þar sem útvarpið mun á
degi hverjum flytja stuttar fréttir
af atburðum, sem eru að gerast.
Jóhann Karl Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Dags: Við höfum
ekki áhyggjur af samkeppninni
við útvarpið. Ég tel, að þær
auglýsingar, sem útvarpið birtir,
verði fyrst og fremst viðbót við
auglýsingar blaðanna, eins og
mér skilst að reynslan sé af rás
tvö. Þeir sem hingað til hafa aug-
lýst í ríkisútvarpinu, fyrir hlust-
endur á svæðinu, munu væntan-
lega flytja sínar auglýsingar í
staðbundna útvarpið. Mér er nær
að halda að útvarpið komi til með
að snerta sjónvarpsdagskrárnar
fremur en okkur.
Gísli Sigurgeirsson ritstjórnar-
fulltrúi á Degi taldi að útvarpið
myndi veita blöðunum visst að-
hald og gera kröfur til þess að þau
stæðu sig enn betur en áður.
hágé.
Akureyraútvarpið
Hvað segja bæjarfulltmamir?
Staðbundið útvarp mun að
öllum líkindum hefjast frá Akur-
eyri, hinn fyrsta mars
næstkomandi. Stefnt er að því að
útvarpa tvisvar á dag, hálftíma í
senn. Reiknað er með að tilraun-
in standi í þrjá mánuði til að byrja
með. Skýrt hefur verið frá því, að
efni útvarpsins muni fyrst og
fremst verða ýmsar upplýsingar,
sem koma íbúum svæðisins að
gagni, fréttir, upplýsingar um
flug, færð á vegum o.fl. þ.h. Þá
má reikna með auglýsingum að
því er Jónas Jónasson, yfirmaður
útvarpsins á Akureyri, greindi frá
í fréttum nú fyrir skömmu.
Ekki er enn vitað hversu víða
Útvarp Akureyri muni heyrast,
en að sögn kunnugra mun heyrast
í því alllangt utan Akureyrar, að
verulegu leyti austan fjarðarins
og hugsanlega allt til Dalvíkur að
vestan. Þetta myndi þýða að
hlustendahópurinn yrði á bilinu
fimmtán til tuttugu þúsund
manns.
Ekki var annað að heyra á
þeim sem Þjóðviljinn hafði sam-
band við nyrðra en að þeim þætti
fengur að hinu nýja útvarpi. Flest
bendir því til þess að því verði vel
tekið af hlustendum.
Þjóðviljinn hafði samband við
nokkra bæjarfulltrúa á Akureyri
og spurði þá tveggja spurninga:
Hvaða efni vilt þú helst
heyra í Útvarp Akureyri?
Viltu láta útvarpa frá bæj-
arstjórnarfundum?
hágé.
Valgeröur
Bjarnadóttir
Kvennaframboöi
Ég vil heyra staðbundnar frétt-
ir, t.d. af atburðum í menningar-
lífi og öðru því sem er að gerast á
svæðinu. Mér sýnist ekkert mæla
gegn auglýsingum, frá fyrirtækj-
um opinberum aðilum og
fleirum, og miklu þægilegra fyrir
fólk, að geta opnað fyrir stað-
bundnar auglýsingar, í stað þess
að þurfa að hlusta á allan lestur-
inn í því útvarpinu sem nær til
allra landsmanna. Músíkin á hins
vegar að vera á rás eitt og tvö að
mínu viti.
Það kemur vel til greina að út-
varpa frá bæjarstjórnarfundum
og ágætt að bæjarfulltrúar geti átt
það á hættu að rödd þeirra heyrist
skyndilega í útvarpinu. Menn
myndu þá kannski vandað mál-
flutning sinn betur.
Freyr Ófeigsson
Alþýðuflokki
Útvarp Akureyri á að flytja
staðbundnar fréttir; fréttir af at-
burðum sem eru að gerast á svæð-
inu, margvíslegar tilkynningar og
auglýsingar. Það skemmtiefni,
sem ég vil heyra í útvarpi, og
kæmi héðan finnst mér eðlilegast
að flutt sé í ríkisútvarpinu fyrir
alla landsmenn.
Ég tel ekki rétt að útvarpa frá
bæjarstjórnarfundum, nema þá í
sérstökum undantekningartilfell-
um. Bæjarstjórnarfundirnar og
umræður þar gefa hvort eð er
ekki nema takmarkaða mynd af
því sem fram fer í bæjarstjórn-
inni. Hið raunverulega starf fer
fram annarsstaðar, þ.e.a.s. í
nefndum og ráðum bæjarstjórn-
arinnar.
Útvarp Akureyri á að mínu viti
að vera upplýsingaútvarp fyrst og
fremst.
Sigurður J. Sigurðsson,
Sjálfstæðisflokki
Ég vil heyra fréttir um það sem
er að gerast á svæðinu m.a.
sveitarstjórnarfréttir og þá ekki
bara frá bæjarstjórn Akureyrar,
heldur líka öðrum sveitarstjórn-
um. Égmyndi viljaheyra tilkynn-
ingar um ýmsa atburði sem til
standa t.d. í menningarlífi og
ýmsar gagnlegar upplýsingar
fyrir íbúana. Auglýsingar ætti í
fyrsta áfanga að takmarka við
þjónustuauglýsingar, þar sem ég
tel hættu á erfiðri samkeppni fyrir
blöðin, sem myndu missa spón úr
sínum aski.
Ég tel nú ekki skynsamlegt að
útvarpa frá bæjarstjórnarfund-
um, nema í undantekningartil-
vikum, þegar stærri mál eru á
dagskrá. Ef útvarpa ætti frá slík-
um fundum þá væri eðlilegt að
útvarpa líka frá fundum annarra
sveitarstjórna en Akureyrar,
þegar tilefni gefast. Útvarpið á að
vera nokkurs konar nýtt héraðs-
fréttablað.
Jón Sigurðarson
Framsóknarflokki
Ég vil heyra fréttir sem varða
okkur sérstaklega t.d. af atvinnu-
málum, og ekki síður menning-
armálum. Já vel á minnst, ýmsir
fjölmiðlar syðra mættu vel átta
sig á hve menningarlífið er hér
fjölskrúðugt. Ég hef ekkert á
móti auglýsingum í skynsamlegu
magni auðvitað.
Eg myndi fagna útvarpi frá
bæjarstjórnarfundum, vegna
þess að ég tel að bæjarstjórnin
hafi lengi liðið fyrir fréttaskort,
sem meðal annars veldur því, að
fólki er ekki nógu vel ljóst hversu
vel það er unnið.
Sigríður
Stefánsdóttir
Alþýðubandalagi
Útvarpið á að segja frá því sem
um er að vera á sviði menningar
og lista, og eins ef eitthvað sér-
stakt er á seyði í bæjarmálum,
gefa upplýsingar um veður og
færð til dæmis. Það á yfir höfuð
að skýra frá og kynna mannlíf við
fjörðinn. Auglýsingar eru í lagi,
en á þær verður að setja hámark.
Ég held að það væri fróðlegt
fyrir fólk að hlusta á umræður frá
bæjarstjórnarfundum þegar
merkileg mál eru á dagskrá, en
hins vegar óþarfi að útvarpa frá
öllum fundum bæjarstjórnar.
Fimmtudagur 17. janúar 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 21