Þjóðviljinn - 17.02.1985, Page 14
Vinnuferð til Kúbu
sumarið 1985
Mánuður í nýjum heimi.
Lagt af stað héðan 28. júní og komið aftur 29. júlí.
Áætlaður kostnaður 35.000.-.
Umsóknarfrestur er til 10. mars.
Umsóknir sendist Vináttufélagi íslands og Kúbu,
pósth. 318, 121 Reykjavík.
Nánari upplýsingar í síma 20798.
V.Í.K.
Árshátíð Vináttufélags
íslands og Kúbu
verður að Hverfisgötu 105, efstu hæð,
laugardaginn 23. feb. n.k.
Fjölbreytt dagskrá í tali og tónum. Allar
veitingar. Húsið opnað kl. 21.
Aðgangseyrir kr. 500 með mat og kr. 200 án
matar.
V.Í.K.
ÚTBOÐ
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfar-
andi:
RARIK-85002: 19 kV Aflrofaskápar.
Opnunardagur: Miðvikudagur 10. apríl 1985, kl.
14:00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitu ríkis-
ins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir opnunartíma
og verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum þeim
bjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með
þriðjudegi 19. febrúar 1985 og kosta kr. 300,- hvert
eintak.
Reykjavík 15. febrúar 1985
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Auglýsið í Þjóðviljanum
/
ötsDor Ób skans
Miklir dýrðardagar eru nú á ís-
landi, amk. hér í Reykjavík og
nágrenni. Við vöknum upp á
morgnana við sólskin og hlýindi
ellegar þá milt regn sem minnir
helst á maí eða júlí. ísland kemur
okkur sífellt á óvart. Það er óút-
reiknanlegt.
A sunnudag var glampandi sól
og hæg svöl gola. Við hjónin fór-
um ásamt dætrum mínum
tveimur, Védísi og Úlfhildi,
suður á Alftanes til að njóta góða
veðursins. Flestir hafa sennilega
haldið í austurátt þennan dag,
upp til Bláfjalla eða austur á
Þingvöll en oft er leitað langt yfir
skammt. Við ákváðum að skoða
Skansinn sem er merkileg forn-
leif í landi forsetasetursins á
Bessastöðum. í nágrenni
Reykjavíkur er fjöldi merkra
sögustaða og margt forvitnilegt
að sjá en það er eins og fólk átti
sig ekki á því. Það þarf að fara
eitthvað lengra.
Við lögðum bflnum handan
forsetasetursins en þar var forseta
fáninn á hárri stöng til merkis
um að Vigdís væri heima. Og svo
héldum við ótrauð yfir þúfur, tún
og mýrar. Ekki var nokkra sálu
að sjá og við vorum ein í heimin-
um. Handan við Bessastaðatjörn
grillti í hól eða þústir. Það er
Skansinn.
Bessastaðatjörn var lögð ísi og
við gengum varlega út á hann.
ísinn virtist traustur og brátt fór-
um við að renna okkur fótskriðu
með gleðisköllum og ærslum.
Úlfhildur, sem er bara 6 ára, sett-
ist á hækjur sér og lét okkur Vé-
dísi draga sig á fleygiferð eftir ísn-
um. Okkur bar fljótt yfir og áður
en varði vorum við komin á hinn
merkilega Skans og settumst
undir húsveggi kotsins sem þar
var og létum sólina verma okkur.
Skansinn er gamalt virki sem
danskir valdsmenn létu hlaða
eftir Tyrkjaránið 1627. Þar voru
svo settar fallbyssur sem nú eru
löngu týndar. Enn munu þó vera
til gamlar fallbyssukúlur af
Skansinum. Seinna var svo reist
lítið kotbýli við Skansinn og bar
það nafn hans. Þar bjó sjálfur Óli
skans og Vala konan hans. I
minningu þeirra heiðurshjóna
sungum við hástöfum Óla skans.
A bakaleiðinni, þegar við vor-
um á leið yfir ísinn, kvað skyndi-
lega við hófatak. Við litum við og
sáum fagra sjón. Heill flokkur
reiðmanna spretti úr spori eftir
garði sem á sínum tíma var gerð-
ur til að loka Bessastaðatjörn frá
Seylunni svo að sjór rynni ekki
inn í hana. Gæðingana bar við
himin frá okkur séð og fótaburð-
ur þeirra var nettur svo að okkur
varð orða vant af hrifningu.
Hestamennirnir leiddu svo hest-
ana varlega niður á ísinn og
sprettu úr spori á svellinu. Dundi
í ísnum við hófatakið. Þeir stað-
næmdust hjá okkur og sögðust
vera að undirbúa sig undir þorr-
ablót þá um kvöldið. Hrossin
voru sveitt og fjörglampar í
augum þeirra. Fólkið var rjótt og
ánægt.
Svo dönsuðum við á svellinu og
hestarnir dönsuðu líka og landið
og við urðum eitt.
-Guðjón
ALÞÝÐUBANDAiAGK)
Kvennafyíkingin auglýsir
Konur! Mætum í morgunkaffi!
Alltaf heitt á könnunni í Flokksmiðstöð AB að Hverfisgötu 105 á
laugardagsmorgnum frá kl. 11 -14. Hittumst og spjöllum saman um
það sem okkur liggur á hjarta.
Miðstöð Kvennafylkingar AB
Kvennafylking AB
Konur, Konur
Fundur í Kvennafylkingu Alþýöubandalagsins
áfimmtudaginn 21. febrúar kl. 20.30 að Hverf-
isgötu 105.
Rannveig Traustadóttir heldur áfram að
fjalla um hugmyndafræði kvennafylkinga. Fjöl-
mennum
Miðstöð Kvennafylkingar AB Rannveig
AB Snæfellsnesi sunnan heida
Félagsfundur
verður haldinn sunnudaginn 17. febrúar kl.
21.00 að Hrossholti í Eyjahreppi. Dagskrá:
1) Bréf kjördæmisráðs AB um atvinnumál. 2)
Bjarnfríður Leósdóttir kemur á fundinn og
spjallar um verkalýðsmál. Heitt á könnunni.
Mætið vel og stundvíslega.
- Stjórnin.
Bæjarmálaráð Akranesi
Fundurmánudaginn 18. febrúarkl. 20.00. Dagskrá: Fjárhagsáætl-
un 1985. Kaffi á könnunni.
Stjórnin
Árshátíð Alþýðubandalagsins
á Akureyri
Árshátíð Alþýðubandalagsins á Akureyri verður haldin í
Húsi aldraðra á Akureyri laugardaginn 23. febrúar
næstkomandi.
★ Hátíðin hefst kl. 20.00 stundvíslega með borðhaldi.
★ Vönduð skemmtiskrá verður auglýst síðar í Þjóðviljanum
og/eða Norðurlandi.
★ Að loknu borðhaldi verður stiginn dans við undirleik Sig-
urðar Sigurðssonar og félaga.
Væntanlegir þátttakendur í hátíðahöldum þessum eru vin-
samlegast beðnir að láta skrá sig sem fyrst hjá Ragnheiði í
síma 23397 eða Óttari í síma 21264.
Alþýðubandalagið Akureyri
Fundur
verður haldinn í bæjarmálaráði nk. sunnudag 17. febrúar kl. 20.30.
Fundurinn verður í Lárusarhúsi. Rætt um drög að fjárhagsáætlun
Akureyrar. Mikilvægt að allir mæti.
Stjórnin
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins
Skákmót
Nú mæta allir jafnt ungir sem gamlir á febrúarskákmót Æskulýðs-
fylkingarinnar. Teflt verður þriðjudaginn 19. febrúarað Hverfisgötu
105, 3. hæð. Hefst taflið kl. 20.30. Kaffi og kökur á boðstólum.
Takið tafl og klukku með ef tök eru á.
Sósíalíski skókklúbburinn.
Þorlákshafnarbúar
Almennur fundur
um kjaramál og réttindi fisk-
verkunarfólks verður haldinn í
Félagsheimilinu Þorlákshöfn
sunnudaginn 17. febrúar kl.
15.00. Framsögumenn verða
þær Bjarnfríður Leósdóttir ný-
kjörinn formaður verkalýðs-
málaráðs Alþýðubandalags-
ins og Margrét Frímannsdóttir
varaþingmaður Alþýðu-
bandalagsins. Þær munu auk
þess svara fyrirspurnum.
Stjórnin
Margrét
14 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 10. febrúar 1985