Þjóðviljinn - 17.01.1985, Qupperneq 23
IÞROTTIR
Kœrumál
Val dæmdur sigur!
Handbolti
Enn FH-sigur
FH-ingar tryggðu stöðu sína á toppi
1. dcildar en möguleikar Víkinga á
meistaratign urðu að engu í Laugar-
dalshöllinni í gærkvöldi. Leikur lið-
anna var allan tímann mjög íjörugur
og það var ekki fyrr en á lokamínút-
unum að úrslitin réðust, í lokin mun-
aði tveimur mörkum á liðunum, 24-
22, FH í hag.
Víkingar voru öllu betri í byrjun,
komust fljótlega í 5-2 og stuttu fyrir
hlé voru þeir yfir 11-8. Síðustu mínút-
ur hálfleiksins voru hinsvegar eign
FH sem náði eins marks forskoti fyrir
hlé.
Haraldur Ragnarsson átti stórleik í
marki FH hann lokaði markinu og
fieytti liði sínu í gegn um erfiða kafla.
Kristján Arason, Þorgils Öttar og Jón
E. Ragnarsson áttu einnig mjög góð-
an leik. Tveir leikmenn liðsins fengu
að sjá rauða spjaldið í leiknum. Þeir
Hans Guðmundsson og Guðjón Guð-
mundsson. FH-ingar voru allt annað
en hressir með dómgæsluna sem fór
nokkuð úr böndunum í síðari hálf-
leiknum.
Mörk FH: Hans Guðmundsson 5, Jón
E., Þorgils Ó. og Guðjón Árnason 4, Krist-
ján A. 4 (2v), Valgarð Valgarðsson, Guðj-
ón Guðmundsson og Sigþór Jóhannesson
1.
Mörk Víkings: Þorbergur Aðalsteins-
son 8 (2v), Viggó Sigurðsson 5 (1 v), Hilmar
og Guðmundur 3, Kari Þráinsson 2,
Steinar Birgison 1. - Frosti.
Stórbikarinn
Oruggt hjá Juventus
Juventus vann nokkuð öruggan
sigur á Liverpool, 2-0, í keppninni um
Stórbikar Evrópu í knattspyrnu í
gærkvöldi. Leikið var á heimavelli Ju-
ventus í Torino á ftalíu og tókst að
klára leikinn þrátt fyrir fannfergið
þar suðurfrá.
Zbigniew Boniek skoraði bæði
mörkin, það fyrra uppúr hroðalegri
rangstöðu. Inná milli fékk Liverpool
sitt eina umtalsverða færi, John Wark
virtist þá vera felldur í vítateig Ju-
ventus en ekkert var dæmt.
- ab/-VS
Handbolti
Próttur úr 11-10 í 24-11
og vannÞór 27-15
Þróttarar skoruðu ÞRETTÁN
mörg gegn EINU á fyrstu 18 mínútum
síðari hálfleiksins gegn Þórurum frá
Vestmannaeyju í Laugardalshöllinni í
gærkvöldi! Þeir breyttu stöðunni úr
11-10 í hléi í 24-11 þegar 12 mínútur
voru eftir og lokastaðan í leiknum
varð síðan 27-15, yfirburðasigur
Þróttar. Furðuleg þróun í leiknum því
eftir að staðan hafði verið 5-0 fyrir
Þrótt um miðjan fyrri hálfleik tóku
Þórarar mikinn kipp og voru rétt bún-
ir að jafna fyrir hlé.
Lið Þórara var hvorki fugl né fisk-
ur, nema seinna korter fyrri hálfleiks,
og Þróttarar bókstaflega léku sér að
þeim. Voru farnir að reyna ýmsar
kúnstir á lokamínútunum. Páll Ólafs-
son og Sverrir Sverrisson voru í aðal-
hlutverkum ásamt Guðmundi Jóns-
syni markverði sem varði 19 skot Þór-
ara. Sigmar Þröstur markvörður var
yfirburðamaður f liði Þórs sem hefði
lent tíu mörkum undir í fyrri hálfleik
ef hans hefði ekki notið við.
Mörk Þróttar: Páll 8(3v), Sverrir 8, Lárus
Lárusson 4, Birgir Sigurðsson 3, Gísli Ósk-
arsson 2 (1v), Helgi Helgason 1 og Bergur
Bergsson 1.
Mörk Þórs: Herbert Þorleifsson 5(1 v),
Sigbjðrn Óskarsson 2, Stefán Guðmunds-
son 2, Sigurður Friðriksson 1 (v), Elías
Bjarnhóðinsson 1, SteinarTómasson 1 og
Böðvar Bergþórsson 1.
-VS
England
Naumt hjá
Leicester
Norwich áfram
Wallace í Sunderland
Fyrir luktum dyrum á Highfíeld
Road í Coventry náði 1. deildarlið
Leicester að merja sigur á utandeilda-
liði Burton Albion, 1-0, í ensku bikar-
keppninni í knattspyrnu í gærdag.
Leicester hafði unnið Burton 6-1 en
leikinn þurfti að leika að nýju þar sem
markvörður Burton rotaðist er áhorf-
andi kastaði í hann aðskotahlut.
Leikurinn í gær var jafn og harður en
Paul Ramsey skoraði sigurmark
Leicester strax á 4. mínút. Highfíeld
Road er upphitaður og því hægt að
leika þar þrátt fyrir vetrarríki.
Norwich er komið í undanúrslit
Mjólkurbikarsins eftir 1-0 sigur í
Grimsby. Norwich var miklu betra og
John Deehan skoraði sigurmarkið á
22. mínútu eftir sendingu frá Mark
Barham.
Sunderland keypti í gær Skotann
Ian Wallace, fyrrum leikmann Nott-
ingham Forest, frá franska 1.
deildarliðinu Brest á 50 þúsund pund
í gær. Wallace hefur ekki komist í lið
Brest að undanförnu. Þá hefur WBA
orðið fyrir miklu áfalli - Alistair Ro-
bertson var í gær dæmdur í tveggja
leikja bann og Steve Hunt meiddist á
æfingu í frostinu í fyrradag og leikur
ekki með liðinu á næstunni. _ ab/VS
Handbolti
Mark-
varslan
best
KR vann Breiðablik
22-18
Það lifír fátt minnisstætt úr leik
Breiðabliks og KR í Digranesinu í
gærkvöldi. Byrjunin var jöfn og
hörkubarátta í fyrri hálfleik en KR
leiddi 10-9 í hléi. KR-ingar náðu síðan
4-5 marka forskoti í seinni hálfleik og
Blikar ógnuðu þeim aldrei verulega.
Lokatölur urðu 22-18, öruggur KR-
sigur.
Markvarslan í leiknum var ljósasti
punkturinn, Guðmundur Hrafnkels-
son hjá Breiðabliki og Jens Einarsson
hjá KR vörðu báðir mjög vel. Krist-
ján Halldórsson lék vel hjá Blikun-
um, sem og Jakob Jónsson hjá KR.
Leikurinn var ekki góður, mikið um
mistök á báða bóga og brottrekstrar
fjölmargir. Gamla kempan Andrés
Bridde, fyrrum Framari, lék þarna
sinn fyrsta leik með Breiðabliki í vet-
ur en annar gamall Framari, Björgvin
Björgvinsson, stýrði liðinu í fyrsta
skipti - í stað Þorsteins Jóhannes-
sonar sem var rekinn úr þjálfarastöð-
unni nú á dögunum.
Mörk KR: Jakob 8, Ólafur Lárusson 4,
Páll Björgvinsson 4, Haukur Geirmunds-
son 4, Jóhannes Stefánsson 2.
Mörk Breiðabliks: Kristján H. 6, Björn
Jónsson 5, Aðalsteinn Jónsson 3, Brynjar
Björnsson 2, Andrés Bridde 1 og Jón Þórir
Jónsson 1.
-gsm/VS
Þessa skemmtilegu seríu tók -eik af
Páli Scheving leikmanni Þórs
Vestmannaeyjum sem hér skorar
gegn Þrótti í 1. deildinni í gærkvöldi.
Hann og félagar hans flugu þó til Eyja
með 12 marka tap á bakinu.
Sigurður
Leyfið
fengið
Sigurður Jónsson er loks búinn
að fá atvinnuleyfí sem knatt-
spyrnumaður í Englandi og getur
því farið að leika með 1. deildar-
liðinu Sheffíeld Wednesday.
Hann hefur beðið í sex vikur, eða
frá því í byrjun desember. Búast
má við að Sigurður byrji með
varaliðinu. Sheff. Wed. hefur
gengið frábærlega að undanförnu
og er í slagnum um toppsæti 1.
deiidarinnar. -VS
Handbolti -1. deild
Sjö í röð
Valurúr 11-12 í 18-12 og vann
Tíu mínútna kafli um miðjan seinni
hálfleik gerði útum leik Stjörnunnar
og Vals í Digranesinu í gærkvöldi.
Stjarnan var yfir, 12-11, en þá gerðu
Valsmenn sjö mörk í röð - komust í
18-12 og unnu síðan 24-19.
. Landsliðsmarkverðirnir Einar Þor-
larðarson og Brynjar Kvaran voru í
pörkustuði og lokuðu t.d. mörkunum
alveg fyrstu 5 mínúturnar. Valur var
8-6 yfir í hálfleik og hafði frumkvæðið
þar til Stjarnan komst í 12-11. Þá kom
kaflinn umræddi, vörn Vals var sterk
á meðan allt fór í baklás hjá Garðbæ-
ingum og þeir gerðu sig seka um fljót-
færni í sókn sem leiddi til fjölda
hraðaupphlaupa Valsmanna.
Einar var bestur hjá Val ásamt
Valdimar Grímssyni og Júlíusi Jón-
assyni. Þorbjörn Jensson kom fyrst
inná snemma í seinni hálfleik og lék
mjög vel. Brynjar var í aðalhlutverki
hjá Stjörnunni og varði 16 skot.
Hannes Leifsson og hornamaðurinn
skemmtilegi Sigurjón Guðmundsson
átti jóðan dag.
! Mörk Vals: Valdimar 6 (lv), Júlíus
6, Þorbjörn J. 4, Geir Sveinsson 4,
Jón Pétur Jónsson 2 og Jakob Sig-
urðsson 2.
Mörk Stjörnunnar: Hannes 6,
Guðmundur Þórðarson 5 (5v), Sigur-
jón 3, Eyjólfur Bragason 3 og Magn-
ús Teitsson 2. - gsm/VS
Þrettán
gegn
einu!
ÍR-ingum, sem leika í 4.
deildinni í knattspyrnu, hefur
hlotnast góður liðsstyrkur. Bragi
Björnsson, sem lék 13 af 18
leikjum Fram í 1. deildinni sl.
suntar, hefur tilkynnt félagaskipti
yfir í ÍR. Það ætti að koma í stað-
inn fyrir brotthvarf markakóngs
deildakeppninnar sl. tvö ár,
Tryggva Gunnarssonar, sem mun
leika með KA í 2. deildinni næsta
sumar. _vs
Víkingur með leikheimildfrá HSIog áfrýjar til dómstóls ISI.
Vitnað til Garðarsmálsins
Dómstóll HSÍ dæmdi í gær
Valsmönnum sigur í viður-
eigninni gegn Víkingi í 1. deild
karla í handknattleik en Vals-
menn töpuðu leiknum 19-15.
Valsmenn kærðu á þeim forsend-
um að Svavar Magnússon væri
ólöglegur með liði Víkings.
Dómstóllinn vítti einnig
Handknattleikssambandið fyrir
að veita Víkingum Ieikheimild
Svavari til handa og er þetta
nokkuð sérstætt mál.
Svavar lék einn leik með
Gróttu í Reykjanesmótinu í
haust en hafði síðan félagaskipti
yfir í Víking. Nokkur vafi lék á
hvort hann teldist löglegur þar
sem hann hafði leikið með
Gróttu á keppnistímabilinu en
HSÍ gaf Víkingum leikheimild og
var hann notaður í framhaldi af
því.
Víkingar hafa áfrýjað dómnum
til dómstóls ÍSÍ og benda á hlið-
stætt mál sem kom upp í knatt-
spyrnunni árið 1983. Þá hafði
Garðar Jónsson leikið með í A í
Litlu bikarkeppninni um vorið en
gekk síðan yfir í Skallgrím og hóf
að leika með liðinu eftir einn
mánuð, en tvo þarf til þegar leik-
maður hefur leikið með öðru liði
á keppnistímabilinu í knattspyrn-
unni. í handknattleiknum má
leikmaður hins vegar aðeins leika
með einu liði á keppnistímabil-
inu. í Garðarsmálinu dæmdi
dómstóll ÍSÍ Skallgrími og Garð-
ari í hag eftir að dómstóll KSÍ
hafði úrskurðað hann ólöglegan -
og spurningin nú er því sú hvort
komist verði að samskonar niður-
stöðu í þessu máli - hvort dóm-
stóll ÍSI líti á Reykjanesmótið
sem æfingamót eins og Litlu bik-
arkeppnina í knattspyrnu. -VS
Bragi
í ÍR!
Fimmtudagur 17. janúar 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 23