Þjóðviljinn - 17.01.1985, Side 24
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
Fimmtudagur 17. janúar 1985 13. tölublað 50. árgangur
Bíldudalur
Málaferli í uppsiglingu
Sjómenn leita aðstoðar Sjómannasambandsins. Skelvinnslan hefur brotið lög Verðlagsráðs
sjávarútvegsins meðþvíað setja upp einkamat á hörpuskelfiski
Sjómenn þeir á Bíldudal sem
eiga í stríði við Rækjuver hf.
þar gengu á fund Óskars Vigfús-
sonar forseta Sjómannasam-
bands íslands í gær og sýndu hon-
um gögn varðandi deilumálið.
Óskar sagði í samtali við Þjóð-
viljann í gær að eftir þeim
gögnum að dæma teldi hann að
lög hefðu verið brotin á sjómönn-
unum. Því væri ljóst að ef Rækju-
ver hf. á Bíldudal ekki leiðrétti
hlut sjómanna væri ekki um ann-
að að ræða en leita til dómstóla.
Óskar sagði að í skjóli einok-
unar væri Rækjuver hf. að níðast
á sjómönnum og fremdi lögbrot.
Það fælist í því að eftir að opinber
matsmaður, á vegum Ferskfisk-
mats sjávarafurða, væri búinn að
meta skelina, væri Rækjuver hf.
með sinn eigin matsmann og
greiddi sjómönnum eftir hans
mati, sem alltaf er verra og athæf-
ið ólöglegt. í lögum Verðlagsráðs
segir að fari skuli eftir mati mats-
manns Ferskfiskmatsins og það
eitt ræður að sjálfsögðu.
Þá sagði Óskar Vigfússon að
Rækjuver hf. skákaði í skjóli al-
gerrar einokunar og væri hann
með í höndunum bréf frá Rækju-
veri hf. til skipstjóra á einum
bátnum frá Bfldudal, sem er síð-
an 1982, þar sem Rækjuver hf.
segðist ekki kaupa skelfisk af
honum, þar sem það gæti fengið
skelfisk á lægra verði en hann
seldi. Þessi maður átti engra úr-
kosta völ, þetta er eina fyrirtækið
á staðnum.
- S.dór.
Ágœti tóbaksins
Alger
della
Ástralski lœknirinn
á mála hjá
tóbaksframleiðendum
Grcin eftir ástralska lækninn
William Whitby, sem Þjóðviljinn
birti á heilsíðu á dögunum þar
sem því er haldið fram að tóbak sé
allra meina bót og alls ekki sá
skaðvaldur sem margir vilja
meina, hefur vakið mikið umtal
og athygli.
„Niðurstöður þessa læknis
stinga mjög í stúf við mikinn
meiri hluta þeirrar læknisfræði-
þekkingar sem við búum yfir.
Það sem hann gerist sekur um er
að tína út þær greinar sem styðja
hans málstað án alls samhengis
við annað. Sumar þær greinar
sem hann vitnar til eru mjög
vondar rannsóknir sem ekki er
hægt að draga neinar beinar nið-
urstöður af“, sagði Sigurður
Árnason sérfræðingur í krabba-
meinslækningum á Landspítalan-
um er Þjóðviljinn bar undir hann
grein ástralska læknisins.
„Þessi maður er þekktur fyrir
sín skrif fyrir tóbaksframleiðend-
ur og hefur verið orðaður við að
vera á mála hjá þeim þó það hafi
ekki verið sannað“, sagði Sigurð-
ur. „Það er vitað að tóbaksfram-
leiðendur hafa á sínum snærum
menn, jafnvel menntaða lækna,
sem hafa það verkefni að svara
greinum sem birtast um skaðsemi
reykinga í blöðum. Það eru nán-
ast alltaf sömu mennirnir sem
skrifa á móti þessum greinum",
sagði Sigurður Árnason.
-*g
Noregur
Sæöisbanki
fyrir lax
Auðveldar kynbótastarf
Fimm manna nefnd í Noregi
vinnur nú að því að stofna sæðis-
banka fyrir lax. Er meiningin að
safna svili úr laxi í öllum norsku
laxveiðiánum. Telja þeir það
einu öruggu leiðina til þess að
halda laxastofninum hreinum í
framtíðinni. Þetta verður ekki
kostnaðarsamt því hægt verður
að nýta sem geymslustaði þá sæð-
isbanka, sem fyrir eru. Með dj úp-
frystingu á svilum og hrognum
verður auðveldara að vinna að
kynbótum. Að því verður stefnt,
að rækta upp stofn, sem gefur
stærstu laxana. - mhg.
Sigirður Árnason krabbameinslæknir: Ástralski maðurinn þekktur af skrifum sínum fyrir tóbaksframleiðendur. Mynd
Bolungarvík
Leynifundur
um ratsjár-
málið
Ólafur Kristjánsson
forseti bæjarstjórnar:
neitar að gefa bœjarstjórn
upplýsingar umfundinn
Varnarmáladeild utanríkis-
ráðuneytisins átti leynilegan fund
með fjórum bæjarstjórnar-
mönnum og sparisjóðsstjóranum
á Bolungarvík í maí síðastliðnum
til þess að ræða fyrirhugaðar
hernaðarframkvæmdir í Stiga-
hliðarfjalli fyrir ofan Bolungar-
vík. Fundurinn var haldinn á Isa-
firði. Ólafur Kristjánsson forseti
bæjarstjórnar á Bolungarvík,
sem sat fundinn, neitaði að gera
bæjarstjórn grein fyrir efni fund-
arins þegar um var beðið í ág-
ústmánuði á þeirri forsendu að
hann hefði setið fundinn sem
„áhugamaður og stuðningsmað-
ur um varnarsamstarf vestrænna
þjóða“ en ekki sem fulltrúi bæjar-
stjórnar.
Sverrir Haukur Gunnlaugsson
hefur hins vegar staðfest að fund-
ur þessi var kostaður af utanríkis-
ráðuneytinu, en fundinn sátu
einnig fulltrúar Landhelgisgæsl-
unnar og Pósts og síma, sem og
fulltrúar ratsjárnefndar.
„Ég fæ ekki skilið hvernig
utanríkisráðuneytið getur rétt-
lætt það að standa straum af
kostnaðarsömum fundi „áhuga-
manna um vestræna samvinnu“ á
ísafirði, sem er að auki haldinn
með leynd“, sagði Kristinn
Gunnarsson bæjarfulltrúi á Bol-
ungarvík í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær. _ ó|g>
Reykjavíkurborg
Þyngrí skattur - meira fé
Aukiðfé tilflestra framkvœmda ífjárhagsáœtlun sem borgarstjórn tekur tilfyrri umrœðu ídag.
Fjárhagur rúmur vegna aukinnar skattheimtu, lítillar verðbólgu og kjaraskerðingar
Idag fer fram í borgarstjórn
fyrri umræða um fjárhagsáætl-
un Reykjavíkurborgar 1985.
Fjárhagur borgarinnar er rýmri
en oftast áður og virðast meginá-
stæður annarsvegar aukin skatt-
heimta gegnum hitaveitu og raf-
magnsveitu, hinsvegar verðlags-
og launamál árið 1984.
Allir framkvæmdaliðir áætlun-
arinnar hækka og sumir verulega.
Til dæmis er gert ráð fyrir 60
milljónum til byggingar borgar-
leikhúss í stað 15 milljóna í fyrra.
Athygli vekur að framlag til BUR
lækkar, er 40 milljónir í stað 60 í
fyrra, þótt menn áætli að útgerð-
in verði rekin með talsverðu tapi
á þessu ári. Einnig er haldið
áfram að draga saman byggingar
verkamannabústaða.
Lítil verðbólga á síðasta ári olli
því að borginni nýttust betur út-
svörin, - en fólk er jafnframt
lengur að vinna fyrir þeim en
áður. Þá hafa kjaraskerðingar
stjórnvalda komið Reykjavíkur-
borg vel, þarsem launakostnaður
er mjög stór hluti af útgjöldum
við rekstur og framkvæmdir.
Fjárhagur borgarinnar hefur
einnig batnað drjúgum við að
hækka hita og rafmagn við borg-
arbúa. Frá 1982 hefur skatt-
heimta borgarinnar hjá hita- og
rafveitu hérumbil þrefaldast.
Skuldastaða borgarsjóðs er nú
betri en oft áður. Féð hefur verið
notað til að borga upp sumar
skuldir, og í fjárhagsáætluninni
lækka afborganir lána frá því sem
áður var.
Styrkir borgarinnar til fé-
lagasamtaka eru yfirleitt ákveðn-
ir milli umræðna í borgarstjórn,
og þá mun einnig gengið frá áætl-
unum um aukið mannahald við
framkvæmdir eða rekstur. - m.