Þjóðviljinn - 09.02.1985, Blaðsíða 4
Bólvirki nauðhyggjunnar
Eftir aö Sjálfstæöisflokkurinn komst í svo
mikla valdaaðstööu og honum var veitt með
myndun núverandi ríkisstjórnar, hefur ofstopa-
fyllsta armi flokksins veriö mjög hampað t.d. á
síöum Morgunblaðsins.
Blaöið sjálft hefur mótað sér stefnu í innan-
flokksátökum innan flokksins og hvarvetna þar-
sem gætt hefur frjálslyndis hefur blaöiö byrjað
að æmta. Dæmigert fyrr þessa hörku Morgun-
blaösins eru átroðslur þess gagnvart þjóökirkj-
unni og hirðum kirkjusafnaöa víða um landið.
Þjóðkirkjan má ekki móta sér sína eigin stefnu í
friði fyrir Morgunblaðinu, sem þykist hafa það á
hreinu hvað sé rétt og hvað sé rangt, hvað sé
svart og hvað sé hvítt. Á þetta benti NT réttilega
í leiðara í gær.
f þeirri alþjóðiegu friðarvakningu sem ís-
lenska þjóðkirkjan hefur sem betur fer tengst
hefur Morgunblaðið snúist til varnar einsog
pólsk stjórnvöld gagnvart frjálslyndi í því landi.
Morgunblaðið hefur talið sig þess umkomið að
hreyta ónotum í kirkjunnar þjóna fyrir að vilja frið
meðal manna og þjóða.
Svo langt hefur þessi ofstopi gengið að prest-
ar kirkjunnar hafa verið kallaðir erindrekar
heimskommúnismans vegna þátttöku sinnar í
friðarstafi, sem þó er meðal traustu undirstöðu
þess kristilega boðskapar sem nær allir styðja.
Þannig hefur Morgunblaðið látið gagnvart sr.
ipunnari Kristjánssyni og sr. Jakob Hjálm-
arssyni einsog þeir hefðu ekki rétt á að hafa og
túlka sín eigin viðhorf til friðarmála.
En Morgunblaðinu er ekki nóg að vera sjálft
slíkt bólvirki flokkshyggjunnar og þröngsýninn-
ar í trúmálum sem stjórnmálum, heldur hefur
Sjálfstæðisflokkurinn markvisst fært út kvíarnar
í þeim tilgangi að eignast fleiri slík virki
nauðhyggju og fordóma í fjölmiðlaheiminum.
Nýjasta dæmið um þessar næstum því trúar-
ofsóknir Sjálfstæðisflokksins eru athugasemdir
í útvarpsráði við upplýsingamiðlun sr. Bern-
harðs Guðmundssonar fréttafulltrúa þjóðkirkj-
unnar um hungrið í þriðja heiminum. Þó út-
varpsráð sé nú orðið aðhlátursefni meðal hugs-
andi fólks eftir að Sjálfstæðisflokkurinn hefur
smalað inní ráðið og í valdastöður ofstækis-
fyllstu og þröngsýnustu öflum fjölmiðlanna, þá
má flokkurinn ekki gleyma því að Ríkisútvarpið
er þrátt fyrir allt ennþá í eigu allrar þjóðarinnar.
Það er ekki ætlast til þess að útvarpið sé rekið
einsog hvert annað Valhallarútvarp á vegum
Hannesar Hólmsteins. Það er heldur ekki liðið
að Sjálfstæðisflokkurinn myndi innan Ríkisút-
varpsins andrúmsloft pólskrar ritskoðunar né
óskað eftir útbreiðslu á nauðhyggju Morgun-
blaðsins í trúmálum.
Burt með Reykjavflairflugvöll
Alþýðubandalagið í Reykjavík hefur löngum
mælt með því að Reykjavíkurflugvöllur verði
lagður niður, enda hefur flugvöllur í miðborginni
lengi verið óviðeigandi á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu.
í stærri borgum erlendis er mjög algengt að
frá miðborg til flugvallar sé klukkustundar akst-
ur og óþarft ætti að vera að tíunda hætturnar
samfara staðsetningu flugvallarins í miðborg-
inni. Hitt skiptir ekki síður máli, að þar sem
Reykjavíkurflugvöllur er nú, er rými fyrir tugþús-
und manna byggð. Að sjálfsögðu eru skiptar
skoðanir í mörgum flokkum um þetta mál. Albert
Guðmundsson fjármálaráðherra hefur leyft sér í
þessu efni að vera sammála Alþýðubandalag-
inu. Morgunblaðið bregst svo við þessari skoð-
un Alberts Guðmundssonar í leiðara í gær að
fádæmi hlýtur að teljast. Fjármálaráðherra
Sjálfstæðisflokksins má sæta því að verða fyrir
skítkasti í aðalmálgagninu - og segir það ekki
litlasögu um kærleikana í Sjálfstæðisflokknum.
-óg
Ó-ÁUT
„Hafðu öngvar áhyggjur,
Eiríkur minn, þó þú
svindlir smá á
skattinum. Ég ætl’að
redda fjármálunum
sjálfur!"
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Rltstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphóðinsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Öskar Guðmundsson.
Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson.
Blnðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Guðjón
Friðriksson, Helgi Guðmundsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla-
son, Mörður Árnason, ólafur Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson,
Víðir Sigurðsson (íþróttir).
Ljósmyndir: Einar Ólason, Einar Karlsson.
Útlit og hönnun: Filip Franksson, Þröstur Haraldsson.
Handrlta- og prófarfcalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Framfcvœmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Útbreið8lustjóri: Sigríður Pótursdóttir.
Auglýsingastjóri: Ragnheiður Óladóttir.
Auglýsingar: Anna Guðjónsdóttir, Ásdís Kristinsdóttir,
Hreiðar Sigtryggsson.
Afgroiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Símavarsla: Margrót Guðmundsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmæður: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf Húnfjörð.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla, auglysingar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 30 kr.
Sunnudagsverð: 35 kr.
Áskrlftarverð á mónuði: 330 kr.
Afgreiðsla blaðsins er opin á laugardögum
frá kl. 9 til 12, beinn sími: 81663.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Laugardagur 9. febrúar 1985