Þjóðviljinn - 09.02.1985, Blaðsíða 9
MENNING
Hugarflug í vaxlit
Sýning Guðmundar Björgvinssonar í Norrœna húsinu
Guðmundur Björgvinsson
listmálari opnar sýningu á um
120 smámyndum í Norræna
húsinu ídag. Myndirnareru
allar unnar í vaxlitum og allar
gerðarásíðastaári.
Myndir Guðmundar eru ríkar
af hugmyndaflugi, og eru við-
fangsefni hans jafnan tengd
manneskjunni við hinar fjöl-
breytilegustu aðstæður. Aðferð
hans ber keim af expressíónism-
anum eins og hann tíðkaðist
snemma á öldinni, en þessi tján-
ingármáti virðist honum fullkom-
lega eðliiegur og falla vel að við-
fangsefninu. Guðmundur hefur
náð góðu valdi á meðferð vaxlit-
arins, og er skemmtilegt að sjá
heila sýningu unna með þessu
einfalda efni, sem venjulega er
fyrsti liturinn sem börn fá í hend-
ur.
Nokkrar myndir á sýningunni
eru eins konar tilvísanir í listasög-
una hliðstæðar því sem Guð-
mundur sýndi á Kjarvalsstöðum
1983, en megið af myndunum er
þó hreinn heilaspuni, og virðist
hann þar geta ausið af þrot-
lausum brunni. í sumum mynda
hans má finna skyldleika við nor-
ska málarann Edvard Munch, en
í heild sinni hefur sýning þessi yfir
sér persónulegan, fjörlegan og
opinskáan blæ þar sem Guð-
mundur virðist nú öruggari
gagnvart viðfangsefninu en á síð-
ustu sýningu sinni.
Guðmundur Björgvinsson er
að mestu sjálfmenntaður sem
myndlistarmaður. Hann hefur
hins vegar lagt stund á sálfræði,
mannfræði og listasögu í há-
skólum hér og í Bandaríkjunum.
Sýningin í Norræna húsinu er 8.
einkasýning han frá 1976, en auk
þess hefur hann gefið út skáld-
söguna „Allt meinhægt".
ólg.
Betri kjör bjóðast varla
Samvinnubankinn
Einfalt ogöruggt
fyrirkomulag
# þess vegna vel ég
H; .
vaxtareikning
Eg legg sparifé mitt inn á Hávaxtareikning
Samvinnubankans.
hvert skipti fae ég stofnskírteini fyrir
innborguninni, en þaö er alltaf laust og
óbundiö þegar ég parf á peningunum
aö halda.
Meö þessu tryggi ég sparifé mitt gegn
veröbólgu og ávaxta þaö á aröbæran hátt.
Þetta er einfalt og óruggt fyrirkomulag.
vaxtareikningur
Reikningur sem hægt
er ad treysta.
Helgi við eitt verka sinna, Róðuna. Ljósm. -eik.
Listahótíð
Salvör
Nordal
fram-
kvœmda-
stjóri
SalvörNordal hefurverið
ráðin framkvæmdastjóri
Listahátíðar 1986. Ákvörðun
þessi var tekin á f ram-
kvæmdastjórnarfundi hátíð-
arinnar 26. janúar s.l. og var
húntekinsamhljóða.
Salvör Nordal er fædd 21. nóv-
ember 1962. Hún er stúdent frá
Menntaskólanum v/Sund 1982 og
hefur síðan stundað nám við Há-
skóla íslands í heimspeki. Salvör
hefur unnið við Listahátíð allt frá
1976 við ýmis störf sem tengjast
rekstri hátíðarinnar. Fyrsta verk-
efni hins nýja framkvæmdastjóra
verður að stjórna kvikmyndahá-
tíð Listahátíðar sem haldin verð-
ur 18. til 26. maí í vor.
Framkvæmdastjórn Listahá-
tíðar skipa Hrafn Gunnlaugsson,
kvikmyndaleikstjóri, formaður
stjórnarinnar, Kristinn Hallsson,
söngvari, varaformfiður, Birgir
Sigurðsson, rithöfundur, Kristín
Jóhannesdóttir, kvikmyndaleik-
stjóri, og Stefán Baldursson,
leikhússtjóri.
Góðar stundir
með MS sam-
lokum -hvar
og hvenær___
sem er. I
Mjólkursamsalan
____________MENNING___________
Listmunahúsið
í deiglunni
Helgi Gíslason myndhöggvari opnar sýningu í dag
Þessi verk eru eiginlega öll úr
bronsi og unnin með gömlu
afsteypuaðferðinni en þó eru
þetta ekki afsteypur. Ég geri
skyssur og vaxið er alltaf
grunnefnið en ég vinn mynd-
irnar beint í efnið. Það er Helgi
Gíslason myndhöggvari sem
hefur orðið en í dag, laugar-
dag, opnar hann sýningu í
Myndlistarhúsinu og jafnframt
verður frumsýnd á mynd-
bandi ný heimildarmynd um
Helgasem ísmynd hefurgert.
Auk bronsmyndanna sýnir
Heigi nokkrar teikningar en við-
fangsefni hans er fyrst og fremst
mannslíkaminn. Það er tveggja
ára vinna sem liggur á bak við
þessa sýningu og þetta er stúdía í
anatómíu. Við spyrjum hann
hvers vegna hann vinni einkum í
brons.
- Þau eru að koma aftur þessi
gömlu efni, þetta er eins konar
bakslag við tækninni og gerviefn-
unum. Ég hef líka orðið var við
það að í listaháskólum er nú orð-
ið lögð meiri áhersla á klassískt
stúdíum og þá kemur efnið af
sjálfu sér.
- Er bronssteypan ekki mikið
fyrirtœki?
- Þetta er mjög fjárfrekt en ég
hef góða vinnustofu uppi í Selja-
hverfi. Við erum þar nokkrir
saman.
Helgi Gíslason er fæddur árið
1947. Hann stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskólann
1965-1969 og í Frjálsri myndlist-
ardeild 1969-1970. Frá 1971-1976
var hann við Valands konstskola í
Gautaborg. Helgi hefur áður
haldið tvær einkasýningar: f Nor-
ræna húsinu 1977 og á Kjarvals-
stöðum 1983. Einnig hefur hann
tekið þátt í fjölda samsýninga
heima og erlendis frá 1970. Hann
hlaut 6 mánaða starfslaun 1984.
Eins og áður sagði verður sýnd
nýgerð mynd sem heitir í
deiglunni um Helga Gíslason og
er hún tekin á „High-band
umatic“ hjá fyrirtækinu ísmynd
sf. en framleiðandi og dreifingar-
aðili er Listmunahúsið. Myndin
sýnir aðferð listamannsins við
gerð myndverka sinna og er tekin
bæði á vinnustofu hans og í
málmsteypunni þar sem steypan
fer fram.
Myndin er sú fyrsta í flokki
nokkurra fræðslu- og heimildar-
mynda sem ráðgert er að fram-
leiða á vegum Listmunahússins
og fjalla eiga um íslenska lista-
menn, líf þeirra, verk og aðferð-
ir.
Sýningin, sem er sölusýning, er
opin virka daga kl. 10-18 og um
helgar kl. 14-18. Lokað á mánu-
dögum. -GFr
Ljóðabók
eftir
Jón Fr.
Út er komin Ijóðabókin „Tveir
fuglarog langspil" eftir Jón
FriðrikArason.
Þetta er önnur ljóðabók Jóns
en sú fyrri heitir „Lífshvörf" og
kom út 1971.
í bókinni er 21 stutt ljóð, að
efni til kyrrlátar hugleiðingar um
lífið, ástina og þann heim sem við
búum í.
Jón er fæddur 1949 og ólst upp í
Reykjavík, en hefur undanfarin
10 ár búið meira og minna í
Barcelona á Spáni.
Bókin er prentuð í Prentsmiðj-
unni Hólum hf. og gefin út á
kostnað höfundar.
Hefurþú undanfarið tekið eftirþessum glæsilega bílá götunum?
Pað bættust 346 nýir Ford Escort bflar við bílaflota íslendinga
á siðastliðnu ári. Þetta er ekki óeðlileg þróun, því landsmenn hafa ávailt
verið fljótir að finna út hvar mest fæst fyrir peningana.
Nú bjóðum við 1985 árgerðina af Ford Escort og sem fyrr er
verð og búnaður í sérflokki.
Verð frá kr. 328.000
Ford Escort mest seldi bíll heims undanfarín 3 ár.
Söludeildin er opin: mánud. - föstud. 9-18 laugard. 13-17
SVEINN EGILSSON HF.
Skeifunni 17. Sími 685100.
PÁV