Þjóðviljinn - 09.02.1985, Blaðsíða 6
/
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráöa starfsfólk til eftirtalinna starfa.
Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
• Forstöðumaður við leikskólann Leikfell, Æsufelli 4 og
Hálsakot, sem er nýr leikskóli/skóladagheimili við Hálsa-
sel.
• Fóstrurviö Árborg, Hlíðarborg, Bakkaborg, Dyngjuborg,
Grænuborg og Ösp.
• Fóstrur, þroskaþjálfa eða starfsmenn með aðra upp-
eldislega menntun til þess að sina börnum með sérþarf-
ir.
Upplýsingar veita umsjónarfóstrur á skrifstofu dagvistar í
síma 27277 og forstöðumenn viðkomandi heimila.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds Reykjavíkur-
borgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum umsóknar-
eyðublöðum sem þar fást, fyrir kl. 16.00, mánudaginn 18.
febrúar 1985.
Verðkönnun
W á strætisvögnum
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Stræt-
isvagna Reykjavíkur óskar eftir upplýsingum um fram-
boð og verð á strætisvögnum. Um er að ræða kaup á
20 vögnum til afgreiðslu á 3-4 árum. Óskað er eftir
upplýsingum um stærð, gerð, búnað og verð þeirra
vagna er boðnir eru. Nánari leiðbeinandi upplýsingar
liggja fyrir á skrifstofu vorri á Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboðum ber að skila á skrifstofu vora að Fríkirkjuvegi
3, Reykjavík eigi síðar en 12. mars n.k.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Sími 25800
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd bygg-
ingardeildar borgarverkfræðings óskar eftir tilboðum í
að Ijúka framkvæmdum við aðalbyggingu Seljahlíðar,
dvalarheimilisfyriraldraðaað Hjallaseli 23, Reykjavík.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, gegn kr. 25.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 5.
mars 1985 kl. 14.00 e.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Simi 25800
Blikkiðjan
Iðnbuð 3, Garðabæ
Onnumst þakrennusmiöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboö
SÍMI 46711
ÚTBOÐ
Flugmálastjórn óskar eftir tilboðum í innréttingu flug-
stöðvar á Húsavíkurflugvelli.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum vorum á 2.
hæð flugturnsins á Reykjavíkurflugvelli frá þriðjudeg-
inum 12. febrúar n.k. gegn 5000 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 5.
mars n.k. kl. 11.00. Áskilið er að taka hvaða tilboði sem
berst eða hafna öllum.
Flugmálastjórn
IÞROTTIR
Handbolti
Eitt sirkusmark
Skyldurœknir FH-ingar ekki í erfiðleikum í Eyjum
Sirkusmark 10 mínútum fyrir
leikslok var það eina sem Is-
landsmeistarar FH sýndu mark-
vert er þeir unnu öruggan sigur á
Þór í 1. deildinni í Eyjum í gær-
kvöldi, 27-21. Sveinn Bragason
sendi boltann úr hægra horni í
það vinstra, Hans Guðmundsson
var þar staddur og blakaði bolt-
anum inní vítateig Þórs og þar
kom Kristján Arason á siglingu
og skoraði glæsilega 25. mark
FH. Ahorfendur klöppuðu þeim
óspart lof í lófa en urðu að öðru
leyti fyrir miklum vonbrigðum
með leik meistaranna - þeir komu
greinilega bara til Eyja af skyldu-
rækni, til að ná í tvö stig.
og unnu Þór 27:21
Leikurinn var jafn framan af,
staðan 4-4 eftir 10 mínútur en þá
seig FH framúr eins og við var að
búast og leiddi 14-8 í hálfleik.
Munurinn hélst 5-8 mörk allan
seinni hálfleikinn og sigur FH var
aldrei í hættu.
Haraldur Ragnarsson mark-
vörður var bestur FH-inga. Hann
stóð í markinu í seinni hálfleik og
varði þá 12 skot, þar af 3 vítaköst.
Sverrir Kristinsson varði vel í
fyrri hálfleik en enginn annar
sýndi neitt sérstakt, nema þre-
menningarnir eins og áður er lýst.
Lið Þórs var í vandræðum í
sóknarleiknum þar sem FH-
vörnin lék mjög framarlega og
Sirkusmark Kristjáns Arasonar var það eina sem yljaði áhorfendum í Eyjum í
gærkvöldi.
Körfubolti
Eins og við
var að búast
Öruggt hjá UMFN gegn ÍS, 112:82
Það var aldrei spurning um úr-
slit í íþróttahúsinu í Njarðvík í
gærkvöldi þegar þar mættust ef-
sta og neðsta lið úrvalsdeildar-
innar. Eins og við var að búast
unnu Njarðvíkingar öruggan
sigur á Stúdentum - þrjátíu stig
skildu liðin í lokin, 112:82.
Njarðvík náði strax yfirhönd-
inni og mest munaði 16 stigum í
fyrri hálfleik, 39:23. Staðan í
hálfleik var 47:34. Snemma í
seinni hálfleik urðu Stúdentar
fyrr því áfalli að Guðmundur Jó-
hannsson, þeirra besti maður í
undanförnum leikjum, meiddist
á hálsi og var fluttur á sjúkrahús.
Munurinn með liðunum jókst
smám saman, Njarðvíkingar rufu
100-stiga múrinn þremur mínút-
um fyrir leikslok og komust þá 30
stigum yfir, 101:71, og sá munur
var á liðunum þegar flautað var
til leiksloka.
ísak Tómasson átti mjög góð-
an leik með UMFN og Arni Lár-
usson lék einnig vel. Árni Guð-
mundsson var besti maður ÍS,
skoraði fallegar körfur, og Vald-
imar Guðlaugsson stóð vel fyrir
sínu.
Stlg UMFN: Isak 32, Hreiöar Hreiöarsson
24, Valur Ingimundarson 17, Helgi Rafns-
son 12, Árni 8, Gunnar Þorvarðarson 8,
Ellert Magnússon 5 og Jónas Jóhannes-
son 5.
Stlg ÍS: Valdimar 22, Árni 20, Ragnar
Bjartmarz 12, Helgi Gústafsson 11, Guö-
mundur 5, Þórir Þórisson 4, Jón Indriöason
4, Björn Leósson 2 og Sveinn Ólafsson 2.
Jóhann Dagur og Rob Iliffe
dæmdu leikinn vel.
- SÓM/Suðurnesjum
Körfubolti
Sturla í sturtu!
Keflvíkingar brenndu sig ekki
á því að tapa aftur í Sandgerði -
þeir unnu öruggan sigur þar á
Reyni í 1. deild karla í gærkvöldi,
79:72. Staðan í hálfleik var 46:32,
ÍBK í hag, og mest munaði 20
stigum - sigur Keflvíkinga var
aldrei í hættu.
Guðjón Skúlascn skoraði 20
stig iyrir ÍBK, Jón Kr. Gíslason
16, Olafur Gottskálksson 15 og
Hrannar Hólm 12. Sigurður
Guðmundsson gerði 28 stig fyrir
Reyni, Magnús Brynjarsson 20
og Jón Sveinsson 9. Sturla Ör-
lygsson þjálfari Reynis var rekinn
í bað fyrir orðaskak við dómara
eftir að hafa fengið sína 5. villu.
- VS
skyttur Þórs náðu aðeins að lyfta
sér til skots þrisvar í leiknum. Sig-
birni Óskarssyni gekk best að
snúa á FH-vörnina og Steinar
Tómasson raðaði inn mörkum í
Iokin. Sigmar Þröstur stóð sig
ágætlega í markinu.
Mörk FH: Kristján 7 (3v), Þorgils Ótfar
Mathiesen 6, Guöjón Guðmundsson 5,
Hans 5 og Jón Erling Ragnarsson 4.
Mörk Þórs: Sigbjörn 4, Herbert Þorleifs-
son 4 (2), Elías Bjarhéðinsson 3, Steinar 3,
Siguröur (litli) Friöriksson 2, Gylfi Birgisson
2, Siguröur (stóri) Friðriksson 1, Páll Sche-
ving 1 og Stefán Guðmundsson 1.
Árni Sverrisson og Hákon
Steingrímsson dæmdu leikinn og
fórst það prýðilega úr hendi.
-JR/Eyjum
Stadan
i' 1. deild karla i handknattleik eftir sigur
FH á Þór í gærkvöidi:
FH...........11
Valur.........10
KR............10
Víkingur......10
Þróttur......11
Stjarnan.....11
ÞórVe.........10
Breiðablik.
301:249 21
237:196 17
0
0
3 212:201 11
4 245:228 10
5 260:273 9
6 238:248 8
7 202:243
.11 1 0 10 224:281 2
Efstu liðin, Valur og FH, mætast í
Laugardalshöll 18. febrúar.
Markahæstu menn:
Kristján Arason, FH.................79
Þorbergur Aðalsteinsson, Víkingi....69
Hans Guðmundsson, FH...............63
Guðmundur Þórðarson, Stjörnunni....58
Björn Jónsson, Breiðabliki..........57
Knattspyrna
Btassar
mda
Brasilíumenn hafa loks ráðið
landsliðsþjálfara fyrir undan-
keppni HM í knattspyrnu. Sá
heitir Macedo og var leikmaður
með Flamengo á sjötta áratugn-
um. Hann hefur undanfarið
stjómað unglingalandsliði Bra-
silíumanna og stýrði einnig Ól-
ympíuliði þeirra sl. sumar. Brasi-
líumenn reyndu ákaft að fá tvo
fyrrum þjálfara landsliðsins til að
taka við því á ný. Fyrst reyndu
þeir að fá Tele Santana sem var
við stjórn 1982 en hann er samn-
ingsbundinn í Saudi-Arabíu og
olíufurstarnir leyfðu honum ekki
að fara. Þá var reynt við Mario
Zagalo sem gerði Brasilíumenn
að heimsmeisturum 1970 en hann
gaf ekki kost á sér af persónu-
legum ástæðum.
- VS
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 9. febrúar 1985
Skíði
Daníel
númer 32
Daníel Hilmarsson frá Dalvík
varð 32. í stórsvigi í
heimsmeistarakeppninni í alpa-
greinum sem nú stendur yfir í
Bormio á Ítalíu. Alls lauk 51
keppandi af 74 keppni. Sigurveg-
ari varð óvænt Vestur-
Þjóðverjinn Markus Wasmaier
en Svisslendingurinn Pirmin Zur-
briggen varð í öðru sæti - Marc
Girardelli frá Luxemburg varð
þriðji.
Keppninni lýkur á sunnudag-
inn með svigi karla en þar verður
Daníel á meðal keppenda.
Brautin í Bormio var mjög erfið,
23 féllu úr keppni og meðal þeirra
var sjálfur Ingemar Stenmark.